Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990
Kosningar í A-Þýskalandi:
Ragnhildur Helgadóttir
í sendinefiid Evrópuráðs
ÁTTA manna sendinefiid firá þingi Evrópuráðsins hefiir verið boð-
ið að fylgjast með framkvæmd þingkosninga í Austur-Þýskalandi
sem fram fara á sunnudag. Formaður sendinefiidar íslands hjá
Evrópuráðinu, Ragnhildur Helgadóttir alþingismaður, verður í
eftirlitsnefiidinni og heldur hún til Austur-Þýskalands í dag, þriðju-
dag.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Matvöruverslunin Hafnarborg gjöreyðilagðist í eldsvoða á Neskaupstað aðfaranótt mánudags.
Neskaupstaður;
Stórtj ón í eldsvoða
Neskaupstað.
MILLJÓNATJÓN varð þegar matvöruverslunin Hafnarkjör, sem
var u.þ.b. 190 fermetrar, gjöreyðilagðist í eldi aðfaranótt mánu-
dags. Þá varð mikið tjón á veitingastaðnum Við höfhina, sem er
í sama húsi, aðallega af vatni og reyk.
Ragnhildur Helgadóttir sagði í
samtali við Morgunblaðið að boð
um að sendinefnd fylgdist með
Litháen;
Heillaóskir
frá Alþingi
„ALÞINGI ályktar að senda
litháensku þjóðinni heilla-
óskir vegna sjálfstæðisyfir-
lýsingar Litháens, sem þjóð-
þingið samþykkti í gær. —
Alþingi telur að sjálfsforræði
þjóða með lýðræðiskjömum
þingum sé grundvöllur
fijálsra samskipta og stuðli
að friði í heiminum. — Al-
þingi fagnar því endurheimt
sjálfstæðis Litháens og vænt-
ir góðrar samvinnu við lýð-
ræðiskjörna fulltrúa henn-
ar.“
Þannig hljóðar ályktun Al-
þingis, sem samþykkt var sam-
hljóða í gær. Það var utanríkis-
málanefnd þingsins, sem flutti
tillöguna um heillaóskir til lit-
háensku þjóðarinnar í tilefni
sjálfstæðisyfírlýsingar hennar.
í greinargerð með tillögunni
segir:
„Þing Litháens samþykkti í
gær yfirlýsingu um endurheimt
sjálfstæðis landsins. Á fundi
utanríkismálanefndar í morgun
var einróma samþykkt af því
tilefni að flytja þingsályktun
þessa.“
100 aðdáendur
fylgja breskri
hljómsveit
Breska hljómsveitin Happy
Mondays heldur hér tónleika í
Hátíðasal Menntaskólans við
Hamrahlíð nk. fimmtudag, en í
tilefni af komu hljómsveitarinnar
hingað koma um 100 manns til
íslands gagngert til að sjá hana,
til viðbótar við hljómsveitarmeð-
limi og aðstoðarmenn þeirra.
Hljómsveitin nýtur nú mikillar
hylli á Bretlandseyjum og þegar
hljómsveitin hefur leikð hér leikur
hún á tvennum tónleikum í Man-
chester, heimaborg sinni, fyrir um
18.000 manns alls, en uppselt hefur
verið á tónleikana í nokkurn tíma
og þurftu margir frá að hverfa.
Aðstandendur tónleikanna sögðu
að þegar og fréttist að hljómsveitin
hyggðist leika á tónleikum í
Reykjavík hafí menn farið að spytj-
ast fyrir um ferðir til íslands og
alls ákváðu um 100 manns að kaupa
sér far og gistingu fyrir til að fá
að beija hljómsveitina augum.
framkvæmd kosninganna hefði
borist Evrópuráðinu frá þingi
Austur-Þýskalands. Gert væri ráð
fyrir að nefndin ræddi við fulltrúa
þeirra flokka sem bjóða fram í
kosningunum og fylgdist að öðru
leyti með framkvæmd þeirra. Auk
sendinefndar þings Evrópuráðsins
munu þrír fulltrúar Evrópubanda-
lagsins (EB) halda til Austur-
Þýskalands í þessu skyni. Eftirlits-
nefndimar munu dveljast í landinu
fram í næstu viku.
