Morgunblaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRIL 1990
19
YFIRBTJÓRN ÓTVXGEBXNKA, DNDIRÐÓNINGDR BXMEININGAR
OG
6KIPDLAG OG YFIRSTJÓRN ISLXNDSBXNKA
1 • Yfirstiórn Ótveqsbanka og undirbúnincrur sameiningar.
Verkaskipting bankaráBsmanna veröi eftirfarandi til
nssta aðalfundar:
Formaður: Ásmundur Stefánsson
Varaformaður: Gisli V. Einarsson
Ritari: Brynjólfur Bjarnason
Ráðnir verði þrir bankastjórar við íslandsbanka hf.,
þeir Valur Valsson, Björn Björnsson og Tryggvi
Pálsson, er taki til starfa þann 1. janúar 1990.
Þeim verði sameiginlega falin eftirfarandi verkefni
fram til áramóta undir yfirstjórn bankaráðs:
a. Undirbúa sameiningu bankanna fjögurra, sem fari
fram með formlegum haetti 1. janúar 1990.
b. Mynda lánanefnd ásamt núverandi bankastjóra er
fjalli jafnframt um meiri háttar ákvarðanir í
málefnum Útvegsbanka Islands h.f.
Núverandi bankastjóri, Guðmundur Hauksson, sjái um
daglegan rekstur útvegsbankans fram að sameiningu.
Honum verði boðin ein af stöðum framkvaemdastjóra við
íslandsbanka.
2. p.kipulag _qg.jfirstjórn_lgl.anasbanka.
Skipt verði árlega ura formennsku i bankaráði að
loknum aðalfundi. Næst taki við Gísli V. Einarsson.
Varaformaður verði fulltrúi eignarhaldsfélags
Alþýðubanka og ritari fulltrúi eignarhaldsfélags
Iðnaðarbanka.
- 2 -
Ðankastjórn verði skipuð Vali Valssyni, Birni
Bjornssyni og Tryggva Pálssyni. Annist hún daglega
stjórn bankans skv. lögum og myndar lánanefnd, sem
tekur ákvarðanir um stærstu lánveitingar. Valur
Valsson verði ráðinn formaður bankastjórnar til
aðalfundar 1991.
Starfsemi bar.kans verði í hófuðdráttum greind í 6
eftirtalin svið:
Almenn Viðskipti Alþjóðasvið
Fyrirtæki Skipulag
Afgreiðsla Fjárhagur
Yfirstjórn hvers sviðs verði ýmist falin bankastjóra
eða f ramkvæmdast jóra. Gert er ráð fyrir að þeir
vixli störfum á nokkurra ára fresti. Stöður
framkvæmdastjóra verði boðnar Guðmundi Haukssyni,
Jóhannesi Siggeirssyni, Kristjáni Oddssyni og Ragnari
©nundaryni. Taki þeir til starfa á næstu mánuðum en
eigi síðar en 1. janúar 1990.
Reykjavik, 11. ágúst 1989
og miðað við hvaða reglum beita
átti við sameininguna og verðmat
eigna þá var ekkert umframvirði
borgað fyrir sjóðinn, samkvæmt
upplýsingum Mórgunblaðsins. Eig-
infjárstaðan var aðeins tekin en þeir
tekjumöguleikar sem í sjóðnum eru
fólgnir ekki metnir. Sjóðurinn hefði
því ekki verið metinn að raunvirði
segja Verslunarbankamenn. A móti
benda forystumenn Iðnaðarbankans
hins vegar á að svipað hefði mátt
gilda um Glitni og Verðbréfamarkað
Iðnaðarbankans, sem voru dóttur-
fyrirtæki Iðnaðarbankans.
Frá samtökum verslunarinnar
komu athugasemdir við að Verslun-
arlánasjóður yrði látinn inn í Islands-
banka og þar réðu hagsmunasjónar-
mið. Menn vildu ekki missa sjóðinn
inn í íslandsbanka, á meðan sjóðum
sjávarútvegs og iðnaðar, sem eru
að vísu opinberir sjóðir, var haldið
fyrir utan.
