Morgunblaðið - 26.05.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.05.1990, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAI 1990 Um sætuefni og neytendafræðslu eftir Borghildi Sigurbergsdóttur Undanfarið hefur farið frara umræða í fjölmiðlum um sætuefnið aspartam sem selt er undir vöru- heitinu NutraSweet. í Sjónvarpinu var í neytendaþætti 27. mars sl. fjallað um meinta skaðsemi efnis- ins, og var þeim þætti fylgt eftir með beinni útsendingu þar sem sér- fræðingar og áhugamenn um efnið voru saman komnir. Eftir það hafa a.m.k. tveir dálkar um neytendamál í Morgunblaðinu verið helgaðir meintri áhættu af neyslu aspartans. Neytendafræðsla Það er gleðilegt að fram skuli fara í fjölmiðlum umræða um mál- efni neytenda. Það er einnig nauð- synlegt í þjóðfélagi, þar sem mat- vælaframleiðsla hefur tekið stórstígum breytingum til tækni- æðingar og aukinnar notkunar ukefna á stuttum tíma. Þetta leið- ir til þess að hinn almenni neytandi hefur engan möguleika á að dæma sjálfur um gæði og hugsanlega heilsufarslega hættu af neyslu hinna mörgu og mismunandi efna, sem notuð eru við framleiðsiu á matvælum. Því er mikilvægt að fjölmiðlar íjalli um netendafræðslu í dálkum sínum, en rétt er að benda á að fræðsla af þessu tagi getur ekki þjónað tilgangi nema hún veiti neyt- 3Í!hdum rétta upplýsingar, sem hjálpa til við skynsamlegt fæðuval. Það hefur því miður gerst að óstaðfestum upplýsingum um efnið aspartam hefur verið slegið fram í neytendadálkum undanfarið. Þær eru byggðar á bandarískum upplýs- ingum um kvartanir sem hafa bor- ist frá fólki sem telur sig hafa orð- ið vart við allt frá vægum einkenn- um af höfuðverk upp í alvarlega brenglun á starfsemi miðtaugakerf- is eftir neyslu efnisins. Lyfleysiáhrif (Placebo) Þegar eiturhrif efnis eða auka- verkanir á fólk eru metnar er alger forsenda fyrir raunhæfri niður- stöðu, að gerð sé tvíblind rannsókn, þar sem hvorki sá sem neytir efnis- ins sem verið er að rannsaka, né sá sem gefur efnið viti hvort um raunverulega efnið sé að ræða. I slíkum rannsóknum er þátttakend- um skipt í tvo hópa, annar hópurinn fær ákveðinn skammt af því efni sem verið er að rannsaka og annar sambærilegur hópur fær óvirkt efni (placebo). Svonefnd lyfleysiáhrif (placebo) eru vel þekkt, þ.e. að ein- staklingurinn sem hefur fyrirfram ákveðnar skoðanir eða hugmyndir um áhrif efnisins, finnur oft fyrir þeim áhrifum sem vænst er þegar efnisins er neytt. í hópi fólks sem telja sig hafa orðið fyrir aukaverkunum af asp- artam hefur tíðni aukáverkana ekki verið sýnd hærri meðal þeirra sem tóku efnið inn, en þeirra sem fengu óvirkt efni í tvíblindri rannsókn. Má því telja að fyrirfram ákveðnar hugmyndir þeirra, sem álíta efnið hættulegt, hafi verið ástæða auka- verkana sem tilgreindar voru, en ekki áhrif efnisins sjálfs. Gamall draugur Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dramatískar lýsingar þeirra sem kalla sig fórnarlömb aspartams eru dregnar fram í dagsljósið. Það gerð- ist m.a. í Danmörku árið 1986, en þá var sýndur bandarískur þáttur í danska sjónvarpinu um efnið asp- artam. í þættinum kom fram hörð gagnrýni á efnið af hálfu aðila sem halda því fram að þær rannsóknir sem byggt er á við mat á eituráhrif- um efnisins séu ekki réttar. í kjöl- far umræðu sem þátturinn vakti þar í landi, fór umhverfisráðuneytið fram á að sérfræðingar dönsku matvælastofnunarinnar gerðu grein fyrir forsendum þess að efnið væri leyft í matvæli í