Morgunblaðið - 09.05.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAI 1990
9
UTANKJÖRSTAÐASKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
VALHÖLL, Háaleitisbraut 1,3. hæð
Símar 679053 - 679054 - 679056
Utankjörstaðakosning fer fram í Ármúlaskóla
alla dagafrá kl. 10-12,14-18 og 20-22 nema
sunnudaga frá kl. 14-18. Skrifstofan gefur
upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að
kosningunum. Aðstoð við kjörskrárkærur.
Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við
skrifstofuna ef þið verðið ekki heima á kjördag.
GLUGGINN AUGLÝSIR
Nýkomið frá Sviss og Þýskalandi mikió úrval
af jakkapeysum, blússum og pilsum.
GLUGGINN,
Laugavegi 40, sími 12854.
FLEX - O - LET
{
I
i
»
i
»
i
i
Tréklossarnir með beygjanlegu sólunum
nú aftur fáanlegir.
HERRA
JAKKAR
IMý
sending
af herrajökkum
og hinum vinsælu
dönsku herrabuxum,
m.a. í yfirstærðum.
i
I
I
i
1
Metsölublað á hverjum degi!
Stuttkratar
Garrí virðist ekki hafa
mikla trú á að breyting-
arnar á Alþýðublaðinu
skili miklu en óskar þó
hlutaðeigandi til ham-
ingju: „Astæða er til að
óska stuttkrötum til ham-
ingju með stuttblað sitt,
sem alla jaiha gengur
undir nafiiinu Alþýðu-
blaðið. Það hefiir nefiii-
lega orðið útlitsbreyting
á Alþýðublaðinu, eins og
boðuð hafði verið og nú
lítum við glaða daga
igen. Ritstjórinn, Ingólf-
ur Margeirsson, liefur
sjálfur lýst því hvemig
er hægt með aðstoð Al-
þýðublaðsins að fara í
kringum heimimi á fimm
minútum, og kynnast þó
öllum helstu atburðum.
Til uppbótar á þessari
daglegu skyndiferð um
heiminn gefúr svo Al-
þýðublaðið út annað blað
einu sinni í viku með
langhundum um næsta
lítið, svo tryggt sé að hin-
ir lestrarfúsu fai verðugt
viðfangsefiii að glíma við
á vikulegum grundvelli.
Allt er þetta skipulagt af
hinni mestu forsjá, og
minnir á karlinn, sem át
brauðið þurrt en smjörið
á eftir og hélt því fram
að allt yrði þetta eitt og
hið sama í maga hans.“
Af þessu má vera Ijóst
að Tíminn er lítið hrifimi
af breytingunum á Al-
þýðublaðinu. Hitt er svo
annað hvort ástæður þess
séu áhyggjur af því að
Alþýðublaðinu takist
með breyfingunum að
auka útbreiðslu á kostn-
að Tímans, eða vegna
umhyggju Tímamanna
fyrir málgagni Alþýðu-
flokks. Reynsla Fram-
sóknarmanna, eiganda
Tímans, af því að breyta
um útlit er bitur og dýr-
keypt. Og ekki skipti það
máli að breyta um nafii,
eins og Tíminn gerði fyr-
ir nokkrum áður. Nafiia-
leikur Tímans eða NT
eins og Tíminn hét um
skeið, bar engan árang-
ur, þvert á móti.
Salamöndrur
Alþýðublaðið hefur breytt um útlit og
fengið Reuter. Tíminn gerir góðlátlegt
grín að þessum tilraunum blaðsins til að
auka útbreiðslu. Þeir á Tímanum hafa
raunar mikla reynslu af slíkum „sala-
möndru-leik“ í fjölmiðlum. Fyrir nokkrum
árum breytti Tíminn ekki aðeins um útlit
heldur einnig um nafn. Þær breytingar
skiluðu minna en engu, eins og þeirTíma-
menn þekkja best. Það er því talað af
biturri reynslu um útlitsbreytingar Al-
þýðublaðsins.
Blátt en ekki
rautt
Liturinn á haus AI-
þýðublaðsins vakti at-
hygli Garra: „Hausinn er
nefhilega blár, þegar all-
ir bjuggust við að hann
yrði rauður. Jafhaðar-
menn hafa nefiiilega
haldið sig við rauðan lit
frá því fyrir Sovét-bylt-
ingu vegna þess að rauði
Uturinn er litur verka-
lýðsbaráttunnar. En '68
kynslóðin á Alþýðublað-
mu getur náttúrulega
ekki unað við svo gamaJ-
dags Ut, sem minnir á
sögulegar atliafhir og
baráttu jafnaðarmanna
fyrir betra lífi verkalýðs-
ins. Þess vegna varð að
koina út undir öðrum lit,
og valinn sá kvenlegasti,
lillablár, líklega vegna
yettvangsins og hennar
Ólínu. En auðvitað hefur
þetta ekkert að segja.
