Morgunblaðið - 13.03.1990, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990
jltottgtiiiÞlafrifc
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Sinfóníuhlj óms veit
Islands 40 ára
Afmælistónleikar Sinfóníuhijóm-
sveitar íslands voru rækileg
staðfesting á því mikilvæga starfí
sem hún innir af höndum. Það var
ekki þrautalaust að koma þessu
menningarfyrirtæki á legg, en
hljómsveitin hefur sannað ágæti sitt
því rækilegar sem árin hafa liðið.
Við eigum frumkvöðlum sveitarinn-
ar mikið að þakka og þá ekki síður
þeim sem þar hafa staðið við stjóm-
völ, svo og hljóðfæraleikurum öllum.
Allt þetta fólk sýndi á afmælistón-
leikunum það menningarlega hlut-
verk sem slík hljómsveit innir af
hendi. Þar fóru vel saman íslenzk
tónlistarsköpun og túlkun og rækt-
un heimsmenningar þar sem er önn-
ur sinfónía Mahlers. Erling Blöndal
Bengtson er ávallt aufúsugestur.
Það var skemmtilegt að hlusta á
sjónvarpssamtal við hann nú í vetur
og hvemig hann lagði áherzlu á
íslenzkan uppmna sinn og óijúfandi
tengsl við þetta land. Það hlýtur að
hafa yljað mörgum sem hlustuðu.
í yfírlitsgrein Jóns Þórarinssonar
tónskálds yfír þessi fjörutíu ár sem
birt er í dagskrá um starfsárið
1989-90 kemst hann m.a. svo að
orði: „Hljómsveitin hefur á 40 ámm
kynnt okkur meginhluta þeirrar tón-
listar sem er uppistaðan í efnis-
skrám sinfóníuhljómsveita um allan
hinn vestræna heim, mörg verkin í
margvíslegri túlkun ólíkra stjóm-
enda. Og hún er sífellt að færa sig
upp á skaftið, flytja betur en áður
þau verk sem áður þóttu þó vel
flutt, og taka fyrir stærri og kröfu-
harðari verkefni. Stjórnendur og
einleikarar sem hingað hafa komið
sem gestir hljómsveitarinnar, eða
jafnvel fastir starfsmenn um langan
eða skamman tíma, skipta orðið
nokkmm hundmðum, og a.m.k.
sumir þeirra hafa stórlega auðgað
og örvað íslenskt tónlistarlíf. íslensk
tónverk sem flutt hafa verið á þessu
árabili skipta sjálfsagt hundmðum,
og telja má víst að mjög mörg þeirra
hefðu aldrei orðið til hefði sinfóníu-
hljómsveitarinnar ekki notið við. Og
þótt þau hefðu e.t.v. verið samin,
hvernig hefðu þau þá náð eyram
þjóðarinnar — og annarra þjóða?
Þannig hafa með tilstyrk hljómsveit-
arinnar verið lagðir ófáir steinar í
þá byggingu sem við köllum íslenska
menningu og okkur öllum er annt
um að rísa megi sem hæst og verða
sem glæstust.“
Á afmælistónleikunum flutti
Ólafur B. Thors, formaður stjórnar
Sinfóníuhljómsveitar Islands, ávarp
og gat þess meðal annars að íslenzk
tónlist ætti ekki þak yfír höfuðið.
Við skulum minnast þess á merkum
tímamótum í sögu þessa óskabarns
sem varð til fyrir hugsjónahita og
trú á íslenzkt þjóðlíf og íslenzka
menningu.
Morgunblaðið sendir Sinfóníu-
hljómsveit íslands hamingjuóskir í
tilefni af fjömtíu ára afmælinu og
minnir um leið á þau orð frú Vigdís-
ar Finnbogadóttur, forseta íslands,
í fyrmefndri afmælisdagskrá, að
íslendingar standa ekki sízt í þakk-
arskuld við Sinfóníuhljómsveitina
fyrir það að hún hefur átt dijúgan
þátt í að efla með okkur það sjálfsör-
yggi sem er forsenda sjálfstæðis
okkar og þjóðemis, eins og forsetinn
kemst að orði.
Skafl beygj-
attu skalli,
þó að skúr á
þig falli
Handboltamennimir okkar eiga
erfiða daga um þessar mundir.
