Morgunblaðið - 26.05.1990, Síða 62

Morgunblaðið - 26.05.1990, Síða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990 KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ - 1. DEILD Framfer velaf stað - burstaði ÍA og markatalan 8:0 eftirtvær umferðir FRAMARAR fara heldur betur vel af stað á íslandsmótinu en að sama skapi hefur byrjun Skagamanna líklega aldrei ver- ið lakari. Fram sigraði ÍBV 4:0 í fyrstu umferð og lék sama leikinn gegn ÍA á sandbornum grasvellinum á Valbjarnarvelli á fimmtudag. Yfirburðir Fram- ara í síðari hálfleik voru með eindæmum, óðu bókstaflega í marktækifærum og sigurinn síst of stór. Guðmundur Steinsson gaf tón- inn á 15. mínútu er hann skor- aði af stuttu færi eftir að Kristinn R. Jónsson hafði þrumað knettinum 1 stöng eftir hor- ValurB. spyrnu Péturs Jónatansson Ormslev. Skömmu skrítar síðar var Viðar í dauðafæri er hann skallaði framhjá eftir auakspyrnu Péturs. Eftir það komu Skagamenn meira inn í leikinn og fékk Bjarki Pétursson tvö ágæt marktækifæri, sem ekki nýttust. Stefán Viðarsson fékk besta marktækifæri Skaga- manna á 44. mínútu er hann átti hörkuskot frá markteig eftir fyrir- gjöf, en Birkir var á réttum stað Morgunblaöið/Bjarni Baldur Bjarnason leikur hér á Brand Siguijónsson, varnarmann ÍA, og gaf síðan fyrir markið og þar var Guðmundur Steinsson og skoraði annað mark Fram. Framara. Baldur gerði þriðja mark- ið er skammt var liðið af síðari háifleik. Fjórða mark Fram kom 13 mínútum síðar eða á 69. mínútu og var vel að því staðið. Pétur vann knöttinn á eigin vallarhelmingi, óð upp og gaf síðan góða stungusend- ingu innfyrir á Kristin sem af- greiddi boltann örugglega í markið. Framarar hafa sýnt það í tveimur fyrstu leikjum sínum að þeir verða erfíðir viðureignar í sumar. Breidd- in er mikil í liðinu og ungu leik- mennimir eru tilbúnir í 1. deildar- slaginn. Pétur Ormslev átti mjög góðan leik í annars mjög jöfnu liði Fram, sem lék eins og ein heild. Skagamenn léku ágætlega lengst af í fyrri hálfleik en uppgjöfm var algjör í síðari hálfleik. Það var að- eins góð markvarsla Gísla Sigurðs- sonar og lánleysi Framara upp við markið sem gerði það að verkum að sigurinp varð ekki stærri en raun bar vitni.' Skagamenn söknuðu greinilega Karls Þórðarsonar í þess- um leik. „Betra en í Eyjum“ - bjargaði í horn. Á lokamínútu fyrri hálfleik gerði Guðmundur Steinsson annað mark sitt fyrir Fram. Hann fékk sendingu fyrir markið frá Baldri Bjarnasyni sem lék skemmtilega í gegnum vörn ÍA. Guðmundur stýrði knettin- um í markið með aðstoð Heimis Guðmundssonar, vamarmanns ÍA. Markið verður að skrifast á Guð- mund þar sem boltinn breytti lítið sem ekkert um stefnu. Síðari hálfleikur var algjörlega eign Framara, sem sóttu nær lát- laust og Skagamenn áttu sér ekki viðreisnarvon og það væri of langt mál að telja upp öll marktækifæri Getur ekki byrjað betur - segir Ragnar Margeirsson sem gerði tvö marka KR varði vel frá Ragnari Margeirssyni á 53. mínútu en sá ekki við honum þremur mínútum síðar. Ragnar fékk knöttinn á vítateig, einn og yfirgefinn, lék áfram og skoraði af öryggi. Björn Rafnsson gerði svo þriðja markið eftir sendingu frá Pétri Pét- urssyni. Jón Otti var nálægt því að veija en náði ekki að halda boltan- um. KR-ingar voru sterkari og vörn þeirra góð, ef undan er skilinn stutt- ur kafli um miðbik leiksins. Sigurð- ur Björgvinsson og Þorsteinn Hall- dórsson voru bestu menn liðsins og góð samvinna miðju- og sóknar- manna færði þeim skemmtilegar sóknir. Stjörnumenn mega vel við una þrátt fyrir tap. Þeir áttu góða spretti en vantaði herslumuninn til að komast í gegnum vörn KR. Miðja þeirra er sterk og í liðinu eru marg- ir ungir og efnilegir leikmenn sem vaxa með hveijum leik. „Það var sárt að tapa þessu eftir að hafa verið komnir inní leikinn. Það tók okkur að vísu góða stund að átta okkur á hraðanum og mínír menn verða að venjast því að fá engan frið með boltann," sagði Jó- hannes Atlason, þjálfari Stjörnunn- ar. „Við getum gert betur en verð- um að gera okkur grein fyrir því að við fáum ekkert án fyrirhafnar." RAGNAR Margeirsson byrjaði vel ífyrsta heila leik sínum í 1. deild með KR. Hann gerði tvö mörk fyrir liðið gegn Stjörn- unni í nokkuð öruggum sigri liðsins, 3:1. „Þetta getur ekki byrjað betur og ég er mjög ánægður með leikinn og auð- vitað mörkin tvö,“ sagði Ragn- ar. „Við slökuðum á í byrjun seinni hálfleiks og var refsað fyrir það með marki. En svo settum við aftur á fulla ferð og mér fannst þetta nokkuð ör- uggt.