Morgunblaðið - 26.05.1990, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAI 1990
Hættuleg
vinna barna
takmörkuð
FYRIR þinglok samþykkti Alþingi
breytingar á lögum um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnu-
stöðum sem miða að þvi að tak-
marka vinnu barna og ungmenna
við hættulegar aðstæður og er
miðað við 17 ára aldur.
Nú er skýrar en áður kveðið á
um hvers konar vinnu heimilt er
að ráða börn og ungmenni til. í 60.
grein laganna segir: „Böm yngri
en 14 ára má ekki ráða nema til
léttra, hættulítilla starfa. Ekki má
láta böm á aldrinum 14 og 15 ára,
né heldur þau sem yngri eru, vinna
við hættulegar vélar og við hættu-
legar aðstæður."
Samkvæmt skráðum slysum hjá
Vinnueftirlitinu hafa alvarlegustu
slysin á bömum og ungmennum
orðið við landbúnaðarvélar og fisk-
vinnsluvélar.
Bygging aldraðra
við Skúlagötu:
Byggðaverk
116,7
milljónir kr.
Á síðasta fundi borgarráðs var
samþykkt tillaga Innkaupastofn-
unar Reykjavíkurborgar, um að
taka tilboði Byggðaverks hf.,
116,7 milljónir, í 1. áfanga að
byggingu aldraðra við Skúla-
götu. Sex tilboð bárust í verkið.
Tilboð Byggðaverks hf. er 68,4%
af kostnaðaráætlun 1. áfanga en í
honum felst vinna við grunn hússins
og uppsteypa á bifreiðageymslu við
fyrirhugaðar íbúðir aldraðra við
Lindargötu. Önnur fyrirtæki sem
buðu í verkið vom: Fjarðarrnót hf.,
Röst hf., Ármannsfell hf., ístak hf.
og Sveinbjöm Sigurðsson.
á að gott væri að mæta snemma á
kjörstað til að forðast bið.
Sjá nánar auglýsingu um kjör-
staði og kjördeildaskiptingu á
bls. 17.
TVEIR unglingspiltar réðust á
tvo litla drengi á Skarphéðins-
götu síðdegis á uppstigningar-
dag, börðu þá og rændu af þeim
300 krónum.
Unglingarnir gengu að drengjun-
um, tóku þá hálstaki og hirtu af
þeim aurana. Gengu síðan í skrokk
á þeim og börðu með krepptum
hnefá í maga.
Málið var kært til lögreglu sem
leitar piltanna. Þeir eru taldir vera
um 15 ára gamlir.
Kosningahandbók fylgir Morg-
unblaðinu í dag. Sjá blað Cl-12.
Unglingar
rændu börn
Gott kosn-
ingaveður
um land allt
GÓÐU og björtu veðri er spáð um
land allt í dag, á kosningadaginn.
Fremur svalt verður snemma morg-
uns en hlýnar um miðjan dag. Hiti
verður þá 8-14 stig. Svalara verður
þegar líður á kvöldið.
Fólk hvatt til að hafa með sér persónuskilríki
KOSIÐ verður á sextán stöðum
í borginni í borgarstjómarkosn-
ingunum í dag miUi kl. 9 og 23.
Á kjörskrá eru um 71.338
manns.
í kosningunum 1986 í Reykjavík
voru 66.529 manns á kjörskrá.
Þeim hefur nú fjölgað í 71.338 og
eru þá ekki með taldir þeir sem
kært hafa sig inn á kjörskrá síðustu
vikur.
Þeir sem kosningarétt hafa eru
allir þeir sem lögheimili hafa í
Reykjavík og eru 18 ára eða eldri.
Aðeins þeir sem eru orðnir 18 ára
á kjördag hafa kosningarétt; ekki
er nóg að verða 18 ára á árinu.
Kjörstaðir eru á sextán stöðum:
Álftamýrarskóla, Árbæjarskóla,
Austurbæjarskóla, Breiðagerðis-
skóla, Breiðholtsskóla, Fellaskóla,
Foldaskóla, Langholtsskóla, Mela-
skóla, Miðbæjarskóla, Sjómanna-
skóla, Ölduselsskóla, Elliheimilinu
Grund, Hrafnistu DAS og Hátúni
12. Kjörstaðir voru 15 í síðustu
kosningum, en nú hefur Foldaskóli
bæst við. Kjördeildir eru samtals
98 og hefur þeim fjölgað um 10 frá
síðustu kosningum.
