Morgunblaðið - 25.02.1990, Side 21
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRUAR 1990
4-
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1990
21
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Framkvæmd
kjarasamninga
Frá því að kjarasamningar
voru undirritaðir fyrir
skömmu, hafa komið upp
nokkur tilvik, sem sýna vel
nauðsyn þess að fylgja þeim
fast eftir og að atvinnulífið búi
við sterkt aðhald í þeim efnum.
Yfirleitt hafa þeir aðilar, sem
athugasemdir hafa verið gerð-
ar við, tekið því vel og gert
nauðsynlegar lagfæringar.
Fyrir nokkrum dögum var
upplýst, að hækkun bygging-
arvísitölu í febrúar væri tals-
vert meiri en ráð var fyrir
gert við gerð kjarasamninga.
Þessi vísitala hækkaði um 2%
frá janúar til febrúar og kom
í ljós, að 0,8% þeirrar hækkun-
ar er vegna fjölgunar mæliein-
inga í ákvæðisvinnu undan-
farna mánuði. Er þetta nokkuð
mismunandi eftir iðngreinum.
Eftir að þessar fyrstu tölur
komu fram var svo upplýst,
að skekkja hefði orðið í þessum
útreikningum varðandi tré-
smiði, þannig, að fjölgun ein-
inga væri ekki eins mikil hjá
þeim og talið hefði verið, en
þó um hækkun að ræða.
Viðbrögð verðlagsráðs voru
þau að banna hækkun taxta
vegna hvers kyns útseldrar
vinnu og þjónustu hjá til-
greindum starfsgreinum frá
því sem var 31. desember sl.
Jafnframt er fjölgun eininga í
ákvæðisvinnu iðnaðarmanna
áfram til athugunar hjá Verð-
lagsráði.
Þeir kjarasamningar, sem
gerðir voru á dögunum, eru
mjög þungbærir fyrir lægst-
launaða fólkið í landinu. í sum-
um stéttarfélögum , eins og
t.d. Dagsbrún, hafa orðið harð-
ar deilur um þessa samninga.
Það náðist samkomulag um
samninga á svo lágum nótum
vegna þess, að það skapaðist
traust á milli forystumarina
verkalýðsfélaga og vinnuveit-
enda. Segja má, að með því
að samþykkja samningana
hafi launþegar þegar lagt sitt
af mörkum til þess að þjóðin
nái tökum á efnahagsvandan-
um.
Sama skylda hvílir á at-
vinnurekendum og þeim laun-
þegahópum, sem búa við betri
launakjör. Þess vegna mun
verða fylgzt vandlega með
því, hvernig þessir aðilar haga
sínum málum og jafnframt
munu þeir hljóta harðan dóm
almennings, sem reyna að
bijótast út úr þeim ramma,
sem um hefur verið samið.
Iðnaðarmenn hafa engin hald-
bær rök fyrir því að hækka
uppmælinguna. Sú skýring, að
hækkunin stafi af tæknibreyt-
ingum er fáránleg. Þá er betra
að halda sig við gömlu tækn-
ina, eins og framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands ís-
lands hefur bent á. Sú rök-
semd, að verk hafi komið of
lágt út i mælingu stenzt heldur
ekki. Við þær aðstæður, sem
nú ríkja í þjóðfélaginu geta
menn ekki lejrft sér röksemda-
færslu af þessu tagi.
Iðnaðarmenn eiga sjálfir að
taka frumkvæði um að breyta
uppmælingunni til fyrra horfs.
Þeir eiga að sýna í verki vilja
sinn til þess að taka þátt í því
með lægstlaunaða fólkinu að
hemja verðbólguna og skapa
hér jafnvægi í efnahagsmál-
um. Þeir eiga ekki að bíða eft-
ir því, að þeim verði skipað að
draga hækkun á uppmælingu
til baka.
Á næstu mánuðum má bú-
ast við, að ýmis atvik komi upp
af þessu tagi og þá skiptir
verulegu máli, að fast sé tekið
á þeim. í fyrradag komu upp
efasemdir um, að viðskipta-
bankarnir mundu standa í einu
og öllu við þá samninga, sem
þeir hafa gert um lækkun
vaxta. Eftir fundahöld fulltrúa
viðskiptabanka og Seðlabanka
i fyrradag verður að ætla, að
viðskiptabankamir hafi gert
hreint fyrir sínum dyrum.
