Morgunblaðið - 09.05.1990, Side 20

Morgunblaðið - 09.05.1990, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1990 Hægri-þj óðernissinn- ar sigurvegarar þing- kosninganna í Króatíu Króatar og Slóvenar hundsa miðstjórnar- fimd júgóslavneska kommúnistaflokksins Zagreb. Reuter. SEINNI umferð þingkosninga í júgósiavneska sambandsríkinu Kró- atíu voru á sunnudag og var kosið milli tveggja efstu í þeim kjördæm- um þar sem enginn hafði tryggt sér meirihluta. Fyrstu tölur benda til yfirburðasigurs llokks hægrisinnaðra þjóðernissinna, Króatísku lýðræðisfylkingarinnar, undir forystu Franjos Tudjmans, stríðshefju og fyrrverandi andófsmanns. Miðstjórn kommúnistaflokks Júgóslavíu kom saman á neyðarfúnd í gær en að sögn firéttastofunnar Tanjug tóku fulltrúar flokksdeilda Króata og Slóvena ekki þátt í honum. Aðeins 89 fulltrúar af 165 í mið- réttindum, hver sem úrslit yrðu, og stjórninni mættu til leiks í Belgrad og var fundurinn því ekki ályktun- arhæfur, að sögn fréttastofunnar. Landsfundur liokksins í janúar sl. leystist upp er fulltrúar Slóvena gengu af fundi til að mótmæla seinagangi í umbótaáætlunum. All- ar tilraunir til að kalla ráðstefnuna saman á ný hafa mistekist. Tanjug- sagði að færi miðstjómarfundurinn út um þúfur gæti það merkt enda- lok flokksins. Er talið hafði verið í 52 af 225 kjördæmum Króatíu hafði flokkur Tudjmans forystu í 36, kommúnist- ar, sem setið hafa einir að völdum frá 1945, voru efstir í 11 kjördæm- um. I fyrri umferðinni tryggði Lýð- ræðisfylkingin sér 104 af 356 þing- sætum. Flokkurinn hefur á stefnu- skránni aukið sjálfstæði landsins innan ríkjasambandsins, m.a. sjálf- stæðan herafla og jafnvel gjald- eyri, en jafnframt hafa sambands- slit verið orðuð náist ekki samkomu- lag um breytingar við Serba, fjöl- mennustu þjóð landsins. Stjórnend- ur Serba hafa lagst gegn lýðræðis- breytingum. Tudjman sagði væntanlega stjóm sína e.t.v. kalla til erlenda sérfræðinga til að koma á efnahags- umbótum í Króatíu. Hann hét minnihluta Serba í Króatíu fullum jafnframt að lýðræði yrði ekki „flutt út“ til Serbíu. Hann hvatti ákaft til viðræðna um deilumálin. Keuter Hefð er fyrir því að miklar hersýningar séu í Sovétríkjunum 9. maí þegar sigursins ylír Þjóðveijum seinni heimsstyijöldinni er minnst. Hér sjást sovéskir hermenn í Litháen æfa sig fyrir sýninguna í dag. Nýkjörinn forsætisráðherra Lettlands: Þjóðimar við Eystrasalt verða að snúa bökum saman Moskvu. Vilnius. Reuter. IVARS Godmanis, nýkjörinn forsætisráðherra Lettlands, hefúr hvatt Eystrasaltsþjóðimar þijár, Letta, Litháa og Eista, til að snúa bökum saman í viðskiptum sínum við stjórnvöld í Moskvu. Orð hans eru túlkuð svo að hann búist við efhahagsþvingunum gagnvart öllum Eystrasaltsríkjunum þremur á næstunni. Stjórn- völd þar hafa enda sótt í sig veðrið undanfarna daga í baráttunni fyrir sjálfstæði. við Reuters-fréttastofuna að Eist- ar hefðu verið undir nokkrum þrýstingi frá Lettum og Litháum að stíga þessi skref. Slæmt hefði verið talið fyrir málstað Eystra- saltsþjóðanna að þær gengju hver sinn veg til sjálfstæðis. Eins og kunnugt er hafa ein- ungis Litháar orðið fyrir efnahags- þvingunum af hálfu sovéskra stjórnvalda. Vytautas Knashys, landbúnaðarráðherra Litháens, Reuter Páíi varar við falsspámönnum Um tvær milljónir manna hlýddu á messu sem Jóhannes Páll páfi II söng í fátækrahverfmu Chalca í Mexíkó-borg á mánudag. Hann hvatti fólk til þess að beita sér fyrir bættum lífskjörum fátæklinga í Róm- önsku Ameríku samkvæmt kenningum katólsku kirkjunnar en varaði um leið við „falsspámönnum“. Hann sagði að margir leiðtogar og hugmyndafræðingar hefðu á undanförnum árum boðað „falsparadís", eða kerfí sem snerist gegn fólkinu. Hann vísaði þar til frelsisguðfræð- innar, sem margir prestar í Rómönsku Ameríku aðhyllast í andstöðu við katólsku kirkjuna. Hann lýsti þessum leiðtogum sem falsspámönn- um er hefðu ekki sannieikann að leiðarljósi heldur eigin hagsmuni. sagði í fyrrakvöld á fréttamanna- fundi að, stjóm sín ætlaði draga úr útflutningi á landbúnaðarvöru til Moskvu um 10% til þess að svara Sovétstjórninni í sömu mynt. „Kjöt og mjólk eru raunveruleg vopn í baráttunni,“ sagði hann. „Fimmta hvert kíló af kjöti og þriðji hver lítri af mjólk sem neytt er í Moskvu kemur héðan.