Morgunblaðið - 13.03.1990, Side 1
64 SIÐUR B
60. tbl. 78. árg. ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Míkhaíl Gorbatsjov segir sjálfstæðisyfírlýsingu Litháa áhyggjuefni:
Bjóða Sovétríkjunum við-
ræður um sambandsslitin
Fulltrúaþing Sovétríkjanna kom
saman í gær til að íjalla uin
ýmsar stjórnarskrárbreytingar
en einnig var rætt um sjálfstæð-
isyfírlýsingu Litháa. Búist er við
að í dag samþykki þingið aukin
völd til handa Míkhaíl Gorbatsj-
ov forseta Sovétríkjanna. Það
kom til mótmæla í miðborg
Moskvu í gærkvöldi vegna þessa
og hér sést einn þátttakenda búa
sig undir að reka hnefann í
mynd af Gorbatsjov í líki keis-
ara.
Viðbrögð ríkisstjórna yfirleitt varfærin
Vilnius. Moskvu. Reuter.
ÞING Litháens bauð Sovétríkjunum í gær formlegar samningavið-
ræður um fyrirkomulag sambandsslita. Þingið hvatti Míkhaíl Gorb-
atsjov Sovétleiðtoga til þess að viðurkenna sjálfstæði lýðveldisins en
á sunnudag var sjálfstæðisyfirlýsing þess frá árinu 1918 staðfest.
Gorbatsjov sagði í gær að yfirlýsingin væri „nokkurt áhyggjuefhi".
Viðbrögð ríkisstjórna víða um heim einkennast af varfærni. Engin
hefiir gengið svo langt að viðurkenna sjálfstæði Litháens og minna
mörg ríki á að þau hafi aldrei lagt blessun sína yfir innlimun landsins
í Sovétríkin árið 1940.
Reuter
Bretland:
—------- *
Forysta Ihaldsflokksins
snýst til vamar Thatcher
St. Andrews, frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Stuðningsmenn Margaretar Thatcher, forsætisráðherra Breta,
slógu um hana skjaldborg í gær vegna frétta um að fjórði hver þing-
maður íhaldsflokksins vildi nýjan leiðtoga fyrir næstu þingkosning-
ar. Kenneth Baker, formaður Ihaldsflokksins, sagði í gær að skoðana-
kannanir sem gerðar voru meðal þingmanna flokksins væru Villandi
því færri en helmingur þeirra hefðu verið spurðir.
Áskorun þings Litháens til Gorb-
atsjovs var útvarpað í gær í Viln-
ius. Þar er látin í ljós ósk um góð
stjórnmálaleg og efnahagsleg sam-
skipti við Sovétríkin. „Við biðjum
yður um að líta á þessa yfírlýsingu
sem opinbert boð okkar til Sov-
étríkjanna um að samningaviðræð-
ur hefjist til að ganga frá öllum
málum sem tengjast endurreisn
sjálfstæðs ríkis Litháens, sem hefur
þegar verið stofnað."
Þegar fulltrúaþing Sovétríkjanna
kom saman í gær lét Míkhaíl Gorb-
atsjov í ljós nokkrar áhyggjur yfir
Ákvörðun um
aukin völd
forseta frestað
Moskvu. Reuter.
Fulltrúaþing Sovétríkjanna
frestaði í gær afgreiðslu tillagna
um aukin völd til handa forseta
Sovétríkjanna.
Fulltrúaþingið kom saman í gær
og stendur það í þijá daga. Þingið
var kallað saman í skyndi m.a. til
að afgreiða tillögur um aukin völd
forseta Sovétríkjanna.
Verði tillögurnar samþykktar
fær Míkhaíl Gorbatsjov, sem nú
hefur verið valdamesti maður Sov-
étríkjanna í fimm ár, rétt til að
setja neyðarlög, stjórna með tilskip-
unum og ráða vali ráðherra. 2.245
manns eiga sæti á þinginu og þarf
samþykki tveggja þriðju hluta fyrir
breytingunum. Stuðningsmenn
Gorbatsjovs segja nauðsynlegt að
hann fái aukin völd til að keyra
umbætur í gegn af auknum þrótti.
Sjá „Frumkvöðull umbót-
anna ..“ á bls. 24.
tíðindunum frá Litháen enda hefur
hann ítrekað reynt að telja íbúa
Eystrasaltsríkjanna af því að feta
þessa braut. „Ákvarðanir sem hafa
verið teknar [í Litháen] varða
grundvallarhagsmuni og örlög lýð-
veldisins sjálfs, þjóðarinnar og gjör-
valls ríkis okkar,“ sagði Gorbatjsov.
Jegor Lígatsjov, leiðtogi harðlínu-
manna í sovéska kommúnista-
flokknum, sagði að ekki kæmi til
greina að beita valdi við þessar
aðstæður.
Marlin Fitzwater, talsmaður
bandarískra stjórnvalda, sagði að
þau fögnuðu sjálfstæðisyfirlýsing-
unni og myndu skora á sovésk
stjórnvöld að „virða vilja Litháa"
en væru ekki reiðubúin að viður-
kenna ríkisstjórn sjálfstæðs Lithá-
ens. „Við viljum að viðurkenning
taki mið af endanlegri ríkisstjórn
sem ræður eigin örlögum." Fitz-
water gaf til kynna að það sem
bandarísk stjórnvöld óttuðust væri
að viðurkenning sjálfstæðis Lithá-
ens myndi draga úr vilja stjórnvalda
í Moskvu til að semja við Litháa.