Þegar aðrir aðilar sjá, að
menn komast ekki hjá því að
taka á sig þær skyldur, sem
að þeim snúa í kjölfar kjara-
samninganna mun smátt og
smátt skapast það andrúms-
loft, að frekari tilraunir verði
ekki gerðar til þess að bijóta
það samkomulag, sem gert
hefur verið.
HELGI
spjall
A "| Thoreau lýsir
vt fc. •vandkvæðum
ræktunarmannsins
sem eyðir ævinni í að
breyta draumi í veru-
leika með svofelldri
dæmisögu í Walden:
Ferðamaður kom að síki og
spurði dreng sem þar stóð hvort
það væri fastur botn í síkinu. Já,
sagði drengurinn. En hestur ferða-
langsins kviðsökk í síkið. Ég hélt,
sagði maðurinn, að þú hefðir sagt
það væri fastur botn í síkinu. Já,
kallaði drengurinn, en þú ert ekki
kominn hálfa leið að þessum harða
botni!
Þannig erum við sem trúum á
ræktun og vemdun jarðar einnig í
miðju síkinu, en við erum að koma
að hörðum botni. Draumurinn, hug-
sjónin leiðir okkur á bakkann hinum
megin. Við eigum einungis að halda
áfram. Hesturinn sem ber okkur
fylgdi okkur úr aldingarðinum forð-
um daga. Hann kann að fóta sig.
/jQ Ef þú, segir Thoreau, hefur
• byggt kastala á himni þarf
það ekki að vera til einskis. Þar
eiga loftkastalar að vera og þú skalt
setja undirstöður undir þá.
A Q Thoreau gerði kröfu til þess
úfcO «við tækjum fullt tillit til
umhverfis okkar og umgengjumst
það með ræktuðu hugarfari þeirra
sem forsjónin hefur trúað fyrir
grasgarði sínum. En hann lofsyngur
hlutverk veiðimannsins í meistara-
verki sínu um Wald-
en- skóg og lýsir því
sem vináttusamlegu
starfi í eftirsóknar-
verðu frelsi náttú-
runnar. Ég minnist
þess ekki að neinn
hafi lýst þessu frelsi betur eða af
meiri ástríðu en hann og Karen
Blixen, þegar hún lofsyngur erindi
veiðimannsins við gresjur Afríku í
einni frásagna sinna. Hún hafði það
eftir gömlum vini að sá sem heyrði
fallegt lag án þess langa til að læra
það utanbókar og sá 'sem dáðist að
fegurð konu án þess langa til að
vinna hana og sá sem vissi af veiði-
bráð án þess vilja skjóta hana, hann
hefði ekki hjartað á réttum stað(!)
Slík afstaða vekur líklega vel-
þóknun með þeim sem eru í nábýli
við náttúruna og eiga allt sitt und-
ir duttlungum hennar. Veiðmanna-
þjóðfélagið er jafnvel reiðubúið að
láta kalla sig hvalveiðiþjóð vegna
þessarar ástríðu þótt það hafi í raun
einungis stundað slíkar veiðar af
tillitssemi við gráðuga sjálfsbjarg-
arhvöt sem engu þyrmir.
A A Þrátt fyrir
jt ^fc • upplýsinga,
ágæti réttra
þrátt fyrir
reynslu okkar og rök hef ég sann-
færingu fyrir því að það viðhorf sem
Kjarval hafði til umhverfisins og
ég reyndi að koma til skila í sam-
tölum okkar gæti reynzt áhrifa-
meira til verndar og varðveizlu en
þær margvíslegu tölur sem okkur
berast hvaðanæva að úr heiminum
og ég hef áður nefnt. Öll ræktun
hefst í hugarfarinu. Það er hjarta-
lagið sem úrslitum ræður. Og af
þeim sökum langar mig að minna
á svofelld orð meistarans í Kjar-
valskveri:
Hugsaðu þér hvað lífið yrði miklu
skemmtilegra, ef þeir settu beizli á
grindhvalina, þetta er til í listinni.