Til þeirra hafa verið gerðar miklar
kröfur og nú þegar upp er staðið
hafa þeir því miður ekki náð þeim
árangri sem efni stóðu til. En það
er engin ástæða til að gráta Bjöm
bónda. íslendingar vita að þeir em
lítil þjóð og heimurinn er ofurefli.
Þeir vita líka að þeir hafa margt til
bmnns að bera og hafa fagnað
margvíslegum sigmm, bæði í íþrótt-
um og á öðmm sviðum, svo sem
skák og listum. Lítil þjóð getur ekki
ævinlega verið á toppnum eins og
stórþjóðimar. Of mikið er einatt
lagt á hvern einstakan með litlum
þjóðum. Stórþjóðimar hafa úr
mannhafi að velja og em því miklu
betur undir alla keppni búnar en
við. Við eigum einungis að fagna
þegar vel gengur, en þegar illa
gengur gerist ekkert annað en við
bíðum ósigur. Ekki koma allir dagar
í böggli, sagði gamla fólkið. Það
gerist ekki heldur í íþróttum. Við
eigum eftir að snúa vöm í sókn.
Þeir handboltamenn sem nú koma
heim eftir erfíða leiki og þó nokkra
þrekraun hafa oft og einatt haldið
merki íslands svo rækilega á lofti
að lengi verður munað. Það er ekki
síður ástæða til að taka vel á móti
þeim nú þegar þeir koma heim sigr-
aðir. Þeir hafa orðið fyrir óvæntum
skakkaföllum og þá er að taka því.
Engum íslendingi dettur í hug að
álasa þeim fyrir frammistöðuna.
Það hefur verið ánægjulegt að fylgj-
ast með þeim. Nú verður einnig
skemmtilegt og uppörvandi að fylgj-
ast með þeirri uppbyggingu sem
framundan er.
Það er gott og blessað að keppa
til sigurs. Hitt er mikilvægara að
tileinka sér sannan íþróttaanda.
Hann felst ekki sízt í því að kunna
að bíða ósigur. Það er enginn vandi
að sigra en það getur verið mikill
vandi að bíða ósigur.
Við bjóðum handknattleiksmenn-
ina velkomna heim. Við þökkum
þeim fyrir margar gleðistundir á
undanfömum ámm. Við óskum
íslenzkum íþróttum og íþróttamönn-
um ve'farnaðar og höldum áfram
að rrekta handboltann, sem er orð-
inn einskonar þjóðaríþrótt hér á
landi, enda skemmtileg og viðráðan-
leg íþrótt fyrir okkur eins og hefur
sýnt sig. Nú söfnum við liði og horf-
um róleg og alls ókvíðin fram á
bjartari daga.
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Húsið að Koltröð 1 á Egilsstöðum er gjörónýtt eftir brunann að-
faranótt laugardags. Húsið stendur að hluta uppi en íbúarnir, hjón
með ungt barn, misstu allt innbú sitt í eldinum.
Eldsvoðar um helgina:
Allt brann sem brunnið
Tvær íbúðir, önnur á Klepps-
vegi í Reykjavik, hin í einbýiis-
húsi á Egilsstöðum, eyðilögðust
í eldsvoðum um helgina, eins og
skýrt var frá í Morgunblaðinu á
sunnudag. Á Egilsstöðum sluppu
hjón með ungt barn naumlega
út úr brennandi húsinu og á
Kleppsvegi var manni bjargað
af svölum íbúðarinnar, sem er á
5. hæð.
Rannsókn á eldsupptökum stend-
ur enn yfír og lá niðurstaða ekki
fyrir í gær. Rannsóknarmenn frá
RLR fóru til Egilsstaða til að rann-
saka eldsupptökin og þeir unnu
einnig að rannsókn bmnans á
Kleppsvegi. I báðum tilfellum brann
allt sem bmnnið gat og engu af
innbúi var forðað úr logunum.
Morgnnblaðið/Jón Stefánsson
Ibúðin á Kleppsvegi er öll brunnin. I lofti hennar sjást hvítar skell-
ur þar sem múrhúð hefur hrunið niður.