Evrópuráðið var stofnað árið
1949 en því er ætlað að standa
vörð um þær hugmyndir sem liggja
vestrænu þingræði og lýðræði til
grundvallar. Frá því að flokkar
kommúnista slökuðu á alræðisvaldi
sínu í ríkjum Austur-Evrópu hafa
nýir ráðamenn þar eystra sýnt
vaxandi áhuga á starfi Evrópu-
ráðsins. Hafa Pólveijar og Ung-
veijar þegar óskað eftir aðild og
verður tekin afstaða til umsókna
þeirra eftir að fijálsar kosningar
hafa farið fram í löndum þessum.
STARFSEMI Aflamiðlunar mun
heQast með formlegum hætti
næstkomandi fimmtudag. Þá tek-
ur hún yfir úthlutun leyfa til sigl-
inga með ísfisk á erlenda mark-
aði; sem hefúr verið í höndum
LIU og ennfremur úthlutun leyfa
til útflutnings á isfiski, sem verið
hefúr hjá viðskiptaskrifstofú ut-
anríkisráðuneytisins. Formaður
stjórnar Aflamiðlunarinnar segir
að samkomulag hafi orðið um
alla þætti starfsemi hennar á
fiindi sem Guðmundur J. Guð-
mundsson sat í gær í fjarveru
Snæs Karlssonar. Verður starf-
semin fyrst í stað i húsakynnum
LÍÚ undir stjórn Vilhjálms Vil-
hjálmssonar, fyrrum starfsmanns
samtakanna.
Sigurbjöm Svavarsson, formaður
stjómar Aflamiðlunar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að þó starf-
semin yrði til bráðabirgða í húsa-
kynnum LÍÚ, yrði rekstur hennar
með öllu sjálfstæður, bæði hvað
varðaði fjáhag og starfsfólk. Mikil-
vægt væri að komast af stað sem
fyrst og því væri heppilegt að fá
afnot af tækjum og tólum LÍÚ fyrst
í stað. Vilhjálmur Vilhjálmsson yrði
framkvæmdastjóri og bæri hann til
hans fyllsta traust. Auk hans yrði
til að bytja með ráðin stúlka í hluta-
starf, en reynslan yrði að skera úr
um umsvifin.
í frétt frá stjóm Aflamiðlunar
segir svo: „Stjóm Aflamiðlunar hef-
Húsið, sem er tréhús, er alls
um 330 fermetrar. Vart varð við
eldinn um eittleytið á mánudag-
snóttina. Nokkur töf varð á að
kalla á slökkviliðið þar sem bruna-
lúðrar, sem eru á tveimur stöðum
ur ákveðið að allar upplýsingar um
umsóknir og úthlutun leyfa verða
opinberar svo innlendum fisk-
vinnslustöðvum gefíst kostur á að
bjóða í þann físk, sem fyrirhugað
Stefán Valgeirsson, alþingis-
maður, krafði forsætisráðherra og
landbúnaðarráðherra, upplýsinga
um það á þingi í gær, hvað ríkis-
í bænum, fóru ekki gang og varð
því að hringja í alla slökkviliðs-
menn. Komið hefur í ljós að bilun-
ina má rekja til símtengingar við
lúðrana, en hægt á að vera að
gangsetja þá með símhringingu.
er að selja erlendis. Einnig mun
aflamiðlunin safna og dreifa upplýs-
ingum um ástand og horfur á er-
lendum ísfískmörkuðum í þeim til-
gangi að sem bezt verð fáist á hveij-
stjómin hygðist gera til að tryggja
áframhaldandi fóðurframleiðslu
fyrir loðdýrabúin í landinu. Ilann
staðhæfði að fóðurstöðvamar
væm á barmi rekstrarstöðvunar
og gætu stöðvast næstu daga,
jafnvel á morgun, að öllu óbreyttu.
