Morgunblaðið - 09.05.1990, Side 13

Morgunblaðið - 09.05.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAI 1990 13 Morgunblaðið/Sverrir Kór Lang-holtskirkju og Kammersveit undir stjórn Jóns Stefánssonar. H-inoll messan Tónlist Jón Ásgeirsson Það dýrðarinnar glæsiverk sem H-moll messan er var flutt með mikl- um glæsibrag í Langholtskirkju sl. sunnudag, undir stjórn Jóns Stefáns- sonar. Flytjendur voru kór Lang- holtskirkju, Kammersveit undir for- ustu Júlíönu Elínar Kjartansdóttur og einsöngvararnir Olöf Kolbrún Harðardóttir, Signý Sæmundsdóttir, Magnús Baldvinsson og galdra- söngvarinn Yaacov Zamir. Kór Langholtskirkju söng mjög vel, jafnvel þar sem hraðinn var nær of mikill. í kyrie-kaflanum var inn- koma kórsins sérkennileg og má deila um hvort rétt sé að kljúfa orð með þögn, eins og gert var í „Ky-rie“. Ef þetta á að hafa verið tíðkað gæti verið athugandi til sam- ræmis, að farið væri með allar „pun- keringar", bæði í hljóðfærum og söngröddum á sama hátt. Þrátt fyr- ir þessa „sérvisku“ stjórnandans var kyrie-kaflinn glæsilega sunginn. Christie eleison-kaflinn var sunginn af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttir og Signýju Sæmundsdóttur en þessi kafli er undurfagur samleikur fiðlu- raddar, tveggja söngradda og „cont- inue“ undirleiks. Fiðluröddin (I. og II. fiðla) hefði mátt vera nokkuð veikari, eins og stendur í radd- skránni, undir söngnum, því ekki var laust við að söngurinn kafnaði á ein- staka stað. Gloria-kaflinn var glæsilega sung- inn en skiptin úr % í 4/i(C), yfir í Et in terra voru nokkuð snögg, allt að því óvænt. Arian Laudamus te var sungin af Signýju Sæmundsdóttur, en fiðlueinleikurinn var mjög vel útfærður af konsertmeistaranum Júlíönu E. Kjartansdóttur. Signý söng aríuna vel en ekki var gerður nægilega mikill greinarmunur á FASTEIGNASALAN Höfum fjársterkan kaupanda að stóru einb. í vesturborginni. Lóð eða sökklar koma til greina. Okkur bráðvantar 2ja og 3ja herb. í 3. í Vesturbæ. Erum með tryggan kaupanda að 4ra herb. íb. i Vesturbæ. Laugavegur: Glæsil. rúmg. 2ja herb. ib. i nýju husi. Hlutdeild í risi. Ib. fylgir sérstæði í bílskýli. Laus strax. Álfheimar: Mjög rúmg. 3ja herb. íb. á jarðhæfi. Talsvert áhv. Verð 5,5 millj'. Seltjarnarnes — sér- hæð: Falleg sérhæð i tvib. ásamt risi. Alls ca 170 fm auk 30 fm bílsk. Bein sala eða skipti á 3ja herb. íb. á Seltjnesi eða í Vesturbæ. HF.ÍMIR DAVIDSOX, sölustjóri. KRISTJÁN V. KRISTJÁNSSON, vidsk.fr. styrk í undirleik söngsins og þegar strengjasveitin lék ein, þannig nokk- uð skyggði það á ágætan söng Signýjar. Kórinn söng Gratias agimus tibi af glæsibrag. Tvísöngurinn Domini Deus var vel sunginn af Ólöfu Kol- brúnu og Zamir, sem þar var í hlut- verki tenors. Bernard Wilkinson lék flautueinleikinn frábærlega vel en aftur var strengjaundirleikurinn of sterkur. Þá má deila um hvort hrað- inn hafi ekki verið broti of mikili, þannig að sérkennileg „ornament“ og leikur með hraðar nótur á áhersluliðum hafi misst þá sveiflu er fylgir slíkum hrynvíxlunum (Syn- kópum) sem Bach var snillingur í að útfæra. Qui tollis söng kórinn mjög vel og alt-arían Qui sedes ad dextram Patris var einn af hápunkt- um tónleikanna, bæði frábær óbóein- leikur Kristjáns Þ. Stephensens og undurfagur söngurinn hjá Yaacov Zamir. Bassa-arían, Qoniam tu solus san,- ctus, var þokkalega sungin af Magn- úsi Baldvinssyni en þar átti Joseph Ognibene frábærlega vel útfærðan horneinleik. Niðurlag Gloria, Cum Sancto Spititu var ævintýralega hraður en glæsilega fluttur, þar glampaði á dýrðarinnar bjartan tón trompetsins, hjá Lárusi Sveinssyni. Upphafskafli Trúaijátningarinnar hefst á' tveimur áhrifamiklum kór- um, þar sem Credo, hljómaði nærri því eins og „Crido“ og má vera