Þegar þeir þurftu að ferðast í gamla
daga, fóru þeir upp í hvalina, það
var leikur í þessu hjá þeim, einhver
trúnaður þarna. Hvers vegna er öll
þessi grimmd gegn smáhvölum sem
af einhverri fýsiskri nauðsyn þurfa
að komast á grynnra vatn? Þeir
koma að heimsækja okkur og við
tökum á móti þeim einsog það hafi
aldrei verið til nein menning. Það
kalla ég að tapa skóla, þegar menn
sjá ekki í gegnum fingur við aðrar
tegundir í dýraríkinu. Það ætti að
vera sport hjá sumum íþróttamönn-
um að setja á hvalina beizli og flot-
holt og svo gætu þeir fengið sér í
soðið. Hvers vegna alltaf að flýja
til frummannsins í sjálfum sér,
óskaplegt... hefurðu tekið eftir því,
hvað steinar eru spakir í landslagi?
-Hefurðu prófað að klappa þeim?
Hefurðu séð hvað þeim líður mis-
jafnlega vel eftir því hverjir ganga
framhjá? Nei, öllu þessu hef égtek-
ið eftir. Maður á að nota tækifærin
sem gefast til að sjá eitthvað annað
en hinir. Listin er að ganga fram-
hjá tækifærum hinna.
Svo mælti Kjarval, eða eitthvað
á þessa leið. M
(meira næsta sunnudag.)
NN SKÝRIST HVAÐ
menn eiga við, þegar
þeir ræða um uppgjör
Alþýðubandalagsins við
fortíð sína. Eins og
Óskar Guðmundsson,
ritstjóri Þjóðlífs og höf-
undur bókar um Alþýðubandalagið, komst
að orði í fréttaskýringu Stöðvar 2 á þriðju-
dagskvöldið á tilvistarkreppa Alþýðu-
bandalagsins aðeins að litlum hluta rætur
að rekja til samskipta þess við flokka fýr-
ir austan jámtjald, kreppan er að stærstum
hluta hugmyndafræðileg. Alþýðubanda-
lagið og forverar þess í íslenskum stjóm-
málum, Kommúnistaflokkur íslands og
Sameiningarflokkur alþýðu, - Sósíalista-
flokkurinn, hafa boðað þá stjórnmála-
stefnu, sem leitt hefur glötun yfir þjóðim-
ar í kommúnistaríkjunum. Sósíalisminn
hefur ekki síður verið helstefna á þessari
öld heldur en nasisminn. Undan þeirri stað-
reynd verður ekki vikist, hvaða brögðum
sem menn beita. Hér á landi hefur verið
reynt að fá fólk til að fylgja slíkum sósíal-
isma. Stefnuskrá Alþýðubandalagsins sem
samþykkt var á landsfundi flokksins 1974
og enn er í gildi er til marks um það.
Deilumar um íslenska utanríkisstefnu
hafa ekki síst snúist um það, hvort við
ættum að skipa okkur í sveit með vestræn-
um þjóðum eða ganga í lið með sósíalísku
ríkjunum. Um þetta var tekist á fyrstu
ámnum, eftir að lýðveldi var stofnað. Að
viðurkenna þá staðreynd er hluti af því
uppgjöri sem þarf að fara fram. Alþýðu-
bandalagið fylgir enn sömu utanríkisstefnu
og Kommúnistaflokkurinn og Sósíalista-
flokkurinn.
Á miðstjómarfundi Alþýðubandalagsins
fyrir skömmu vék Össur Skarphéðinsson,
fyrram ritstjóri Þjóðviljans, að deilunum
um alþjóðamál og viðhorfið til Sovétríkj-
anna með þeim orðum, að Moggalygin
hefði verið sannleikur. í deilum Þjóðviljans
og Morgunblaðsins um kommúnistaríkin
hafi Morgunblaðið haft rétt fyrir sér en
Þjóðviljinn rangt.
„Mogga-
lygi“ frá
1948
I I FEBRÚAR 1948
hrifsuðu kommún-
istar völdin í Tékkó-
slóvakíu. Var hart
um það mál deilt
hér á landi, eins og
sést af þessum leiðara Morgunblaðsins,
sem birtist í mars 1948 og bar yfirskrift-
ina: íslenskir menntamenn á móti komm-
únistum. Þar segir meðal annars:
„Islenskir menntamenn hafa undanfarið
haldið tvo fundi, sem sýna greinilega af-
stöðu þeirra til þess, sem er að gerast í
alþjóðamálum.
Háskólastúdentar hjeldu sinn fund fyrir
ijettri viku og samþykktu þar skorinorð
mótmæli gegn meðferð þeirri sem háskóla-
borgarar hafa orðið að þola af völdum
kommúnistastjómarinnar í Prag. Voru þau
samþykkt með 102 atkvæðum gegn 49.
