Morgunblaðið - 09.05.1990, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAI 1990
Haldið til gull-
leitar frá Isafirði
Jarðýta flutt til Grænlands í sex ferðum
ísafírði.
JARÐÝTA og jarðbor hafa verið meðal þess, sem flogið hefur
verið með frá Isafírði undanfarnar vikur til gullleitarsvæðisins
á Austur-Grænlandi. Eftir boranir í sumar verður væntanlega
ákveðið hvort vinnsla verður hafín.
Eitt af stærstu gullleitarfyrir-
tækjum í heiminum, Corona Min-
ing i Kanada, stendur fyrir rann-
sóknunum ásamt öðru kanadísku
fyrirtæki, Platinova Mining.
Undirbúningsrannsóknir hafa
staðið yfir undanfarin sumur, en
í fyrra hófust tilraunaboranir.
Næsta íslausa höfnin við náma-
svæðið, í Södalen og Skærgaard-
en á Austur-Grænlandi, er ísa-
fjörður og því hafa öll aðföng
verið flutt héðan, mest með flug-
vélum, en þó fór Fagranesið eina
ferð í fyrrahaust með eldsneyti
á staðinn.
Það er Flugfélag Norðurlands
sem hefur þjónað svæðinu og eru
flutningamir nú í hámarki. Frá
miðjum apríl hafa verið farnar
fjórar flugferðir á dag hér á
milli og eru notaðar tvær Twin
Otter vélar til flugsins. Burðar-
geta vélanna er um tvö tonn, svo
flutt hafa verið um átta tonn á
dag, þegar gefið hefur. Allan
búnað til húsagerðar og vinnslu
hefur þurft að flytja flugleiðis,
þar á meðal tvo jarðbora, sem
nota á til tilraunaborana í sum-
ar. Þá fóru vélarnar með jarðýtu
yfír Grænlandssund, en það tók
sex ferðir að koma ýtunni allri
á leiðarenda. Aðalflutningunum
lýkur um miðjan maí, en eftir
það verður Flugfélag Norður-
lands með eina flugvél staðsetta
á Grænlandi og verður hún notuð
til að þjóna rannsóknarmönnum.
Nú eru um tuttugu menn stað-
settir á vinnslusvæðinu. Eftir því
sem næst verður komist eru um
fjögur grömm af gulli í hverju
tonni af gijóti. Ef til vinnslu
kemur er talið að fimm hundruð
manna lið þurfí til námuvinnsl-
unnar. Vonast er til að þannig
sé hægt að bora út og mala 17
tonn af gijóti á klukkustund, ef
allt fer samkvæmt björtustu von-
um.
Ulfar.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Önnur Twin Otter vélin, sem notuð er við gullleitina. Við vélina
standa Jónas Finnbogason, flugstjóri, Erik Arnholtz, flugmaður
þjá Greenland Air Charter og Mark Tinbale, forstjóri Tinbale
Drilling frá Kanada.
Enn ekki hægt að ganga frá sölu ríkisþotunnar til Atlanta hf.;
Grundarkjör:
Reynt að
losna undan
kaupleigu-
samningum
VERSLANIR Grundarkjörs hf.
við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði
og Stakkahlíð í Reykjavík voru
lokaðar í gær. Reynt er að losa
lyrirtækið undan kaupleigu-
samningum um tæki og innrétt-
ingar verslananna þannig að
hægt sé að selja vörubirgðirnar
sem fjárfestingarfélagið Vallarás
hf. hefiir gert tilboð í.
Fjárfestingarfélagið Hagskipti
hf. á tæki og innréttingar í verslun-
inni við Reykjavíkurveg en KRON
við Stakkahlíð. Grundarkjör hefur
losað sig út úr rekstri annarra versl-
ana sinna. Að sögn lögmanns fyrir-
tækisins liggur ekki fyrir hvernig
fyrirtækið kemur út úr verslunar-
rekstrinum og því ekki vitað hvort
óskað verður eftir greiðslustöðvun
eða gjaldþrotaskiptum.
