Morgunblaðið - 26.05.1990, Side 1
96 SIÐUR B/C/LESBOK
117. tbl. 78. árg.
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
Préntsmiðja Morgunblaðsins
Sveitarst]' órnakosningar í dag:
Kosið til 149 sveitarstjórna
GENGIÐ er til sveitarstjórnakosn-
inga í dag í öllum 30 kaupstöðum
landsins og 119 hreppum. Þann
9. júní næstkoniandi verður siðan
kosið í 50 hreppum. I fimm hrepp-
um kom aðeins eitt framboð fram
og eru sveitarstjórnir þeirra því
sjálfkjörnar. Alls er því á árinu
kosið til 204 sveitarstjórna. Á kjör-
skrárstofiium Hagstofu Islands
vegna sveitarstjórnakosninganna
eru 180.235 menn. Flestir eru í
Reykjavík, 71.338. Kosningarétt
eiga þeir íbúar sveitarfélaga sem
orðnir eru 18 ára á kjördag.
Sveitarstjórnirnar, sem kosið er til
nú, eru 19 færri en í kosningunum
1986, þegar kosið var til 223 sveitar-
stjórna. Hins vegar eru kaupstaðir
nú sjö fleiri en þá var.
í kaupstöðum eru boðnir fram alls
115 listar. Sjálfstæðisflokkurinn (D-
listi) hefur hreinan meirihluta í sjö
kaupstöðum: Reykjavík, Seltjamar-
nesi, Mosfellsbæ, Garðabæ, Stykkis-
hólmi, Olafsfirði og Hveragerði. Þá
hefur fiokkurinn meirihluta í Grund-
arfírði og Tálknafirði. Alþýðuflokk-
urinn hefur meirihluta í einum kaup-
stað, Keflavík, og Alþýðubandalag í
einum, Neskaupstað. I íjórum kaup-
stöðum vantar Sjálfstæðisflokkinn
einn mann til að vinna meirihluta:
Njarðvík, ísafirði, Vestmannaeyjum
og á Dalvík, þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn býður fram í samstarfi
með óháðum.
í fimm sveitarfélögum kom aðeins
fram einn listi, sem þar af leiðandi
varð sjálfkjörinn. Það var í Andakíls-
hreppi í Borgarfirði, Rípurhreppi og
Hofshreppi í Skagafirði, Þórshafnar-
hreppi í N-Þingeyjarsýslu og í Skaft-
árhreppi í V-Skaftafellssýslu.
Morgunblaðið/RAX
Bjart yfír Reykjavík.
Matvæli hömstruð í Sovétríkjunum:
Námameim hóta verkföll-
um komi til verðhækkana
Kjörfundur hefst í kaupstöðum
ýmist klukkan 9 eða 10 í dag og er
heimilt að hann standi til klukkan
23 í kvöld.
Moskvu. Reuter.
TALSMENN Rukh, samtaka I
þjóðernissinna í Ukraínu, höfðu
í gær eftir frammámönnum kola- |
námamanna á Donetszk-svæðinu
að boðuðum verðhækkunum á
lífsnauðsynjum yrði svarað með
Davíð Oddsson borgarstjóri:
Engan má vanta
Þegar kosningabaráttan
var á enda í gær sneri
Morgunblaðið sér til
Davíðs Oddssonar, borgar-
stjóra og efsta manns á
D-lista sjálfstæðismanna í
Reykjavík, og leitaði álits
hans. Borgarstjóri sagði:
„í dag lýkur stuttri en
snarpri kosningabaráttu og
borgarbúar fá tækifæri til að
fella dóm sinn um störfin í
borgarstjórninni síðastliðin
fjögur ár. Og um leið til að
varða veginn fyrir framtíðina.
Það tækifæri ættu allir að nota.
Hver kosningabarátta hefur
sín sérkenni. Ég mun lengi
Davíð Oddsson borgarstjóri.
minnast þessarar, ekki síst
vegna mikils hlýhugs, velvildar
og vináttu sem ég fann fyrir
svo víða er ég varð snögglega
að gera hlé á baráttunni vegna
óvæntra veikinda.