“ Knas- hys sagði að vörurnar sem ekki færu til Moskvu eins og venjulega yrðu notaðar í viðskiptum við sov- éskar borgir þar sem umbóta- sinnar eru við völd en undanfarið hefur verið reynt að koma slíkum tengslum á. Æðsta ráð Eistlands samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að breyta nafni landsins úr Sósíalíska Sovétlýðveldið Eist- land í Lýðveldið Eistland. Einnig var samþykkt að taka upp þjóðfán- ann og skjaldarmerkið frá því landið var sjálfstætt. Þó verða hamarinn og sigðin, auðkenni Sov- étríkjanna, áfram í notkun í landinu jafnhliða skjaldarmerkinu. Allt þar til fyrir tveimur árum var bannað að nota fánann, sem er blár, svartur og hvítur, í Eistl- andi. Eru þetta samskonar breyt- ingar og gerðar hafa verið í Lettl- andi og Litháen. Tarmu Tammerk, ritstjóri Estonian Independent en- skumælandi dagblaðs sem gefíð er út í Tallinn, höfuðborg Eist- alnds, lét að því liggja í samtali Kjarnorkutilraunir Iraka: Segjast ráða yf- ir kveikibúnaði Bagdað. dpa, Reuter. VISINDAMENN íraka hefúr tekist að búa til kveikibúnað sem hægt er að nota í kjarnasprengjur, að sögn Saddams Husseins, forseta landsins. Breskir tollverðir gerðu upptækar 40 einingar af slíkum kveikibúnaði í lok apríl er reynt var að smygla þeim til Iraks. Forsetinn segir að fímm dögum seinna hafí írökum tek- ist að framleiða hlutina sjálfír. Irakar segja að nota hafa átt smyglvarninginn við tilraunir með Rúmenía: Viðræður l'ara út um þúfur Búkarest. Keuter. VIÐRÆÐUR Ions Iliescus, forseta Rúmeníu, og sendinefndar stjórn- arandstæðinga, sem efht hafa til mótmæla í Búkarest undanfarnar tvær vikur, runnu út um sandinn skömmu efftir að þær hófúst í gær. Iliescu settist hjá sendinefndinni í þinghúsinu í Búkarest en hún gekk út nokkrum mínútum síðar þegar stjórnin neitaði að heimila mynda- tökur á fundinum. Helsta krafa stjórnarandstæðinga er að fyrrum embættismönnum kommúnista- stjórnarinnar verði meinað að bjóða sig fram til hárra embætta næstu 10 árin. leysigeisla í Bagdað-háskóla og um hafi verið um að ræða fullkom- lega lögleg kaup á bandarískri vöru. Þeir segjast ekki gera tilraunir með kjarnorkuvopn. Ríkið undir- ritaði á sínum tíma alþjóðasamn- inginn um bann við útbreiðslu slíkra vopna en íraskir vísinda- menn hafa smíðað meðallang- drægar eldflaugar sem flutt geta kjama- eða efnavopn. Talsmenn Alþjóðakjarnorku- málastofnunarinnar (IAEA) í Vín sögðu í gær að ekkert benti til að írakar notuðu eina kjarnorkuver sitt til vopnatilrauna. Fulltrúar IAEA skoðuðu verið dagana 7. — 12. apríl. ísraelar gerðu loftárás á verið 1981- og lögðu það í rúst en þeir töldu að írakar væru að smíða kjarnasprengju. Hussein forseti hefur hótað ísraelum öllu illu, þ. á m. árás með efnavopnum, geri þeir aðra árás á verið. ÓPERUKJALLARINN • KRINGLUKRAIN • BORGARLEIKHUSIÐ • IÐNO • HORNIÐ • FIMMAN • HOTEL BORG • KRINGLUKRAIN • BORGARLEIKHUSIÐ • IÐNO • HORNIÐ 0iviN?TOS[yiG/iR ÍRerWIÍK 6.-13. m\ 1990 z m ^ <z O o ^ Œi P £ —1 CN ö £ HORNIÐ: FIMMAN: Kvartett Guðmundar Ingólfssonar Jazzsmiðja Austurlands og ÓPERUKJALLARINN: Sextett Tónlistarskóla FÍH Gammar og Hljómsveit Eddu Borg HÓTEL BORG: KRINGLUKRÁIN: SVeiflusextettinn og gestir Tríó Egils B. Hreinssonar FÓGETINN: GAUKUR Á STÖNG: Súld Ellan og hljómsveit mannsins hennar DUUS HUS: Borgarhljómsveitin OPERUKJALLARINN • KRINGLUKRAIN • BORGARLEIKHUSIÐ • IÐN0 • H0RNIÐ • F0GETINN • DUUSHUS • KRINGLUKRAIN • BORGARLEIKHUSIÐ • IÐN0 • H0RNIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.