Morgunblaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1990
t
Ástkær móðir okkar og amma,
ÁRÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Sunnuhlíð,
Kópavogi,
lést í Landakotsspítala föstudaginn 27. apríl.
Baldur Þorvaldsson,
Hólmfríður Þorvaldsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLAVÍA ÞÓRUNN THEÓDÓRSDÓTTIR,
Stórholti 41,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum aðfaranótt 27. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Aðstandendur.
.+
Bróðir okkar,
FRIÐRIK FRIÐRIKSSON
rafvirki, Túngötu 34,
Reykjavík,
lést þann 24. apríl sl. Aðaiheiður Friðriksdóttir, Sigrún F. Fakharzadeh, Þorsteinn Friðriksson, Ingibjörg Friðriksdóttir, Ragnheiður Friðriksdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓN GUÐBRANDSSON,
Steinagerði 15,
Reykjavfk,
andaðist fimmtudaginn 26. apríl í Borgarspítalanum.
Marfa Björgvinsdóttir,
synir, tengdadætur og barnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN GUÐNASON,
Skaftahlfð 26,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 25. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hrefna Kristmundsdóttir,
Gyða Traustadóttir, Gunnar Gfslason,
Kristmundur Þorsteinsson, Sigurlaug Ragnarsdóttir,
júlíus Þorsteinsson, Helga Guðmundsdóttir,
Elí Þorsteinsson,
Erna Kristmundsdóttir.
+
Sonur minn og faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
EINIR ÞORLEIFSSON,
Skarðshlíð 12d,
Akureyri,
lést sunnudaginn 22. apríl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 30. apríl kl. 13.30.
Sigurbjörg Frfmannsdóttir,
Erna Einisdóttir, Björn Þórarinsson,
Valdemar Einisson, Guðrún Ragnarsdóttir,
Þóra B. Einisdóttir, Haraldur Valbergsson,
Einir Ö. Einisson, Hrönn Hjaltadóttir,
barnabörn og systkini.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og systur,
GUÐNÝJAR SVEINSDÓTTUR,
Laufásvegi 27,
Reykjavík.
Guðný Magnúsdóttir, Helgi Guðbergsson,
Magnús Helgason,
Andrea Helgadóttir
Björn Teitur Helgason,
Björn Sveinsson,
Anna Sveinsdóttir,
Einhildur Sveinsdóttir,
Unnur Sveinsdóttir.
Minning:
Valdimar Stefánsson
frá Laugardælum
Fæddur 10. júlí 1893
Dáinn 19. apríl 1990
Valdimar Stefánsson tengdafaðir
minnn lést á Ljósheimum 19. apríl
síðastliðinn, hann kvaddi þennan
heim að morgni sumardagsins
fyrsta. En ég á mínar fyrstu minn-
ingar um Valdimar einmitt tengdar
sumri en það var sumarið 1955 sem
ég sá Valdimar í fyrsta sinn og
fundum okkar bar saman á Læk.
Ég var þar staddur hjá Kolbrúnu
dóttur hans sem verðandi manns-
efni og gerði hann ferð sína þangað
frá Laugardælum til að líta á tilvon-
andi mannsefni dótturinnar.
Ekki höfðum við lengi talað sam-
an þegar ég fann að við áttum vel
saman og strax tók ég eftir því
hvað Valdimar hafði ákveðnar
skoðanir á flestum hlutum og kom
þeim vel til skila með sínum sterka
rómi sem ég þykist vita að hann
hafi tekið í arf úr sinni föðurætt.
Eitt umræðuefni leiddum við hjá
okkur í gegnum öll árin eftir okkar
fyrsta fund, en það vorii stjórnmál
en þar fóru skoðanir okkar ekki
saman, þetta var þegjandi sam-
komulag sem báðir undu vel.
Ég ætla ekki að rekja lífshlaup
Valdimars í smáatriðum en sem
ungur maður fór hann til vers eins
og kallað var og í Grindavík lenti
hann í þeirri mannraun að skip sem
hann réri á fórst og þar sá hann á
eftir tíu félögum sínum í hafíð en
hann komst á kjöl ásamt öðrum
manni og var þeim bjargað. Ekki
var Valdimar mikið um það gefið
að ræða þennan atburð, þó sagði
hann mér að svo hefði brugðið við
með þann sem af komst með honum
að hann hafði verið mjög sjóhrædd-
ur, en eftir þetta fannst honum allt-
af hægt að róa hvernig sem sjór
eða veður var.
Ekki veit ég hvort ég má bregða
.fyrir mig þeirri líkingu en geri það
nú samt, að líf Valdimars hafi í
nokkru farið líkt og þessi sjóferð,
því í hans einkalífi skullu á honum
óviðráðanlegir brotsjóir sem hann
tókst á við af sinni alkunnu karl-
mennsku og dugnaði, bjargaði sér
þar á kjöl eins og forðum.
Valdimar var mikill vinnu- og
dugnaðarmaður, svo það lá beint
við að hann veldi sér bóndastarfið
sem lífsstarf og árið 1928 giftist
hann Sigrúnu Siguijónsdóttur frá
Króki og hófu þau sinn búskap þar
á móti foreldrum Sigrúnar en fljót-
lega þótti þeim þröngt um sig í
þessu sambýli enda bæði dugleg og
kappsfull að komast í sæmileg efni,
frá Króki flytja þau að Langstöðum,
svo að Glóru en stóðu þar stutt við
því þá losnaði Lækurinn úr ábúð
en þar var og er öndvegisbújörð og
þangað flytja þau full bjartsýni og
áhuga en þá skellur brotsjórinn yfir,
Sigrún missir heilsuna, og þau slíta
samvistir. Bömin voru orðin fjögur
á lífí en einn dreng misstu þau en
tvö fóru í fóstur. Kolbrún fór að
Þorleifskoti til Katrínar og Gísla
og varð þeirra fósturdóttir, þau
fluttu síðar að Læk. Guðjón Baldur
var tekinn í fóstur að Austurkoti í
Sandvíkurhreppi til Lóu og Jóns og
ólst þar upp en Þorbjörg Gyða og
Stefán voru með Valdimar fyrstu
árin. Þetta var þung raun öllum sem
til þekktu og mun Valdimar hafa
komið það á þessum árum hversu
viljasterkur og harður hann var, en
þeir sem best þekktu til hans vissu
að undir hressilegu yfírbragði sviðu
djúp sár sem seint greru.