Danmörku. I júní 1987 var ítarleg skýrsla gefin út af matvælastofnuninni, þar sem gerð er grein fyrir þeim alþjóðlegu rannsóknum sem byggt er á ásamt ályktunum frá sérfræðinganefnd- um, m.a. frá Evrópubandalaginu. í skýrslunni er ályktað að neysla efn- isins í því magni sem leyft er í Danmörku, hafi ekki í för með sér heilsufarslega hættu. Þess má geta að notkun aspartams í fæðutegund- um í Danmörku er að mörgu leyti svipuð því sem gerist hér á landi. Sérfræðinefndir Efnið aspartam kom fyrst fram árið 1965. Fljótlega komu fram hugmyndir um að efnið gæti verið hættulegt tauga- og hormónastarf- semi mannslíkamans og voru settar af stað miklar rannsóknir á til- raunadýrum til að rannsaka áhrif efnisins. Má áætla að efnið sé nú eitt mest rannsakaða aukefni sem leyft er í matvælum í dag. Niðurbrotsefni aspartams í líkamanum eru tvær amínósýrur (phenylalanín og aspartic sýra) og metanól. Amínósýrurnar eru nátt- úrulegur hluti próteina í fæðunni, en þau eru m.a. í kjöti, mjólk og eggjum og eru nauðsynleg efni til viðhalds líkamanum. M'etanól er eiturefni og er um 10% af heildar- þyngd niðurbrotsefnanna. Metanól frá náttúrunnar hendi er til staðar í ýmsum matvælum í litlu magni og myndast við venjuleg efnaskipti líkamans. Þegar fjallað er um aukefni (og lyf) er mikilvægt að hafa í huga að sama efnið er oft skaðlaust og jafnvel nauðsynlegt líkamanum í litlu magni, en hefur eiturvirkni í stærri skömmtum. Þess vegna eru opinberar sérfræðinganefndir starf- andi, til að leggja sérfræðilegt mat á öll efni, sem matvælaframleiðend- ur vilja nota í matvæli. Þessar opin- beru nefndir nota niðurstöður viður- kenndra rannsókna við mat á eitur- áhrifum efna og til að meta hvort rétt sé að leyfa notkun efnanna og þá í hve miklu magni. Á íslandi er starfandi aukefna- nefnd sem skipuð er af heilbrigðis- ráðuneytinu. I nefndinni eiga sæti sérfræðingar sem fjalla um aukefni og notkun þeirra í matvælum. Auk- efnanefnd starfar eftir íslenskri Borghildur Sigurbergsdóttir „Þörfin á fi*æðslu er mikil, en þegar málefiii eru kynnt fyrir neyt- endum án gaumgæfí- legrar athugunar, er hætt við að „fræðslu- málin“ snúist upp í önd- verðu sína.“ reglugerð um aukefni og aukefna- lista sem gildir hér á landi. Á þeim lista eru öll þau efni sem leyfilegt er að nota í matvælum og kemur fram í hvaða fæðutegundir má nota hvert efni og í hve miklu magni. Sætuefnið aspartam er leyft í mat- vælum samkvæmt aukefnalistanum og hefur aukefnanefnd ekki séð ástæðu til að gera breytingu þar á. Sjúkdómar Þar er ekki rétt sem kemur fram í dálki um neytendamál í Morgun- blaðinu þann 29. mars sl. að „ ... Þannig getur nýtt aukefni fengið samþykki án þess að hafi nokkurn tíma verið kannað á mannfólkinu undir eftirliti.“ Staðhæfingar af þessu tagi geta ekki þjónað þeim tilgangi, sem á að felast í góðri neytendafræðslu, þ.e. að gera neyt- andann færari um að velja af þekk- ingu. Þvert á móti er verið að ala á tortryggni og hræðslu, sem leiðir af sér almenna vantrú á þeim upp- lýsingum sem koma fram, hvort heldur þær hafí við rök að styðjast eða ekki. Áhrif aspartams hafa ekki einungis verið könnuð í fjölda rannsókna á dýrum, heldur einnig í mörgum rannsóknum á fólki og hafa niðurstöður þeirra ekki gefið tilefni til breyttrar afstöðu tii notk- unar efnisins. Engin trygging er þó fyrir því að aukefni eða önnur efni í matvæl- um séu skaðlaus öllum einstakling- um. Eins og kemur réttilega fram á fyrrnefndri neytendasíðu