Morgunblaðið - 13.03.1990, Page 7
7
Gjaldþrot Sjóleiða:
Ekkert fékkst
upp í 90 millj-
óna skuldir
NÝLEGA er lokið skiptum í
þrotabúi Sjóleiða h/f sem tekið
var til gjaldþrotaskipta í nóvem-
ber 1987 og gerði meðal annars
út flutningaskipið Sögu. Ekkert
fékkst greitt upp í kröfúr en við-
urkenndar skuldir búsins námu
rúmum 90 milljónum króna.
Skip félagsins var selt á uppboði
í Frakklandi þar sem það lá í höfn
vélarvana og rann uppboðsandvirð-
ið til greiðslu hafnargjalda og
ýmissa annarra skulda þar í landi
án þess að þeir peningar nýttust
þrotabúinu hér á nokkurn hátt.
Forgangskröfur voru tæplega
14,5 milljónir og almennar kröfur
um 75,5 milljónir króna, þar af um
23 milljónir í erlendum myntum.
Þjóðleikhúsið:
Utboðsgögn
ekki tilbúin
ENN HEFUR ekki verið samið
við verktaka vegna fyrirhugaðra
breytinga á Þjóðleikhúsinu. Hús-
inu hefúr verið lokað og sýning-
arnar fluttar í Iðnó og Há-
skólabíó. Að sögn Gunnars Olafs-
sonar verkefnissljóra hefúr Sam-
starfsnefnd um opinberar fram-
kvæmdir ekki gefið leyfi til samn-
inga við vektaka, þar sem útboðs-
gögn eru ekki tilbúin.
Að sögn Gunnars fór fram forval
meðal verktaka og hefur bygging-
arnefnd Þjóðleikhússins ákveðið að
leita eftir tilboðum frá nokkrum
fyrirtækjum, sem til greina koma.
Sagðist hann búast við að nokkrar
vikur liðu þar til útboðsgögnin yrðu
tilbúin. Á meðan verður húsið tæmt,
teknar niður þiljur og veggljós og
komið í geymslu þar til fram-
kvæmdum er lokið.
Góð aðsókn
að listsýning-
unni í London
„ÞAÐ gerir gæfúmuninn að fá
blaðagagnrýni um sýninguna svo
snemma i þessum þekktu blöð-
um,“. sagði Bera Nordal, for-
stöðumaður Listasafhs Islands,
aðspurð um þann áhuga sem sýn-
ing á íslenskri list í Barbican-
listamiðstöðinni hefúr hlotið í
London. Þá nefndi hún að heim-
sókn Bretadrottningar hefði ver-
ið mikilvægur áfangi í að vekja
umfjöllun um sýninguna.
Bera sagði, að aðsókn að sýning-
unni sé talin góð það sem af er,
en hún mun standa til 5. apríl í
London. Eins og fram hefur komið
hlaut sýningin lofsverða dóma í
blöðum eins og Times og Financial
Times, strax í fyrstu sýningarviku,
og sagði Bera að það hefði komið
á óvart og orðið til að auka áhuga
á sýningunni. Þá var fjallað um
hana í útvarpsþætti hjá BBC-
útvarpsstöðinni, og von er á að sýn-
ingin hljóti umfjöllun í Late Show,
þekktum sjónvarpsþætti á BBC.
Þegar sýningunni lýkur í London
verður hún sett upp í Polytechnik
Art Gallery í Brighton, þar sem
þeir Julian Freeman og Michael
Tucker, sem vonl meðal hvata-
manna að sýningunni og völdu
.myndirnar á hana, eru búsettir. Að
lokum munu salir Calbot Rice-lista-
safnsins í Edinborg hýsa sýninguna.
Áttþú
LADA SPORT?
Langar þig í japanskan jeppa?
Þá gerum við þér tilboð sem ekki er hægt að hafna
- að skipta upp íDaihatsu Feroza á einstökum kjörum
Komið og kynnið ykkur malið
DAIHATSU
FEROZR
er fullbúinn og fallegur jeppi og kostar aðeins frá:
kr. 1.098.200 stc/r. á götuna
Daihatsu Feroza er fáanlegur í þremur útfærslum: Feroza DX: 4 strokka fjórgengisvél 1600 cc 16
ventla • 5 gíra • vökvastýri • sjálfstæð snerilfjöðrun með jafnvægisstöng að framan • heil hásing
og fjaðrir að aftan • hlutalæsing á drifi • driflokur • tvöfaldur veltibogi • 3ja punkta öryggisbelti
framm í og aftur f • vönduð innrétting • litað gler og snúningshraðamælir. Feroza EL-II: Hér kemur
til viðbótar við búnað DX • veltistýri • topplúga • lúxus innrétting • voltmælir • hallamælir • staf-
ræn klukka og hágæða útvarps- og segulbandstæki. Feroza EL-II Sport: Einn með öllu og til við-
bótar krómfelgur • krómað grill • krómaðir stuðarar • krómaðir hliðarspeglar og krómaðir hurðar-
húnar.
daihatsu Brimborg hf.
- draumur aö aka Faxafeni 8, sími 685870