Morgunblaðið - 13.05.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1990
C 15
SUMARTIMI
Skrifstofa HJV verður opin í sumar frá 14 maf til 14
september sem hér segir:
Mánudaga - fimmtudaga............frá kl. 08.30-16.30.
Föstudaga........................frá kl. 08.00-16.00.
Verslun Lystadúns verður opin
mánudaga -föstudaga..............frá kl. 09.00-18.00.
HUV
HALLDOR JONSSON /VOGAFELL HF
koá'
Guðfínna
Stein-
dórs-
dóttír,
Straumi
Fædd 24. desember 1918
Dáin 7. maí 1990
Guðfinna fæddist að Miðhúsum
í Eiðaþinghá og ólst þar upp hjá
foreldrum sínum unz hún missti
móður sína sjö ára að aldri. Fór hún
þá í fóstur að Hofi í Fellum og
dvaldi þar síðan að mestu. Hún
stundaði nám í tvo vetur á hús-
mæðraskólanum á Hallormsstað.
Hún giftist Þórarni Jónssyni bónda
á Straumi í Hróarstungu og þar
áttu þau sitt heimili alla tíð síðan.
Þau eignuðust þrjú böm, þáu
eru: Árni sem nú er tekinn við búi
á Straumi, maki Guðný Eiríksdótt-
ir; Ingibjörg, býr á Staðarbakka,
gift Rafni Benediktssyni bónda;
Friðjón bóndi á Flúðum í Hróars-
tungu, maki Anna Bragadóttir.
Barnabörn þeirra Guðfinnu og Þór-
arins eru níu.
Ég kynntist Guðfinnu fyrst fyrir
Ijórtán árum. Þá kom hún hingað
að Staðarbakka til þess að vera við
skírn dótturdóttur sinnar og nöfnu,
Sólrúnu Guðfinnu Rafnsdóttur. Svo
undarlega vildi til að síðasti ævidag-
ur Guðfinnu á Straumi, 6. mái, var
jafnframt fermingardagur nöfnu
hennar, Sólrúnar Guðfínnu.
Engum, sem kynntist Guðfinnu
Steindórsdóttur, gat dulist að hún
var mikil mannkostakona á allan
hátt. Hún var hreinskiptin, mjög
gjafmild og gestrisin og umhyggja
hennar fyrir fjölskyldu sinni og vin-
um átti sér ekki takmörk. Nú þegar
ævi hennar er öll er mér efst í huga
þökk fyrir þau ágætu kynni, sem
ég hafði af henni eftir að tengdir
urðu með okkur.
Við hjónin komum tisvar að
Straumi og fengum þar ágætar
móttökur hjá fjölskyldunni. Guð-
finna kom hingað nokkrum sinnum
og dvaldi hjá dóttur sinni. Síðustu
æviárin þurfti hún að ganga í gegn-
um miklar sjúkdómsþrautir og
dvelja oft fjarri heimili sínu. Hún
andaðist á Landspítalanum aðfara-
nótt 7. maí.
Við fráfall Guðfinnu hafa eigin-
maður hennar, fjölskylda og vinir
misst mikið, þeim öllum sendi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Guðfinnu
Steindórsdóttur.
Ásdís Magnúsdóttir,
Staðarbakka.
Armúla 23, sími 83636.
W-50%
afsláttur
á gullfallegum borðbúnaði og gjafavörum.
Hnífapör, koparvörur, reyr- og bastvörur,
kínverskir vasar, glerblóm, silkiblom, leikföng o.fl.
Nýborgí#
Ármúla 23, sími 83636.
•
TILVALINN FYRIR
SUMARBÚSTAÐI
FYRIRTÆKI
SMÆRRIHEIMILI
KÆLISKAP
Hann er 140 lítra, meö frysti til aö frysta klakakubba
og sjálfvirkum afþýðingarbúnaði. Hann er
með mjög öfluga en hljóðláta
kælipressu og segullokun í
hurð. Ofan áhonum ersíð-
an vinnuborð með sérstak-
lega hertu efni.
Stærð:
h:45.5,b:85,d:60 cm.
ÞÚ GETUR
TREYST PHILIPS
Heimilistæki hf
SÆTÚNI8SIMI691515» KRINGLUNNISÍMI691520
Vú-eAuMSveúyaHÉegtA, í samuK^tm
itli íþróttaskófinn Laugarvatni
Stórkostiegt tækifæri fyrir 10-12 ára stelpur og stráka fyrir aðeins 2000 krónur á dag
Stórkostlegt tœkifœri fyrir 10 -12 Tímabil:
ára steipur og stráka í Litla lö.júlí - 20. júlí (5 dagar)
íþróttaskólanum að Laugarvatni. 20. júlí - 27. júlí (7 dagar)
Boðið er upp á frábœra 27.júlí - 3. ágúst (7dagar)
aðstöðu, hollan mat, fyrsta flokks 7. ágúst - 13. ágúst (7 dagar)
leiðbeinendur og heimsókn þekktra íþróttamanna.
Auk flestra íþróttagreina verður /V íþróttamiðstöð íslands
einnig boðið upp á ratieiki, fjall-
göngur, bátsferðir og kvöld- vökur.
; 7 Laugarvatni
Látið ekki þetta tœkifœri fram-
hjá ykkur fara. Pantið strax því
takmarkaður fjöldi kemst að.
Allar nánari upplýsingar veitir
skrifstofa íþróttamiðstöðvar
íslands á Laugarvatni sími 98 -
61147.
V^terkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! o V ili fn - / 'L, o / j r
fRnrgímM&foifo