Morgunblaðið - 13.03.1990, Page 34
34
MPHGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13,. MARZ 1990
Byggðastofiiun:
Utflutningnr fersks
lax í flugi kannaður
Á VEGUM Byggðastofnunar er nú verið að kanna hagkvæmni þess
að flytja út afurðir frá fiskeldisstöðvunum Miklalaxi í Fljótum og
Siifúrstjörnunnar í Oxarfirði í beinu flugi frá Akureyri. Arngrímur
Jóhannsson forstjóri flugfélagsins Atlanta kom á fúnd Byggðastofiiun-
armanna á Akureyri nýlega þar sem þessi mál voru rædd.
veruleika, ef til þess er grundvöll-
ur,“ sagði Valtýr.
Valtýr sagði að málið væri á
frumstigi og einungis verið haldinn
einn fundur þar sem rætt hefði
verið um möguleika þessa, en það
yrði skoðað betur á næstu vikum
og þá kæmi væntanlega í ljós hvort
af slíkum fiutningi geti orðið. „Við
viljum skoða þetta ofan í kjölinn
og niðurstað fundarins með Am-
grími var sú að afskrifa ekki þenn-
an möguleika strax,“ sagði Valtýr.
Ástæðu þess að Byggðastofnun
værí að skoða þetta mál, sagði
Valtýr vera að stofnunin ætti
stjórnarmenn í báðum umræddum
fiskeldisstöðvum.
Valtýr Sigurbjarnarson forstöðu-
maður Byggðastofnunar á Akureyri
sagði mönnum hefði þótt ástæða
til að láta skoða hvort mögulegt
væri að flytja afurðir þessara stöðva
út beint með flugi frá Akureyri.
„Það er mikils um vert að menn
sameini krafta sín og geri þetta að
Utanríkisráð-
herra fundar í
Alþýðuhúsinu
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra heldur almenn-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fulltrúar Alumax og Hoogovens könnuðu í gær aðstæður fyrir hugsanlegt álver á Dysnesi skammt
norðan Akureyrar. Á myndinni eru frá vinstri Sigurður P. Sigmundsson framkvæmdastjóri Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar, Ingimar Brynjólfsson oddviti í Arnarneshreppi, Andrés Svanbjörnssop frá markaðs-
skrifstofú Landsvirkjunar og iðnaðarráðuneytis, Paul Dracke aðalforsljóri Alumax, Jón Ingimarsson frá
iðnaðarráðuneyti, Max Rocker forstjóri Hoogovens, Bond Evans aðstoðarforstjóri Alumax, Halldór
Kristjánsson frá iðnaðarráðuneyti, Garðar Ingvarsson forstöðumaður markaðaskrifstofu Landsvirkjunar
og iðnaðarráðuneytis og Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri.
Forsljórar álfyrirtækja skoðuðu aðstæður íyrir nýtt álver:
Uppbygging atvinnu verði
ekki öll á höfúðborgarsvæðinu
- segir Sigurður J. Sigurðsson forseti bæjarstjórnar
an fund í Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri kl. 21 í kvöld, þriðjudags-
kvöld. Jón Baldvin mun í heim-
sókn sinni heimsækja fyrirtæki
og halda fúndi í skólum bæjarins.
Heimsókn Jóns Baldvins er þátt-
ur í upplýsingastarfi ráðuneytisins
varðandi viðræður EB og EFTA og
er tilgangurinn að koma á fram-
færi upplýsingum um gang við-
ræðnanna. Ráðherrann heimsækir
í dag Útgerðarfélag Akureyringa,
Slippstöðina og Álafoss. Þá situr
hann fund með bæjarstjórn Akur-
eyrar og fulltrúum Iðnþróunarfé-
lags Eyjafjarðar. Almennur upplýs-
ingafundur ráðherrans hefst kl. 21
í Alþýðuhúsinu við Skipagötu.
Fyrir hádegi á morgun heldur
ráðherrann tvo fundi; með nemum
í MA og VMA. Síðdegis fundar
hann með stúdentum í Háskólanum
á Akureyri. Heimsókn ráðherrans
til Akureyrar lýkur annað kvöld.
PAUL Dracke, aðalforstjóri
bandaríska álfyrirtækisins Alum-
ax, Bond Evans, aðstoðarforstjóri
Hoogovens, og Max Krocker, for-
stjóri Hoogovens í Hollandi, komu
til Akureyrar í gær ásamt fúlltrú-
um iðnaðarráðuneytis og mark-
aðsskrifstofu Landsvirkjunar og
iðnaðarráðuneytis og skoðuðu
aðstæður fyrir hugsanlegt álver á
svæðinu. Hópurinn fór m.a. að
Dysnesi, skammt norðan Akur-
eyrar, en á þann stað hefúr verið
bent sem liklegan stað undir álver
i Eyjafirði. Á viðræðufúndi sem
haldinn var að lokinni skoðunar-
ferð kom fram í máli Paul Dracke
aðalforstjóra Alumax að fyrirtæk-
ið setti ekki fyrir sig þó staðir
væru fremur litlir og hefði það
góða reynslu af slíkum stöðum.
