Morgunblaðið - 26.05.1990, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
Sleipnir og
viðsemjendur:
Eng’inn fund-
ur í 10 daga
„AÐGERÐIR fara að verða nokk-
uð freistandi," sagði Magnús
Guðmundsson formaður Bif-
reiðasljórafélagsins Sieipnis um
stöðu samningamála í samtali við
Morgunblaðið.
Félagsmenn í Sleipni veittu stjórn
félagsins heimild til þess boða verk-
fall fyrir um mánuði. „Við héldum
langan fund með vinnuveitendum
fyrir 10 dögum, en það kom ekkert
úr þeim fundi. Ríkissáttasemjari
kvaðst þá myndu boða okkur aftur
til fundar innan hálfs mánaðar.
Fari ekki að verða af því, munum
við sjálfir fara fram á fund.“ Að-
spurður um aðgerðir félagsins,
sagði Magnús að sá tími væri að
koma að aðgerðir af hálfu félags-
manna hefðu hvað mest áhrif. Ef
ekki færi að draga saman með
Sleipni og viðsemjendum, hlyti að
fara að líða að verkfallsaðgerðúm.
Frá slysstað í Teigurium aðfaranótt fimmtudags.
Morgunblaðið/Júlíus
5 slösuðust
í árekstri
FIMM slösuðust, þar af einn mik-
ið, í árekstri tveggja bíla á mót-
um Hraunteigs og Gullteigs að-
faranótt fimmtudags.
Slysið varð um klukkan 2.40 og
með þeim hætti, að amerískum
fólksbíl, Oldsmobile, var ekið norð-
ur Gullteig og í hlið Toyota-bíls,
sem var ekið vestur Hraunteig.
Samkvæmt almennum umferðar-
rétti hefði ökumaður Oldsmobile-
bílsins átt að víkja. Við áreksturinn
kastaðist Toyotan á kyrrstæðan
jeppa og hann kastaðist á næsta
kyrrstæða bíl. Oldsmobile-bíllinn
snerist hins vegar á veginum og
lenti á ljósastaur.
í Toyota-bílnum voru, auk öku-
manns, fjórar stúlkur. Þrjár þeirra
slösuðust, en ekki alvarlega. Öku-
maðurinn slasaðist hins vegar mik-
ið og var m.a. talinn lærbrotinn.
Fá þurfti björgunarbíl slökkviliðs-
ins á vettvang til að losa manninn
úr flakinu. Ökumaður Oldsmobile-
bflsins slasaðist lítillega.
VEÐURHORFUR í DAG, 26. MAÍ
YFIRLIT í GÆR: Skammt suðvestur af Reykjanesi er 1.028 mb hæð
sem þokast austur. Lægðardrag yfir austanverðu landinu þokast
suðaustut. Hiti breytist fremur lítið.
SPÁ: Fremur hæg breytileg átt eða suðaustan gola. Þykknar smám
saman upp sunnan- og vestanlands er líður á daginn en iéttskýjað
norðanlands og austan. Hiti 0-6 stig í nótt en 8-14 á morgun.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðaustlæg átt og hlýnandi veður. Rign-
ing eða súld um sunnan- og vestanvert landið, en úrkomulítið á
Norður- og Austurlandi.
HORFUR Á MÁNUDAG: Sunnanátt og milt veður. Skúrir um landið
sunnanvert, en þurrt og víða bjart veður norðanlands.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að fsl. tíma
Hlti veður
Akureyri 9 léttskýjað
Reykjavik 8 léttskýjað
Bergen 6 hálfskýjað
Helsinki 14 skýjað
Kaupmannahöfn 14 skýjað
Narssarssuaq 10 skýjað
Nuuk 4-3 þoka
Ósló 14 hálfskýjað
Stokkhólmur 8 skúr
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 22 léttskýjað
Amsterdam 13 skýjað
Barcelona 23 mistur
Berlín 14 skýjað
Chicago 13 rigning
Feneyjar 23 téttskýjað
Frankfurt 15 skýjað
Glasgow 14 hálfskýjað
Hamborg 14 skýjað
Las Palmas 23 léttskýjað
London 14 skýjað
Los Angeles 14 heiðskírt
Lúxemborg 15 hálfskýjað
Madríd 23 skýjað
Malaga 22 skýjað
Mallorca 26 skýjað
Montreal 10 léttskýjað
NewYork 14 hálfskýjað
Orlando 22 léttskýjað
París 17 léttskýjað
Róm 23 skýjað
Vín 14 rigning
Washington vantar
Winnipeg 12 heiðskírt
Fíkniefiiamál:
Einn verið dæmdur
vegna óþekkts efiiis
TVEIR menn viðurkenndu fyrir
nokkru að hafa flutt hvítt duft
til landsins frá Hollandi, í þeirri
trú að það væri kókaín. í dóm-
um Hæstaréttar er að fínna eitt
dæmi þess að maður hafi verið
dæmdur fyrir innflutning á efiii,
sem hann taldi vera fíkniefiii,
þó það væri ekki sannað við
efriagreiningu.
