Morgunblaðið - 09.05.1990, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1990
fclk í
fréttum
Hópmynd af keppendum, kennurum og módelum. Fremstar eru sigurvegarinn Anna Dóra Unnsteinsdótt-
ir ásamt módeli sínu.
FÖRÐUN
Kvendjöfiill tryggði sigurinn
Fyrir skömmu fór fram keppni á milli Hjallaskóla annars vegar og Kópavogsskóla hins vegar í hugmynda-
förðun. Spratt sú hugmynd upp í kjölfarið á kennslu í almennri snyrtingu og meðferð hárs í Hjallaskóla í
vetur og námskeiðs í snyrtingu sem haldið var fyrir nemendur í 7. 8. og 9. bekk Kópavogsskóla. Keppendur
voru fimm talsins, þrjár stúlkur úr Hjallaskóla mættu til leiks og tvær úr Kópavogsskóla.
Sigurvegari í keppninni varð Anna Dóra Unnsteinsdóttir úr Kópavogsskóla og nefndi hún módel sitt „kven-
djöful". í öðru sæti varð Ingibjörg Helgadóttir úr Hjallaskóla með módel sitt, „konung dýranna". „Náttúru-
barn“ eftir Ólöfu Eiríksdóttur úr Hjallaskóla hafnaði í þriðja sæti.
Það var til mikils að vinna fyrir stúlkurnar, því í verðlaun voru Domell-snyrtivörur að upphæð 20.000 krónur.
Írskt kvöld fimmtudag, föstudag og
laugardag I Danshúsinu i Glæsibæ
Midasala alla daga i Ölveri, simi 686220.
AFANGI
A afinælisdegí Húsavíkur
Húsavíkurbær átti fertugsafmæli á dögunum eins og komið hefur
fram í fréttum og var margt um dýrðir þar nyrðra í tilefni afmæl-
isins. Hér fylgja nokkrar myndir sem segja nokkra sögu um stemmn-
inguna sem myndaðist, en við þetta hátíðlega tækifæri kom fram rík
samheldni Húsvíkinga þar sem þeir þjöppuðu sér saman og lögðust
allir á eitt til að gera afmælið hið glæsilegasta'. Sem dæmi má nefna,
að um 1.000 manns tóku þátt í hátíðarhöldunum. Meðal annarra heiðr-
uðu frú Vigdís Finnbogadóttir forseti og Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra Húsvíkinga með nærveru sinni og tóku báðar til máls.
Mikið fjölmenni var í íþróttahúsinu er sérstök hátíðardagskrá fór
þar fram.
VERÐLAUN
Tvö skot - einn bíll
Amyndinni hér að ofan tekur
Anna María Sveinsdóttir,
landsliðskona í körfuknattleik frá
Keflavík, við Nissan Micra bifreið
sem hún fékk fyrir að hitta í körfu
úr tveimur skotum frá miðju. Það
gerði hún í í leikhléi í leik IBK og
KR í úrslitakeppninni, en þar fengu
áhorfendur tækifæri til að vinna sér
inn bíl með þessum hætti. Anna
María var þó sú eina sem náði að
hitta úr tveimur af þremur skotum
frá miðjum velli. Við sögðum frá
þessu afreki hennar í blaðinu á
sunnudaginn en þá fylgdi röng
mynd greininni.
Sigþór Bragason (til hægri),
sölumaður hjá Ingvari Helgasyni,
afhendir Önnu Maríu lyklana að
bifreiðinni og vænan blómvönd en
Kolbeinn Pálsson, formaður Körfu-
knattleikssambands íslands, fylgist
með. í baksýn er nýi bíllinn sem
hún fékk fyrir skotin tvö.