Morgunblaðið - 30.03.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 30. MARZ 1990
4K
Laufey hringdi:
„Ég fór fyrir nokkru að skoða
Fæðingarheimili Reykjavíkur.
Þar eru mikil þrengsli og hlýtur
þetta að vera áhyggjuefni fyrir
Reykvíkinga. Það hefur allt verið
fullt á fæðingardeild Landspítal-
að undanfömu. Einfaldasta
lausnin væri að taka fleiri hæðir
í notkun hjá Fæðingarheimili
Reykjavíkur og bæta þannig úr
brýnni þörf.“
Faðirvor
Jóhann Þórólfsson hringdi:
„Ég er ekki sáttur við eina
setningu í Faðirvorinu: „Leið oss
ekki í freisni.“ Ég trú því ekki
að Guð leiði nokkum mann í
freisni. Gæti ekki einhver prestur
útskýrt þetta fyrir mér.“
Úr
Gyllt kvenúr tapaðist í Mið-
bænum sl. laugardagskvöld.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í Guðrúnu í síma
42355.
Árekstur
Ökumaður á rauðum Excort
sem að keyrt var á laugardag-
snótt á móts við Hljómskálann
er vinsamlegast beðinn að hafa
samband í síma 40076.
Hanskar
Brúnir leðurhanskar töpuðust
á Hótel íslandi laugardaginn 24.
mars. Finnandi vinsamlegast
hringi í Áslaugu í síma 641566.
Fjöltefli á Nesinu
Af óviðráðanlegum ástæðum fellur fjölteflið
við sovésku skákmeistarana, sem fyrirhugað
var í kvöld í Valhúsaskóla á vegum MÍR og
Taflfélags Seltjarnarness, niður.
Félagsstjórnirnar.
Gætum hunda okkar
Til Velvakanda.
Það er frekar þreytandi orðið að
lesa í dagblöðum, síendurtekin skrif
um kæruleysi hundaeigenda, — að
þeir þrífi ekki eftir hunda sína eða
láti þá hlaupa á eftir bílum, til að
viðra þá. Ef hundarnir ættu góða
húsbændur myndi þetta aldrei sjást.
En hvað er að? Getum við ekki
farið eftir lögum og reglum? Hvað
eru mörg vinnuslys á ári eða um-
ferðarslys, sem rekja má til kæru-
leysis? Margir hundaeigendur eni
sjálfsagt þar á meðal af því að þeir
eru kærulausir.
Á að dæma alla unglinga, eftir
örfáum ólátaseggjum sem valda
spjöllum út um alla borg, eða er
hægt að dæma alla hundaeigendur
eftir örfáum lélegum hundaeigend-
um?
Hundaeigendur: Tökum höndum
saman og sýnum hundi okkar virð-
ingu en ekki kæruleysi. Kynnum
kosti hundsins, sem er tryggasti
vinur mannsins. Góðir hreinræktað-
ir hundar eru okkur mönnunum
mikils virði, bæði sem fjárhundar,
varðhundar, leitarhundar o.m.fl.
Hreindýr
naganidur
trjágróður
EgiUstMum.
HREINDÝR hafa valdið voruleg-
um skemmdum á tijégróðri á
Héraði og eyðilagt heilu skógar-
lundina. Hafa dýrin verið í byggð
að undanfbrnu svo hundruðum
skiptir og sækja þá mikið í trjá-
gjóðyr cnda eru jarðbönn viðast.
I undirbúningi eru tilraunir með
girðingar með einum streng, en
á hann eru hengdar veifur úr ál-
pappir scm dýrin fælast.
Það eru einkum ungt lerki og
aspir, sem dýrin naga. Skóg-
ræktarmenn á Héraði eru áhyggju-
fullir vegna þessa. Hallast margir
að því að minnka þurfi stofninn. f
vor hefst átak í ræktun nytjaskóga
á Héraði og óttast menn að það starf
verði unnið fyrir gýg finnist ekki
lausn á málinu.
Skógræktarmenn hafa ekki haft
Morgunbladið/Bjöm Sveinsaon
Hreindýrin sækja á ung tré sem
gróðursett voru fyrir tíu árum
eða siðar. Á innfelldu myndinni
stofn á ungu lerki eflir að dýrin
hafa nagað hann.
árangur því dýrin koma jafnharðan
aftur. Margir eru vantrúaðir á að
rafmagnsgirðingar geri mikið (
Látum skynsemina ráða
T
Til Velvakanda.