Dæmigerð fyrir viðbrögð í hinum
vestræna heimi voru ummæli Will-
iams Waldegraves, aðstoðarutan-
ríkisáðherra Breta, en hann sagði
að ekki væri hægt að viðurkenna
sjálfstæðisyfirlýsingu Litháens fyrr
en „það væri í raun orðið sjálfstætt
lífvænlegt ríki“. Kuldalegustu við-
brögðin við sjálfstæðisyfirlýsing-
unni komu frá nágrannaríkinu Pól-
landi. Ríkisstjórn Samstöðu lét í ljós
áhyggjur yfir þeim áhrifum sem
þessi ákvörðun gæti haft á stöðug-
leika í Evrópu. Lech Walesa, leið-
togi Samstöðu, lét hins vegar í Ijós
ánægju með ákvörðun þings Lithá-
ens.
Sjá fréttir á bls. 2 og 25 og
baksíðu.
Whitelaw lávarður, varaformað-
ur Ihaldsflokksins, hvatti einnig
flokksbræður sína til að fylkja liði
að baki forsætisráðherranum nú
þegar á móti blési. „Það er affara-
sælast að forsætisráðherrann haldi
áfram að leiða flokkinn og þjóð-
ina,“ sagði hann. Sjálf vísaði
Thatcher á bug fréttum um að hún
ætlaði að segja af sér sem hreinum
hugarburði og kvaðst aldrei hafa
verið betur á sig komin en nú til
að gegna embætti. Lagði hún mikla
áherslu á, að full samstaðá væri
innan ríkisstjórnarinnar.
Ástæða sögusagnanna eru erfið-
leikar stjórnarinnar að undanförnu
vegna nefskattsins, sem sveitar-
stjórnir í Englandi og Wales hafa
verið að leggja á í fyrsta sinn. Byij-
ar fólk að greiða skattinn 1. apríl
nk. Kemur hann í stað þess hluta
eignaskatts sem rann til sveitarfé-
laga. Um 20 milljónir manna bæt-
ast nú í hóp þeirra sem þurfa að
greiða til sveitarfélaga sinna. Víða
um land hefur skattinum verið
mótmælt og hefur komið til harðra
átaka af því tilefni milli lögreglu
og andstaeðinga skattheimtunnar.
Er skatturinn einkum gagnrýndur
á þeirru forsendu að ekki sé tekið
tillit til getu fólks til að reiða féð
af hendi.
í tveimur breskum blöðum sl.
sunnudag eru birtar niðurstöður
kannana á skoðunum þingmanna
íhaldsflokksins á því, hvort Thatch-
er eigi að segja af sér. Fjórði hver
aðspurður þingmaður lýsir þeirri
skoðun sinni að Thatcher eigi að
segja af sér embætti fyrir næstu
kosningar. Helmingur þingmann-
anna segist ósammála nefskattin-
um og vill annaðhvort breyta hon-
um eða leggja hann af.
Kúba:
Andófsmenn
handteknir
Ilavana. Reutcr. Daily Telegraph.
KÚBUSTJÓRN tilkynnti í gær
að átta andófsmenn, sem barist
hafa fyrir mannréttindum, hefðu
verið handteknir og sakaði hún
þá um að hafa skapað hættu á
innrás Bandaríkjamanna í
landið.
Hingað til hafa slíkar handtökur
ekki farið hátt í kúbverskum fjöl-
miðlum og þykir uppsláttur þeirra
benda til að nú ætli Kúbustjórn að
herða sóknina gegn stjórnarand-
stæðingum.
A-Þýskaland:
Dagar Trabantsins senn taldir
Leipzig. Reuter.
Vestur-þýska bílafyrirtækið Volkswagen kynnti í gær stærsta
samning sem Austur-þjóðverjar hafa gert um sameiginlegt áhættu-
verkefhi við erlent fyrirtæki. Samningurinn verður til þess að
framleiðslu austur-þýsku Trabant-bílanna verður hætt fyrir árið
1993.
Volkswagen hyggst veija fimm
milljörðum marka (180 milljörð-
um ísl. kr.) í þetta verkefni. Áust-
ur-þýska fyrirtækið IFA, sem
framleiðir Trabant-bílana, mun
annast framleiðsluna og setja
saman 50 VW Polo-bifreiðar á dag
þar til í september og í ráði er
að ársframleiðslan verði um
250.000 bílar fyrir 1994. Á sama
tíma verður framleiðslu Trabant-
bílanna smám saman hætt. Mjög
hefur dregið úr eftirspurn eftir
þessum bifreiðum og áttu um
60-70% starfsmanna IFA á hættu
að missa vinnuna. Trabant-bílam-
ir verða framleiddir með nýrri
vél, sem Volkswagen hannaði til
að draga úr loftmengun, og em
stjórnendur IFA vongóðir um að
hægt verði að finna nýja markaði
fyrir þá. „Það er hægt að selja
allt ef verðlagningin er rétt,“
sagði stjórnarformaður Volks-
wagen, Carl Hahn, er hann kynnti
samninginn.