Morgunblaðið - 13.03.1990, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990
17
PfflLCOWlS
KTNNIU ÞÉR KOSHNA
Renndu augunum yfir atriöin sem myndirnar hér fyrir neöan minna
á. Þau segja ekki allt, en gefa þó nokkra hugmynd um hvað er að
gerast í heimi þvottavéla og tala sínu máli um fjölhæfni, sparneytni
og traustleika sem einkennir Philco W 135.
Raðtengd straumrás gerir mótorinn þýðgengan, sparneytinn
og endingargóðan. Aðaiþvottakerfin eru 16 og vélin tekur 5 kg.
PHILCO - FULL VÉL AF NÝJUNGUM
ROR SEM METUR
TÍMAÞÖRF
| RAÐTENGD
STRAUMRÁSf
I MÓTOR
RAFEINDA-
STÝRING
I VINDIHRAÐI, ALLT
3,5 AÐ1300 SNÚNINGAR
I RAFEINDASTÝRÐ
HLEÐSLUJÖFNUN
SÉRSTAKT ULLAR-
ÞVOTTAKERFI
| FJÖLWETT
HITASTILUNG
SÉRSTÖK
SPARNAÐAR-
STILUNG
PJTJJI STILUNG FYRIR
HÁLFA HLEÐSLU
KjSSi STÖÐVAST
MEÐVATN||
m
ISSS(
ÞRJÚ GRUNNKERFI
ÁN
VINDINGAR
VALÁ
VINDUHRAÐA
I HEITTOGKALT
1 VATN
VÖKVA
HÖGGDEYRR
SWMBf RYÐFRÍTT STÁL
| TROMLU OG YTRI
í BELG
I GAUMLJÓS
ÖRYGGISHITASTILL-
IR FYRIR ULLAR-
ÞVOTT
IgaSJ YRRHÍTUNAR-
(S3§'
... #* ÖRYGGI
ÖRYGGISROR
^ | FUEÐIVARI
SJ HLEÐSLUÖRYGGI
■
Verð á Philco W135: KR. 68.970 STGR.
Heimilistæki hf
Sætúni 8 SÍMI 69 15 15 . Kringlunm SÍMI69 15 20
(/cð €/um'SveájsjaH0e£Íb í sattouttgjujH,
Útþensla á ríkisvaldi
eftir Birgir ísleif
Gunnarsson
Ég hef skrifað í Mbl. tvær grein-
ar í tilefni af frumvarpi félagsmála-
ráðherra til nýrra skipulags- og
byggingarlaga. Hér kemur þriðja
og síðasta greinin um málið og tek-
ið verður til meðferðar deiliskipulag
og hugmyndir frumvarpsins um
Skipulags- og byggingarstofnun
ríkisins.
Deiliskipulag
Þegar þetta nýja frumvarp er
skoðað vekja mesta athygli hug-
myndirnar um meðferð deiliskipu-
lags. Það orð merkir skipulagsáætl-
un sem nær yfir einstaka bæjar-
hluta, hverfi eða reiti innan ramma
aðalskipulags, þar sem nánari grein
er gerð fyrir landnotkun, nýtingu
lands, gatnaskipulagi, fyrirkomu-
lagi byggingar og annarri mann-
virkjagerð. I núgildandi skipulags-
lögum er hugtakið deiliskipulag
ekki til, en þar er hinsvegar rætt
um séruppdrátt að skipulagi ein-
stakra bæjarhverfa. Samkvæmt
núgildandi lögum er ekki gerð krafa
um að stofnanir ríkisins samþykki
deiliskipulag, enda hefur það ekki
tíðkast hér í Reykjavík, svo að
dæmi sé tekið.
Algjört tangarhald
Nú á að breyta um og ríkisstofn-
anir eiga að fá algjört tangarhald
á sveitarfélögum í þessum efnum.
í 21. gr. hins nýja frumvarps félags-
málaráðherra segir að deiliskipulag
taki ekki gildi fyrr en það hafí ver-
ið samþykkt af sveitarstjórn við
síðari umræðu og jafnframt verið
samþykkt af Skipulags- og bygg-
ingarstofnun ríkisins. Og ekki nóg
með það. Ef Skipulags- og bygging-
arstofnun ríkisins vill breyta skipu-
laginu eða neitar að samþykkja
það, þá getur sveitarstjórn áfrýjað
til Skipulagsstjórnar ríkisins sem
kveður upp endanlegan úrskurð í
málinu. M.ö.o. það er stjórnarnefnd
þessarar ríkisstofnunar sem á að
kveða upp endanlegan úrskurð í
deilum hennar við sveitarstjómir.
Já, það á ekkert að fara á milli
mála hvar valdið liggur.