Morgun- blaðsins stafar einstaklingum með sjaldgæfan en hættulegan efna- skiptasjúkdóm PKU (phenylketön- urea), hætta af neyslu aspartams. Þar með er ekki öll sagan, sögð, því þessum sömu einstaklingum stafar jafn mikil hætta af að drekka mjólk, borða kjöt og egg og allar þær fæðutegundir, sem amínósýran phenylalanín fínnst í. Einnig eru einstaklingar með ofnæmi eða óþol fyrir ótalmörgum efnum sem koma fyrir frá náttúrunnar hendi í mat- vælum eða er bætt í þau við fram- leiðsluna. Þessir einstaklingar þekkja sitt vandamál, og iðulega hvaða efni þeir þurfa að forðast. Þetta eru hins vegar efni sem eru skaðlaus öðrum. Umbúðamerkingar Það hlýtur að vera skýlaus krafa neytenda að öll matvæli séu merkt og tilgreind þau efni sem varan inniheldur, eins og íslensk lög gera ráð fyrir. Þannig geta þeir sem ekki þóla eða kæra sig ekki um að neyta efna sem varan inniheldur, forðast hana, en aðrir sem telja vöruna eftirsóknarverða, valið hana. Með því að velja frekar þær vörur sem hafa góða innihaldslýs- ingu, en skilja hinar eftir, geta neyt- endur sjálfír stuðlað að því að þeir framleiðendur sem standa sig illa í þeirri sjálfsögðu þjónustu að gefa upp hvað varan inniheldur, verði undir í hinni hörðu samkeppni. Ábyrgð fjölmiðla Að lokum er rétt að hvetja um- sjónarmenn neytendaþátta til að- hafa uppi jákvæða fræðslu. Hafi þeir efasemdir um öryggi einstakra efna eða matvæla, ber þeim að kynna sér málið til hlítar og koma efasemdum á framfæri til réttra aðila, en ekki ýta undir hræðslu og tortryggni á meðal neytenda. Þörfin á fræðslu er mikil, en þegar mál- efni eru kynnt fyrir neytendum án gaumgæfílegrar athugunar, er hætt við að „fræðslumálin" snúist upp í öndverðu sína. Það sama getur átt við um „spakmæli dagsins" í neyt- endadálki Morgunblaðsins. Höfundur er matvælafræðingur. ’Neytandinn og tannlæknirinn eftir Vilhjálm Inga Árnason Það ríkir stríðsástand á milli heil- brigðisráðuneytisins og tannlækna. Orsökin er sú, að ráðuneytið telur suma tannlækna hafa ríkissjóð að féþúfu með þeim hætti að fram- kvæma á fólki aðgerðir sem tæpast væru nauðsynlegar heilsu þess vegna. Tannlæknar sviptir rétti til cinhliða ákvarðana Heilbrigðisráðherra skipaði í - ágúst 1989, nefnd þriggja manna (tveggja lækna og eins lögfræð- ings) til að gera tillögur að endur- bótum. Nefndin komst fljótlega að því að róttækra aðgerða væri þörf, því fyrstu tillögur hennar gengu út á það að svipta tannlækna þeim rétti að gera vissar aðgerðir á kostnað ríkisins, nema að fengnu sam- þykki. Nefndin hefur með öðrum 'Hprðum talið að þessi stétt lækna hafí misnotað svo aðstöðu sína að setja verði hömlur á ákvarðanarétt hennar. Reyndar liggur fyrir opinbert skjal sem staðfestir þá skoðun eins tannréttingarlæknis, að ef einhver vill láta gera á sér aðgerð eingöngu 4' fegrunarskyni, og láta síðan ríkið reiða helminginn, þá sé sú ákvörð- un leikmannsins engu réttlægri en ákvörðun> iæknis eða sjúklings um aðgerð vegna sjúkdóms. Menn geta gert sér í hugarlund hvort ekki séu margir sem væru tilbúnir til að láta „fegra“ sig ef þeir fengju aðgerðina á „hálfvirði". Tekjur tannréttingarlækna lækka um 5 milljónir á ári Talið er að lækka megi tekjur tólf tannréttingarlækna um 60 milljónir eða sem svarar 5 milljón- um á hvern, er það þó aðeins hluti af tekjum þeirra hvers um sig. Nú kann einhver að spyija, hvernig geti staðið á því að heilbrigðisstétt sem vinnur eftir samningi við trygg- ingastofnun geti haft tugi