Morgunblaðið - 13.03.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1390
I.ÆKNASTOFUR 4-
37
Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs:
Félagasamtök gáfu
blóðrannsóknartæki
Keflavík.
TÍU fclagasamtök á Suðurnesjum gáfti Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknis-
héraðs nýlega nýtt og fúllkomið blóðrannsóknartæki. Með tilkomu
tækisins, sem kostaði um 3 milljónir, verður hægt að vinna úr ýms-
um sýnum sem hingað til hafa verið flutt til Reykjavíkur og auk
þess er nýja tækið mun ftillkomnara og afkastameira en gamla tæk-
ið sem komið var til ára sinna.
Félagasamtökin sem stóðu að
gjöfinni voru: Styrkatrfélag Sjúkra-
húss Keflavíkur, Lionsklúbbur
Keflavíkur, Lionessuklúbbur
Keflavíkur, Lionsklúbbur Njarðvík-
ur, Lionessuklúbbur Njarðvíkur,
Lionsklúbburinn Óðinn Keflavík,
Lionsklúbburinn Keilir Vogum, Li-
onsklúbbur Sandgerðis, Lionsklúb-
bur Grindavíkur og Lionsklúbb-
urinn Garður Garði.
í stuttu hófi sem fram fór af
þessu tilefni var nýja tækið kynnt
og þakkaði Ólafur Björnsson for-
maður sjúkrahússtjómar gjöfína.
Hafsteinn Guðmundsson í Lions-
klúbb Keflavíkur talaði fyrir hönd
gefendanna og vildi koma á fram-
væri þakklæti til állra Suðurnesja-
manna fyrir góðar móttökur á þeim
dögum sem samtökin hefðu staðið
að fjáröflun því án þeirra hefði þetta
framtak ekki verið framkvæman-
legt. BB
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Fulltrúar félagasamtakanna tíu sem stóðu fyrir kaupunum á nýja tækinu ásamt starfsfólki rannsóknarstofú Sjúkrahússins, sljórn og yfír-
lækni en á innfelldu myndinni sést Kristján Sigurðsson yfirlæknir Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs ásmat Sigurlaugu Þráinsdóttur yfír-
meinatækni við nýja blóðrannsóknartækið.
ÞJÓNUSTA
Húsgagna-og
húsasmídameistari
getur bætt við sig húsbyggingum. Byggjum
húsin frá grunni að teppum.
Sími 79923.
Geymið auglýsinguna.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
iÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
aðfærsluæðar og dreifikerfi fyrir Hafnarfjörð
13. áfanga, Hvaleyraholt - Reykjanesbraut.
Hvaleyraholt: Heildarlengd lagna er um
2.160 m pípustærðir eru 0 20 - 0 300.
Reykjanesbraut: Heildarlengd lagna er um
650 m pípustærðir eru 0 250.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudag-
inn 3. apríl 1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Q) ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í
verkið Borgarholt - Aðveituæð, 1. áfangi.
Um er að ræða byggingu á um 1.000 m. af
steyptum hitaveitustokki með 500 og 600
mm stálpípum.
Stokkurinn liggur frá Vesturlandsvegi með-
fram Víkurvegi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudag-
inn 3. apríl 1990 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Q! ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
gatnamálastjórans í Reykjavík, óskar eftir til-
boðum í steypta kantsteina víðsvegar í
Reykjavík. Heildarmagn um 23 km.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 1.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtu-
daginn 22. mars 1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuveyi 3 — Simi 25800
Tilboð óskast í röntgenbúnað fyrir Landspít-
ala og Vífilsstaðaspítala.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri í
Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð skulu berast á sama stað fyrir kl.
11.00 f.h. þann 24. apríl 1990 merkt: „Útboð
3571 A+B“, þar sem þau verða opnuð í viður-
vist viðstaddra bjóðenda.
IIMIMKAUPASTOFIMUN RÍKISIIMS
________BORGARTUMI 7. 105 REYKJAVIK
i0 ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h.
borgarverkfræðingsins í Reykjavík, óskar eft-
ir tilboðum í gatnagerð og lagningu holræsa
og jarðvinnu vegna vatnslagna í Vatnagarða
frá Sægörðum að Holtavegi.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 9.000 m3
Fyllingar 6.500 m3
Lagning holræsa 41 Om
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudag-
inn 20. mars 1990 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800
KENNSIA
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
¥ ÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 = 1393138 - Bi
□ SINDFtl 59901337 - 1
□ EDDA 59901337 = 6
□ HELGAFELL 59903137 VI 2
Frl
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Samvera fyrir eldri safnaðar-
meðlimi kl. 15.00.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S-11798 19533
Vetrarfagnaður F.í.
Vetrarfagnaður F.í. verður hald-
inn í góðum salarkynnum í Ris-
inu, Klúbbnum, Borgartúni 32,
laugardaginn 17. mars. Dag-
skráin hefst með fordrykk kl.
19.30 og borðhald hefst kl.
20.00. Það verða sannarlega
„söguleg" skemmtiatriði í um-
sjón skemmtinefndar F.l. Enginn
ætti að missa af vetrarfagnaðin-
um. Hljómsveit leikur fyrir dansi
fram á nótt. Frábær skemmtun
fyrir alla aldurshópa. Miðar á
skrifstofunni. Ennfremur verða
miðar seldir á aðalfundinum á
miðvikudagskvöldið. Pantið
tímanlega.
Feröafélag islands.
....SAMBAND (SLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma í Grensás-
kirkju kl. 20.30. Jesús og sam-
verkakonan. Upphafsorð:
Kristín Möller. Ræðumaður:
Valdís Magnúsdóttir. Efni: Kjart-
an Jónsson um Kenýu.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Aðalfundur
Ferðafélagsins
Aðalfundur Ferðafélags fslands
verður haldinn í Sóknarsalnum,
Skipholti 50a, miðvikudaginn 14.
mars og hefst hann stundvíslega
kl. 20.30. Venjuleg aðalfundar-
störf. Ath.: Félagsmenn sýni
ársskírteini frá árinu 1989 við
innganginn.
Stjórn Ferðafélags (slands.
KRkonur
Munið fundinn í kvöld kl. 20.30.
Gestur fundarins verður Guðrún
Ásmundsdóttir, leikkona.
Stjórnin
AD-KFUK
Fundurinn fellur inn í kristni-
boðsvikuna. Samkoma í kvöld í
Grensáskirkju kl. 20.30.
ffl
FREEPORTKLÚBBURINN
Freeportklúbburinn
Fundur verður haldinn í félags-
heimili Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 15. mars kl. 20.00.
Kvöldverður (hlaðborð).
Skemmtiatriði.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku
til Baldurs Ágústssonar, simi
686915 fyrir miðvikudag.
Stjórnin.