Ríkið ráði á áberandi stöðum
Þá er enn eitt athyglisvert ný-
mæli í þessu frumvarpi um meðferð
deiliskipulags. í 17. gr. segir að
auðkenna megi sérstaklega svæði
á áberandi stöðum, svo sem við
torg og aðalgötur, og ákveða að
leyfi til bygginga þar sé háð sam-
þykki Skipulagsstjórnar. Eins og
fyrr er rakið getur Skipulags- og
byggingarstofnun ríkisins óskað
eftir breytingu á deiliskipulagi í
þessa átt og ef sveitarstjórnin fellst
ekki á það, hefur Skipulagsstjórn
ríkisins endanlegt úrskurðarvald í
málinu. Með þessu frumvarpi ætla
ríkisstofnanir að taka sér vald til
að segja t.d. ísafirðingum hvað
þeir megi byggja við Ráðhústorg
eða meðfram sjónum eða Reyk-
víkingum hvað þeir megi byggja í
miðbænum, við Tjörnina eða við
Skúlagötu. Valdið er alveg tekið frá
sveitarfélögunum í þessum tilvik-
um.
Eldri hverfi
Þá er enn hert að sveitarfélögun-
um frá því sem verið hefur varð-
andi deiliskipulag fyrir eldri hverfí
í þéttbýli. Samkvæmt þessu frum-
varpi er nú skylt að óska eftir stað-
festingu ráðherra á slíku skipulagi
fyrir eldri hverfi í þéttbýli sem fyrir-
hugað er að endurbyggja að ein-
hverju eða öllu leyti. Slík skylda
hefur ekki hvílt á sveitarfélögunum
áður og hefur þeim verið það í
sjálfsvald sett hvort þau óska stað-
festingar á slíku skipulagi og reynd-
ar er það ekki einu sinni forsenda
útgáfu byggingarleyfis í eldri hverf-
um að deiliskipulag hafi áður verið
gert.
Umfangsmikil ríkisstofiiun
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að Skipulag ríkisins breyti um nafn
og heiti hér eftir: Skipulags- og
byggingarstofnun ríkisins. Það leið-
ir m.a. af því að nú á að steypa
saman í einn lagabálk skipulags-
og byggingarlögum. Það kann að
vera skynsamlegt en mér líst hins
vegar ekki á þá útþenslu sem á að
verða hjá þessari ríkisstofnun. Sem
dæmi um ný verkefni má nefna:
Gerð landsskipulags, rannsókna-
starfsemi á sviði skipulags- og
byggingarmála og útgáfustarfsemi.
Hér er greiniega verið að stefna
að miklu bákni á sama tíma og
rætt er um niðurskurð ríkisútgjalda.
Ég hef í þremur greinum hér í
Mbl. fært rök að því að í mjög
mörgum atriðum er aukin miðstýr-
ing fólgin í þessu nýja frumvarpi
„Ég hef í þremur grein-
um hér í Mbl. fært rök
að því að í mjög mörg-
um atriðum er aukin
miðstýring fólgin í
þessu nýja frumvarpi
og verið er að færa vald
frá sveitarfélögum til
ríkisstofnana.“
og verið er að færa vald frá sveitar-
félögum til ríkisstofnana. Þetta er
í andstöðu við þá þróun sem er
annars staðar og í andstöðu við þær
almennu hugmyndir sem hér eru
uppi um aukið vald til sveitarfélag-
anna og þar með til fólksins sem í
þeim býr. Frumvarp þetta þarfnast
því rækilegrar endurskoðunar og
nauðsynlegt að sveitarfélögin komi
beint inn í undirbúning að nýju
frumvarpi og þess vegna tel ég
útilokað að hægt verði að afgreiða
þetta frumvarp á því þingi sem nú
stendur yfír.
E.s. Eftir að þessar greinar voru
ritaðar las ég grein eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur, félagsmálaráð-
herra, hér í Mbl. 6. mars, þar sem
hún ræðst nokkuð á málflutning
Birgir ísleifur Gunnarsson
minn í þessu máli. Ég neyðist því
til að skrifa fjórðu greinina og senda
henni nokkrar kveðjur.
Höfundur er einn af
alþingismönnum
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Reykjavíkurkjördæmi.
Fagiiaður eldri dvalar-
gesta á öskudaginn
Stykkishólmi.
SYSTURNAR á sjúkrahúsinu í Hólminum tóku sig til ásamt starfs-
liði á öskudag og gengust fyrir fagnaði með þeim sjúklingum sem
höfðu fótavist, klæddu þá í búninga og settu fallegar liúfur á höfúð
þeirra og svo var brosað og rabbað saman.
Ættjarðarlögin voru kyijuð
hvert af öðru „Ég vil elska mitt
land“, „Ó, fögur er vor fósturjörð"
og fleiri og það var gaman að sjá
svipinn á þeim gömlu, þar sem þau
tóku undir af hjartans lyst, þessa
góðu og gömlu söngva, settu sig í
stellingar og þótt minnið væri farið
að dofna hjá sumum endurvöktust
söngvarnir og bros frá liðnum árum
ljómuðu um stofuna. Fréttaritari
Morgunblaðsins hafði mikla
ánægju af því að fylgjast með og
taka undir. Þessi gleði stóð í heila
klukkustund en þá var kallað í mat.
Það er ekki langt síðan þröngt
var um eldri borgara, en nú hjálp-
ast menn og bær að við að gera
þeim elliárin sem best. Þetta eru
gleðilegar framfarir.
- Árni
Sjúkrahúsið í Stykkishólmi:
Morgunblaðið/Árni Helgason
Eldri dvalargestir á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi skemmtu sér vel
við söng og leik á öskudag.