Morgunblaðið - 16.02.1990, Page 1

Morgunblaðið - 16.02.1990, Page 1
56 SIÐUR B/C 39. tbl. 78. árg.__________________________________FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins * Atta ár frá Falklandseyjastríði: Bretar o g Argen- tímimenn sættast London. Reuter. BRETAR og- Argentínumenn samþykktu í gær að taka aftur upp fullt stjórnmálasamband og bundu um leið enda á ósætti þjóðanna frá því í Falklandseyjastríðinu árið 1982. I viðræðunum, sem fram fóru á Madrid á Spáni, var einnig ákveðið að leggja til hliðar 170 ára gamla kröfu Argentínumanna um yfirráð yfir eyjunum, sem þeir neftia Malvinas. „Við getum nú endurnýjað þau ánægjulegu samskipti, sem voru með ríkjunum áður fyrr,“ sagði Sir Crispin Tickell, sendiherra Breta hjá Sameinuðu þjóðunum, á fréttamannafundi í gær og arg- entínski stjórnarerindrekinn Lucio Garcia del Solar tók undir það með honum. Viðræðurnar stóðu í tvo daga og það reið baggamuninn þegar Bretar samþykktu að opna 150 mílna landhelgina umhverfis Falk- landseyjar fyrir argentínskum skipum eftir 1. mars nk. Munu Sænska ríkisstjórn- in er fallin: Leitar stuðn- ings við nýj- ar tillögur Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttarit- ara Morgunblaðsins. skipum eftir 1. mars nk. Munu ríkin bæði hafa eftirlit með veiðun- um en Falklandseyjamiðin eru ein- hver þau auðugustu í heimi. Þá munu herir beggja landanna skiptast á upplýsingum um heræf- ingar og annan viðbúnað á þessum slóðum og ættingjum þeirra Arg- entínumanna, sem féllu á Falk- landseyjum, verður leyft að vitja grafanna þar. Argentínski herinn tók Falk- landseyjar herskildi 1982 en Bret- ar endurheimtu þær eftir 10 vikna blóðugt stríð. Urðu þau úrslit til að styrkja Margaret Thatcher, for- sætisráðherra Bretlands, í sessi en hrekja aftur burt herstjórnina í Argentínu. Argentínumenn gera enn tilkall til eyjanna en Carlos Menem for- seti segir, að best sé að vinna að því máli eftir löglegum leiðum. íbúar Falklandseyja eiga flestir ættir sínar að rekja til Bretlands og líta á sig sem breska þegna. Reuter Bush íKólombíu George Bush Bandaríkjaforseti kom til borgarinnar Cartagena í Kólombíu í gær til viðræðna við leiðtoga Bólivíu, Perú og Kólombíu um samræmdar aðgerðir gegn eiturlyfjavandanum. Var viðbúnaður hers og lögreglu mikill vegna fundarins enda eru glæpaflokkarnir öflug- ir í þessum uppsprettulöndum kókaínsins. Myndin er af Bush við kom- una til Kólombíu en hann heilsaði landi og þjóð með því að hefja hendur í sólarátt. Rúmenía: Ráðherrar bornir þung- um sökum Búkarest. Reuter. MIHAI Ghitac, innanríkisráð- herra Rúmeníu, bauðst í gær til að hafa fúllt samstarf við neftid- ina, sem rannsakar aðild ein- stakra manna að ógnarsljórninni fyrrverandi. Hafa ýmsir háttsett- ir herforingjar sakað hann um að hafa skipað fyrir um árás á almenning í borginni Timisoara þar sem byltingin hófst. í gær og í fyrradag efndu her- menn til mótmæla úti fyrir utanrík- isráðuneytinu þar sem Þjóðarráðið er til húsa og sökuðu Ghitac, sem er herforingi að nafnbót, og Nicolae Militaru varnarmálaráðherra um að hafa verið skósveina einræðis- herrans Nicolaes Ceausesc.us. „Ef herinn hefði hlýtt skipuninni hefði Timisoara verið jöfnuð við jörðu,“ sagði Ion Chiranescu, majór í hern- um, í rúmenska sjónvarpinu í gær. Laszlo Tökes, presturinn, sem átti þátt í að kveikja byltinguna . gegn Ceausescu, sagði í gær á blaðamannafundi í Búdapest, að seinlega gengi að koma á lýðræðis- legum umbótum í Rúmeníu. Sagði hann, að hinn illi arfur einræðisins hvíldi eins og mara á þjóðinni og hvatti vestræn ríki til að rétta henni hjálparhönd. Sjá „Áttaði mig . . . “ á miðopnu. Þýsku ríkin: Kohl segir efiiahagslega sam- einingu vera á næstu grösum Bonn. Reuter. SAMEINING Þýskalands er