Morgunblaðið - 16.02.1990, Page 24

Morgunblaðið - 16.02.1990, Page 24
,24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1990 Dalvík: A-flokkarnir sam- einast um framboð Stefiit að formlegri stofiiun nýs félags um aðra helgi ÁKVEÐIÐ hefur verlð að hvorki Alþýðuflokkur né Alþýðubandalag bjóði fram lista til bæjarstjómarkosninganna á Dalvík í vor, en á fiindi sem haldinn var á miðvikudag var ákveðið að fólk úr röðum þessara flokka myndi með sér eins konar jafnaðarmannafélag og er stefiit að . formlegri stofnun þess um aðra helgi. Halldór Guðmundsson, einn þeirra málefnalegan þroska og samstöðu sem að stofnun félagsins stendur, sagði að ákveðið hefði verið á fundin- um að þessir aðilar tækju höndum saman og mynduðu nýtt afl, sem hefði það að markmiði að vinna sam- an að stofnun jafnaðarmannafélags. Það félag myndi síðan bjóða fram lista til bæjarstjómarkosninganna í vor. Á fundinum var ákveðið að stofna félagið um aðra helgi. „Við köllum þetta dalvísku að- ferðina, en með henni viljum við sýna Grenivík: Tveir fluttir á FSA vegna gruns um eitrun TVEIR starfsmenn Vélsmiðjunnar Víkur á Grenivík voru fluttir með sjúkrabifreið á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri í fyrrakvöld, en talið var að þeir hefðu fengið zink- eitrun. Mennimir höfðu verið að vinna um borð í Sjöfn ÞH við rafsuðu og skurð og urðu þeir báðir fárveikir um kvöldið. Voru þeir því fluttir með sjúkrabíl á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, þar sem talið var að þeir hefðu fengið zinkeitmn. Líðan mann- anna var betri í gærmorgun. um að vinna sameiginlega að ákveðnu markmiði, sem er framboð til bæjarstjómarkosninga," sagði Halldór. Á fundinum á miðvikudag var skipað í nokkrar nefndir sem vinna munu að undirbúningi þessa máls og sagði Halldór að reynt yrði að hraða þeim málum sem kostur væri. „Við vonum að þetta nýja afl muni ekki bara verða til eitt kjörtíma- bil, heldur að það muni verða til um ókomna framtíð," sagði Halldór. Hann bætti við að enn sem komið er væm ekki fleiri en Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag inni í myndinni, en sagði hið nýja félag öllum opið. Fyrir síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar á Dalvík bauð Alþýðuflokkur ekki fram lista, en Alþýðubandalag og aðrir vinstrimenn buðu fram lista sem fékk tvo fulltrúa kjöma. Morgunblaðið/Rúnar Þór' Snjóflóð féll skammtfrá bænum Fagrabæ Snjóflóð féll á veginn skammt sunnan við bæinn Fagrabæ, sem er utan við Víkurhólana svokölluðu á Svalbarðsströnd, í fyrrinótt. Flóðið var um 80 metra breitt og um einn metri á dýpt og hefur það fallið stutt ofan úr fjallinu. Hjá vegaeftirlitinu fengust þær upplýsingar að flóðið hefur verið laust í sér og gekk vel að ráða við það. Hefíll fór á vettvang í gærmorgun og var vegurinn opnaður á ný fyrir hádegið. Öxna- dalsheiði var orðin ófær síðdegis í gær, en aðrir þjóðvegir voru flestir færir í nágrenni Akureyrar. Fyrirlesari frá Kanada í Háskól- anum á Akureyri DR. JAMES Anderson frá Háskól- anum í Regina í Kanada flytur fyrirlestur á vegum Háskólans á Akureyri á morgun, laugardaginn 17. febrúar, og hefst hann kl. 14.00. Fyrirlesturinn nefnist stjórnunar- hlutverk sveitarfélaga í Kanada og á íslandi á sviði almennrar þjónustu og heilbrigðis. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er hann haldinn í stofu 24 í húsnæði skólans við Þórunnarstræti. Fimm milljóna niðurskurður á framlögum til Háskólans: ■—> Þegar búið að þrælskera niður allt sem hægt er og ekki unnt að skera meira - segir Haraldur Bessason rektor Háskólans á Akureyri í niðurskurðartillögum ríkisstjórnarinnar er lagt til að framlög til Háskólans á Akureyri verði lækkuð um 5 milljónir, úr 20 miHjón- um í 15. „Mér skilst að öxinni sé beint að sjávarútvegsdeildinni og að taka eigi þetta fé af sérstökum stofhkostnaðarlið, sem var upp á 20 milljónir, og að sá liður verði skorinn niður í 15 milljónir, en ég hef enn ekki fengið neitt um þetta að vita, sem er afar óheppi- legt,“ sagði Haraldur Bessason rektor Háskólans á Akureyri. Haraldur Bessason sagði að mið- að við stærð skólans