Morgunblaðið - 13.03.1990, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990
45
Athugasemd við
fj ölmiðlagagrirýni
eftir Magnús H.
Skarphéðinsson
Kæri Ólafur J. Jóhannesson.
í pistli yðar Jörð og menn (23.
jan.), þar sem þér fjailið um heimild-
arkvikmyndagerð Islendinga leggið
þér að jöfnu hinn stórfróðlega
myndaflokk Guðmundar Sigvalda-
sonar og Jóns Hermannssonar; Hin
rámu regindjúp við hina lélegu
þriðja flokks áróðursmynd Magnús-
ar Guðmundssonar Lífsbjörg í
Norðurhöfum. Mynd sem mun
verða íslendingum til skammar á
alþjóðavettvangi um ókomin ár.
(Að eigin sögn fjármagnaði Magnús
mynd sína með jólatréssölu.)
Ég frábið mér með öllu að líkja
þessum verkum saman. Að mínu
mati er vart hægt að óvirða mynda-
flokk þeirra Guðmundar og Jóns
meira en með þessum mjög svo
óviðeigandi samjöfnuði. Annars
vegar stendur myndaflokkur sem
er sambærilegur því besta í heimild-
arkvikmyndagerð fræðimanna og
sjónvarpsstöðva á alþjóðavettvangi
í dag. Á hinn bóginn höfum við
svo fádæma óheiðarlega áróðurs-
mynd sem skrumskælir flest sem
annar málsaðilinn í viðkvæmu deil-
umáli hefur fram að færa og án
þess að hann fái nokkuð að tjá sig
um tjöruna sem á borð er borin.
Þetta verk Magnúsar Guðmunds-
sonar er í langflestum löndum
Evrópu og öðrum álfum heims Is-
lendingum til verulegrar skammar
og háðungar, og síst af öllu til að
leysa þetta erfiða mál. Þvert á
móti. Aldrei hefur hnúturinn verið
harðari. Þetta verk Magnúsar á
heldur nákvæmlega alls ekkert
skylt við hlutlausa fræði- eða heim-
ildavinnu. Þess síður eru þau orð
rýnanda viðeigandi að m.a. með
þessari mynd Magnúsar hafi „ ...
Islendingar lagt sinn skerf til þekk-
ingarsjóðs mannkyns“. Fjarri öllu
lagi.
- Ódýr var öll umfjöllun fjölmiðla
hér á landi um hvalamálið fyrir
tilkomu myndar Magnúsar. En í
algjöru skötulíki hefur hún verið
eftir þetta mesta óheillaspor sem
íslensk kvikmyndagerð hefur ratað
í. Og aldrei hafa ábyrgir fulltrúar
Islands á alþjóðavettvangi verið
fjarri því að ná einhverri viðunandi
lausn á málinu við aðrar þjóðir sem
KYOLIC
Eini alveg lyktarlausi hvítlaukurínn.
2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán.
+ 4 mán.) sem á engan sinn líka í
veröldinni.
Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur.
Er gæðaprófaður 250sinnumá
framleiðslutímanum.
Á að baki 35 ára stöðugar rann-
sóknir japanskra vísindamanna.
Lífrænt ræktaður í ómenguðum
jarðvegi án tilbúins áburðar eða
skordýraeiturs.
Öll önnur hvítlauksframleiðsla notar
hitameðferð.
Hiti eyöileggur hvata og virk efna-
sambönd í hvítlauk og ónýtir
heilsubætandi áhrif hans.
- KYOLIC DAGLEGA -
Það gerir gæfumuninn
KYOLIC fæst í heilsuvöru- og lyfja-
verslunum og víðar.
Heildsölubirgðir
LOGALAND
heildverslun, Símar 1-28-04.
sífellt rukka okkur um margsvikin
loforð okkar erlendis í hvalfriðunar-
málunum en eftir „dreifingu“ þess-
arar myndar þar ytra.
Það sæmir ekki fjölmiðlarýnanda
stærsta blaðs landsins að bera
svona fullyrðingar á borð fyrir heið-
arlega hugsandi fólk. Né heldur að
hossa því sem lélegast er og óheið-
arlegast í íslenskri „þekkingarleit"
eða kvikmyndagerð þótt ofstopa-
blaðið Tíminn hafi gert slík vinnu-
brögð að leiðarljósi sínu í málinu.
Lágmarksviðbrögð blaðsins væri
„Þetta verk Magnúsar
á heldur nákvæmlega
alls ekkert skylt við
hlutlausa fræði- eða
heimildavinnu.“
að biðja þá félaga Guðmund og Jón
afsökunar á þessari ósmekklegu
samlíkingu og framhleypni rýn-
anda. Annað er varla hægt eins og
málin standa og algjört lágmark
eftir þetta ljóta víxlspor fjölmiðla-
rýnanda blaðsins.
Reykjavík, 23. janúar 1990.
Virðingarfyllst.
Ilöfundur er málsvari „hvalavina“
á Islandi.
Piótkjör Borgaiaflokksins
í Reykjavík
Framboðsfrestur í prófkjör Borgaraflokksins í
Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar
rennur út að kvöldi 18. mars næstkomandi.
Þátttaka í prófkjörinu skal tilkynnt skriflega til aðal-
skrifstofu Borgaraflokksins, Síðumúla 33,
Reykjavík.
Prófkjörið er öllum opið og mun fara fram á aðal-
skrifstofu flokksins laugardaginn 24. og sunnudag-
inn 25. mars 1990 kl. 13-20 báða dagana.
Uppstillingarnefnd
br. h. veró.
60 160 790
80 160 1090
90 160 1190
100 160 1290
110 160 1390
120 160 1490
130 160 1590
140 160 1690
150 160 1890
160 160 1990
60 220 1290
90 220 1590
120 220 2400
60*ð04m*
RÚMFATNAÐUR
Zsengdr 4
afewfciar
Sokkar
Dömu og herra
jOpör- obn
iGrjóna- -
14 litum
59úl^4900tl1
Au&brekku 3
200Kúpavogl
s. 40460og 40461
Óseyri4 ^
eOOAkureyri
s. (96126662 9
Skaitan 13
103 Raykjavík - Slmi687499