Morgunblaðið - 11.02.1990, Side 25

Morgunblaðið - 11.02.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1990 25 ATVINNUA/ 1(^1 Y^IKir^AI? BB vHr BB BB^Bi Bfl^B \ v / v^/ L / / N/vJy/\/\ Skrifstofustarf Forritari Jónar hf., flutningaþjónusta, óskar eftir starfskrafti til starfa á skrifstofu fyrirtækisins. Viðkomandi þarf: ★ Að vera vanur vinnu með tölvum. ★ Að hafa kunnáttu/reynslu í WORD rit- vinnslukerfi. ★ Að hafa góða enskukunnáttu og helst kunnáttu í einu Norðurlandamáli. ★ Að hafa hresst og gott viðmót. ★ Að geta unnið sjálfstætt. Umsóknum ber að skila til Jóna hf. í póst- hólf 140, 222 Hafnarfjörður. FLUTNINGAÞJÓNUSTA Óskum að ráða tölvunarfræðing eða aðila með staðgóða kunnáttu í forritun. Viðkomandi þarf að geta forritað í TURBO PASCAL og æskileg er kunnátta í með- höndlun NOVELL netkerfa. Umsóknum eða upplýsingum um starf þetta verður ekki svarað í síma, en áhugasamir leggi inn ýtarlega umsókn, þar sem fram kemur menntun og fyrri störf, á auglýsinga- deild Mbl., merkta: „Forritari - 1402“ fyrir miðvikudaginn 14/2 1990. IK________________________________________________ TÖLVUVINNSLA 0G KERFISHÖNNUN HF FURUGERDI 5 TEl 9t«5«0 TEIEX »MlS • 108 REVKJAVMt • ICEIAND FLUGLEIDIR Flugmenn óskast Flugleiðir óska eftir að ráða flugmenn til starfa. Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði: 1. Hafa atvinnuflugmannsskírteiniu með blindflugsréttindum. 2. Hafa náð 21 árs aldri. 3. Hafa lokið stúdentsprófi. Skriflegar umsóknir er tilgreini menntun og flugreynslu soakast sendar starfsmanna- þjónustu félagsins á Reykjavíkurflugvelli fyrir 18. þ.m. Eldri umsóknir þarf að endurnýja með sama hætti fyrir 18. þ.m. Orðabók Háskólans óskar að ráða starfsmann við tölvuvinnslu, einkum við setningu, umbrot og aðra texta- vinnslu. Laun skv. kjarasamningum opin- berra starfsmanna. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður, Jörgen Pind, í síma 694435. Umsóknir, ásamt greinargerð um námsferil og fyrri störf skulu hafa borist Orðabók Há- skólans, Árnágarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík, fyrir 15. febrúar. Atvinnueflingarfélag Hafnarfjarðar auglýsir eftir starfsmanni í hálft starf. Um er að ræða ráðgjöf á öllum sviðum at- vinnurekstrar. Umsækjendur þurfa að hafa tækni- eða við- skiptamenntun. Umsóknir sendist fyrir 20. febrúar Atvinnueflingarfélag Hafnarfjarðar, pósthólf243, 222 Hafnarfirði. Sundþjálfari Sunddeild Aftureldingar í Mosfellsbæ vill ráða þjálfara til að æfa börn á aldrinum 7-12 ára fjórum sinnum í viku. Upplýsingar gefur Hákon í síma 666538. ÁLAFOSS Saumakonur Óskum eftir vönum saumakonum á sauma- stofu okkar í Mosfellsbæ. Vinnutími frá kl. 8.00-16.00. Nánari upplýsingar gefur starfsmannahald í síma 666300. Álafoss hf. Bókhaldsstörf Óskum að ráða starfskrafta til bókhalds og alhliða skrifstofustarfa. Góð bókhalds- og tölvuþekking nauðsynleg. Hálfsdagsstörf koma til greina. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, leggist inn á auglýs- ingadeild Morgunblaðsins fyrir 16. febrúar nk., merktar: „Bókhald - 7629.“ Reiknistofa bankanna óskar eftir að ráða sérfræðing (kerfisforrit- ara) í tæknideild reiknistofunnar. í starfinu felst uppsetning og viðhald tölvu- stjórnkerfa og mun framhaldsmenntun og þjálfun fara fram erlendis. Æskilegt er, að umsækjendur hafi háskóla- próf í tölvunarfræðum eða verkfræði og/eða umtalsverða reynslu við forritun. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi SÍB og bankanna. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk. Allar nánari upplýsingar um starfið veitir fram- kvæmdastjóri tæknisviðs Reiknistofunnar. Umsóknir berist á þar til gerðum eyðublöðum er fást hjá Reiknistofu bankanna, Kalkofns- vegi 1, 150 Reykjavík, sími (91)622444. Miklartekjur- sölustörf símleiðis Fyrirtæki sem býður landsþekktar og viður- kenndar vörur óskar að ráða nokkra sölu- menn til starfa. Starfið er fólgið í kynningu og sölu símleiðis. Tekjur af starfinu geta auðveldlega orðið umtalsverðar. Reynsla a1 sölustörfum er ekki nauðsynleg þar eð starfsmenn hljóta sérstaka þjálfun á vegum fyrirtækisins. Lágmarksaldur er 18 ár. Allar umsóknir verður farið með sem trúnað- armál. Upplýsingar í síma 626318 í dag frá kl. 14.00-22.00. RÍKISÚTVARPIÐ auglýsir eftir forstöðumanni Tölvudeildar Leitað er að starfsmanni með reynslu af stjórnun, skipulagningu, samningagerð og þekkingu á upplýsingatækni. Góð starfs- reynsla er tilskilin. Um er að ræða nýtt starf. Forstöðumaðurinn ber ábyrgð á rekstri tölvu- kerfa Ríkisútvarpsins og hönnun nýrra. Höf- uðáhersla er lögð á samþættingu verkefna og öryggi. Mikið þróunarstarf fer fram þegar á þessu ári. í Útvarpshúsinu er fyrir hendi vel útbúin tölvumiðstöð og tölvutengingar. Hugbúnað- ur er aðallega keyptur af undirverktökum og þeir valdir með útboðum þar sem við á. Hér býðst einstakt tækifæri til sjálfstæðra starfa, uppbyggingar upplýsingatækni og virkrar þátttöku í stefnumótun Ríkisútvarpsins í upp- lýsingamálum. Fjármálastjóri veitir upplýsingar um starfið. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmanna- stjóra Efstaleiti 1 og skal umsóknum skilað þangað eigi síðar en 26. þessa mánaðar. ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI Næringarráðgjafi Staða næringarráðgjafa í hálft starf er laus til umsóknar. Um er að ræða nýja stöðu, sem krefst uppbyggingar og skipulagningar. Umsóknarfrestur er til 1. mars 1990. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Marteinsson, hjúkrunarforstjóri, í síma 604311. Framkvæmdastjóri Vel rekið meðalstórt framleiðslufyrirtæki í borginni vill ráða framkvæmdastjóra til starfa. Starfið er laust eftir 2-3 mánuði. Leitað er að viðskiptafræðingi eða aðila með sambærilega menntun, ásamt starfsreynslu. Viðkomandi þarf að vera „markaðssinnaður" og opinn fyrir tæknistörfum. Aldur 30-40 ára. Nánari upplýsingar eru veittar í trúnaði á skrifstofu okkar. Laun samningsatriði. GiiðntTónsson RÁÐCJÓF & RÁÐN I NCARMÓN USTA TIARNARGÖTU 14,101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22 Norræni Genbankinn Forstjóri Staða forstjóra við Norræna Genbankann, NGB, er laus til umsóknar. NGB starfar á vegum Norðurlandaráðs og er staðsettur í Alnarp í Svíþjóð. Stofnunin ber ábyrgð á og annast varðveislu á erfðaefni norrænna nytjaplantna og samræmir starfsemi Norður- landanna á því sviði. Kjör: Laun samkvæmt launasamningi opin- berra starfsrnanna í Svíþjóð (chefslöneavtal) auk uppbótar sé ráðinn forstjóri frá öðru landi en Svíþjóð. Ráðningartími er fjögur ár með möguleika á framlengingu til annarra fjögurra ára að þeim tíma loknum. Hæfniskröfur: Æðri menntun í landbúnað- arvísindum eða hliðstæðum líffræðifögum. Reynsla í stjórnun. Til tekna telst þekking á sviði plöntuerfðafræði og jarðræktar auk reynslu á sviði plöntukynbóta, genbankastarf- semi, gagnameðfer.ð og alþjóðastarfsemi. Þess er óskað að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir, ásamt stuðningsgögnum, skulu sendast Stjórn NGB, Box 41, S-23053 Alnarp, Svíþjóð, fyrir 28/2 1990. Upplýsingar um stöðuna veitir Þorsteinn Tómasson, forstjóri Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, sími 91-82230, og dr. Stig Blixt, NGB, sími 040-415000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.