Morgunblaðið - 13.03.1990, Síða 15

Morgunblaðið - 13.03.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990 15 Fjármálavanþekk- ing krata í Kópavogi eftir dr. Gunnar Birgisson í DV 16. febrúar síðastliðinn og í Alþýðublaði Kópavogs 1. tbl. ’90 fara tveir af bæjarfulltrúum Al- þýðuflokksins í Kópavogi hamför- um og saka undirritaðan um róg- burð gagnvart okkar ágæta bæjar- félagi, Kópavogi. Tilefni þessa upphlaups mun það, að undirritaður vakti athygli á fá- einum staðreyndum varðandi fjár- mál Kópavogs. Þetta hefur sýnilega sært sjálfsímynd þeirra, sem ábyrg- ir eru fyrir fjármálum Kópavogs- bæjar. Tilfinningaþrungin viðbrögð þeirra skýra þó það eitt, að það er engin tilviljun hvernig komið er fjárhag bæjarins. Vanþekking þessa fólks nær ekki aðeins til fjár- mála bæjarins, heldur einnig til fru- matriða á borð við vexti og verð- bólgu. Vanþekking Þeir munu til, sem ekki kunna skil á nafnvöxtum og raunvöxtum eða ávöxtun. Það er slæmt þegar í hlut eiga einstaklingar, sem í krafti stöðu sinnar, sem kjörnir bæjarfulltrúar, geta skuldsett okk- ur bæjarbúa svo hundruðum millj- óna skiptir. Sigríður Einarsdóttir, fulltrúi Alþýðuflokksins í Kópavogi, fullyrðir réttilega að það sé gífur- legur munur á 10% ávöxtunarkröfu og 42% og segist efast um að nokk- urt fyrirtæki sé svo illa stætt að það þurfi að lúta 42% ávöxtunar- kröfu. Þeir munu fáir, sem í alvöru halda að raunávöxtun geti hlaupið á þessum tölum. Það eru hins veg- ar aðeins tveir mánuðir frá því að skammtímaskuldabréf Kópavogs- bæjar voru opinberlega boðin til sölu með 40% ávöxtun, eins og meðfylgjandi auglýsing frá Fjár- festingarfélagi íslands ber með sér. Þessi bréf fengust keypt miðað við 42% ávöxtun og það var mat. fjár- málamanna þá, að raunávöxtun þeirra yrði í reynd milli 15 og 20%. Þetta eru dýr skammtímalán, sann- kallaðir kosningavíxlar, því þeir falla allir á næstu mánuðum og á nýjan meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs. Það er annað tveggja, dæmafár kjarkur eða kunnáttuleysi, sem fær bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins til að halda því fram, að Kópavogskaup- staður þurfi ekki að sæta lakari kjörum á fijálsum markaði en önn- ur bæjarfélög. Flest bæjarfélög forðast það eins og heitan eldinn að festast í skuldadíki með útgáfu og sölu skuldabréfa til skemmri og lengri tíma. Hafnarfjörður og Kópa- vogur hafa hins vegar algjöra sér- stöðu og geta kratar á hvorum stað því óhikað samjafnað stöðunni sín í milli. Hún á það sammerkt að vera lakari en hjá öllum öðrum sveitarfélögum á svæðinu. Skuldastaða Tilgangurinn með grein minni í Morgunblaðinu 2.2. var að vekja Kópavogsbúa til umhugsunar um skuldastöðu og fjármagnskostnað bæjarfélagsins, sem hvort tveggja er komið yfir hættumörk. Mjög erf- itt hefur verið að fá yfirlit yfir skuldastöðu Kópavogs, en nú loks upplýsa fulltrúar vinstri meirihlut- ans hveijar langtímaskuldir bæjar- ins eru, eða yfir 900 milljónir króna. Það lætur því nærri að heildar- skuldastaða í árslok 1989 hafi verið yfir 1.300 milljónir króna þegar skammtímaskuldir eru táldar með. Slík staða hlýtur að vera hverju bæjarfélagi stórhættuleg þegar haft er í huga, að áætlaðar sameig- inlegar tekjur 1989 voru rúmlega 1.100 milljónir. Það breytir ekki þessari hrikalegu stöðu, þótt kratarnir tali sig upp í það, að allt sé í besta lagi. Upplýsingar um raunverulega fjárhagsstöðu bæjarins eru af skornum skammti. Þó liggur það fyrir samkvæmt skýrslu Sambands íslenskra