af söngfræðilegum ástæðum en „e“ getur verið erfitt í söng. Þar á eftir sungu Ólöf Kolbrún og Zamir dúett- inn Et in unum Dominum. í þessum kafla er hraðinn tilgreindur að vera Andante og vera má að undirritaður sé inum of vanur hægari flutningi til að þykja fara vel á að flytja hann svo léttilega, sem hér var raunin á. Hvað sem því liður var söngur Óla- far og Zamirs mjög góður. Et in carnatus est er sérkennileg tónsmíð er var fallega sungin af kórnum. Passakalian, Crusifixus, var góð en þó vantaði þann alvöru- þunga, sem hæfir textanum, en veikt niðurlag kaflans hljómaði mjög fal- lega. Upprisukórinn er fagnaðar- söngur en var nokkuð órólegur sak- ir mikils hraða, sem einkum kom niður á skýrleika kórsins, sérstak- lega vegna skrautlegs ritháttar af hendi Bachs. Bassa-arían, Et in spiritum, var sungin vel af Magnúsi Baldvinssyni en víða liggur þessi aría mjög hátt. Þarna naut falleg rödd hans sín mun betur en í fyrri aríunni. Skírnar-fúg- an og upprisukórinn eru niðurlag trúaijátningarinnar og þar fóru flytj- endur á kostum. Síðustu kaflarnir eru aðallega kórþættir og var Osanna-kórinn (átta raddir) frábærlega vel sunginn. Benedictus er fyrir tenor, sem Zam- ir söng vel en það var í næstsíðasta kafla verksins, alt-aríunni Agnus dei, að Jaacov Zamir söng undur- samlega vel. Aðeins miklir listamenn eiga slík augnablik, þar sem allir skynja mikilleik fegurðarinnar, rétt eins og snertir af hendi eilífðarinnar eða finni andblæinn af viðvist Guðs. Verkinu lauk með tignarlegri frið- arbæn og þrátt fyrir að Jón Stefáns- son hafi oft valið meiri hraða en undirritaður telur hæfa þessari meistarasmíð, þá er það staðreynd, að hann hefur unnið mikinn listræn- an sigur með flutningi H-moll mes- sunnar eftir Bach. NYKOMIN SENDING ■ ÓÐISNGÖTU 2. S. 1 3577. UMHVERFIS- OG ATVINNUMÁL Júiíus Sólnes umhverfisráðherra boðar til fundar um umhverfis- og atvinnumál á Þórshöfn fimmtudaginn 10. maí næstkomandi í Þórsveri kl. 17.00. Fundarstjóri verður Jóhann A. Jónsson framkvæmdastjóri. Fundarefni: Ástand og viðhorf í umhverfis- og atvinnumálum. íbúar Þórshafnar og nágrennis eru hvattir til að koma á fundinn og tjá hug sinn í þessum málum. OPINN FUNDUR Breyttar aðstœður... Ný utanríkisstefna? í tilefni þess, að fimmtíu ár eru liðin frá því að íslendingar tóku stjórn utanríkismála í eigin hendur og þeirra vatnaskila í alþjóðamálum, sem nú eru, gangast utanríkismála- nefndir Sjálfstæðisflokksins, Sambands ungra sjálfstæðismanna og Heimdallar fyrir opnum fundi þar sem fjallað verður um nýjar áherslur í utanríkisstefnu íslands. Ráðstefnan verður haldin í Hótel Sögu, laugardaginn 12. maí og hefst klukkan 10.00 árdegis. Setning: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Stofnun utanríkisþjónustunnar og mótun íslenskrar utanríkisstefnu: Pétur Thorsteinsson, fyrrverandi sendiherra. Island og EB. Er aöild íslands komin á dagskrá?: Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður og Olafur Davíðsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda. Ný viöhorf í varnar- og öryggismálum — Framtíö NATO Arnór Sigurjónsson, sendiráðunautur. ♦ P Umhverfismál: Dr. Sigurður M. Magnússon, forstöðumaður Geislavarna ríkisins. Alþjóöleg viöskiptasamvinna: Belinda Theriault, framkvæmdastjóri SUS. Umræöur: Ráðstefnustjóri verður Hreinn Loftsson, formaður Utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins. Fundurínn er opinn öllum áhugamönnum um utanríkismál. Þátttökugjald er kr. 1.000 en kr. 500 fyrir námsmenn. Innifalinn er léttur hádegisverður, en ráðstefnunni lýkur eigi síðar en kl. 14.00. ■ Utmiríltismálanefndir Sjálfstœðisflokksins, Sambands uttgra sjdjfstœöismanna og Heimdattar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.