Gísli átti því ekki frumkvæðið að
því að Verslunarlánasjóðurinn var
undanskilinn í sameiningunni heldur
forystumenn verslunarinnar sem
skrifuðu bankaráði Verslunarbank-
ans sérstakt bréf vegna þessa. Og
bankaráð Verslunarbankans var ein-
huga í þeirri ákvörðun að halda
sjóðnum utan við íslandsbanka. Þeir
sem skrifuðu undir áðurnefnt bréf,
sem Morgunblaðið hefur ekki undir
höndum, vpru Haraldur Haraldsson,
Jóhann J. Ólafsson og Guðjón Odds-
son
Hver verður formaður
íslandsbanka?
Það er engan veginn víst að Har-
aldur Haraldsson verði næsti for-
maður bankaráðs íslandsbanka, ef
hann verður kjörinn formaður stjórn-
ar Verslunarbankans. Ljóst er að
Gísli mun láta reyna á samkomulag-
ið frá 11. ágúst jafnvel þótt hann
nái ekki kosningu sem formaður eða
meðstjórnandi í eignarhaldsfyrir-
tækinu. Eins og áður segir telja Iðn-
aðarbankamenn og Alþýðubanka-
menn sig ekki skuldbundna af sam-
komulaginu. Hver verður næsti for-
maður bankaráðs íslandsbanka mun
því ekki skýrast fyrr en bankaráð
skiptir með sér verkum.
Norræna húsið:
tvö ár. Upplýsingar Morgunblaðsins
herma að Asmundur hafi boðið Gísla
að verða fyrsti formaður bankaráðs
Islandsbanka en því hafi Gísli hafn-
að. Hann vildi frekar taka við for-
mennskunni á aðalfundi bankans
næstkomandi mánudag. Afstaða
Gísla er óbreytt.
Á fundi sem formennirnir þrír
áttu í ágúst lágu fyrir drög að sam-
komulagi um skipun mála. Þar var
gert ráð fyrir að fyrsti formaður
bankaráðs væri Ásmundur en að
eftirmaður hans yrði Gísli V. Einars-
son. í fyrstu mun að vísu hafa stað-
ið fulltrúi Verslunarbankans en Gísli
hins vegar hafa strikað það út og
sett sitt nafn í staðinn. Þannig lá
samkomulagið skriflega fyrir og
undirritað og er það birt hér á blaðs-
íðunni í heild. Þar stendur skýrum
stöfum að Gísli V. Einarsson taki
næst við formennsku.
Rifist um Verslurlánasjóð
Iðnaðarbanka- og Alþýðubanka-
menn urðu fyrir sárum vonbrigðum
þegar bankaráð Verslunarbankans
ákvað í september að Verslunar-
lánasjóður myndi ekki fylgja með í
sameiningunni. Á aðalfundi Iðnaðar-
bankans í janúar síðastliðnum var
Brynjólfur Bjarnason, formaður
bankaráðs Iðnaðarbankans þung-
orður í garð þeirra. „Fréttir af þessu
bárust okkur seint og þurftum við
að leita eftir staðfestingu á því að
þetta væri rétt,“ sagði Brynjólfur
Bjarnason. Brynjólfur sagði einn-
ig að „þrátt fyrir ítrekuð tilmæli um
að bankaráð [Verslunarbankans]
meiri en áður var talið. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins hafði
Hagdeild Verslunarbankinn gert
rekstraráætlun fyrir Stöð 2 sem
sýndi að hægt yrði að reka hana
með um 220-240 milljóna króna
hagnaði á þessu ári.
En fljótlega kom í ljós að fjárhags-
staðan var verri en gengið hafði ver-
ið útfrá við hlutafjáraukninguna.
Þannig mun hafa verið um 160 millj-
óna króna taprekstur á síðasta ári,
en áður var taljð að reksturinn yrði
í járnum.
Þá námu heildarskuldir Stöðvar 2
1.495 milljónum króna um áramót,
en ekki 1.310 milljónum króna eins
og gert hafði verið ráð fyrir. Þar af
voru vanskilaskuldir um 600 milljón-
ir króna en það hefur tekist, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, að lækka þær verulega og munu
þær nú vera um 200 milljónir króna.