sveitarfélaga, að á árabil- inu frá 1985 til 1988 var árleg raun- aukning tekna á íbúa 6%, en raun- aukning útgjalda var á sama tíma 9,4%. Skattheimtan jókst þannig, en skuldimar líka. Með þennan fer- il á bakinu er engin furða, að bæjar- fulltrúar Alþýðuflokksins beri sig illa undan umræðu um fjármál bæjarins. Það er í góðu samræmi við þá óþægindakennd, sem umræða um fiármál og lántökur bæjarsjóðs hef- ur vakið með fulltrúum vinstri meirihlutans, að lántökur eða kjör á lánum munu hvorki hafa verið borin undir bæjarráð né bæjarstjóm til samþykktar. Hvemig það sam- ræmist lögum er í besta falli tor- skilið og spyija má hver raunveru- lega sé ábyrgur þegar þannig er staðið að verki. Spyr sá sem ekki veit. Fjármagnskostnaður Allt síðastliðið kjörtímabil hefur bæjarsjóður verið rekinn með halla og safnað skuldum og til að mæta og afborgana og raunverulegt framkvæmdafé verður vart meira en 200 til 250 milljónir, ef ekki á enn að slá lán. Framtíðin Stöðva verður óheillaþróun skulda og aukningu fiármagns- kostnaðar. Þetta verður að gera með aðhaldi í rekstri og sparnaði. Fyrirhyggju verður að hafa á fram- kvæmdum og ljúka þeim á sem skemmstum tíma til að þær geti sem fyrst skilað arði. Það virðist vera stefna núverandi meirihluta að göslast áfram í fram- kvæmdum, en ljúka þeim ekki eins og til dæmis sundlaugin, listasafnið og fleiri dæmi sýna. Út úr þessu fari verður að hverfa og takmarka nýframkvæmdir við það sem unnt er að ljúka á skynsamlegum tíma. Við verðum að rífa okkur upp úr skuldafeninu og snúa þessari þróun við. Kópavogur hefur alla burði til að vera fjárhagslega sterkt sveitarfélag. íbúar Kópavogs geta hins vegar ekki sætt sig við það, að greiða hæstu gjöld til bæjarins, en þekkja tæpast gangstéttir nema af afspurn og þurfa svo að sitja Gunnar Birgisson „Það lætur því nærri að heildarskuldastaða í árslok 1989 hafi verið yfír 1.300 milljónir króna þegar skammtímaskuldir eru taldar með. Slík staða hlýtur að vera hverju bæjarfélagi stórhættu- leg þegar haft er í huga, að áætlaðar sameigin- legar tekjur 1989 voru rúmlega 1.100 milljón- ir.“ FJARFESTINGARFELAGtÐ VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJARFESTINGARFÉLAGIÐ FRAMBOÐ SKULDABREFA 18. Des. 1989 Nánari upplýsingar og Pálmi Sigmarsson söluannast:" síma 25518 og 28566 Útgefandi/Skuldari Veð/Trygging BB-Mat f bús. Veðs. % Lánstími Fjöldi afborqana Samtals [ búsundum. Einingar í búsundum. Ávöxtunar krafa Soariskírteini Ríkissióös 2.-20. ár 6 - 6.6% Landsbanki 12.-16. ár 6,5-7% Landsbanki 2.-4. ár 7,0-7.25% Búnaðarbanki 2. ár -1- 7.000 500 7.5% Iðnaðarbanki 8. ár -1- 8.2% Samvinnubanki 3.-4. ár -1- 7,5% Verslunarlánasi. Ábvraö Verslb. 15. ár -15- 15.000 5.000 7.1% Kópavoqs kaupst. Einf. Ríkisáb. 3. ár -6- 25.000 1.000-3.000 10,1% Keflavíkur kaupst. Einf. Ríkisáb. 4. ár -6- 10.000 3.300 10,2% Sparisióöir 4.-7. ár -1- 40.000 8,35% Landsb. víxlar 30-45 D -1- 27,5-30,3% Hafnarfiaöar kaupst. 60-90 D -1- 37-40% Kópavoas kaupst. 60-90 D -1- 37-40% Sólninq hf. Áb.kópav.kst. 5. ár -10- 6.000 10.25% Atvinnutrvqqinqasióður Einf. Ríkisáb. 