Morgunblaðið - 13.05.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.05.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990 C 11 Sigursveinn D. Kristinsson og frænku í Reykjavík og dvaldi um tíma. Tónskólinn var þá á þriðja ári. Þar kynntist ég samstarfsmönn- um frænda og samheijum, m.a. Gunnari H. Jónssyni, Þorsteini Valdimarssyni og Hallgrími Jakobs- syni, sem komu oft í heimsókn. Þegar ég lít til baka er þessi tími í hugskoti mér sem ijarlægur og litríkur hljómur, eitthvað sem maður upplifir og býr að alla ævi. Hvað er að segja um samband okkar frænda? Því er vandsvarað. Sigursveinn var kennari minn, jafn- framt sem faðir og var afar kröfu- harður. Þó gerði hann mestar kröfur til sjálfs sín. Hann var félagi minn eins og allra annarra nemenda sinna og um leið hinn besti samstarfsmað- ur. Sigursveinn og Ólöf voru okkur Sigrúnu og dætrum okkar sem bestu foreldrar. Það skarð sem rofið er verður ekki fyllt en verkinu, sem hafið er, skal haldið áfram. Þorsteinn Valdimarsson ritar formála íslandsljóða. Þar er að finna inntak í lífsspeki frænda míns. „Sönglíf er skuggsjá þjóðlífs. Rati þjóðin í ánauð, hljóðnar harpan; bijóti hún af sér ok, þá syngur hún sigurljóð; lifi hún fijáls í landi, þá hvelfist hvert þak af söng.“ „Sönglíf er aflvaki þjóðlífs. Af strengjum hörpunnar stökkva gneistar frelsisins. Fyrir mætti sig- ursöngvanna brestur okið. Ráði söngurinn ríkjum mun þjóðin ráða landi.“ Sigursveinn Kristinn Magnússon Nú er vinur minn, eldhuginn Sig- ursveinn D. Kristinsson, látinn. Hann var ekki venjulegur maður. Hann var maður mikilla hugsjóna og hafði atorku, ákveðni og vilja-, festu til að koma þeim í fram- kvæmd. Við Sigursveinn voru lengi nágrannar og við börnin í hverfinu dógumst að manninum sem ók á sérkennilega „hjólabílnum". Það var ekki bara vegna þess að „hjólabíll- inn“, eins og við kölluðum hann, vakti athygli okkar, heldur ekki síður vegna þess að Sigursveinn hafði gaman af börnum og bar virðingu fyrir þeim sem einstaklingum. Hann átti sér marga drauma, m.a. um betra og réttlátara þjóðfé- lag, um aukin réttindi fatlaðra og að allir sem vildu gætu kynnst tón- listinni. En Sigursveinn lét sér ekki nægja að dreyma. Hann fram- kvæmdi. Hann tók þátt í pólitíkinni af lífi og sál, hann stofnaði fyrsta félag fatlaðra, Sjálfsbjörgu á Siglu- firði, sem óx síðar í fjöldahreyfingu um allt land. Hann stofnaði Tón- skóla Sigursveins D. Kristinssonar sem í dag er fjölmennasti tónlistar- skóli landsins. Já, Sigursveinn var enginn venjulegur maður. Um daginn, er ég var stödd í hin- um nýju og fallegu húsakynnum Tónskólans, þá varð mér hugsað til upphafsára skólans og hve gífurleg- ar breytingar væru á aðstæðum nú og þegar ég hóf störf við skólann fyrir rúmum 20 árum. Þá leigði skól- inn eitt herbergi úti í bæ sem var notað til kennslu. Annars fór kennsl- an fram heima hjá okkur kennurun- um. Nú á skólinn tvö hús, eitt í miðborginni og annað i barnahverf- inu Breiðholti. Já, breytingin er gífurleg. Leiðin var oft grýtt og erf- ið yfirferðar. En Sigursveinn var ekki maður uppgjafar. Hann beitti sínum mikla viljastyrk og að manni fannst oft, óþijótandi lífsorku til að yfirstíga allar hindranir. Nu er kraftaverkamaðurinn horfinn sjón- um okkar en