Morgunblaðið - 11.02.1990, Page 35

Morgunblaðið - 11.02.1990, Page 35
35 * MÓkÍGL’ftólADlb fólk í FRmrnwub&m^ .'bÉBRÚÁR tóðW FORSPA Morgunblaðið/Árni Sæberg Spáð í hnerra Ljósmyndarar Morgunblaðsins hafa setið um stjórnmála mennina í þingsölum og stjórnar- ráðinu að undanförnu sem endra- nær og meðfylgjandi myndadúett náðist af alþýðubandalagsforkólf- unum Ólafi formanni og Steingrími varaformanni. Eitt- hvað hafði slegið að þeim síðar- nefnda og varð hann að grípa fyrir vit sér til að hnerrinn þeytt- ist ekki um víða völlu. Guð hjálpi þér, fjandans kvef er þetta, gæti formaðurinn verið að segja. Á hinni myndinni dregur hins vegar til tíðinda er Steingrímur hvessir augun á „innihald“ lófa síns eftir hnerrann, rýnir af þeirri innsýn og ákveðni sem einkenndi forspáa kappa fomaldar sem sáu hvað verða vildi með því að skoða allt mögulegt, til dæmis iður úr fískum eða fuglum. „Ég spái stór- sigri Alþýðubandalagsins í næstu kosningum,“ segir Steingrímur, en Ólafur svarar að bragði, já, ég vissi það, ég vissi það ... Morgunblaðið/RAX Þrjár af fímm, Ásdís, Margrét og Þórhildur. Fyrir framan þær liggja á borði mörg erlend blöð af sama tpga og blaðið þeirra. AUGIASINGAR Gert út á nýj- an og ónýttan auglýsingamarkað ingar sér að kostnaðarlausu, en fyrirtæki verða hins vegar að greiða óákveðna upphæð fyrir. Fyrst um sinn er dreifíngin á Stór-Reykjavík- ursvæðinu og blaðið er selt á vægu verði. Útgefendur segja viðtökumar hafa verið vonum framar, en Morg- unblaðið ræddi málið aðeins við einn útgefenda, Margréti Sigurðardótt- ur. „Viðbrögð hafa verið skjótari og meiri en við áttum von á, síminn hefur mikið hringt og ef fram held- ur sem horfír er ekki hægt annað en að vera bjartsýnn," sagði Mar- grét og bætti við að frumhugmynd- in að koma blaðinu út vikulega væri ekki út í bláinn, efni næsta blaðs væri þegar farið að hlaðast upp og talsvert væri hringt utan af landi. „í fyrstu ætluðum við bara að vera á Reykjavíkursvæðinu, en nú verðum við að endurskoða það og jafnvel að fara að huga að því að senda blaðið í áskrift um allt land. Það fæst á ísafirði svona til reynslu,“ sagði Margrét einnig um fyrsta tölublaðið sem kom út í vik- unni sem leið. Morgunblaðið innti Margréti eftir hvort þær stöllur væru að huga að samkeppni um minni auglýsingar við blöðin, en einkum Morgunblaðið og DV birta jafnan margt slíkra auglýsinga, DV í formi smáauglýs- inga, en Morgunblaðið í formi rað- auglýsinga. Hún svaraði: „Við erum ekki haldnar stórmennskubrjálæði og erum ekki að fara í auglýs- ingastríð við risana. Sem betur fer erum við jarðbundnar og gerum út á önnur mið. Ég hef dvalið síðustu árin í Þýskalandi og tvö síðustu árin þar vann ég á tæknideild tíma- rits. Erlendis eru svona blöð á hverju strái og standa fyrir sínu. Efni þeirra er ekkert annað en aug- lýsingar og kannanir hafa gefið til kynna að auglýsingar þær sem þessi blöð birta séu hrein viðbót við það sem birtist í dagblöðum og tímaritum, það sé allt annað fólk sem auglýsi í svona blöðum, sém dæmi gæti ég nefnt námsmenn. Nú ætlum við að láta á það reyna hvort grundvöllur sé fyrir svona löguðu hér á landi og þótt kannski sé ótímabært að segja eitthvað þar um, þá endurtek ég að fyrstu við- brögð lofa sannarlega góðu,“ sagði Margrét. Fimm konur, sem stofnað hafa hlutafélagið Stelpur hf., hafa ráðist í nýstárlega útgáfustarfsemi. Blaðið „Notað og nýtt“ hefur litið dagsins ljós, 8 síður í A4-broti, prentað á ódýran pappír með engum lit. Þetta hljómar kannski ekki krassandi, en þá er spumingin hvert innihald blaðsins er. Auglýsingar og aftur auglýsingar. Þarna geta einstaklingar fengið birtar auglýs- TRUNAÐARBREF Nýr sendiherra í Moskvu Um áramótin var skipt um sendiherra íslands í Moskvu. Tóm as Á. Tómasson lét af störfum þar og hefur nú verið skipaður sendiherra í afvopnunarmálum. Ólafur Egilsson, sem síðast var sendiherra í Bretlandi, tók við af Tómasi. Á þessari mynd sést, þegar Ólafur Egilsson afhendir A.I. Lukjanov, varaforseta Sovétríkjanna, trúnaðarbréf sitt hinn 17. janúar sl. Fór athöfnin fram í Kreml. Mikhaíl Gorbatsjov er forseti Sovétríkjanna eins og kunnugt er. Hann tekur þó að jafnaði ekki við trúnaðarbréfum erlendra sendimanna heldur kemur