í svömm ráðherra kom fram að
Alþingi hafi fyrir áramótin sam-
þykkt lög um skuldbreytingar loð-
dýrabænda, að uppfylltum til-
teknum skilyrðum. Fækkun loð-
dýrabúa og skuldir þeirra við fóð-
urstöðvar hafi valdið æmum
rekstrarvanda. Reiknað hafi verið
með því að Byggðastofnun leysti
vanda fóðurstöðvanna, en stofnun-
in hafí ekki fjármagn til frekari
aðstoðar. Ekki kom fram í máli
ráðherra, hvort frekari stjómvalds-
Greiðlega gekk að slökkva eldinn,
eftir að slökkviliðið kom á vett-
vang, og lauk slökkvistarfi um
klukkan 4.30. Enn liggur ekkert
fyrir um eldsupptök, og engar
nákvæmar tölur hafa verið nefnd-
ar um tjón. Agúst.
Sjá einnig fréttir á miðopnu af
eldsvoðum í Reykjavík og á
Egilsstöðum um helgina.
Frá og með 15. marz 1990 skulu
allir, sem hyggjast flytja út ferskt
sjávarfang, sækja um útflutnings-
leyfí til Aflamiðlunar í stað viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytis. Út-
flytjendur skulu senda inn umsóknir
til Aflamiðlunar fyrir lok fimmtu-
dagsins 15. marz, fyrir næstu tvær
vikur.
Aflamiðlun mun hafa þann hátt
á, að væntanlegir útflytjendur sæki
um leyfi með viku fyrirvara fyrir
úthlutun. Úthlutun mun eftir sem
áður eiga sér stað á föstudögum í
vikunni fyrir fyrirhugaða útskipun.
Umsóknum skal skilað inn á
fimmtudag fyrir úthlutun.
Þegar er búið að úthluta löndun-
um fiskiskipa í Bretlandi út apríl
og í Þýzkalandi út maí. Umsóknir
um heimild til löndunar eftir það
verða auglýstar síðar.“
aðgerðir eru ráðgerðar.
Sjá nánar á þingsíðu, bls. 35.
Alviðræður;
ReyðarQörð-
ur skoðaður
FORSTJÓRAR tveggja af þeim
þremur álfyrirtækjum sem undan-
farið hafa staðið i samningavið-
ræðum við stjórnvöld um bygg-
ingu nýs álvcrs hér á landi skoð-
uðu í gærdag Reyðarfjörð, en þar
hefúr meðal annars verið lagt til
að nýja álverið muni rísa.
Að sögn Hilmars Siguijónssonar
oddvita á Reyðarfírði var farið með
forstjórana um svæðið, og að því
loknu haldinn með þeim fundur þar
sem farið var yfir helstu kosti og
galla byggingar álvers í Reyðarfirði.
Reyðarfjörður heilsaði gestunum
með íjómalogni og heiðbláum himni.
REYKINGAFÖLK!
Starfsemi Aflamiðlunar hefst
formlega næstkomandi fímmtudag
Samkomulag innan stjórnar um alla þætti starfseminnar, segir Sigurbjörn Svavarsson
um tíma og komið verði í veg fyrir
offramboð.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá ftindi stjórnar Aflamiðlunar í gær. Óskar Þórarinsson er lengst
til vinstri, þá Guðmundur J. Guðmundsson, varamaður Snæs Karls-
sonar, Sigurbjörn Svavarsson, formaður stjórnarinnar, Vilhjálmur
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar, Ágúst Elíasson og
Sævar Gunnarsson.
Fóðurstöðvar loðdýrabúa að stöðvast
Þingmenn létu að því liggja í umræðu í sameinuðu þingi í gær,
að fóðurstöðvar, sem framleiða fyrir loðdýrabú, gætu stöðvast fljót-
lega vegna rekstrarerfiðleika, ef ekki komi til hjálparaðgerðir.
Ef það gerðist hryndi loðdýraræktin sem atvinnugrein.