nálægari en nokkru sinni fyrr og sú stjórn, sem tekur við að loknum kosningunum í Austur-Þýskalandi, mun krefjast þess, að af henni verði eins fljótt og auðið er. Kom þetta fram í þingræðu, sem Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýska- lands, flutti í gær en þá reyndi hann að sefa ótta Austur-Þjóðverja við, að sparifé almennings yrði að engu andspænis ofurvaldi vestur- þýska marksins. Talsmaður austur-þýsku stjórnarinnar segir hins vegar, að því fari fjarri, að efhahagsleg sameining ríkjanna sé á næstu grösum. Reuter Umræðurnar um efnahagslegan samruna þýsku ríkjanna hafa skotið austur-þýskum sparifjáreigendum skelk í bringu enda óttast þeir, að inneignir í austur-þýskum mörkum hverfi í skuggann af stóra bróður, vestur-þýska markinu. Af þessuin sökum er inikill fjárflótti í austur-þýsku bönkunuin og reynir hver sem betur getur að festa féð í einhverjum varanlegri verðmætum. INGVAR Carlsson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, sagði af sér í gær í kjölfar ósigurs á þingi um efhahagsmálatillögur ríkisstjórnarinnar. Kemur nú til kasta þingforseta að fela einhverjum flokksleiðtogan- um að mynda stjórn og boða til kosninga takist það ekki. Stjómar- andstaðan var einhuga í and- stöðunni við efnahagsmál- atillögumar eða neyðarúr- ræðin eins og jafnaðarmenn kalla þær en þær fólu meðal annars í sér launastöðvun í tvö ár. Vom tillögurnar felldar með 190 atkvæðum gegn 153 og hvöttu þingmenn Hægriflokksins og Þjóðarflokksins til að boðað yrði til nýrra kosninga. Ingvar Carlsson afhenti Thage G. Peterson, forseta þingsins, lausnarbeiðnina fyrir sína hönd og stjómarinnar en hann bað aftur Carlsson að sitja áfram þar til ný stjórn tæki við. Majvi Wi- berg, talsmaður þingsins, sagði í gær, að Peterson myndi nú eiga viðræður við leiðtoga flokkanna og afhenda einhvetjum þeirra umboð til stjórnarmyndunar. Ríkisstjórn jafnaðarmanna er raunar þegar búin að setja saman nýjar efnahagsmálatilllögur, sem hún vonast til, að falli þingheimi betur í geð, en í gær var ekki vitað hvort hún sæktist eftir ákveðnum samstarfsflokki. „Við höfum aldrei verið svo nærri því að ná takmarkinu — frjálsu, sameinuðu Þýskalandi," sagði Kohl og Hans-Dietrich Genscher utanrík- isráðherra sagði, að viðræður ríkjanna um sameiningu hæfust innan skamms, jafnvel áður en kos- ið verður í Austur-Þýskalandi 18. mars nk. Hans Modrow, forsætisráðherra Austur-Þýskalands, fór frá Bonn á miðvikudag eftir að hafa átt við- ræður við vestur-þýsku stjórnina og var fremur fátt um kveðjur. Var ástæðan sú, að Bonn-stjórnin vildi bíða eftir efnahagsumbótum í Aust- ur-Þýskalandi áður en hún legði fram 15 milljarða marka sem „bróð- urlega aðstoð“. Wolfgang Meyer, talsmaður austur-þýsku stjórnar- innar, sagði svo í gær, að hröð sam- eining ríkjanna gæti haft skelfileg- ar afleiðingar í för með sér fyrir Austur-Þýskaland og alla Evrópu. Kohl bar lof á Míkhaíl Gorb- atsjov, forseta Sovétríkjanna, og aðildarríki Atlantshafsbandalagsins fy.rir stuðning þeirra við sameiningu Þýskalands en stefnt er að því, að þýsku ríkin samþykki fyrst samein- inguna og henni síðan hrint í fram- kvæmd í samráði við fjórveldin, Bretland, Frakkland, Bandaríkin og S'ovétríkin. í þingræðunni sakaði Kohl vestur-þýska jafnaðarmenn um að hafa haft of vinsamleg sam- skipti við austur-þýska kommúnista á sínum tíma og svöruðu þeir fyrir sig með því að kalla fram í fyrir honum hvað eftir annað. Austur-þýskur almenningur ótt- ast mjög, að efnahagssameiningin geri sparifé og eftirlaun í austur- þýskum mörkum að engu og svipti hann öðrum félagslegum réttindum en Kohl lagði á það áherslu í ræð- unni, að „markaðskerfi og félags- legt öryggi verða ekki aðskilin".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.