Síðastliðinn sunnudag hjelt svo Stúd-
entafjelag Reykjavíkur annan fund, sem
einnig var geysiú'ölmennur. Þarvoru sams-
konar mótmæli samþykkt og meðal há-
skólastúdenta með 174 atkvæðum gegn
69 atkvæðum kommúnista.
Eftir þetta þarf enginn að fara í grafgöt-
ur um það, hvar íslenskir menntamenn
skipa sjer þegar um er að ræða afstöðu
til lýðræðis og manmjettinda. Þeir hafa
lýst fyrirlitningu sinni á einræðisaðgerðum
kommúnista.
Þessi afstaða kemur engum á óvart. -
íslenskir stúdentar hafa jafnan staðið
framarlega í baráttunni fyrir frelsi þeirra
eigin þjóðar. Úr hópi þeirra hafa þeir
menn komið, sem einarðlegast börðust
gegn hverskonar kúgun.
Afstaða stúdenta nú er þess vegna í
rökijettu samræmi við framkomu þeirra
ailt frá því að íslensk freisisbarátta hófst.
En varðar íslenska stúdenta nokkuð um
það þótt tjekkneskir menntamenn, sjeu
hrjáðir á ýmsa lund, reknir úr skóla,
hnepptir í fangelsi eða jafnvel drepnir?
Þeirri spurningu heyrist stundum fleygt
fram.
Já. íslenska menntamenn varðar um
REYKJAVIKURBREF
Laugardagur 24. febrúar
það. Fijálslynt fólk, hvar, sem það á heima
á jörðinni, varðar sannarlega um það, þeg-
ar hver þjóðin á fætur annari er hneppt í
þrældóm, menntamenn þeirra sviptir
fijálsræði og stungið í svarthol ofbeldis-
stjóma. Þess vegna eru mótmæli fijáls-
lyndra menntamanna á íslandi gegn of-
sóknunum í Prag, eðlileg og sjálfsögð."
Þetta stóð í forystugrein Morgunblaðs-
ins í mars 1948.
Ekki sam-
hljóða for-
dæming
EINS OG TÖL-
urnar úr atkvæða-
greiðslunni á fundi
stúdenta sýna vora
ekki allir á eitt sátt-
ir, þegar rætt var
um fordæmingu á valdaráni kommúnista
í Tékkóslóvakíu 1948. Þeir sem vora
andvígir fordæmingunni vora þá fylgis-
menn forvera Alþýðubandalagsins, sem
þá hét Sameiningarflokkur alþýðu, - Sós-
íalistaflokkurinn. Þá börðust þeir fyrir
opnum tjöldum, sem töldu að þjóðskipulag-
ið sem kommúnistar þröngvuðu upp á
Tékka og Slóvaka ætti einnig að ríkja hér
á landi. Þessi afstaða er í raun mun for-
kastanlegri heldur en formleg eða óform-
leg tengsl við kommúnistaflokka í öðrum
löndum, sem vora einnig mikil á þessum
áram. Allir sjá nú hvílíkar hörmungar
kommúnismi eða sósíalismi hefur haft í
för með sér, þar sem einræðisöflin hafa
náð undirtökunum. í Reykjavíkurbréfi sem
er dagsett 28. febrúar 1948 segir meðal
annars:
„Merkasti viðburðurinn í vikunni sem
leið er að sjálfsögðu valdataka kommún-
ista í Tjekkóslóvakíu. Að vísu ekki óvænt-
ur. En ekki síst merkilegur fyrir það,
hvemig sú valdataka fór fram, alveg á
sama hátt og kommúnistar hafa hrifsað
völdin annarstaðar. „Prógrammið" er alls-
staðar eins hjá þeim og í ýmsum meginat-
riðum mjög svipað aðferðum Hitlers, sem
framkvæmdi jafnan árásir sínar og illvirki
„samkvæmt áætlun“.
„Komist hefur upp um undirbúning
undir byltingu“. „Rakið til erlends sendi-
ráðs“. „Afstýrt með snarræði kommún-
ista“. ,,Þjóðin(!) tók í taumana“ o.s.frv.
Það er að segja vopnaðar sveitir kommún-
ista undir sjerstakri vemd hins mikla ná-
granna í austri. Þesskonar yfirlýsingar eru
endurteknar í hveiju landi af öðra, þegar
kommúnistar leggja þau undir sig.