12 millj-
ónir króna
til þróun-
arstarfs
Fjármögnunarfyrirtæki vill
sjá gömul skoðunarvottorð
Eðlileg krafa, segir flármálaráðherra. Sé ekki tilganginn, segir forstöðumaður loflferðaeftirlitsins
EKKI hefiir verið gengið frá kaupum flugfélagsins Atlanta hf. á Bo-
eing-þotunni, sem ríkissjóður leysti til sín frá Arnarflugi hf. á síðasta
ári. Gerður var kaupsamningur 4. janúar síðastliðinn um að Atlanta
keypti vélina á 7,1 milljón Bandaríkjadala gegn staðgreiðslu. Ástæðan
er sú, að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráðherra, að
bandariskt fjármögnunarfyrirtæki sem ætlaði að lána Atlanta fé til
kaupanna hefúr krafíst þess að öll skoðunar- og viðhaldsgögn vélarinn-
ar verði lögð fram, en hluti þeirra fínnst ekki. Sá hluti er frá árunum
1971 til 1978, en þá var vélin í eigu norska fyrirtækisins Braatens
a/s. Ólafúr segir sérfræðinga sem hann hefúr ráðfært sig við telja
þessa kröfú bandaríska fyrirtækisins eðlilega. Grétar Óskarsson for-
stöðumaður loftferðaeftirlitsins kveðst hins vegar telja hana óeðlilega,
enda sé þotan löglega skráð hér. Hann telur líklegt að krafan sé yfir-
varp, til að losna firá loforði um lán til Atlanta. Arngrímur Jóhanns-
son, forstjóri Atlanta, segir þetta leiðindamál, en það leysist þegar
búið sé að fínna plöggin sem vanti.
Grétar Óskarsson kveðst telja loforð sitt og noti þessa leið til að
að sá aðili sem ætlaði að fjár- komast frá því. Hann segir fjár-
magna kaupin vilji ekki standa við mögnunarfyrirtækið hafa sent
Himangsflugan komin
á kreik og búist við að
lús herji á trjágróður
NOKKUÐ hefur að undanfornu borið á hunangsflugum en að
sögn Erlings Ólafssonar, skordýrafræðings hjá Náttúrufræði-
stofnun íslands, er afar eðlilegt að hunangsflugur fari á kreik
um þessar mundir. Erling kvaðst eiga von á því að blaðlýs
myndu herja töluvert á tijágróður þar sem veðurskilyrði hefðu
verið þessum skordýrum hagstæð í vetur.
Erling sagði að hunangsflug-
umar lifðu á frjókomum af víði.
Hunangsflugur bíta ekki nema
þær séu erter og gefa þær frá
sér eitur við bitið sem getur vald-
ið bólgu. Hann sagði að bitið frá
hunangsflugum og geitungum,
sem menn gætu orðið varir við
með haustinu, væri ekki hættu-
legt nema í undantekningar-
tilfellum.
Fjöldi skordýrategunda hefur
aukist töluvert á síðustu áratug-
um o g hafa kvikindin borist hing-
að til lands einkum með innflutt-
um varningi. Sumar tegundir
drepast fljótt eftir komuna hing-
að en aðrar hefðu náð að aðlag-
ast loftslaginu hér, þar á meðal
hunangsflugur og geitungar.
Erling kvaðst telja líklegt að
blaðlýs myndu heija á tijágróður
í vor þar sem veturinn hefði ver-
ið snjóþungur, en það er einmitt
talið vera kjörskilyrði þessara
skorkvikinda.
hingað tvo menn til að skoða öll
gögn varðandi þotuna. Þeir hafi
fengið alla fyrirgreiðslu sem þeir
báðu um, þegar þeir voru spurðir
hvort þá vantaði fleiri upplýsingar
eða gögn, hafi þeir svarað því til
að svo væri ekki. Hins vegar hafi
síðan komið í ljós eftir á, að þeir
teldu þessi gögn vanta. „Flugvélin
er löglega skráð og öll gögn fyrir
hendi sem þurfti til að skrá hana,“
segir Grétar. Hann segir ekki vera
eðlilegt að biðja um svo gömul
gögn. „Það sem beðið er um eru
síðustu gögnin, það er hægt að
útvega öll þessi gögn, en ég sé
ekki tilganginn með því, það er
einhver dulinn tilgangur þar á bak
við._“
Ólafur Ragnar Grímsson segist
ekki vilja tjá sig um hvort óeðli-
legt sé að biðja um þessi gögn eða
ekki. „Þeir aðilar sem ég hef hins
vegar spurt, hafa sagt mér að það
sé venjan, sem þeir viti ekki neina
undantekningu á, að öll skoðana-
gögn og vottorð fylgi vélunum og
viti ekki til þess að það hafí gerst
áður að slík gögn fylgi ekki. Þau
eru venjulega afhent þegar þota
er seld og eru þá teknar kvittanir
og vottorð í samræmi við það.