Dómur Hæstaréttar er frá
1972. Maður nokkur var ákærður
fyrir að hafa flutt LSD til lands-
ins. Hann var sýknaður í undir-
rétti, þar sem ekki þótti sannað
við efnagreiningu að um LSD hefði
verið að ræða. Hæstiréttur tók
undir það að ekki væri unnt að
færa sönnur á hvert efnið væri,
en hins vegar hefði maðurinn sjálf-
ur talið sig vera að flytja inn LSD.
Hann var því dæmdur fyrir tilraun
til brots.
Mál mannanna tveggja, sem
hafa játað innflutning á hvítu dufti
frá Hollandi, sem síðar reyndist
staðdeyfilyf, hefur ekki borist
embætti ríkissaksóknara. Ákvörð-
un um hvort þeir verða ákærðir
liggur því ekki fyrir.
Garðabær:
5 millj. til
sumarvinnu
skólafólks
BÆJARRÁÐ Garðabæjar
samþykkti á frindi sínum s.l.
þriðjudag að veita aukalega 5
milljónum króna til sumar-
vinnu skólafólks. Jafnframt
var samþykkt að beina því til
sljómvalda hvort ekki væri
að vænta framlags úr ríkis-
sjóði eins og síðastliðið sumar
vegna vanda skólafólks.
Að sögn Ingimundar Sigur-
pálssonar bæjarstjóra, sækja
mun fleiri um sumarvinnu hjá
bænum en í fyrra og eiga 40
ungmenni enn eftir að fá vinnu.
í sumar verða því samtals 107
í vinnu á vegum bæjarins,
íþróttahöll í Kópavogi:
Yfirlýsing' ft*á
Gunnari Birgissym
Morgunblaðinu barst í gærkvöldi eftirfarandi yfirlýsing frá
Gunnari Birgissyni, sem skipar efeta sæti á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi:
í gærkvöldi var dreift í hús í
Kópavogi flugmiða. Þar segja
höfundar, að Vogar, blað Sjálf-
stæðismanna, dreifi fölsuðum
teikningum og birta aðra teikn-
ingu af íþróttahöllinni, sem þeir
segja rétta. Teikning Voga er
teikning sömu arkitekta frá því
í febrúar 1990, sem var grund-
völlur samningsins við ríkið.
Nýja teikningin er því augljós-
lega teiknuð síðar og hefur
hvergi verið birt opinberlega
fyrr.
Á henni hefur húsið verið
hækkað um 1.30 metra, efri svöl-
um verið lyft um 34 sm og
fremsta sætaröð þar færð fram
um 64 sm. Auk þess er gólfi
hallarinnar lyft um 23 sm. Allt
þetta er gert til þess að bæta
sjónlínu frá fyrri teikningu.
Það er því búið að stækka
húsið frá fyrri teikningu, sem
var grundvöllur að samningum
við ríkið um fasta fjárupphæð.
Húsið er því þegar orðið dýrara.
Allar fullyrðingar Voga um,
að húsið uppfylli ekki kröfur
byggingareglugerðar um sam-
komuhús og kröfur brunamála-
samþykktar um rýmingarleiðir,
standa óhaggaðar. Sama máli
gegnir um stuðning Sjá lfstæðis-
flokksins við byggingu íþrótta-
hallar í Kópavogi með betri
samningi við ríkið.