Vélsleðamanni
bjargað:
Beið einn á
Langjökli
í 15 tíma
BJÖRGUNARSVEITIN Ok í Reyk-
holtsdal sótti á aðfaranótt sunnu-
dags vélsleðamann, sem orðið
hafði viðskila við félaga sína í
slæmu veðri á Langjökli er sleði
hans bilaði. Komið var með mann-
inn heilan á húfi í Húsafell um
klukkan hálfsex að morgni sunnu-
dagsins.
Þrír björgunarsveitarmenn fóra á
jökulinn hver á sínum sleða að leita
mannsins en félagar hans tveir vom
þá komnir í Húsafell. Björgunarsveit-
armenn fóra fyrst að skálanum í
Slunkaríki, ef vera kynni að maður-
inn hefði komist þangað, en óku
síðan í átt að Húsafelli eftir sömu
lóranmiðun og félagamir höfðu
stuðst við. Þá var veður gengið nið-
ur. Um klukkan hálffjögur að morgni
sunnudgasins óku björgunarsveitar-
menn fram á manninn um 10 kíló-
metra vestan við Þursaborg og voru
þá liðnir 15 klukkustundir síðan hann
hafði orðið viðskila við félaga sína.
Ising hafði komist í eldsneytiskerfi
sleðans og valdið gangtruflunum.
Þegar maðurinn sá hjálp nálgast
gangsetti hann sleða sinn og beindi
ljóskastara hans í átt að björgunar-
mönnunum. Hann hafði þá borið um
þáð bil einn kílómetra af leið.
Að sögn Bjama Áskelssonar,
formanns björgunarsveitarinnar
Oks, hafði maður þessi sýnt góða
fyrirhyggju við erfiðar aðstæður.
Hann hafði gætt þess að eyða ekki
öllu bensfni af sleðanum, og kom það
sér í góðar þarfir þegar leitarmenn
nálguðust. Þá hafði hann búið vel
um sig og skipst á að liggja fyrir
og ganga um í klukkustund í senn.
Björgunarsveitarmönnum tókst að
lagfæra bilunina í sleða mannsins.
Síðan var bætt á hann bensíni og
ekið af stað. Komið var í Húsafell
um það bil tveimur tímum síðar.
Saltfískurinn:
Akveðið viðmiðunarverð er þegar í gildi
Get því ekki séð að til innborgunar í Verðjöfhunarsjóð
geti komið nú, segir Sigurður Haraldsson hjá SÍF
„ÁKVÖRÐUN um viðmiðunarverð
vegna útflutnings á saltfiski var
tekin af stjórn Verðjöfhunarsjóðs-
ins í upphafi ársins og giidir hún
fram á mitt ár. Samkvæmt henni
var þá hætt að greiða úr sjóðnum
og á þessu tímabili verður hvorki
um inn- né útborgun úr honum
að ræða. Á grundvelli þessarar
ákvörðunar hafa verkendur síðan
skipulagt reksturinn og meðal
annars samið um hráefnisverð.
Ég get því ekki séð að þessari
ákvörðun verði breytt,“ sagði Sig-
urður Haraldsson hjá SÍF í sam-
tali við Morgunblaðið.
Forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, sagði í samtali við
Morgunblaðið um síðustu helgi, að
mjög mikilvægt væri að draga úr
þensluáhrifum vegna 8% meðaltals
hækkunar á verði sjávarafurða.
Markmiðum kjarasamninga gæti
verið stefnt í voða yrði ekki gripið
til ákveðinna ráðstafana svo sem að
taka upp greiðslu vegna útflutnings
í Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins.
Hann gerði jafnframt ráð fyrir því
að stjórn Verðjöfnunarsjóðsins hlyti
fljótlega að taka málið til meðferðar
á ný.
Hækkun á verði sjávarafurða er
mest í saltfiski, en til síðustu ára-
móta vora greidd rúm 5% úr sjóðnum
til framleiðenda. Sigurður Haralds-
son segir að framleiðendur hafi eng-
in boð fengið um það, að endurskoða
eigi áður ákveðið viðmiðunarverð
enda muni breyting á því raska allri
skipulagningu vinnslunnar. í raun
sé heldur engin ástæða til þess að
þvinga fram innborgun í sjóðinn,
þegar menn sjái í fyrsta sinn í mjög
langan tíma einhverra aura hagnað
af verkuninni. „Það er engin ástæða
til að sjá ofsjónum yfír því, þó fram-
leiðendur geti loksins dyttað að verk-
unarhúsum sínum og endumýjað
hjólbörur," sagði Sigurður.