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar sagði að gestirnir hefðu
verið ánægðir með heimsóknina og
fengið gott yfirlit yfir svæðið. Að
lokinni skoðunarferð að Dysnesi var
haldinn fundur á Hótel KEA þar sem
kom fram í máli Paul Dracke að
reynsla fyrirtækisins af smærri stöð-
um væri góð, m.a. vegna þess að
þar væri vinnuafl stöðugt. Sigurður
sagði að áhersla hefði verið iögð á
að kynna þá þjónustu sem svæðið
byði upp á, hér væri stærsta sjúkra-
hús landsins utan höfuðborgarsvæð-
isins, mörg stór fyrirtæki og skólar.
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, sagði eftir
fundinn, að nýja stóriðju yrði að
staðsetja utan höfuðborgarsvæðis-
ins, staðsetning nýs álvers á því
svæði hefði víðtæk áhrif á búsetu í
landinu og afleiðingin yrði margfalt
kostnaðarsamari en menn óraði fyr-
ir. Hann sagði að menn gerðu sér
nú betri grein fyrir því að vafasamt
væri með tilliti til búsetuþróunar að
setja álver niður á höfuðborgarsvæð-
inu. „Það hlýtur að vera hlutverk
stjórnvalda að ákveða þá stefnu sem
fylgt verður í þessu máli. Það hlýtur
að vera ófrávíkjanleg krafa lands-
manna að nýtt álver verði staðsett
með tilliti til þjóðhagslegrar hag-
kvæmni, þar sem tekið er mið af
þeirri byggðaröskun sem hlýst af
staðsetningu þess á höfuðborgar-
svæðinu," sagði Sigurður.
„Að mínum dómi er það hrein
uppgjöf ef öll atvinnuuppbygging á
að vera á höfuðborgarsvæðinu. Með
slíku er verið að viðurkenna að. ekki
verði spornað við þeirri þróun að
þetta samfélag sé að breytast í
borgríki á suðvesturhorninu. Þá hafa
menn ekki lengur búsetuval og ný
tækifæri í atvinnulífi munu aðeins
þróast á því svæði og þar munu fjár-
munirnir velta.“ Sigurður sagði bar-
áttu manna á Eyjafjarðarsvæðinu
snúast um það að gera þjóðinni Ijósa
þá staðreynd að ekki verði við það
unað, að nýta ekki þetta tækifæri
til að efla byggð í landinu.
„Við gerum okkur vonir um að
þessi efni geti valdið byltingu hvað
varðar hreinlæti og öiyggi í fiskiðn-
aði og áhætta hvað varðar afföll á
afurðum minnki," sagði Þorsteinn
Ólafsson efnafræðingur hjá Sjöfn.
Hann sagði að eiginleikar litvísis
væru þeir að óhreinindi sem ekki
sæjust berum augum kæmu í ljós
„Við erum því miður að reka
óraunhæfa byggðastefnu í þessu
landi, sem leitt hefur til síaukinna
ríkisafskipta í einu eða öðru formi,
sem kostað hefur gífurlega fjár-
muni. Það má því nokkuð á sig
leggja til að ná fram aðgerðum sem
hefðu raunhæf áhrif á byggðaþróun.
Þetta snýst ekki bara um Eyjafjarð-
arsvæðið, heldur um allt landið,"
sagði Sigurður J. Sigurðsson.
þegar efnið væri notað. Ákveðnu lit-
arefni, sem leyfilegt er að nota í
matvælaiðnaði, væri blandað saman
við hreingerningaefnið og þegar
þvottalausninn væri skoluð burt
sæjust þau óhreinindi sem eftir sætu
rauð að lit. Með því að fjarlægja
rauðu óhreinindin væri hámarks
hreinlæti náð.
EVROPA
AKUREYRINGAR
Upplýsingar um Evrópska
efnahagssvæðið, ESS
Jón Baldvin Hannibalsson
Utanríkisráðuneytið heldur upplýsingafund um
viðræður Fríversíunarsamtaka Evrópu(EFTA) og
Evrópubandalagsins (EB) um myndun Evrópska
efnahagssvæðisins (ESS) í Alþýðuhúsinu á Akur-
eyri í dag, þriðjudag 13. mars, kl. 21.00.
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra,
hefur framsögu og svarar fyrirspurnum.
Upplýsingadeild.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur hjá Sjöfti, kynnti starfsfólki í fisk-
iðnaði nýju efnin á laugardaginn.
Efiiaverksmiðjan Sjöfii:
Efiii sem greinir ann-
ars ósýnileg óhreinindi
EFNAVERKSMIÐJAN Sjöfn hefúr sett á markað þrjú ný efni til að
auðvelda þrif. Þá hefúr verið þróuð sérstök aðferö við þrifin, en nýju
efnin sem og aðferðin var kynnt hópi fólks allt frá Vestfiörðum til
Austurlands, sem starfar við fiskiðnað. Efnin, sem bera heitin vísir,
fantur með litvísi og afvísir, eru einkum ætluð til þrifa i fiskiðnaði
og hefúr Sjöfti fengið einkaleyfi á sölu og dreifingu þeirra á Islandi,
Færeyjum og Grænlandi.