Þeir, sem snúast gegn valdboðinu aust-
ræna, era svo ýmist skotnir eða hengdir.
En öllum bannað að fara úr landi, til þess
að kommúnistar geti stytt þeim aldur
heima fyrir sem sýna mótþróa, en þurfi
ekki að hafa þá fyrirhöfn, að senda flugu-
menn sína á eftir þeim út um öll lönd.
Og fyrirskipað um leið, að hengja mynd
Jósefs Stalíns upp í öllum barnaskólum.
Svo á því leiki enginn vafi, hvert blessuð
bömin eigi að snúa sjer, eða á hvem þau
eiga að trúa, frá blautu bamsbeini.
Þjóðviljinn kann sjer ekki læti, út af
fregnunum frá Tjekkóslóvakíu. Þar hefir
hver fyrirsögnin verið annari meiri síðustu
daga. En það eru fyrirsagnirnar aðallega
í hinum erlendu fijettum Þjóðviljans, sem
ritstjórnin ákveður, sem kunnugt er. Því
frjettimar era samdar í áróðursskrifstofum
flokksins erlendis. Nema komið sje á sama
fyrirkomulag þar og hjá nasistum, er gáfu
út fyrirmæli til blaðanna í hinum undirok-
uðu löndum, líka um það, hvernig fyrir-
sagnirnar ættu að vera.
Á sunnudaginn segir Þjóðviljinn að það
hafi verið „Afturhaldið", sem ætlaði að
undirbúa vopnaða uppreisn. Þegar stundir
líða, er hætt við, að almenningur í þeim
löndum, sem Ient hafa undir járnhæl
kommúnismans, noti afturhaldsheitið á
annan hátt, en það er gert nú. Því frjálsir
menn munu ekki una því, að nefna það
framfarir, að afnema alt þjóðfrelsi eins og
kommúnistar gera. í hugarheimi kommún-
ista er hið skéfjalausasta bióðuga aftur-
hald, sú þróun, sem þeir meta mest.
Á Þjóðviljamáli eru það „kröfur verka-
lýðsins í Tjekkóslóvakíu“ að land það verði
lagt undir Rússland. Og þegar undirokun-
in er komin um kring, segir Þjóðviljinn eða
er látinn segja, að „alþýðan fagni“ þeim
tíðindum.
Til þess að styðja Þjóðviljann í áróðri
sínum og fjarstæðum, hleypur svo Ríkisút-
varpið undir bagga, og flytur hlustendum
frásagnir af því hvernig Moskva útvarpið
afsakar valdatökuna í Tjekkóslóvakíu. Svo
alt er nú með ráðum gert á heimili komm-
únistadeildarinnar íslensku."
Eins og af þessu sést er ekkert nýmæli
að Morgunblaðið segir Þjóðviljanum til
syndanna vegna kommúnisma eða sósíal-
isma og hnýti einnig í ríkisfjölmiðlana,
þegar svo ber undir.
Deilt um
grundvall-
aratriði
ENN ER DEILT
um grandvallarat-
riði af svipuðum
toga og þessum í
íslenskum stjórn-
málum. Alþýðu-
bandalagsmenn segjast að vísu horfnir frá
ofurtrúnni á miðstýringu sósíalismans en
aðhyllast þó enn sósíalisma, sem krefst
miðstýringar og að allt sé á hendi ríkis-
ins. Það er engin þriðja leið til milli sósíal-
isma og markaðsstefnu eins og Vaclav
Klaus, hinn nýi fjánnálaráðherra Tékkó-
slóvakíu, sagði á forsíðu Morgunblaðsins
sl. sunnudag. Einnig er enn tekist á um
það hvort og hvernig öryggi og varnir þjóð-
arinnar skuli tryggðar.
Framsóknarmenn hafa jafnan stillt sér
upp á milli Morgunblaðsins og Þjóðviljans
og nú þykist Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra enn einu sinni hafa fund-
ið nýja leið í öryggismálum að hætti fram-
sóknarmanna. Væri sérstakt rannsóknar-
efni fyrir framsóknarmenn á þessum upp-
gjörstímum, þegar þeir huga að tengslum
sínum við Bændaflokkinn í Búlgaríu og
Miðflokkinn í Austur-Þýskalandi og ferða-
lögunum á Eystrasaltsvikuna í Rostock,
að kanna hvaða sveiflur flokkur þeirra
hefur tekið í utanríkis- og öryggismálum
til þess að þóknast kommúnistum og sós-
íalistum eða samstarfsmönnum þeirra í
Alþýðubandalaginu. Nú þykir Steingrími
Hermannssyni enn einu sinni henta að
halla sér upp að Alþýðubandalaginu þegar
öryggi þjóðarinnar ber á góma.
