Morgunblaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 28.04.1990, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1990 Landgræðslu- skógaáætlun 1990 eftirlngva Þorsteinsson Ágæti lesandi. Það hefur varla farið fram hjá þér, að umræða um umhverfismál hefur færst mjög í aukana á undanförnum árum, bæði í fjölmiðlum og manna á meðal. Þú opnar varla dagblað án þess að við blasi frásagnir af einhvers konar umhverfisslysum, sem orðið hafa eða af svartsýni manna um framtíð jarðar og mannkynsins, ef svo held- ur áfram sem nú stefnir. Þessi aukna umræða er ekki sprottin af móðursýki eða taugaveiklun, heldur af þeirri bláköldu staðreynd að maðurinn er að gera heimili sitt — jörðina — óbyggilegt, og verði því marki náð er ekki í annað hús að venda — ekkert ónotað himintungl sem getur tekið við okkur. Við hér á íslandi höfum talið okkur vera sæmilega laus við ýmis þau umhverfisvandamál sem heija á aðrar þjóðir og þá einkum meng- un, þó að við höfum verið einum of áköf að halda fram hreinleika okkar í þeim efnum. En við eigum við annað geigvænlegt umhverfís- vandamál að stríða, en það er sú gróður- og jarðvegseyðing sem hef- ur heijað á land okkar í nærfellt 11 aldir og allt fram á þennan dag. Þessi eyðing hefur leitt til þess, að skóglendið, sem þakti nær allt lág- lendi um landnám, er að miklu leyti hcrfið, og aðeins standa eftir dreifð- ar og víða rytjulegar leifar þess. Ogróin svæði eða eyðimerkur lands- ins hafa meira en tvöfaldast að flat- armáli á þessum tíma. Sá gróður sem eftir stendur er margfalt gróskuminni en áður var og ekki í samræmi við það, sem loftlagsskil- LANDGRÆÐSLUSKOGAR ATAK 1990 yrði í landinu raunverulega bjóða upp á. Ætla má, að við sitjum nú uppi með innan við 'Aaf þeim landgæð- um, sem hér voru fólgin í jarðvegi og gróðrí um landnám, og það þarf að leita víða um hinn vestræna heim til að finna hliðstæðu slíkrar rýrnunar. En með þessu er ekki öll sagan sögð, því að enn á sér stað gífurleg gróðureyðing og uppblástur víða um land, þrátt fyrir landgræðsluað- gerðir Landgræðslu og Skógræktar ríkisins og annarra^ aðila á undan- förnum áratugum. Ástæðurnar fyr- ir því, að enn hallar á ógæfuhliðina eru margvíslegar, en m.a. sú, að sá áhugi og skilningur, sem ætla má að forystumenn þjóðarinnar hafi á þessu langstærsta umhverfis- vandamáli hennar, hefur ekki skilað sér í þeim opinberu Ijárveitingum sem þörf er á til að snúa vörn í sókn. Og það vantar mikið upp á, sem sjá má af því að til land- græðslu og skógræktar er aðeins varið um 260 milljónum króna á fjárlögum þessa árs. Ekki er óraun- hæft' að áætla að það fjármagn þyrfti að fjórfalda til þess að viðun- andi árangur næðist. Önnur mikilvæg ástæða fyrir því að ekki hefur tekist betur til í bar- áttunni við gróðureyðinguna og við uppgræðslu landsins er sú, að vitn- eskja um ástand tandsins, um or- sakir eyðingarinnar og um stöðu þessara mála nú, hefur ekki komist nógu vel til skila til ykkar, fólksins í landinu. Það er ótrúlegt en satt, að margir virðast enn telja gróður- eyðinguna og uppblásturinn í landinu nánast vera náttúrulögmál og gróðurleysið afleiðingu af norð- lægri legu landsins og óhagstæðu loftslagi. Þannig hefur ekki tekist að virkja nema tiltölulega fá ykkar til þátttöku og beinna starfa í þess- ari baráttu, og það er afdrifaríkt, því að án skilnings og stuðings al- mennings verður ekki unnt að ná settu marki. Gróðurvernd er ekki einkamál neinnar sérstakrar stéttar eða fárra einstaklinga heldur mál þjóðarinnar allrar, og gróðureyðingin verður ekki stöðvuð né landið grætt upp að nýju nema allir ieggi hönd á plóginn og veiti málinu það lið- sinni, sem þeir best geta. Ingvi Þorsteinsson „Gróðurvernd er ekki einkamál neinnar sér- stakrar stéttar eða fárra einstaklinga held- ur mál þjóðarinnar allr- ar, og gróðureyðingin verður ekki stöðvuð né landið grætt upp að nýju nema allir leggi hönd á plóginn og veiti málinu það liðsinni, sem þeir best geta.