Glaðzt yfir
listsýningii
fatlaðra
Síðastliðinn sunnudag var opnuð
í Listasafni ASI sýning á listaverk-
um fatlaðra undir yfírskriftinni „Úr
hugarheimi". Á sýningunni em 79
verk eftir hér um bil jafnmarga
listamenn. Tilgangur sýningarinnar
er að sögn aðstandenda hennar,
Öryrkjabandalagsins og Þroska-
hjálpar, að kynna mátt myndarinn-
ar sem tjáningarmiðil fatlaðra,
reyna að varpa ljósi á hugarheim
þeirra, sem verkin skapa, og bijóta
niður einhveija þá múra, sem um-
lykja marga fatlaða. Heiðursgestur
við opnun sýningarinnar var frú
Vigdís Finnbogadóttir forseti Is-
lands. Forseti ræðir hér við einn
listamannanna.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13, MARZ 1990
29
STORVELDASLAGUR
sæti eftir fyrri hlutann
___________Skák________________
Bragi Kristjánsson
Stórveldaslagur í skák, sem nú
stendur yfír í sölum Taflfélags
Reykjavíkur og Skáksambands Is-
lands við Faxafen, er hálfnaður.
Mikil barátta hefur einkennt skák-
irnar og áhorfendur hafa orðið
vitni að æsispennandi keppni.
Tvær umferðir vom tefldar um
helgina:
Önnur umferð:
Norðurlönd (2523) 3 'A-
Bandaríkin (2552) 6 !A.
Agdestein — Gulko, 1-0; Helgi —
Seirawan, ’A; Margeir — Fed-
orowicz, 0-1; Hellers — deFirmian,
’A; Jóhann — Christiansen, ‘A; Jón
L. — Browne, 0-1; Schussler —
Benjamin, 0-1; Yijölá — Dzindzich-
ashvili, 0-1; Mortensen — D.
Gurevich, 0-1; Wessman — Ivanov,
0-1.
Algjört hrun Norðurlandasveit-
arinnar! Agdestein vann ömgglega
á 1. borði, þegar Gulko fórnaði
skiptamun án þess að fá nægileg
gagnfæri. Helgi gat ekki unnið
örlítið betra tafl og Hellers gerði
öruggt jafntefli. Þar jneð er upp-
taldar þær skákir, sem gengu
nokkuð eðlilega fyrir sig.
Jóhann missti vinningsstöðu
niður í jafntefli. Jón L. lék af sér
manni í tímahraki í vinningsstöðu.
Margeir sá aldrei til sólar. Wess-
man stillti upp hjálparmáti og tap-
aði í 24 leikjum. Mortensen og
Schussler misstu vinningsstöður
niður í tap og Yijöla tapaði klaufa-
lega.
Sovétríkin (2609) 6'A- Eng-
land (2554) 3‘A.
Eingorn — Short, 1-0; Ivantsjúk
— Speelman, 1-0, Vaganjan —
Nunn, 1-0; Sókólov — Hodgson,
'A; M. Gúrevítsj — Adams, !A;
Dolmatov — King, ‘A; Azmajpar-
asvílí — Suba, 'A; Pólúgajevskíj —
Mestel, 0-1; Túkmakov — Nor-
wood, 1-0; Kosten — Dreev, 'A.
Ótrúlega léttur sigur Sovét-
manna á Englendingum. Mestu
munaði að enska framvarðasveitin,
Short, Speelman og Nunn, hmndi
eins og spilaborg. Short er eitthvað
miður sín, hann tapaði bardaga-
laust fyrir Gulko í fyrstu umferð,
og nú lék hann gróflega af sér
gegn sovéska varamanninum.
Speelman tefldi byijunina nokkuð
glannalega og gat ekki haldið stöð-
unni éftir það. Stærðfræðidoktor-
inn, Nunn, reiknaði ekki eins vel.
og Vaganjan, þótt undarlegt megi
virðást. Mestel var sá eini í ensku
sveitinni, sem vann í þessari um-
ferð.