verk hans munu lifa. Ég votta öllum aðstandendum þessa mæta manns samúð mína. Brynja Guttormsdóttir Það var sólbjartur sumardagur 9. júní 1958, þegar nokkrir áhuga- menn komu saman í Gránugötu 14 í þeim tilgangi að stofna með sér félag, fyrsta Sjálfsbjargarfélagið á íslandi. Frumkvöðull að mótun fé- lagsins var Sigursveinn D. Kristins- son, sem á þessum tíma var skóla- stjóri Tónskóla Sigluíjarðav. Við, sem þarna vorum mætt þenn- an undurfagra júnídag, ætluðum þó ekki að flytja tónverk í hefðbundnum skilningi heldur að skapa óð til lífsins, láta hörpuhljóma heyrast víðsvegar sem boðbera þess tíma, þegar fatlað fólk vaknaði af al- dagömlum svefni, og gera það með- vitað um tilveru sína og réttarstöðu í mannlegu samfélagi. Allt þetta hafði Sigursveinn skynj- að öðrum betur og bauð nú fram þekkingu sína og reynslu öðrum til velfarnaðar. Sigursveinn var mikill eldhugi að hveiju sem hann gekk. Aðstöðuleysi fatlaðra hafði lengi brunnið á honum sjálfum, enda fann hann best hvar skórinn kreppti. Fyrir tilstilli þessa hugsjóna- manns, var grunnurinn lagður að víðtækri starfsemi fatlaðra um allt land. Samtök þessi hafa frá önd- verðu leitast við að bæta möguleika fatlaðra til að lifa lífínu lifandi, skapa þeim jafnrétti til menntunar, atvinnu og félagsmálastarfsemi. Við sem tókum þátt í þessari sköp- un og hlýddum á hvatningarorð Sig- ursveins, munum aldrei gleyma þeim hughrifum, sem þau ollu. Fyrir þessar stundir og ótalmarg- ar aðrar gegnum árin, ber okkur að þakka nú, þegar Sigursveinn er all- ur. Við minnumst hans best, með því að vera trú þeirri hugsjón sem held- ur merki hans í framfara- og félags- málum hæst á lofti, svo harpan megi hljóma með „hreinum tón“ um alla framtíð. Blessuð sé minning Sigursveins D. Kristinssonar. F.h. Sjálfsbjargarfélaganna á Siglufírði, Hulda Steinsdóttir Þegar Sigursveinn er nú borinn til moldar, þyrlast upp margar minn- ingar frá áratuga samfylgd — raun- ar samfylgd frá blautu barnsbeini í eiginlegustu merkingu. Ef til vill er ekki einungis verið að kveðja Sigursvein í dag, heldur mjög merkilegt tímabil í íslandssög- unni. Tímabil þar sem sveit hug- sjónamanna setti svip sinn á þjóðlíf- ið allt. Sigursveinn var einn þessara hug- sjónamanna. í köldu stríði lagði hann á borð með sér borgaralegan frama. Þegar kollegar hans komu sér upp konungsríki og litu ætíð til beggja átta í kontrapúnkti lífsins og auð- guðu umhverfið raunar á margan hátt og fengu svo konunglega blys- för að lokum,- þá fór Sigursveinn aðra leið. Sigursveinn leit aldrei til baka og sjaldan til hliðar. Hann var brautryðjandi frá upphafi til enda. Frá blautu barnsbeini sagði ég. í Flókadalnum voru engin barnaheim- ili. Þar voru börnin sett út á hlapvar- pann. Og síðan sungu fuglarnir fyr- ir þau. I óljósri minningu voru tveir skríðandi á hlaðvarpanum á Kraka- völlum. Krumminn á höndum og fótum. Sigursveinn á höndunum ein- um. Svo undarlegt sem það er, að nokkrum áratugum síðar, þegar ég lenti í því að fatlast og fara að vinna í samtökum fatlaðra og kynnast mörgum minum bestu vinum í Sjálfs- björg, þá rann fyrst upp fyrir mér sú staðreynd að Sigursveinn væri fatlaður. Þetta er víst kallað intergr- ering eða blöndun núna. Sigursveinn leit aldrei til baka og