Um langt árabil voru framsóknarmenn
með það á vörunum, að samkvæmt fyrir-
vöram okkar við aðildina að Atlantshafs-
bandalaginu (NATO) ætti ekki að hafa
hér erlent herlið á „friðartímum". Var
þetta helsta röksemdin fyrir vamarleysis-
stefnu vinstri stjómarinnar 1956 til 1958,
sem féll þó frá því að reka vamarliðið úr
landi. Á þeim árum var hugtakið „frið-
artímar" skilgreint með nýjum hætti af
talsmönnum varna í landinu og bent á,
að hemaðartækni gerði það að verkum,
að nær fyrirvaralaust væri unnt að ógna
landinu með hervaldi og þess vegna þyrfti
að vera viðbúnaður í því sjálfu til að ekki
skapaðist tómarúm, er sjálft kynni að kalla
á hemaðarlega íhlutun af einhveiju tagi.
í öryggismálum er ekki til nein þriðja leið
á milli þess að vera varinn og óvarinn.
Lengri við-
vörunartími
ATBURÐIRNIR í
Austur-Evrópu
hafa leitt til þess,
að menn telja nú
þjóðir Atlantshafs-
bandalagsins hafa mun lengri viðvöranar-
tíma en áður til að snúast gegn hugsan-
legri árás úr austri. Við núverandi aðstæð-
ur er herafli Sovétríkjanna í Austur-
Evrópuríkjunum í raun óvirkur, þótt
380.000 hermenn séii enn í Austur-Þýska-
landi.
Fréttir frá Noregi herma hins vegar,
að á Kóla-skaganum séu Sovétmenn sífellt
að endurnýja og styrkja hernaðarmátt
sinn. Kemur þetta heim og saman við
það, sem hér var sagt frá skömmu fyrir
jól, þegar lýst var mati finnskra sérfræð-
inga á þróun öryggismála á norðurslóðum
í kjölfar viðræðnanna sem nú fara fram
um fækkun hefðbundinna vopna og lang-
drægra kjarnorkuvopna. Viðvörunartími á
norðurslóðum hefur ekki lengst vegna
breytinga á sovéska herstyrknum, hins
vegar leiðir það af pólitíska ástandinu í
Sovétríkjunum og aukinni upplýsingamiðl-
un þaðan að auðveldara er að gera sér
grein fyrir ákvarðanaferli og efni ákvarð-
ana ráðamanna en áður og þar með einn-
ig því, hvort þeir hyggist beita aðrar þjóð-
ir valdi. Að því leyti hefur aðstaða okkar
breyst, þótt vígtólin í nágrenni landsins
séu fleiri en nokkra sinni.
Ein helsta röksemd herstöðvaandstæð-
inga gegn vamarstöðinni í Keflavík hefur
verið sú hin síðari ár, að vamarviðbúnaður-
inn kalli á árás á landið. Hinar breyttu
aðstæður ættu að hafa kippt stoðum und-
an þessari skoðun. Þá hefur lengri viðvör-
unartími leitt af sér, að mun síður en áður
er þörf fyrir vamarviðbúnað við fullkominn
varaflugvöll, sem lagður yrði af Mann-
virkjasjóði Atlantshafsbandalagsins.
Otti við sam-
einað
Þýskaland
SAMEINING
Þýskalands er á
næsta leiti. Um það
er ekki lengur deilt.
Vangaveltur
manna snúast nú
einkum um það, hvemig stefna nýja þýska
ríkisins verður í öryggismálum. Hvernig
getur eitt og sama ríkið haft bæði sovésk-
an og bandarískan herafla innan landa-
mæra sinna og verið aðili að Atlantshafs-
bandalaginu? Við þessari erfíðu spurningu
leita menn svara um þessar mundir eins
og því, hvaða áhrif breytingamar hafi á
stöðu íslands. Nokkrir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins undir forystu Þorvalds
Garðars Kristjánssonar hafa til dæmis lagt
fram framvarp um að samhæfa krafta
ýmissa innlendra stofnana, svo að þær
geti axlað auknar skyldur í þágu vama
landsins.