Þriðja umferð
Sovétríkin (2603) 5'A-
Bandaríkin (2553) 4'A.
Júsúpov — Gulko, 'A; Ivantsjúk
— Seirawan, 1-0; Vaganjan —
Fedorowicz, 0-1; Sókólov — deF-
irmian, 'A; M. Gúrevitsj — Christ-
iansen, 1-0; Dolmatov — Browne,
0-1; Eingom — Benjamin, 1-0;
Pólúgajevskíj — Dzindzischas-
hvili,. 'A; Makarítsjev — Lein, ‘A;
Dreev — Ivanov, 'A.
Hörkukeppni, sem allt eins
hefði getað endað með sigri
Bandaríkjamanna. Skák Gúrevitsj
og Christiansen réð mestu um
úrslitin. Bandaríkjamaðurinn átti
um tíma vinningsstöðu, en lenti
loks í endatafli með hrók gegn
riddara og tveim peðum. Þá var
tíminn á þrotum og Sovétmaður-
inn vann. Christiansen var öskuill-
ur yfir þessu, en hann varð að
sætta sig við úrslitin, því hann
hafði ekki tíma til að ljúka skák-
inni.
Norðurlönd (2518) 4 ‘A— Eng-
land (2554) 5'A.
Agdestein — Short, 1-0; Helgi
— Speelman, 0-1; Margeir —
Nunn, 'A; Hellers — Hodgson, 'A;
Jóhann — Adams, 1-0; Jón L. —
King, 1-0; Friðrik Ólafsson —
Suba, 0-1; Yijölá — Mestel, 0-1;
Mortensen — Norwood, 0-1; Karl
Þorsteins — Kosten, 'A.
Enn tapar Norðurlandasveitin
keppni, sem hún hefði átt að
vinna. Short er óþekkjanlegur í
þessari keppni. Honum tókst að
bjarga gjörtapaðri stöðu í fræði-
legt jafnteflisendatafl, hafði hrók
gegn hrók og biskupi. Keppendur
áttu tvær mínútur hvor til að ljúka
skákinni og Short lék sig í mát!
Helgi tapaði slysalega fyrir Speel-
man. Margeir og Hellers gerðu
örugg jafntefli. Jóhann vann
stutta skák af undrabarninu
Adams og Jón L. vann hörkuskák
við King.
Friðrik Ólafsson kom inn í liðið
fyrir Schussler og tefldi við hinn
fræga Islandsfjanda, Suba. Frið-
rik lék af sér í byijun og fékk
ekki rönd við reist eftir það.
Yijöla og Mortensen töpuðu
báðir vinningsstöðum. Finninn á
tíma, en Daninn fyrir ótrúlegan
klaufaskap.
Karl Þorsteins kom inn fyrir
Wessman og fékk tapað tafl í
byijun. Hann lét ekki hugfallast,
varðist af mikilli hörku og náði
jafntefli.
Staðan að loknum fyrri hluta
keppninnar sést á meðfylgjandi
töflu:
menn Jóns vinni illa saman í fram-
haldi skákarinnar.
22. dxe4 - Dxe4+, 23. Kal -
1 2 3 4 Vinn. Röð
1. Norðurlönd X 2'A 4'A 4'A ll'A 4
2. Bandaríkin 7 ‘A X 4 'A 4'A 16'A 2
3. England 5 'A 5'A X 2'A 15 ‘A 3
4. Sovétríkin 5'A 5'A 7'A X 16'A 1
Helsti árangur einstaklinga:
Agdestein (1. borð), 2'A/3; Jó-
hann (5. borð) 2'A/3, Helgi (2.
borð), Márgeir (3. borð) og Jón
L. (6. borð) 1/3; ívanstjúk (2.
borð) 2/2; Short (1. borð) 0/3;
Browne (6. borð) 3/3; Mestel (8.
borð) 3/3.
Að lokum sjáum við tvær fjör-
ugar skákir úr þriðju urnferð.