sjaldan til hliðar. Mér er nær að halda að á áðurnefndum hlaðvarpa á Krakavöllum hafí kviknað á hinum rauða loga. Líklega áttu húslestrar Sæmundar gamla Dúasonar þar hlut að máli en um áratuga skeið var lesið fyrir heimilisfólk úr veraldar- sögu H.G. Wells og öðrum slíkum bókmenntum. Kommúnistaávarpið kom hins vegar ekki inn á þetta heimili fyrr en í miðri síðari heims- styijöld. Kannski er það tímanna tákn að nú eru hugsjónamennirnir að deyja einn af öðrum. Þessir menn lögðu allt í sölurnar. En sagan er skrítin skepna. Kannski tekur hún upp á því einn dag að opinbera þann sann- leika að við erum þrátt fyrir allt að jarða konung í dag. Hrafii Sæmundsson „Byijun sólmánaðar. Skollasálin var ennþá alhvít og Skútudalurinn, en klettapeysan hægra megin á hóls- hyrnunni var svört með hvítum rönd- um. Suðrið andaði þýðvindum og þegar sólin skein á klettana roðnuðu þeir strax á vangann. Tveir menn hittust í góðviðrinu á tröppunum við Gránugötu 14, annar handarvana, hinn með bilaða fætur. Þeir ræddu um það, hvort ekki væri hægt að koma á fót samtökum til þess að beijast fyrir réttindum fatlaðs fólks.“ Þannig reit eldhuginn og baráttumaðurinn Sigursveinn D. Kristinsson í fyrsta tölublaði ársrits Sjálfsbjargar, landssambands fatl- aðra árið 1959. Sigursveinn var einn af frum- kvöðlum að stofnun Sjálfsbjargarfé- laganna hérlendis og gekkst fyrir stofnun fjögurra þeirra fyrstu. Með Sigursveini er genginn einn skelegg- asti baráttumaður fyrir réttindum fatlaðra hérlendis. Sigursveinn hvik- aði aldrei né sofnaði á verðinum. Hann stefndi ótrauður að settu marki og þegar réttindamál fatlaðra bar á góma þá neistaði af eldhugan- um. Það var ekki einasta í ræðu og riti sem Sigursveinn barðist fyrir málefnum Sjálfsbjargar heldur einn- ig með list sinni. Eins og alkunna er var Sigursveinn tónskáld gott og mikill hljómlistarmaður. Sigursveinn samdi fyrir Sjálfsbjörgu söng Sjálfs- bjargar sem á táknrænan hátt lýsir í tali og tónum þýðingu baráttu Sjálfsbjargarfélaganna fyrir fatlaða. Við Sjálfsbjargarfélagar minnumst Sigursveins m.a.-frá þingum okkar sem hann sat langflest og stýrði gjarnan. Þar tókst hor.um á undra- verðan hátt, með lipurð sinni og krafti að ná þeim árangri sem þurfti að vekja baráttuglóð og anda í hug- um félaga sinna. Sigursveinn vann geysimikið og óeigingjarnt starf í þágu Sjálfsbjargar og hefur það reynst Sjálfsbjörg ómetanlegur styrkur að eiga slíkan félaga til að plægja akurinn. Við Sjálfsbjargarfé- lagar munum halda áfram að sá í þennan akur sem hann og aðrir frumkvöðlar Sjálfsbjargar hafa plægt. Á þann hátt heiðrum við best minningu þeirra. Sjálfsbjörg, landssamband fatl- aðra, vottar syni Sigursveins og öðr- um aðstandendum dýpstu samúð. Jóhann Pétur Sveinsson, formaður Sjálfebjargar, landssambands fatlaðra. Kveðja frá Samtökum Tón- listar skólastj óra Mánudaginn 14. maí verður til moldar borinn einn af stofnendum Samtaka Tónlistarskólastjóra, Sig- ursveinn D. Kristinsson. Hans verð- ur minnst sem eins ötulasta áhuga- manns um uppbyggingu tónlistar- menntunar á Islandi. Um áratuga skeið starfaði hann að tónlistar- kennslu og rak einnig tónlistarskóla, fyrst á Siglufirði en síðan í Reykjavík. Tónskóli Sigursveins er í dag einn stærsti tónlistarskóli landsins og mun halda á lofti minningunni um stofnanda sinn. Sigursveinn var mjög virkur í félagsstörfum og fyrir u.