milljóna í brúttótekjur á ári? Svarið er ein- faltrDuglaus og ósanngjörn samn- inganefnd. Ég skal rökstyðja þessa fullyrðingu mína nánar. Duglaus samninganeínd tryggir tólf þúsund króna tímalaun Árið 1987 þegar ég hóf fyrst að skrifa. um gjaldskrá tannlækna, færði ég rök fyrir því að samninga- nefnd ríkisins hefði tryggt tannrétt- ingarlæknum um 12 þúsund króna tímalaunum við vissar aðgerðir. Eftir eitt ár og margar blaðagrein- ar, viðurkenndi formaður samn- inganefndarinnar ioksins formlega að tannréttingarmönnum væru reiknaðar of háar greiðslur. Samn- inganefnd sem vísvitandi semur um of háar greiðslur, er sannarlega duglaus. Vilhjálmur Ingi Árnason „Yonandi verða það ekki margir neytendur sem vegna eigin stund- arhagsmuna, þrýsta á sljórnvöld um að láta undan tannlæknum, öll- um til tjóns þegar fram í sækir.“ Ósanngjörn samninganefnd /9 stuðlar að misrétti Á Akureyri starfa tveir bræður samkvæmt samningum við þessa margumtöluðu sámninganefnd annar er sjúkraþjálfari en hinn er tannlæknir. Þeir vinna í sama húsi, sjúkraþjálfarinn á jarðhæð en tann- læknirinn í kjallara. Samkvæmt samningum eiga báðir að hafa minnst 80 fm gólf- flöt. Nú skyldi maður ætla að í samningunum væri reiknað með sambærilegum kostnaði fyrir sam- bærilegt húsnæði, en svo er ekki. Á meðan sjúkraþjálfaranum eru reiknaðar um 90 kr. á klukkustund þá er tannlækninum bróður hans reiknaðar rúmar 300 krónur á klukkustund fyrir jafn stórt pláss. Samninganefnd sem gerir þannig upp á milli stétta, er sannarlega ósanngjörn. Ég veit um sérhannaða tann- læknaaðstöðu þar sem í áraraðir unnu þrír tannlæknar. í dag hefðu þeir með 'atta stunda vinnudegi, um 100 þúsund kronum meira á mánuði upp í húsaleigu en nemur raunverulegu leigugjaldi. „Góður“ samningur það. Heilbrigðisráðuneytið tekur í taumana Þegar Ijóst var að samninga- nefndin yrði ekki í bráð fær um að gera raunhæfa og sanngjarna samninga við tannlækna, var samið lagafrumvarp sem átti að hindra óheftan fjáraustur til þeirra. Lögin tóku gildi um síðustu áramót og viðbrögð tannlækna lótu ekki á sér standa. Þeir neituðu að sjúkdóms- greina og meta ástand skjólstæð- inga sinna, þannig að hægt væri að skera úr um það hve hátt hlut- fall af kostnaðinum ætti að falla á ríkissjóð. Tannlæknum og þá einkum tann- réttingarlæknum virðist það meira í mun að viðhalda kerfí sem trygg- ir þeim sjálfum auðvelda leið til veraldlegra gæða en veita sjúkling- um sínum eðlilega þjónustu. Lækn- ar sem beita sjúklingum fyrir sig í kjarabaráttu, ættu ekki að eiga heima í heilbrigðisstétt, og spurning hvaða hvatir hafa legið að baki vali þeirra á ævistarfi. Fórnarlömb kjaradeilunnar Þeir einstaklingar sem tannlækn- ar láta nú gjalda þess að þeir vilja ekki fara að lögum, eiga sennilega nokkra bið fyrir höndum, því að í augum tannlækna virðist auðveldur aðgangur að tugum milljóna úr ríkissjóði vegna þyngra en stundar óþægindi sjúklinga. Samræmd heilbrigðisþjónusta er hagsmunamál neytenda Vonandi sjá flestir neytendur það, að það eru tannlæknar sem beita málþófi og mótþróa til að bijóta á bak aftur tilraunir heil- brigðisyfirvalda til að gera tann- læknaþjónustuna sambærilega allri annarri heilbrigðisþjónustu. Von- andi verða það ekki margir neytend- ur sem vegna eigin stundar hags- .muna, þrýsta á stjórnvöld um að láta undan tannlæknum, öllum til tjóns þegar fram í sækir. Höfundur er ístjórn Neytendasamtaknnna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.