5. borð
Hvítt: Michael Adams
Svart: Jóhann Hjartarson
Sikileyjar-vörn
I. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 - RI6, 5. Rc3 -
a6, 6. Be3 - e6, 7. Dd2 - Rbd7,
8. f3 - b5, 9. 0-0-0 - Bb7, 10.
g4 - h6, 11. h4
Einnig er leikið hér 11. Bd3
eins og Jóhann gerði í skák við
Kasparov á Ólympíuskákmótinu
1988.
II. - b4, 12. Rce2 - d5, 13.
exd5 - Rxd5, 14. Rf4 - Rxe3,
15. Dxe3 - Db6,16. Del - 0-0-0.
Svartur hefur náð yfírburða-
stöðu á þekktan hátt. Spurningin
er aðeins: Hvað var Adams að
hugsa??
17. Rfe2 - Bc5, 18. Bg2 - Rf6,
19. Rb3 - Be3+, 20. Kcl -
Hxdl+, 21. Dxdl - Rxg4, 22.
Dfl - Rf2, 23. Hh2 - Hd8, 24.
Recl - Bf4
og Adams gafst upp saddur
lífdaga. Hann tapar skiptamun
án þess að fá nokkrar bætur.
6. borð:
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Daniel King
Sikileyjar-vörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 - Rfíi, 5. Rc3 -
a6, 6. Be2 - e5, 7. Rb3 - Be7,
8. Be3 - Be6, 9. f4 - exf4, 10.
Bxf4 - Rc6, 11. Dd2 - 0-0, 12.
0-0-0 - Re5, 13. Rd4 - Dd7,
14. Rxe6 - Dxe6, 15. Kbl -
Hac8, 16. Hhel - Hfe8, 17. Bd3
- Bd8, 18. Re2 - Bb6, 19. Bg5
- Rxd3?
Betra var 19. — Rc4, 20. Dcl
- Bf2!, 21. He2 - Bd4 með flók-
inni stöðu.
20. cxd3 - Bf2, 21. HD - Rxe4!?
King fórnar liði í von um að
Hc2
Ekki 23. - Dxe2, 24. Hxf2
o.s.frv.
24. Hxf2 - Hxd2, 25. Bxd2 -
b5, 26. Rc3 - Dc4, 27. Hf4 -
Dc5, 28. Hcl - h6, 29. a3 -
Dc6, 30. Hg4 - Kh7, 31. Re4 -
Dd7, 32. Hf4 - He6, 33. Bb4 -
ft>, 34. g4 - Da7
Englendingurinn getur ekki
haldið í horfinu til lengdar, því
ofan á vandamál stöðunnar á
hann lítinn tíma eftir. Hann legg-
ur því út í gagnsókn upp á líf og
dauða.
35. Rxd6 - He2, 36. Rf5 - a5,
37. Bd6 - Db7, 38. Rxg7! -
Dg2 eða 38. - Kxg7 (- Dxg7)
39. Hc7 og vinnur. 39. Rh5 -
Hxb2, 40. Hc7+ - Kh8.
Tímamörkum er náð og Jón L.
virðist í erfíðleikum.
41. Be5!! Hc2
Auðvitað ekki 41. — fxe5, 42.
Hf8 mát. Eftir 41. - He2, 42.
Bxf6+ Kg8, 43. Bb2!, (43. —
Hxb2, 44. Hc8+ - Kh7, 45. Hf7+
— Kg6, 46. Hg7 mát; 43. — Hel+
eða 43. — Dhl+, 44. Bcl), 44.
Hg7+ Kh8, 45. Hgf7+ - Hxb2,
46. Hf8+ - Kh7, 47. H4H+ -
Kg6, 48. Hg7 mát.
42. HxfB!
og King gafst upp. Eftir 42. —
Hxc7 (42. - Dhl+, 43. Hfl+),
43. Hf8++ Kh7, 44. Hh8 - Kg6,
45. Rf4n— Kf7, 46. Rxg2 vinnur
hvftur létt.
Seinni hluti keppninnar hefst
kl. 17 í dag með 4. umferð og
tefla þá Norðurlönd-Sovétríkin og
Bandaríkin-England. Teflt er í
húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur og Skáksambands
Islands í Faxafeni 12, Reykjavík.
Stórveldaslagur í algleymingi.
Morgunblaðið/RAX
Jóhann Hjartarson vann öruggan sigur á
Adams í þriðju umferðinni.
Sovétríkin eru í fyrsta