22. mars gerðu Eignarhaldsfélagið
og íslenska sjónvarpsfélagið með sér
samning þar sem Eignarhaldsfélagið
samþykkti að takast á hendur sjálf-
skuldarábyrgð gagnvart Islands-
banka á skuld sjónvarpsfélagsins við
bankann. Þetta var 86,6 milljóna
króna skuld sem varð til þegar Páll
Jónsson í Pólaris var keyptur út úr
Stöð 2 um áramótin. Að auki náði
sjálfskuldarábyrgðin til annarrar
skuldar að upphæð 3,4 milljónir, eða
samtals 90 milljónir.
endurskoði þessa ákvörðun sína og
þrátt fyrir viðræður við helstu for-
ystumenn samtaka verslunarinnar
um málið, hefur árangur því miður
verið enginn. VerslunarMnasjóður
fylgir ekki með í sameiningunni og
er frá og með 1. janúar síðast liðinn
ekki rekinn á ábyrgð Islandsbanka,
heldur eignarhaldsfélags Verslunar-
bankans."
Og þá lýsti Brynjólfur því yfir sem
getur skipt miklu um framvinduna:
„Þetta mál hefur valdið okkur í Iðn-
aðarbankanum og Alþýðubankanum
miklum vonbrigðum og teijum við
að með þessari ákvörðun Verslunar-
bankans séum við ekki bundnir af
öðrum samningum.“ Ásmundur
Stefánsson, formaður bankaráðs
Alþýðubanka, lét svipuð ummæli
falla. Það er því ljóst að þeir telja
sig ^kki bundna af því samkomulagi
sem þeir undirrituðu ásamt Gísla 11.
ágúst, þar sem meðal annars kemur
fram að Gísli verði næsti formaður
bankaráðs.
Þegar verið var að undirbúa sam-
eininguna var gert ráð fyrir að Versl-
unarlánasjóður yrði innan veggja
Islandsbanka. Alþýðubankinn þurfti
að auka verulega hlutafé til að
standa að sameiningunni og þar
voru enginn vandamál vegna umfra-
meigna. Hjá Iðnaðarbankanum voru
300-400 milljónir króna umfram, og
ákveðið að þeim yrði haldið utan
íslandsbanka í Iausum eignum. Það
var einnig augljóst að Verslunar-
bankinn yrði einnig með einhverjar
eignir umfram. Þannig bárust bönd-
in að Verslunarlá,nasjóði og bankar-
áð Verslunarbankans velti þeirri
spurningu fyrir sér hvort ekki væri
rétt að halda Verslunarlánasjóði eft-
ir. Sjóðurinn er mjög arðbær eign
Sunnudagsfyrirlestur
PRÓFESSOR Gunnar Hoppe
mun ræða um kynni sín af mönn-
um og málefnum á Islandi sunnu-
daginn 29. apríl kl. 16. Erindi
sitt nefnir hann: „Möten med
mánniskor och miljöer. Till-
bakablickar mot efterkrigstidens
Island“. Einnig sýnir hann lit-
skyggnur lrá Islandi.
Gunnar Hoppe, sem er prófessor
í landfræði og áður rektor við
Stokkhólmsháskóla, hefur heimsótt
ísland um 70 sinnum.
Hann hefur setið í stjórn Nor-
ræna hússins sem fulltrúi Svíþjóðar
allt frá 1964.
Gunnar Hoppe mun flytja sunnu-
dagsfyrirlestur í Norræna hús-
inu.
GEHL kynning að Faxafeni 14 (Nútíð)
laugardaginn 28. apríl kl. 10-16
smá verkefni. Sýnum vélarnar aö störfum og bjóöum mönnum aö prófa þær.
Sölustjóri GEHL verksmiðjanna veröur á staönum og svarar fyrirspurnum.
Athafnamenn komið og kynnið ykkur fjölbreytta valkosti GEHL vinnuvélanna.
Bjóðum gestum kaffi og gos. Verið velkomin.
G.Á. PÉTURSSON HF.
NÚTlÐ FAXAFENI 14
SÍMI 685580