Næstu árin eftir þetta var Valdi-
mar aðallega á tveimur stöðum,
Laugardælum og Kirkjubæjar-
klaustri. Kemur svo aftur að Laug-
ardælum og er þar í 42 ár og held
ég þau ár hafi í mörgu verið góð,
þar kynnist hann mörgu ágætis
fólki, þar á meðal þeim hjónum
Ólöfu og Þórarni, sem réðu þar
húsum og tók hann sérstöku ást-
fóstri við þau og börn þeirra, og tel
ég ekki á neinn hallað, þó ég segi
að þau hjón og börn þeirra hafi
ekki getað reynst honum betur en
nánustu skyldmenni, gagnkvæm
virðing og kærleikur, sem ekki síst
kom í ljós er aldur færðist yfir og
kraftar þrutu og þakka börn og
tengdabörn það allt og ekki síst
sérstaka umhyggju og heimsóknir
nú á seinustu vikum og þar til yfir
lauk.
Eitt var það í fari Valdimars, sem
ég tók fljótt eftir, en það var hve
barngóður hann var, hann Ijómaði
eftirminnilega þegar börn komu til
hans á Ljósheima, en þar naut hann
frábærrar umönnunar síðastliðin 5
ár sem hér eru þökkuð.
Ekki er hægt að skilja svo við
þessi minningarbrot að geta þess
ekki hve frábær verkmaður og
snyrtimenni Valdimar var, hann
hafði í mörg ár það starf að hirða
nautin og vetrungana í Þorleifs-
koti, umgengnin og fóðrun voru til
fyrirmyndar, allt sópað og hreint
og hann sá vel um að heyið færi
ekki til spillis enda alinn upp við
að halda utan um stráin því þau
kostuðu marga svitadropa í þá
daga. ■
Valdimar hafði sérlega gaman
af heyskap ef vel gekk og dró ekki
af sér að moka í blásarann en þar
stóðst honum enginn snúning.
Þá er við hæfí að minnast á það
hvað Valdimar hafði gaman af góð-
um hestum, og átti marga í gegnum
árin, hann hélt hestum vel til gangs
og fóðraði vel, og þegar hann var
á Eyrarbakka á vertíð eitt sinn
hafði hann reiðhestinn hjá sér. Hét
hestur sá Mósi og var frá Útverkum
á Skeiðum, og var sagður flugvakur
og á sunnudögum skrapp Valdimar
á bak sér til upplyftingar, og í fór-
um okkar hjóna er mynd tekin á
Eyrarbakka en þar situr Valdimar
spariklæddur á Mósa, myndin trú-
lega tekin um 1920. Valdimar var
einn af stofnfélögum hestamanna-
félagsins Sleipnis. Á efri árum
hlotnaðist Valdimar sú sárabót að
þrátt fyrir fjölskylduslit tóku börn
hans að efla tengsl sín á milli og
urðu að góðum systkinahóp. Veit
ég að þetta gladdi hann mjög og
þegar hann átti stórafmæli reyndu
flest að mæta ef aðstæður leyfðu.
Afkomendur Sigrúnar og Valdi-
mars eru orðnir margir en börnin
eru: Stefán Valdimarsson, giftur
Elsu Unnarsdóttur, búa þau í Þor-
lákshöfn, eiga tvær dætur, Auð-
björgu og Valgerði, en hún er gift
Gunnari Þorsteinssyni, eiga þau
tvær dætur og búa í Þorlákshöfn.
Þorbjörg Gyða Valdimarsdóttir,
gift Ólafi Þór Haraldssyni, búsett
á Siglufirði, þau eiga þijú börn,
Ragnar Þór, giftur Arnýju Hrund
Svavarsdóttur, eiga eina dóttir og
búa á Suðureyri.
Heiðrún Brynja, gift Sveini Jón-
atanssyni, eiga eina dóttir og búa
í Reykjavík.
Arnar Þór, giftur Sigurlaugu G.
+
KARL SIGURÐSSON
skipstjóri,
lést í Grimsby föstudaginn 20. apríl sl.
Jarðarförin hefur farið fram.
Aðstandendur.
+
Bróðir minn, mógur og vinur,
JÓHANN ÁSGRI'MUR GUÐJÓNSSON
sjómaður,
Hjarðarhaga 56,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarð-
arkapellu mánudaginn 30. apríl kl.
15.00.
Salóme Guðjónsdóttir,
Áslaug Jóhannsdóttir,
Sigri'ður Jóhannesdóttir.
+
Þakka innilega auðsýnda samúð við andlát og útför
GUNNARS JÓNSSONAR
frá Breiðabólsstað,
til heimilis að Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavfk.
Sérstakar þakkir til forstöðukonu og starfsfólks félagsmiðstöðvar-
innar Bólstaðarhlíð 43.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Valdimarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
VILBERGS PÉTURSSONAR.
Daetur, tengdasynir,
barnabörn og barnabarnabörn.