Nú virðist grunnt á ótta hjá mörgum
við sterkt, sameinað Þýskaland. Minnast
margir þess, að tvisvar sinnum á öldinni
hafa Bandaríkjamenn verið kallaðir til
Evrópu til að stilla til friðar með því að
bijóta heri Þjóðveija á bak aftur. Jafn-
framt er á það minnt, að Bandaríkjamenn
hafí sent herafla sinn til Evrópu á frið-
artímum undir hatti Atlantshafsbanda-
lagsins til að koma í veg fyrir, að þriðja
heimsstríðið hæfíst í álfunni. Hingað til
hafí þessi liðsafli skapað mótvægi ogjafn-
vægi gagnvart Sovétríkjunum og fylgiríkj-
um þeirra. Hann kunni þegar fram líði
stundir að vera nauðsynlegur til að skapa
jafnvægi vegna styrkleika Þýskalands.
Vegna sameiningar Þýskalands vilja
ýmsir í austri og vestri í Evrópu fyrir alla
muni, að Bandaríkjamenn verði áfram með
herafla í álfunni eða eins og Christoph
Bertram, fyrrum forstjóri Alþjóðahermála-
stofnunarinnar í London, nú blaðamaður
við Die Zeit í Hamborg, orðaði það á dög-
unum: „Það var ekki að ófyrirsynju að
Gorbatsjov eða Sovétmenn hvöttu Bush
til þess á leiðtogafundinum við Möltu að
tryggja að bandarískir hermenn yrðu um
fyrirsjáanlega framtíð í Evrópu. í því felst
að bandarískur herafli verður áfram í
Evrópu, jafnvel þótt bráðlega verði fækkað
verulega í honum. í því felst einnig að
Atlantshafsbandalagið verður áfram við
lýði og hemaðarlegt samstarf NATO,
þangað til Evrópubandalagið hefur breyst
í öryggisbandalag."
Hér er vikið að lykilatriði, sem hafa
verður í huga, þegar litið er til framtíðar
á þessum miklu breytingatímum. Og við
skulum minnast þess, að Bandaríkjamenn
halda ekki úti herafla í Evrópu án þess
að þeir telji siglingaleiðimar yfir Atlants-
haf öruggar í sínum höndum eða vina
sinna. Framlag okkar til sameiginlegrar
öryggisgæslu í okkar heimshluta hefur
hingað til verið að leggja land undir banda-
rískan herafla í varnarstöð NATO. Sam-
eiginlegt vamarátak verður áfram nauð-
synlegt til að tryggja frið en framlag hvers
og eins hlýtur að taka mið af aðstæðum
hans og umhverfi. Á þessari stundu getur
enginn séð breytingamar fyrir með nokk-
urri vissu.
Hið sama á við nú og jafnan áður, þeg-
ar rætt er um öryggismálin, að mestu
skiptir að láta staðreyndir ráða afstöðu
sinni en ekki óskhyggju. Ein setning er í
hávegum höfð, þegar rætt er um atburðina
í Austur-Evrópu, sem sé sú, að dag hvern
komi í ljós, hve svokallaðir sérfræðingar
séu vanmátta gagnvart atburðarásinni
sjálfri, sem fólkið móti með ákvörðunum
sínum. Valdataka kommúnista í Tékkó-
slóvakíu og annars staðar í Austur-Evrópu
fyrir rúmum fjörutíu árum sýnir okkur þó
svart á hvítu, að með blekkingum og síðan
grimmilegu valdi er unnt að bæla frjálsan
vilja fólksins og skapa hættulegar aðstæð-
ur. Enn er því full ástæða til að vera á
varðbergi og kasta ekki frá sér því kerfí,
sem hefur reynst vel andspænis alræðinu
og tryggt frið með frelsi.
Morgunblaðið/Einar Falur
„Sósíalisminn hef-
ur ekki síður ver-
ið helstefna á
þessari öld heldur
en nasisminn.
Undan þeirri
staðreynd verður
ekki vikist, hvaða
brögðum sem
menn beita. Hér á
landi hefur verið
reynt að fá fólk til
að fylgja slíkum
sósíalisma.
Stefiiuskrá Al-
þýðubandalagsins
sem samþykkt var
á landsfundi
flokksins 1974 og
enn er í gildi er
til marks um
það.“