Blátt er bara litur og
hefitr enga aðra þýðmgu
en vera Utur.“
Og Garri heldur
áfram: „Nú þegar Al-
þýðuflokkurinn býður
ekki fram í Reykjavík
nema í samvinnu við óró-
legu deildina í Alþýðu-
bandalaginu, hefur Al-
þýðublaðið ekki neinn
sérstakan vettvang til að
beijast á fyrir borgar-
stj órn:u-kosning:uTUir. I
samræmi við það og í
samræmi við almenna
styttjngarsteftiu, er nú
aðeins prentaður hálfur
leiðari í blaðinu. Hinn
helminginn getur fólk
víst lesið í Þjóðviljanum
á rneðari hann nennir að
eltast við órólegu deild-
hia. Þannig hefur rit-
stjórinn ákveðið að vera
aðeins í hálfri vinnu, og
er því orðinn einskonar
stuttritstjóri, þótt hann
sé sjálfur stór og stæði-
legur og hhm myndar-
legasti maður, eins og
raunar velflestir stutt-
kratar nú til dags, eftir
að þeir uxu frá verka-
lýðsbaráttunni og inn í
skrifstofuveldi jafiiaöar-
meimskunnar. Með stytt-
ingu leiðarans og hhrnar
almennu feimni í pólitík,
sem '68 kynslóðin er
haldin, má búast við að
Nýr vettvangur fái ekki
nema hálfan stuðning l\já
Alþýðublaðinu samhliða
almennri styttingu allrar
umflöllunar. Það eru því
framundan þungar og
erfiðar tíðir fram að
kosningum og verður
ekki séð hvað er til ráða.“
Hinn helming-
urinn
Við lestur þessara
skrifa Garra í Tímanum
vaknar sú spurning hvort
það hafi verið mistök á
sínum tima, þegar fram-
sóknarmenn ákváðu að
kalla fréttablað sitt NT í
stað hhi gamla og virðu-
lega nafiis Thninn, að
stytta ekki leiðara blaðs-
ins um a.m.k helming.
Hefðu liklega fáir saknað
þess sem fellt hefði verið
niður og liklega hefði
enginn farið að skrifa og
vekja athygli annarra á
því að þáverandi leiðara-
höfundar NT hefðu litið
eða ekkert til málanna
að leggja. En greinilega
saknar Garri hhis helm-
ingsins af leiðurum Al-
þýðublaðsins, enda sjálf-
sagt búinn að telja sjálf-
um sér trú um að þar
standi eitthvað sem haim
getur ekki misst af.
En Garri heldur
áfram: „Annars breytir
það ekki miklu þótt Iítið
komist hveiju sinni í Al-
þýðublaðið. Flokkurimi
hefur sterka stöðu með
þijá ráðherra í ríkis-
stjóm, [nú er verið að
tala fyrir hönd
Steingríms Hermanns-
sonar, sem er ekki á
landinu, aldrei þessu
vant, innsk. Mbl], og
sæmilegan byr í stjórnar-
störfum, sem fer vaxandi
eftir því sem líður á árið.
En sá byr snertir lítið
undirbúninginn að kosn-
ingunum í Reykjavík í
þessum mánuði vegna
þess að Alþýðuflokkurinn
kemur þar hvergi nærri
... Aftur á móti er Alþýðu-
bandalagið með tvo lista
í gangi á sama tíma og
bræðraflokkar þess í
Austur-Evrópu em svo
gott sem dauðir. Við
þessar aðstæður er von
að '68 kynslóðinni á Al-
þýðublaðinu þyki nóg að
skrifa bálfan leiðara á
degi hveijum til fulltdngis
flokki sem á langa og
heiðarlega sögu að baki.“
ALMENNUR LIFEYRISSJOÐUR VIB
Hver eru
réttíndi þín
í lireyrissjodi?
Þessari spurningu veitist mörgum erfítt að svara enda
er lífeyriskerfi okkar Islendinga æði flókið. Afleiðing-
ing er sú að margir standa frammi fyrir verulegri
tekjuskerðingu þegar að eftirlaunaaldrinum er komið.
I séreignarsjóði eins og Almennum lífeyrissjóði VIB er
auðvelt að fylgjast með inneigninni því hver króna
sem þú greiðir t sjóðinn er þín eigri. Og þegar þú
veist hvað þú átt mikið, veistu hvað þú þarft að leggja
mikið fyrir til að tryggja þér viðunandi eftirlaun.
Verið velkomin í VIB.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.