“ Að sjálfsögðu fer eftir aðstæðum hvers og eins hvernig hann leggur málinu lið. Sú liðveisla getur verið fólgin í því að þrýsta á stjórnvöld með þeirri sjálfsögðu kröfu, að nauðsynlegu fjánnagni verði veitt til þess að stöðva gróðureyðinguna — að ekki verði lengur látið sitja við orðin tóm. Það þarf ótal fórnfús- ar hendur til að koma í jörðina öll- um þeim tugmilljónum tijáplantna, sem gróðursetja þarf á næstu árum og áratugum til þess að stöðva eyð- inguna og byggja upp gróðurríki landsins að nýju. Og öll fjárfram- lög, stór og smá, eru vel þegin, ekki síst meðan opinberar fjárveit- ingar eru af jafn skornum skammti og verið hefur. Nú er verið að fara af stað með mikið átak, Landgræðsluskógaátak 1990, þar sem höfðað er til þjóðar- innar um að veita þessu máli lið. Einn þáttur átaksins er öflun íjár með sölu grænu greinarinnar um þesáa helgi. Á þann hátt er fyrir- hugað að ijármagna framleiðslu og gróðursetningu á einni og hálfri milljón tijáplantna, sem ætlunin er að sjálfboðaliðar gróðursetji víðs vegar um land í ógróið og lítt gróið land í vor. Það segir sína sögu, að nánast engu opinberu fé var veitt til þess að gera þessa hugsjón um þjóðarátak í landgræðslu að veru- leika. Af þessum sökum, ágæti les- andi, er nú kallað á þig til að taka þátt í átakinu og til að hvetja aðra til hins sama. Iiöfundur er deildarstjóri landnýtingardeildar Rala. Tré í 60 ár í aftnælishófí árið 2050 eftir Brynjólf Jónsson Gólfbvottavélar með vinnubreidd frá 43 130 cm. Gólfþvottavélar drifnar með rafgeymum. Haka Gólfþvottavélar með sæti vélará Islandi ÍBÍSTÁ) Nýbýlavegi 18, simi 64-1988. Kæru íbúar! Ég veit að elstu landnemarnir vita hvernig umhorfs var fyrir sextíu árum á þessum hæðarkolli árið 1990, en þið afkomendur og börn trúið ekki hvaða stakkaskipt- um landið hefur tekið. Ykkur leikur kannski forvitni á að vita hvernig það atvikaðist að við erum búsett hér á Ónefnduhæð. Fyrir mér eru þeir atburðir eins skýrir og þeir hafi gerst í gær. Það fyrsta sem ég man eftir á ævinni eru hugljúfar stundir í gróðurhúsi þar sem ég ólst upp í hlýju og nota- legu umhverfi. Fjöldinn allur af ættingjum og vinum var þar, á svip- uðu reki í 67 gata ijölpottabökkum. Það áttu eftir að skiptast á skin og skúrir í lífi okkar eins og geng- Sólstofur - Svalahýsi Sýnum laugardag og sunnudag frákl. 13-18: Sólstofur, renniglugga, renni- hurðir, útihurðir, fellihurðir o.fl. úr viðhaldsfríu PVC efni. eukttrt viðhald_ Alltafsem nýt* ar og Gardhús hf. Smiðsbúð 8, 210 Garðabæ, sími 44300. ur. Um haustið vorum við tekin úr. gróðurhúsinu og látin dúsa fyrir utan vegg. Veturinn, sem síðar kom var stundum harður. Margir voru að krókna úr kulda, og oft var næðingur og hretviðri. Snjórinn, sem nokkrum sinnum lagðist eins og teppi yfir okkur kom sem himna- sending og dró úr verstu hörkunni. Um vorið tók við heldur napur veruleiki, þegar okkur var ekið þús- undum saman á óþekktan stað. Reyndar skildum við sáralítið af því sem var að gerast á þessum tíma. Við vorum svo ung en síðar fréttum við að allt mannfólkið í landinu hafði þetta afdrifaríka ár flykkst út á holt og mela og byijað að planta tijám. Við vorum að vísu gróðursett af mikilli alúð og með umhyggju en hvernig í ósköpunum áttum við að lifa_ á þessum berangri. Ég minnist fyrsta sumarsins, þegar þorstinn var að gera útaf við okkur. Sterkir geislar sólarinnar stungust í græna líkama okkar; og lífið var oft býsna erfitt. Eitt kvöld- ið skall á snai-vitlaust suðaustan bál. Daginn eftir mátti víða sjá skrælnuð blöðin og trosnaðar grein- ar. Nokkrir félagar minna lágu með ræturnar upp í loftið, andvana og líflausir. Næstu ár voru oft erfið. Fyrst á þriðja ári réttum við úr kútnum og gátum andað léttara. Heilsan var orðin eðlileg. Ræturnar uxu og voru orðnar það öflugar að þær sáu okk- ur fyrir næringu eftir þörfum. Hátt uppi á hæðarkolli stend ég nú með rætur mínar djúpt í jörðu og teyga að vild vatnið úr gjöfulum jarðveginum, tært og hreint. Nú eiga blöðin ekki lengur á hættu að Brynjólfúr Jónsson „Þar sem fyrrum var gróðursnauður melur getur nú að líta ábúðar- miklar limfagrar bjark- ir sem bærast í hlýrri sumargolunni.“ kafna í rykmekki eða fleiðrast af oddhvössum sandnálum. Á sumrin strýkur golan við græn og gróskumikil blöðin og þó að hvessi, þá finn ég aldrei eins fyrir vindi og áður. Þar sem fyrrum var gróðursnauður melur getur nú að líta ábúðarmiklar limfagrar bjarkir sem bærast í hlýrri sumargolunni. í sextíu ár hef ég lifað hér á hæðarkollinum og man svo sannar- lega tímana tvenna. Nú er allt vaf- ið gróðri, sem áður var melur. Sam- stillt átak okkar breytti aðstæðun- um smám saman okkur í hag. Höfundur er framkvæmdastjóri SkógrækUirfélags íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.