Þess sjást víða merki að mann-
fólkið hér á landi er komið úrtengsl-
um við náttúruna og kann ekki
lengur skil á hinu flókna samspili
hennar. Eigi er að undra þar sem
stór hluti þjóðarinnar elst nú upp á
malbikinu, ígerviveröld sem sköpuð
er af mönnum. Börnin halda sjálf-
sagt mörg að mjólkin komi úr verk-
smiðjum rétt eins og ropvatnið.
Svona takmörkuð þekking á um-
hverfinu er áhygguefni.
Þetta kemur mér í hug þegar ég
les greinar eftir ýmsa friðunarmenn
sem vilja friða allt milli himins og
jarðar og helst banna allar veiðar.
Þetta fólk gerir sér ekki grein fyrir
að friðun er ekki alltaf til góðs en
getur oft valdið miklu tjóni í náttú-
runni. Hugsum okkur bara ef mink-
urinn væri friðaður! Hvernig yrði
fulgalífið eftir nokkur ár? Hið sama
gildir um refinn. Hvað myndi ger-
ast ef hann fengi að fjölga sér
hömlulaust? Þetta yrði heldur ekki
gott fyrir dýrin sjálf, því ef þeim
Hvað með íslenska fjárhundinn?
Höfum við staðið okkur sem
skyldi, með ræktun hans eða er
hann að deyja út á íslandi? Öðru
máli gegnir um íslenska hestinn,
þar sem vel er staðið að kynningu
bæði hér á landi og erlendis.
Stuðlum frekar að sem flestir
geti eignast hund. Hundurinn sem
fagnar þér við heimkomu að loknum
vinnudegi, eflir heilsu þína með
góðum gönguferðum og síðast en
ekki síst, enginn er einn eða ein-
mana sem á góðan hund, þar áttu
vin bæði í sorg og í gleði.
Hundaeigandi
Þrílitir 9. kt. hringar kr. 2.500.- 4.500.
Stafahálsmen 14. kt. demant
1. punktur kr. 2.100.- án festi.
3ón Slpunilsson
Skarf$rípov8rzlan
LAUGAVEG 5 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI 13383
íjölgaði úr hófi myndi kostur þeirra
þrengjast að sama skapi og þau
myndu svelta í hel hundruðum
saman og líða þannig harðan dauð-
daga.
Fyrir nokkru birtist frétt að
austan í Morgunblaðinu þar sem
greint var frá því að hreindýr
skemmdu trjágróður með því að
naga hann. Þetta sýnir að dýrin
eru of mörg og þau eru illa haldin.
Þeim ætti að fækka en jafnframt
ætti að sjá til þess að þau dýr sem
eftir yrðu fengju eitthvað í svanginn
þegar snjóalög koma í veg fyrir
beit. Mætti vel hugsa sér að nota
tekjurnar af veiðunum til að standa
undir þessu verkefni.
Skynsemin er okkar besta vegar-
nesti en ofstæki er einmitt and-
stæða hennar. Hæfileg nýting veiði-
dýra er rétta leiðin en alfriðun leið-
ir aðeins til vandræða og röskunnar
í náttúrunni. Þess vegna eiga of-
stækismenn ekki að ráða ferðinni
í þessum málum.
Refaskytta
Auglýsing frá
Orlofssjóði VR
ORLOFSHÚS VR
Dvalarleyfi
Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1990. Umsóknir á þar til gerðum
eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 9. hæð í síðasta lagi 20. apríl 1990.
Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum:
Ölfusborgum
Húsafelli í Borgarfirði
Svignaskarði í Borgarfirði
lllugastöðum í Fnjóskadal
Vatnsfirði, Barðaströnd
Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu
íbúðir á Akureyri
Flúðum
Miðhúsum, Biskupstungum
Aöeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum átíma-
bilinu 28. maí til 17. september sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir
18. maí n.k. fellur úthlutun úrgildi. Dregið verður milli umsækjendaef fleiri umsóknir berast en hægt
er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 5. maí n.k. kl. 14 og hafa umsækj-
endur rétt til að vera viðstaddir.
Sérstök athygli er vakin á því að umsókinir verða að berast skrifstofu VR
í síðasta lagi föstudaginn 20. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 9. hæð. Ekki verður tekið á móti
umsóknum símleiðis.