þ.b. tuttugu árum stofnaði hann Samtök Tónlistarskólastjóra ásamt nokkrum öðrum skólastjórum og sat í stjórn samtakanna í mörg ár. Sam- tökin eiga Sigursveini mikið að þakka því að án þeirra væri hið öfluga starf sem í dag fer fram i tónlistarskólum landsins ekki svipur hjá sjón. Hinn mikli áhugi hans á eflingu tónlistarlífs í landinu er okk- ur öllum, sem að tónlistariðkun og kennslu stöndum, til eftirbreytni. Fyrir hönd Samtaka tónlistar- skólastjóra sendi ég aðstandendum öllum samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sigursveins D. Kristinsson- ar. F.h. stjórnar STS, Lárus Sveinsson, Einn elsti félagi okkar, Sigur- sveinn D.' Kristinsson, er látinn. Hann tók mjög virkan þátt í félags- starfi í Tónskáldafélaginu á sjötta og sjöunda áratugnum og er þess minnst með þakklæti. Sigursveinn var baráttumaður af guðs náð, bar- áttumaður fyrir betra lífi öllum til handa og hann trúði að tónlistin væri öflugt vopn í því stríði. Þess vegna stofnaði hann Alþýðukórinn og Lúðrasveit verkalýðsins á sínum tíma og þess vegna byggði hann upp Tónskólann eftir sósíalískri fyrir- mynd. Sá sem þessar fátæklegu línur ritar minnist Sigursveins frá þeim árum þegar baslið var mest og bjartsýnin og vongleði í hjörtum. Það var þegar Sinfóníuhljómsveitin var í burðarliðnum og menn dreymdu stóra drauma um Tónlist- arhöll, Óperu og tónlistarmenntun öllum til handa. Þá vorum við í Tón- listarskólanum báðir, ég um ferm- ingu, Sigursveinn talsvert á fertugs- aldri. Meistari okkar var Björn ðl- afsson fíðluleikarinn ógleymanlegi, sem var óþreytandi að kenna okkur Bach og Beethoven, að ógleymdum Handel og Corelli í nemendahljóm- sveitinni. Sigursveinn þurfti að ferð- ast í hjólastól og hann var háður annarra hjálp í tröppum og stigum. En hann lét sig aldrei vanta á æfing- ar og það leiftraði af honum þegar hann handlék fíðluna í fallegustu köflunum. Frá þessum árum eru fyrstu tónsmíðar Sigursveins. Ég minnist helst Duo fyrir fiðlu og víólu, sem við lékum saman, og ýmissa til- brigða fyrir fíðlu og píanó, sem voru skemmtileg. En merkilegustu smíðar hans á þessum árum voru þó líklega frumsamin lög fyrir Alþýðukórinn og ótal vandaðar útsetningar, ekki síst á íslenskum þjóðlögum og bar- áttusöngvum. Löngu seinna, þegar Sigursveinn hafði lokið námi í austur-þýska alþýðulýðveldinu, komu Draumur vetrarijúpunnar og Greniskógurinn og margt annað fyr- ir hljómsveit og kóra, og eiga þau verk eflaust eftir að halda nafni hans á lofti um langa hríð. Við í Tónskáldafélagi Íslands munum ætíð minnast Sigursveins sem góðs félaga og þó stundum slægi í snarpar brýnur um stefnur og strauma, bæði í list og lífi, þá var það aðeins til að efla samstöð- una um það sem máli skiptir. F.h. stjórnar Tónskáldafélags íslands Leifúr Þórarinsson ritari. Sá maður 'sem fyrst og fremst stóð fyrir stofnun Sjálfsbjargarfé- laganna var Sigursveinn D. Kristins- son. Sjálfur var hann mikið fatlað- ur. Hann fékk mænuveikina aðeins 13 ára gamall og lamaðist í báðum fótum og var síðan bundinn hjóla- stól og hafði því kynnst því af eigin raun að vera mikið fatlaður. Það var fyrir tæpum 32 árum