I samtali við Morgunblaðið, sagði
Guðmundur Vignir Jósefsson, for-
maður yfirkjörstjómar í Reykjavík,
að rétt væri að minna fólk á að
hafa með sér persónuskilríki á kjör-
stað, því verið gæti að fólk væri
beðið um að gera grein fýrir sér.
Einnig vildi hann benda kjósendum
Magni Kristjánsson, skipstjórí á Neskaupstað:
Treysti sjálfstæðismönnuin
vel til forystu í bæjarfélaginu
„MÉR sýnist að á D-iista sé margt af góðu og dugmiklu fólki og
ég treysti því vel til að hafa forustu í þessum bæ næsta kjörtíma-
bil,“ segir Magni Kristjánsson, útgerðarmaður og skipstjóri á
Neskaupstað, í Norðfirðingi blaði sjálfstæðisfélaganna þar í bæ,
sem kom út í gær. Magni var áður fiokksbundinn alþýðubandalags-
maður en gagnrýnir nú stjórn bæjarins, sem hefúr verið í höndum
hans gamla fiokks. „Við vini mína í Alþýðubandalaginu vil ég
segja þetta: Það verður enginn héraðsbrestur þó þið takið ykkur
fi"í frá því að hafa vit fyrir okkur í 4 ár.“
Magni Kristjánsson fer nokkr- kringum Svavar Gestsson og Ólaf
um orðum um upplausn Alþýðu-
bandalagsins og segir meðal ann-
ars: „Alþýðubandalagið er í mol-
um og ekki séð annað en það sé
mikið mál að raða því saman aft-
ur þannig að það geti orðið afl á
landsvísu. Stærstu brotin eru í
Ragnar. Þessir hópar talast ekki
við nema með hótunum eða skæt-
ingi: Guðmundur Joð sá sitt
óvænna og yfirgaf fleyið. Sigutjón
Pétursson og hans lið í Reykjavík
er á góðri leið með að þurrka gjör-
samlega út fylgi AB þar á bæ
með þröngsýni og kreddufestu.
Þingmenn flokksins róa hver með
sínu lagi og fæstir í takt. Skúli
Alexandersson er í andstöðu við
allt sem flokkurinn kemur nálægt
í sjávarútvegsmálum. Þingmaður-
inn okkar, Hjörleifur [Guttorms-
son] er nánast genginn í Kvenna-
listann og á móti flestu sem flokk-
urinn gerir á þingl og í ríkis-
stjórn. Það er eiginlega spuming
um hver týndi hveijum. Týndi ég
flokknum eða týndi flokkurinn
mér?“
Þessu næst víkur Magni að
bæjarmálum og segir að hann
vilji sjá breytingar. „Mér finnst
þessum bæ hafa hrakað á marga
lund upp á síðkastið. Það örlar
hvergi á sókn eða frumkvæði af
hálfu bæjaryfirvalda.“
Magni bendir í þessu sambandi
á atvinnumálin, sjávarútveginn og
höfnina. Hann telur að meirihluti
Alþýðubandalagsins sé andsnúinn
einkarekstri og að engin end-
urnýjun eða sókn sé í sjávarút-
vegi. „Það er alveg sama þó nýju
fotin keisarans séu dregin fram
. . . Því miður er hér um hnignun
og kyrrstöðu að ræða og mál til
komið að menn átti sig á þeirri
staðreynd," segir Magni Kristj-
ánsson.
Reykur stígur frá húsinu við Eyrarveg. Á innfelldu myndinni býr
slökkviliðsmaður sig undir að fara inn í húsið.
Eldur í húsi á Siglufírði:
Morgunblaðið/Matthías.
Maður um áttrætt hlaut brunasár
ELDUR kom upp í húsi við andliti og höndum og var eldurinn upp á efri hæðinni, að talsverðar skemmdir urðu á báð-
Eyrarveg á Siglufirði laust fluttur á sjúkrahúsið á staðn- því er talið er út frá rafmagni. um hæðum hússins af reyk og
efitir hádegið í gær. Maður um um. Slökkviliðinu á Siglufirði gekk vatni.
áttrætt brenndist nokkuð á Húsið er tvær hæðir og kom greiðlega að slökkva eldinn en
Borgarstjórnarkosningar í dag:
Kosið á sextán stöðum