það verkefni í hlut Lukjanovs, sem sagður er handgenginn Gorbatsjov, enda vom þeir skólabræður á sínum tíma. Á bakvið Ólaf er starfandi prótokollstjóri í sovéska utanríkisráðuneytiny, A.F. Borunkov. Þegar menn skoðuðu þessa mynd rifjaðist upp fyrir þeim sú saga, að einhver sovéskra ráðamanna hefði haft á orði, að íslendingar væru með hávöxnustu mönnum, að minnsta kosti ef dæma mætti eftir sendimönnum þeirra í Moskvu. Minntist hann þá þeirra Péturs Benediktssonar, Péturs Thorsteinssonar, Kristins Guðmundssonar og Ingva S. Ingvasonar, sem allir höfðu verið við íslenska sendiráðið í sovésku höfuðborginni. KARLAR „Strauja ekki“ Gerðu ráð fyrir því versta, gleðstu yfir hinu minnsta og straujaðu alltaf á laugardögum." Þetta voru heilræði reyndrar vin- konu minnar þegar ég gifti mig. Nú er laugar- dagurinn liðinn. Stelpur mínar, ekki hneykslast. Sýnið að þið eruð vinir í raun og standið með kyn- systur ykkar. Það ,. . , hafa nefnilega lið- eftir Jomnu jö 4 laugardagar Benediktsdóttur 0g ekkert hefur verið straujað. Ég var nefnilega í burtu að heiman og . . . Jæja, hann hafði svo mikið að gera og sonur minn telur að „menn- ir eigi ekki að strauja", ekki frekar en að skúra gólf. Það hlýtur að vera rétt, varla er karlremban meðfædd blessuðu barninu. Stelpur, þið eigið bara að sjá um bunkann. Jafnvel jólasængurfötin enn óstraujuð, dúkarnir og svo skyrturnar. Móðir mín fengi slag ef hún sæi „tauið". Stundum held ég að hún hafi veikst og dáið vegna þess hvað hún straujaði mikið. Hún var bókstaflega alltaf með strau- boltann i hendinni. Hver veit, það er vist hægt að deyja úr leiðindum. Hún bað aldrei neinn að strauja fyrir sig. Húsmæður eiga að strauja er skrifað stórum stöfum í sálartet- rið mitt. Þið vorkennið mér ekki! Þið sú- perhúsmæðurnar sem strauið áður en aðrir vakna á morgnana, þannig að bóndinn losnar við að sjá strau- borðið eða horfa á óstraujaðar skyr- turnar sínár. Mér er sagt að sumir menn straui skyrturriar sínar sjálfir. Mig langar, þegar ég sé Sigmar B. Hauksson, að taka hann í fang- ið, að faðma hann og segja „Sigmar minn, ég skal strauja fyrir þig skyrtutetrið og hálsklútinn." „Ég veit að Helga hefur öðrum hnöppum að hneppa." Hann er eitthvað svo aumkunar- verður, svo bældur, en þeir eru það reyndar allir þessir kvenrembueig- inmenn. Nú verð ég að byija. Hafði ákveð- ið að klára að lesa ísbjörgu Ljón fyrst og svo ræðst ég á bunkann. Tengdamamma kemur í heimsókn í vor eins gott að byija. , ísbjörg er rosaleg, ég losna ekki við hana í huganum hvernig sem ég reyni. Skeytastíllinn og lýsingar- orðin gera þessa konu að Jóhönnu af Örk og skáldið eilíft. Hvað er svo verið að skrifa um karla eða konur eða eitthvað sem eru smámunir ef Ssbjörg er eða hefur verið til. Auð- vitað er hún til, ég var að lesa játn- ingu hennar. Raunveruleikinn er hins vegar; ég heiti Jónína og ég er Hrútur og ég verð að strauja. (Getur verið að Sigmar sé Hrútur? Best að spyija Ágústu Johnson, hún er með stjör- numerkin á hreinu.) En af hveiju strauja „mennirnir ekki“? Sama forvitnin i mér, hvað kemur mér það svo sem við? Ég er bara að reyna að losna við verkið og gerast þjónn letinnar. Þetta getur ekki verið neitt rétt- indamál? Nei, varla. Ég þekki bara; einn ‘mann sem straujar, mág minn, séra Gunnar, hann er meira að segja glaður þegar hann strauj- Hann hefur sennilega fengið köllun. Nú getur hann sett sig í spor úttaugaðra kvenna sem koma til hans í viðtal; yfirstraujaður. Hann getur þá kennt þeim fljótlfega aðerð við dúka og skyrtur. Þetta endalausa rugl með brotin, inn og út og svo á vixl er aðferð ttl að halda konunni sem lengst við strauborðið. Bara þakklát ef dúkur- inn er sæmilega sléttur. Hvaða karl fann annars upp straujámið? Hann hefur örugglega ætlað sér það öðmm tilgangi en að slíta út eigin- konunni. Getur verið að karlar sjái sér hag í útslitnum eiginkonum? Stelpur, ég kláraði þetta allt. Tók tíma. Hugsaði um ísbjörgu. Hlust- aði á Cohen; „They sentenced me to twenty years of boredom . . ." Verst að ég er Hrútur en ekki Naut. Séra Gunnar er Hrútur og hann straujar. Karlkyns Naut strauja víst ekki. En hvað er svosem betra en gott Naut . . .

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.