Þess vegna finnst mér ekkert
óeðlileg ósk hjá þeim lánveitanda,
sem Atlanta hefur skipt við, að
óska eftir því að öll skoðanagögn-
in séu reidd fram.“
Amgrímur Jóhannsson, for-
stjóri Atlanta, sagði að þessar taf-
ir hefðu valdið nokkrum erfíðleik-
um og kostnaði, en hann væri
vongóður um að það tækist að
grafa alla pappíra upp. „Fari svo,
að skjölin finnast ekki, þá eru
fleiri aðilar reiðubúnir til að fjár-
magna kaupin. Þeir hafa að vísu
ekki boðið jafn góð kjör og þetta
umrædda fjármögnunarfýrir-
tæki.“
Fjármálaráðuneytið gaf Atlanta
tveggja mánaða frest til að ganga
frá kaupunum að fullu. „En áður
en sá frestur rann út kom í ljós
að vélinni fylgdu ekki skoðana-
vottorð fyrir aljt ævitímabil vélar-
innar,“ segir Ólafur. Hann segir
viðskiptin við Atlanta ekki hafa
verið á neinn hátt óeðlileg. Atlanta
hafí staðið við allar sínar skuld-
bindingar. Greiddar voru 9 milljón-
ir króna við undirskrift kaupsamn-
ings og er það óafturkræf greiðsla.
Þar til vélin verður formlega af-
hent Atlanta greiðir félagið 7,2
milljónir króna á mánuði í leigu.
„Það sem hefur komið í ljós er
að þetta er þota sem Arnarflug
notaði og Braatens-fyrirtækið í
Noregi átti á þessum tíma. Fullyrt
er hjá Braatens að þeir hafi látið
þessi gögn af hendi, Arnarflug
ségist ekki hafa haft þau undir
höndum og verið er að reyna að
afla þeirra annars staðar frá,“
segir Ólafur.
Hann segir að á þessu stigi
málsins sé engin ástæða til að
ætla að kaupin séu í hættu. Rætt
var um tveggja til þriggja mánaða
frest til viðbótar, það er fram í
þennan mánuð. „Við töldum að
það væri eðlilegt að gefa hinum
nýja kaupanda tækifæri til þess
að krefjast þessara gagna af þeim
sem höfðu átt vélina áður.“
Kristinn Sigtryggsson forstjóri
Arnarflugs segir sér ekki vera
kunnugt um þetta mál. „Þetta
mundi þá vera eitthvað sem hefur
gerst fyrir minn tíma hér,“ sagði
hann. Þotan kom til Arnarflugs
1984 að sögn Kristins, frá Braat-
ens. „Og Braatens er einn af virt-
ari flugrekendum hér á svæðinu
svo að ég hef ekki trú á að þessir
hlutir hafi ekki verið í lagi hjá
þeim.“
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gær allt að 12 milljóna fjárveit-
ingu með fjáraukalögum í haust,
til Þróunarsamvinnustofíiunar Is-
lands, að því tilskyldu að nánara
samráð verði milli stofíiunarinnar
og Fjárlaga- og hagsýslustofiiun-
ar um hvernig fénu yrði varið.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðhérra sagði að við af-
greiðslu síðustu fjárlaga hefði Þró-
unarsamvinnustofnunin sótt um
fjárveitingu upp á 123,5 milljónir
en fengið 75. Það hafí þýtt, að ekki
var hægt að standa við staðfestar
skuldbindingar um verkþætti og því
væri þessi fjárveiting veitt nú.
Umrædd verkefni eru aðstoð við
uppbyggingu sjávarútvegs í Nami-
biu með Norðmönnum. Fyrirhugað
er að leggja til skip til hafrannsókna
og hugsanlega skipstjómarmenn og
fiskifræðinga. Þá ætla .íslendingar
að leggja til lítinn þilfarsvélbát, sem
væri heppilegur fyrir smábátaútgerð
á Grænhöfðaeyjum, og taka þar
þátt í byggingu húss sjávarútvegsins
sem hefði að meginverkefni aðstoð
við smábátaútgerð. Loks er smíði á
25-30 tonna bát til rannsókna á
Malawivatni, en íslendingar áttu að
annast rannsóknarþáttinn í áætlun
á vegum Alþjóðabankans um að efla
þar fiskveiðar og fískiðnað.
Borgarráð:
32 milljón-
ir fyrirbak-
lóð Hafhar-
strætis 19
BORGARRÁÐ hefúr samþykkt
að kaupa þann liluta af lóðinni
Hafnarstræti 19 sem snýr að
Trvggvagötu og er kaupverðið
32 milljónir króna.
Að sögn Hjörleifs Kvaran fram-
kvæmdastjóra lögfræði- og stjórn-
sýsludeildar, gerir skipulag mið-
bæjarins ráð fyrir að Hafnarstræti
tengist Tryggvagötu, þar sem bak-
húsin á lóðinni við Hafnarstræti