6. ár -8- 40.000 vmisl 8,1% því hefur þurft auknar lántökur. Þetta hefur haft í för með sér auk- inn fjármagnskostnað með hveiju árinu sem líður. Á liðnu ári nálgað- ist fjármagnskostnaður Kópavogs- bæjar 300 milljónir króna og er orðinn þriðji stærsti útgjaldaliður bæjarsjóðs. Nú er því haldið fram, að bærinn hafi nær 550 milljónir til ráðstöfun- ar á þessu ári. Meiri hluti þessa fjár mun þó fara til greiðslu vaxta undir því, að það sé sagt rógur og illmælgi þegar staðreyndir um fjár- mál bæjarfélagsins eru gerðar opin- berar. Þessu verður ekki breytt nema skipt verði um meirihluta í næstu bæjarstjórnarkosningum og Sjálf- stæðisflokknum veitt nauðsynlegt brautargengi til að það geti orðið. Orðflúr og illmælgi krata og komma í Kópavogi er ekki sá grundvöllur, sem traustur fjárhagur bæjarfé- lagsins verður byggður á. Þar verða verkin að tala. Gerum Kópavog að betri bæ, þar sem hinu byggða umhverfi verði meiri gaumur gefinn. Við höfum verk að vinna Kópavogsbúar. Ger- um góðan bæ betri. Höfundur er formaður Verktakasambands íslands, varaformaður Vinnuveitenda- sambands íslands ogfyrsti maður á D-lista íKópavogi. Umferðartruflanir á Bláfjallavegi á sunnudag „SNJÓBLÁSARINN sem við höf- um vanalega til umráða hafði verið fluttur til verkefha i Reykjavík, og því var hann ekki tiltækur þegar snjóruðningur liófst á sunnudagsmorgun. Þá gáfu upplýsingar veðurstofu á laugardagskvöld ekki tilefni til að hefja snjómokstur um blánðtt- ina,“ sagði Þorsteinn Hjaltason umsjónarmaður fólksvangsins í Bláfjöllum í samtali við Morgun- blaðið. Til umferðartruflana kom á Bláfjallavegi á sunnudag, og voru dæmi þess að það tæki um 2 klukkustundir að komast hinn 12 kílómetra afleggjara frá Suð- urlandsvegi að skíðasvæðinu. „Hérna uppfrá er ein jarðýta staðsett áuk snjótroðaranna. Það tekur hana langan tíma að ryðja tvöfalda braut á veginn, og til þess var einfaldlega ekki tími á sunnu- dag. Því ákváðum við að opna veg- inn að hluta til einfaldan heldur en að auglýsa svæðið lokað, og við slíkar aðstæður má alltaf búast við truflunum á umferð,“ sagði Þor- steinn. Snjóblásari sem Bláfjalla- svæðið hefur venjulega til umráða hafði verið tekinn til annarra verk- efna í Reykjavík vegna áhlaupsins á laugardag. Hann sagði að slíkt tæki hefði lokið ruðningi svo vel væri á tveimur tímum. „Við þyrft- um að hafa forgangsaðgang að snjóblásara til að tryggja að hægt væri að opna veginn hratt og vel á slíkum dögum sem á sunnudaginn, þegar mikill fjöldi fólks sækir skíða- svæðið,“ sagði Þorsteinn. BILAGALLERI Opið virka daga frá kl. 9-18. Laugardaga f rá kl. 10-16. Range Rovor '82. Suartur. 4. gira, 4 dyra. Vökvast., útv/sagulb. Ek. 120.000 km. V. 950.000. Oalhatsu Roeky '87. 2.0 bensin. Hvftur. 5 gíra. Vökv- ast., útv/segulb. Ek. 58.000 km. Verö 1.020.000. Daihatsu Rocky '87. 2.0 bensln, sllfurgrér. 5 gfra. Vökvast., útv/segulb. Álfelg- ur. Ek. 25.000. V. 1.100.000. Dalhatsu Rocky '88. 2.0 bensfn, Vfnrauður/slifur. 5 gfra. Vövkast. útv/segulb. Bralö dekk og felgur. Ek. 27.000 km. Verö 1.140.000. Dalhatsu Rocky Wagon ’85, 2.8L dlesel. Sllfurgr. 5 gfra. Vökvast., útv./segulb. Upp- haakkaöur, br. dekk. Ek. aö- elns 48.000. V. 1.120.000. Dalhatsu Feroza EI-2-Sport '89. Blér/sllfurgr. 5 gfra. Vökvast., útv/segulb. Fram- grlnd og dráttarkúla. Ek. aö- elns 9.000 km. Sem nýr. Verö 1.270.000. Sklptl é ödýrarl. Toyota Tercel 4wd ’87. SBf- urgr. 5 gira, útv/segulb. Sum- ar/vetrardekk. Ek. 48.000 km. Verö 730.000. Toyota Tercel 4wd '87. Rauö- ur. 5 gfra, útv/segulb. Vetrar- dekk. Ek. 36.000. V. 740.000. Volvo 440 6LT turbo, '89. Rauöur. Framdrlf. 5 gfra, vökvast., útv/segul. Rafdr. rúöur og speglar. Tölva, litað gler. Álfelgur og ABS bromsu- kerfi. Ek. 5.000 km, sem nýr. Verö 1.470.000. Fjöldi annarra notaðra úrvals bíla á staðnum og á skrá. Brimborg hf. Faxafeni 8, s. (91) 685870.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.