Sagan kann of mörg dæmi
þess að sigursæl lið hafa orðið
illa úti einungis vegna þess að
einhvers staðar var sofið á
verðinum. Borgin okkar er í
sókn á öllum sviðum. Þeirri
sókn má ekki glutra niður. Við
skulum því í dag öll segja af-
dráttariaust okkar álit á kjör-
stað en ekki ætla öðrum að
kjósa fyrir okkur. Við skulum
síst af öllu láta um okkur segja
á morgun: Þið sváfuð á verðin-
um.“
verkfollum. Einnig kom firam að
forsætisráðherra lýðveldisins,
Vítalíj Masol, hefði lýst andstöðu
við efnahagstillögur Moskvu-
stjórnarinnar sem Níkolaj
Ryzhkov forsætisráðherra
kynnti á fimmtudag. Þar er gert
ráð fyrir hægfara breytingum í
átt til markaðskerfis. Ryzhkov
taldi brýnt að útskýra tillögurnar
fyrir almenningi en sagðist
myndu fara frá ef þingmenn
Æðsta ráðsins felldu þær. Fréttir
bárust af gífurlegu matvæla-
hamstri í helstu borgum Sov-
étríkjanna efitir að greint var frá
tillögunum; í Moskvu voru jafiivel
hillur í stórverslunum tómar.
Yfírvöld í Moskvu hafa ákveðið
að frá sunnudegi skuli takmarka
viðskipti við þá sem sannað geti
búsetu sína í borginni. Ukraínsk
stjórnvöld sögðu að dagleg sala á
bökunarhveiti í höfuðborginni Kíev
hefði aukist úr 80 tonnum í 500
tonn frá því efnahagstillögurnar
voru kynntar.
Fulltrúi Rukh sagði að til greina
kæmi að námamenn efndu til að-
gerða um öll Sovétríkin gegn nýju
lögunum. „Komi þessar hugmyndir
til framkvæmda munum við öll
svelta,“ hafði fulltrúinn eftir tals-
manni námamannanna. Á síðast-
liðnu ári lögðu mörg hundruð þús-
und námamenn í Ukraínu, næst-
fjölmennasta lýðveldi Sovétríkj-
anna, niður vinnu ásamt starfs-
bræðrum sínum í Síberíu og lömuðu
um hríð athafnalíf í landinu.
„Ég starfa ekki til þess eins að
halda í stöðu mína,“ sagði Ryzhkov
forsætisráðherra á blaðamanna-
fundi. „Ef ég verð þess var að þjóð-
in treystir mér ekki, nú jæja, þá
mun ég segja af mér af fúsum og
fijálsum vilja.“ Ryzhkov sagði að
helstu atriði áætlunarinnar yrðu
rædd til þrautar á opinberum vett-
vangi og ef til vill borin undir þjóð-
aratkvæði. Róttækir umbótasinnar
í Æðsta ráðinu hafa gagnrýnt til-
lögur stjórnarinnar harðlega fyrir
að ganga of skammt og krafist
atkvæðagreiðslu um vantraust á
stjórnina. Einn þeirra sagði að til-
lögurnar 'ættu ekkert skylt við
markaðskerfi.
Margir segja að búast megi við
ólgu hjá almenningi ef undirstöðu-
matvörur á borð við brauð, sem
verður þrefalt dýrara, hækka en
aðgerðirnar eiga að taka gildi í júlí.
Samkvæmt tillögunum á þó að
bæta neytendum upp allt að 70%
hækkananna með beinum greiðsl-
um. Verðlag á ýmsum matvælum
hefur verið óbreytt í landinu áratug-
um saman og bændur fóðra stund-
um svínin á brauði.
Sjá „Gorbatsjov teflir
harðlínumanni fram gegn
Jeltsín" á bls. 30.