sem ég kynntist Sigursveini. Hann var þá búinn að hafa samband vestur á Isafjörð og nokkrir fatlaðir einstakl- ingar höfðu undirbúið komu hans og stofnun félags fatlaðra. Það var kalsa veður daginn sem hann kom. Gekk á rneð éljum og vafasamt með flug til ísafjarðar og líka vafasamt hvort Sigursveinn, svona mikið fatlaður maður, legði í að koma vestur. Þá voru að sjálf- sögðu allt aðrar aðstæður fyrir flug- ið, en eru í dag. Þegar „Katalínan" gamla lenti á Pollinum á ísafirði vorum við nokkur mætt á Bæjar- bryggjuijni tii að taka á móti Sigur- sveini. Allir farþegarnir, að undan- skildum einum, flýttu sér úr „snurpubátnum“ upp á bryggjuna. Þessi eini sem sat eftir hlaut að vera okkar maður og það reyndist svo. Sigursveinn var kominn vestur. Hann var svo borinn upp á bryggju og í bíl og beint heim til Ingu Magn- úsdóttur. Það var svo gengið frá lokaundirbúningi að stofnun félags- ins, og stofnfundur haldinn kvöldið 29. september 1958, í einni kennslu- stofu Barnaskólans. Þessi stutta frásaga var eitt lítið dæmi um dugnað og áræði Sigur- sveins. Hann var eldhugi og mikill baráttumaður fyrir bættum kjörum fatlaðra, sem þá voru allt önnur en eru í dag, og fatiaðir lifðu við mjög slæm kjör og lítil félagsleg réttindi. Hann var talsmaður þeirra sem höll- um fæti stóðu í lífsbaráttunni. Því fengum við að kynnast, sem störfuð- um með honum að málefnum Sjálfs- bjargar frá upphafi og allt til ársins 1986. Hann stjórnaði öllum þingum samtakanna frá stofnþinginu 1959 til þingsins 1986. Áf sama dugnaði stofnaði hann Tónskóla Sigursveins, en hann var vel menntaður tónlistarmaður og naut virðingar á þeim vettvangi sem ég fer ekki nánar útí hér. Það gerir ábyggilega einhver sem þekkir enn betur til. Sigursveinn var varaformaður landssambandsins 1959-1982. Hann átti sæti í stjórn Öryrkjabandalags- ins og gegndi margháttuðum trún- aðarstörfum fyrir Sjálfsbjörg. • Eiginkona Sigursveins var Ólöf Grímea Þorláksdóttir, en hún lést 1988. Störf Sigursveins fyrir Sjálfsbjörg eru ómetanleg. Hann stofnaði sam- tökin og sá þau verða að því afli, sem haft hefur veruleg áhrif á bætt lífskjör fatlaðra i landinu. Við Sjálfsbjargarfélagar kveðjum einn af forystumönnum okkar. Minningin um góðan félaga, eldhuga og baráttumann lifir. Ég votta syni og stjúpsyni Sigur- sveins og öðrum ættingjum hans dýpstu samúð. Trausti Sigurlaugsson + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG ÞORLÁKSDÓTTIR, áður til heimilis f Lönguhlfð 3, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 5. maí sl., verð- ur jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 16. maíkl. 13.30. Sigríður Kristinsdóttir, Sigurður E. Sigurðsson, Helga Kristinsdóttir, Jón Sigurvin Sigmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Vegna jarðarfarar SIGURSVEINS D. KRISTINS- SONAR verður dagvist Sjálfsbjargar, Hátúni 12, lokuð mánudaginn 14. maí. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra. Lokað Vegna jarðarfarar SIGURSVEINS D. KRISTINS- SONAR verða skrifstofur, endurhæfingardeild, sundlaug og baðstofa Sjálfsbjargar í Hátúni 12 lokaðar mánudaginn 14. maí frá kl. 12.00. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík og nágrenni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.