“ KR-ingar voru sterkari í fyrri hálfleik og fengu fyrsta mark- ið, á 15. mínútu. Ragnar Margeirs- son fékk góða sendingu frá Hilmari Björnssyni innfyrir Logi Bergmann vörnina og skoraði Eiðsson örugglega í hornið skrífar fjær. KR-ingar voru --heldur meira með boltann í fyrri hálfleik en Garðbæingar áttu ágæta spretti og strax í upphafi síðari hálfleiks náðu þeir að jafna. Valdi- mar Kristófersson átti góðan sprett og sendi boltann á Lárus Guð- mundsson. Hann sneri sig laglega í gegnum syfjulega vöm KR og skoraði með föstu skoti sem Olafur ""'^*Gottskálksson var þó ekki langt frá því að veija. Morgunblaðið/Einar Falur Ragnar Margeirsson skoraði tvívegis fyrir KR gegn Stjörnunni. Stjörnumenn byijuðu síðari hálf- leikinn mjög vel en eftir markið tóku KR-ingar sig á og lögðu held- ur meira í sóknina. Jón Otti Jónsson - sagðiÁsgeirElíasson, þjálfari Fram Asgeir Elíasson, þjálfari Fram, var að vonum ánægð- ur með sigurinn á IA. „Þetta var mjög góður leikur hjá okkur og mun betri en í Eyjum í fyrstu umferð, en við hefðum þó átt að skora fleiri mörk. Ég bjóst ekki við að leikurinn yrði svona léttur fyrir okkur. Strákarnir unnu vel saman og baráttan var í Iagi allan leikinn,“ sagði Ásgeir. Guðbjörn Tryggvason Guðbjörn Tryggvason, fyrirliði ÍA, var ekki eins ánægður og Ásgeir. „Þetta er lélegasta byijun á Islandsmóti hjá okkur síðan ég byijaði að ieika fyrir fimmtán árum. Þetta var ekki svo slæmt í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik brotnaði liðið algjörlega. Það vantaði Karl á miðjuna og það munar um minna. En við höfum ekki lagt árar í bát og ætlum okkur að taka vel á móti KA heima í næstu umferð,“ sagði Guðbjörn. 100. sigur ÍBV H.deild 100. sigur Eyjamanna í 1. deild varð að veruleika þegar þeir lögðu Þór að velli, 2:0. Þetta var jaf nf ramt annað tap Þórs- ara fyrir nýliðum í 1. deild á þessu keppnistimabili. „Sigur- inn var sanngjarn. Við vorum að vísu lengi í gang en eftir því sem leið á leikinn voru það við sem sköpuðum færin og náð- um okkur í þrjú mikilvæg stig,“ sagði Sigurlás Þorleifsson, þjálfari og leikmaður ÍBV. Það voru Þórsarar sem hófu leikinn af krafti og voru meira með boltann fyrsta hálftímann og fengu þó aðeins eitt umtalsvert marktækifæri er Sigfús Þorsteinn Jónsson Gunnar spyrnti rétt framhjá Guðmundsson eftí|- að hafa fengið góða sendingu inn fyrir vörnina frá Siguróla Kristjáns- syni. Síðan tóku Eyjamenn að hressast og pressuðu stíft síðustu mínútur hálfleiksins og vildu þeir fá vítaspyrnu er stjakað var við Sigurlási innan teigs, en allt kom fyrir ekki. Eyjamenn byijuðu síðari hálfleik af sama krafti og þeir enduðu þann fyrri. Friðrik varð að taka á honum stóra sínum er hann varði tvívegis frá Sigurlasi strax í upphafi hálf- leiksins. Á 57. mín., fór að draga til tíðinda. Ingi Sigurðsson hugðist senda fyrir en einn varnarmanna Þórs varði með höndum innan víta- teigs, en ekkert dæmt. Tveimur mínútum síðar kom há sending fyr- ir mark Þórs og fór boltinn í hönd Hlyns Birigssonar og dæmd víta- spyrna og úr henni skoraði Hlynur Stefánsson, 1:0. Eftir markið voru færi á báða bóga. Það besta fékk Siguróli eftir hornspyrnu, en þrumuskot hans fór rétt framhjá og Luka Kotic átti einnig skalla að marki sem Adolf Júgóslavinn Andrej Jerina var besti leikmaður ÍBV gegn Þór. sló í slá áður en hann náði boltanum aftur. Þórsarar sóttu síðustu mínút- urnar en það voru heimamenn sem bættu við marki þvert á gang leiks- ins þegar þijár mínútur voru komn- ar fram yfir venjulegan leiktíma. Andrej Jerina átti þá góða sehdingu á Jón Braga Arnarson sem var á auðum sjó og skoraði örugglega, 2:0. Nói Björnsson, fyrirliði Þórs, sem var þrítugur á fimmtudaginn, sagð- ist vel hafa getað hugsað sér betri afmælisgjöf. „Þetta var í lagi fyrsta hálftímann, en eftir það gáfum við þeim tækifæri til að komast inn í leikinn sem þeir svo nýttu sér vel. Vítaspyrnudómurinn var í strangari kantinum, en við gefumst ekkert upp og eigum eftir að hala inn stig í þeim leikjum sem eftir eru,“ sagði Nói.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.