Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.02.1990, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAD/SMA SUNNUDAGtfR 'l 1. FEJBRÚAR 1990 ATVINNUAUGl YSINGAR Bifvélavirkja eða menn vana viðgerðum stórra bifreiða og bifreiðastjóra með réttindi til aksturs strætisvagna vantar okkur nú þegar. ísarn hf. - Landleiðir hf. Skógarhlíð 10, símar20720 og 13792. Við erum á fullu Viit þú vera með? ★ Vilt þú vinna þegar aðrir eiga frí? ★ Vilt þú ráða launum þínum sjálf(ur)? ★ Ert þú drífandi og hefur góðan stuðning að heiman? ★ Ert þú jákvæð(ur) og getur unnið í hóp- vinnu? ★ Hefur þú bíl og síma? Við bjóðum: ★ Frítt sölunámskeið. ★ Góða framtíðarmöguleika. Ef þetta vekur áhuga þinn, hringdu þá í síma 91-653016 og fáðu viðtalstíma hjá Hilmari Jacobsen mánudag og þriðjudag frá kl. 09.00-14.00. ÐAGV18T BABWA Fóstrur, þroska- þjálfar eða annað uppeldismenntað starfsfólk! Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs- fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum. Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir hádegi. Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar barna, sími 27277: BREIÐHOLT Suðurborg, Suðurhólum, s. 73023. GRAFARVOGUR Foldaborg Frostafold 33, s. 673138. Lausar stöður í íslandsbanka íslandsbanki auglýsir lausar til umsóknar eftirfarandi stöður: 1. Stöðu útibússtjóra á Akureyri. 2. Stöðu útibússtjóra á Húsavík. 3. Stöðu útibússtjóra í Keflavík. Hlutverk útibússtjóra er að hafa yfirumsjón með rekstri útibúsins, markaðsuppbyggingu þess, arðsemi, inn- og útlánum og fleiru er snertir rekstur þess. Starfið felur þannig í sér náin samskipi við viðskiptavini útibúsins og starfsfólk stoð- deilda bankans. Umsóknarfrestur er til 26. febrúar nk. Umsóknir skulu stílaðar á bankaráð íslands- banka og sendar forstöðumanni starfs- mannahalds, Guðmundi Eiríkssyni, Ármúla 7, Reykjavík, sem gefur allar nánari upplýs- ingar í síma 68 11 75. ÍSLANDSBANKl Framkvæmdastjóri Frjálsíþróttasamband íslands auglýsir eftir framkvæmdastjóra til að sjá um daglegan rekstur skrifstofu FRÍ, innlend og erlend sam- skipti, fjármál og fjáröflun, skipulagningu mótahalds og tölvuvinnslu. Framkvæmda- stjóri situr fundi stjórnar og framkvæmda- stjórnar FRÍ. Tungumálakunnátta, tölvu- reynsla og nokkur þekking á frjálsum íþrótt- um nauðsynleg. Góð laun í boði fyrir réttan aðila. Umsóknum skal skila á skrifstofu FRÍ í íþróttamiðstöðinni, Laugardal, fyrir 20. feb., en þar eru einnig veittar nánari upplýsingar um starfið. Lyfjakynnir Óskum að ráða lyfjakynni til starfa í fyrirtæki okkar til kynningar- og sölustarfa á lyfjurn. Um er að ræða fullt starf. Háskólapróf naúð- synlegt. Upplýsingar veitir Gunnar y^Guðmundsson, yfirlyfjafræðingur, milli kL 16.00 og 17.00 daglega. Umsóknareyðuþlöð liggja frammi á skrifstofu okkar, Síðumúla 32. Umsókn skilist fyrir 22. febrúar 1990. Stefán Thorarensen hf., Síðumúla 32, 108 Reykjavík. f LANDSPITALINN Barna- og unglingageðdeild Sérfræðingur Afleysingastaða sérfræðings (75%) í barna- og unglingageðlækningum er laus til um- sóknar. Umsækjandi þarf að hafa sérfræðiviðurkenn- ingu í barna- og unglingageðlækningum. Staðan veitist frá 1. apríl 1990. Nánari upplýsingar gefur Páll Ásgeirsson, yfirlæknir. Umsóknir, með upplýsingum um nám, fyrri störf og rannsóknir, sendist til stjórnarnefnd- ar Ríkisspítala, skrifstofu Ríkisspítala, Rauð- arárstíg 31, fyrir 1. mars nk. Reykjavík, 11. febrúar 1990. (WANG) Tölvudeild Óskum að ráða tæknimenntaðan mann til starfa hjá tölvudeild Heimilistækja hf. Starfssvið: Þjónusta við viðskiptavini, upp- setning, viðhald og viðgerðir á tölvum og tölvubúnaði. Við leitum að manni með haldgóða starfs- reynslu, þekkingu á PC tölvum, netkerfum, vélbúnaði og tengingum. Nánari upplýsingar veitir Pórir Þorvarðarson. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðublöð- um, sem liggja frammi á skrifstofu okkar, merktar: „Tölvudeild 68“, fyrir 17. febrúar nk. Hagvangur h if Grensásvegi 13 Reykjavík [ Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir BORGARSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar Ný staða hjúkrunarfræðings á lyflækninga- deild A-7 er laus til umsóknar. Á deildinni fer fram hjúkrun sjúklinga með smitsjúkdóma, blóðsjúkdóma, lungnasjúkdóma o.fl. Nánari upplýsingar veita Margrét Björnsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 696354, og Erna Einarsdóttir, hjúkrunarframkvæmda- stjóri starfsmannaþjónustu, í síma 696356. Félagsráðgjafar Félagsráðgjafar óskast á lyflækningadeild Borgarspítalans. Upplýsingar gefur Jóna Eggertsdóttir; yfirfélagsráðgjafi, sími 696680. Kjötborð Viljum ráða nú þegar kjötiðnaðarmann eða mann vanan kjötskurði til starfa í kjötborði matvöruverslunar Hagkaups í Kringlunni. Upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri matvöruverslunar Hagkaups í Kringlunni (ekki í síma). HAGKAUP FÉLAGSMÁLASTOFNUN reykjávíkurrorgar Dvalarheimili aldraðra, Seljahlíð Laus er staða hjúkrunardeildarstjóra við vistdeild Seljahlíðar. Um er að ræða 100% starf, sem fólgið er í daglegum rekstri og stjórnun vistdeildar. Einnig er laus staða sjúkraþjálfara, starfshlutfall eftir samkomu- lagi. Upplýsingar gefur María Gísladóttir, forstöðumaður, í síma 73633 frá kl. 11.00- 12.00 daglega. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Póst- hússtræti 9, 5. hæð, á sérstökum eyðublöð- um, sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 23. febrúar næstkomandi. LANDSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar Nú eru lausar stöður á tveimur lyflækninga- deildum. Á lyflækningadeild 11-A, sem er 19 rúma almenn lyfjadeild með sérstaka áherslu á meltinga- og smitsjúkdóma. Á lyf- lækningadeild 14-E, sem er hjartadeild. Einnig eru lausar stöður á taugasjúkdóma- deild Landspítalans 32-A, sem er sérhæfð deild. Á öllum þessum deildum eru miklir möguleikar á að auka færni sína í hjúkrun og taka þátt í framförum tengdri henni. Skipulögð aðlögun í boði. Nánari upplýsingar um deildirnar gefa Laufey Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarframkvæmda- stjóri, í símum 601290 og 601300 og hjúk- runardeildarstjórar deildanna 11-A, sími 601230, 14-E , sími 601250 og á 32-A, sími 601650. Reykjavík, 11. febrúar 1990.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.