væru 5 millj- ónir há upphæð og nú þegar hefðu framlög til skólans verið lækkuð meira en sæmilegt væri. „Við héld- um mikla hátíð við skólann þegar starfsemi sjávarútvegsdeildar hóf störf og þá komu hingað ráðherrar og þingmenn og orð voru látin falla um stuðning við deildina. Minn yfír- maður, menntamálaráðherra, sagði við þetta tækifæri að fjölmiðlar hefðu verið fullir svartsýni um að deildin færi af stað, en við skyldum aldrei trúa því sem í fjölmiðlum stæði. Þessum orðum ráðherra vil ég trúa. Ráðherrar og þingmenn fögnuðu þessum áfanga með okkur og ég vil ekki trúa því að nú um mánuði síðar sé ætlunin að rífa grunninn undan sjávarútvegsdeild- inni,“ sagði Haraldur. Haraldur sagði að reiknimeistar- ar skólans hefðu setið við útreikn- inga dag og nótt, en hvergi fyndist smuga þar sem unnt væri að skera útgjöld meira niður en þegar hefur orðið. „Það er búið að þrælskera allt niður sem hægt er fyrir löngu, en ef af þessu verður þá verður maður að bregðast við líkt og orðið hefði stórslys. Við munum hugleiða málið og ræða við viturt fólk og leita lausna út úr vandanum. Ef sá niðurskurður sem við höfum heyrt nefndan í fjölmiðlum verður að veruleika þá verður sjávarút- vegsdeildin óstarfhæf. Við munum ekki gefast upp og ég vil trúa þeim orðum sem menntamálaráðherra lét falla við setningu sjávarútvegs- deildar um að víðtækur stuðningur væri ríkjandi um þennan skóla,“ sagði Haraldur. * Guðmundur Armann opnar vinnustofu: Mikill áfengi fyrir mig og myndlistina á Akureyri GUÐMUNDUR Armann myndlistarmaður opnar sýningu í nýrri vinnustofu sinni í Kaupvangsstræti 16 á morgun, laugardag, kl. 16. Á sýningunni eru 43 verk, 27 dúkristur og 18 olíumálverk. Verkin eru öll unnin á síðustu 5-6 árum. Myndlistarmennimir Guð- mundur Ármann og Helgi Vilberg keyptu tæplega 600 fermetra hús- næði við Kaupvangsstræti, að baki Myndlistaskólans á Akur- eyri, síðasta vor og hafa síðan unnið við að innrétta þar vinnu- stofur og íbúðir. Vinnustofa Guð- mundar sem hann tekur formlega í notkun við opnun sýningarinnar er á tveimur hæðum, grafíkverk- stæði er á þeirri neðri og málara- vinnustofa á þeirri efri. „Þetta er mikill áfangi bæði fyrir mig og einnig fyrir myndlist- ina á Akureyri. Eg vona að þessi áfangi hafí örvandi áhrif á alla þá sem áhuga hafa á myndlist í bænum. Vinnustofur sem standa einar og sér eru allt öðru vísi en þær sem eru inni á heimilum manna,“ sagði Guðmundur. Hann sagði að húsnæðið sem hann hefði nú til umráða hentaði sér vel til sýninga og hefði hann ekki jafng- ott pláss annars staðar tií sýn- inga. Þá sagði Guðmundur að grafíkverkstæðið kæmi vonandi einnig til með að nýtast Mynd- listaskólanum að hluta. Vinnustofan verður formlega tekin í notkun með opnun sýning- ar kl. 16. á morgun, en sýningin verður opin áfram til 25. febrúar. Á virkum dögum er opið frá kl. 16-20, en um helgar frá kl. 14-20. Þetta er önnur einkasýning Guð- mundar á Akureyri. Morgunblaðið/Rúnar Þór Guðmundur Ármann myndlistarmaður tekur formlega í notkun nýja vinnustofu á tveimur hæðum við Kaupvangsstræti með sýn- ingu sem opnuð verður á morgun. Dagskrá Ólund- ar í Möðru- vallakjallara ÓLUND endurtekur dagskrá sem félagar hafa sett saman og frumflutt var á Hofsósi um síðustu helgi. Dagskráin verður flutt í Möðruvallakjallara Menntaskólans á Akureyri í kvöld og hefst kl. 20.30. Boðið verður upp á tónlistarat- riði af ýmsu tagi. Bókin Rifbein úr síðum sem Olund gaf út fyrir jól verður kynnt. Þá verða fluttir tveir einþáttungar og nokkrir ung- ir Akureyringar sýna myndverk sín. Jón Eiríksson sýnir myndir í Islandsbanka Menningarsamtök Norðlend- inga og íslandsbanki kynna myndir Jóns Eiríkssonar í útibúi bankans við Skipagötu 14. Jón er fæddur árið 1955 og er búfræðikandidat. Hann býr að Búr- felli í Vestur-Húnavatnssýslu og hefur sótt tvö myndlistarnámskeið á Hvammstanga. Jón er í hópi nokk- urra áhugamanna um myndlist sem kalla sig Litberarnir. Á kynning- unni í Islandsbanka eru sýnd 12 verk, öll unnin með pastellitum. Kynningunni lýkur 2. apríl næst- komandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.