Morgunblaðið - 26.05.1990, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
Tónlistarskóli Kópavogs hélt tónleika þar sem eingöngu voru flutt
íslensk verk.
466 nemendur við Tón-
list arskóla Kópavogs
466 nemendur stunduðu nám við skólann í vetur og þar af voru 117
í forskólanum. Nokkrir menntaskólanemar stunduðu tónlistarnám
sem valgrein.
Á síðastliðnu hausti var haldið
námskeið fyrir fullorðið fólk. Nám-
skeiðið var í fyrirlestraformi og
Vegna hagstæðra innkaupa
getum við boðið gegnheilar
útiflísar á ótrúlegu verði.
20x20, fullt verö 2.573.
Nú á kr. 1.796 m2
30x30, fullt verð 2.900.
Núá kr. 1.966 m2
Ávallt ódýrar flísar!
# ALFABORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR
SKÚTUVOGI 4 SÍMI 686755
tilgangur þess var að þjálfa fólk í
að hlusta á tónlist. Kennt var í
byijendaflokki og einnig í fram-
haldsflokki fyrir þá sem verið
höfðu áður.
Tónleikahald er jafnan ríkur
þáttur í starfi skólans. Pyrir utan
opinbera jóla- og vortónleika voru
haldnir ijölmargir tónleikar innan
skólans fyrir nemendur og ættingj-
ar þeirra. Auk þess komu nemend-
ur fram við önnur tækifæri s.s. á
vegum félagsstarfs aldraðra, við
kirkjulegar athafnir og á sameigin-
legum tónleikum með nemendum
úr Tónlistarskóla Garðabæjar og
eru þessi atriði árvissir viðburðir.
í tilefni af 35 ára afmæli Kópa-
vogskaupstaðar stóð skólinn fyrir
tónleikum þar sem eingöngu voru
flutt íslensk verk og vonandi verð-
ur framhald á því. Til að auka
tengsl heimilanna og skólans eru
haldnir sérstakir foreldradagar,
þar sem aðstandendum gefst kost-
ur að ræða við kennara nemand-
ans. Um leið fara miðsvetrarpróf
fram. Skólanum lauk með vorpróf-
um og vomámskeiði fyrir böm og
var það haldið til kynningar á for-
skólanámi. Kennarar við skólann
vom 36 á þessu starfsári og þar
af vom 13 í fullu starfí.
Skólastjóri Tónlistarskóla Kópa-
vogs er Fjölnir Stefánsson.
(Fréttatilkynning.)
VERTU ÁHYGGJUIAUS
MEÐAN BÖRNIN BAÐA SIG!
Danfoss baöblöndunartækin eru hitastillt. Þú
ákveður hitastigið og skrúfar frá - Danfoss held-
ur hitanum stöðugum. Öryggishnappur kemur í
veg fyrir að börnin stilli á hærri hita en 38°C.
Danfoss fæst í helstu byggingavöruverslunum
um allt land.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2, SÍMI 624260
LAGER-SÉRRANTANIR-WÓNUSTA
„Ríkið, það er ég
Nokkur orð í tilefiii greinar menntamálaráðherra
eftirRagnar
Júlíusson
Menntamálaráðherra, Svavar
Gestsson, geysist fram á ritvöllinn í
Morgunblaðinu hinn 23. þ.m. og er
mikið niðri fyrir. Tilefnið er að sögn
grein mín um skólamál í sama blaði
hinn 17. þ.m.
Við lestur greinar menntamála-
ráðherra hvarflaði hugurinn ósjálf-
rátt til frásagna af Sólkónginum í
Versölum, sem mælti hin fleygu orð:
„Ríkið, það er ég“ — og taldi sig
hafinn yfír alla gagnrýni.
Í upphafí greinar sinnar sakar
ráðherra mig um árásir á mennta-
málaráðuneytið og fræðslustjórann í
Reykjavík og nefnir máli sínu til
stuðnings stofnun skólamálaráðs í
Reykjavík og svonefnt Öldusels-
skólamál. Þama er undarlegur mál-
atilbúnaður á ferð en því miður ekki
nýr af hálfu Svavars og hans kump-
ána.
í fyrrnefndri grein minnist ég ekki
einu orði ■ á fræðslustjórann í
Reykjavík né ræðst með nokkrum
hætti á menntamálaráðuneytið. Hins
vegar leyfí ég mér að gagnrýna ráð-
herrann sjálfan fyrir skerðingu á við-
miðunarstundaskrá grunnskólans og
miðstýringar- og forræðishugmyndir
hans sem endurspeglast í frumvarpi
til nýrra grunnskólalaga. En það er
auðvitað bannað eins og hjá Sólkóng-
inum forðum. Ráðherrann er hafinn
yfír gagnrýni.
Auðvitað veit ráðherrann upp á
sig skömmina varðandi skerðingu
viðmiðunarstundaskrárinnar og
grípur því til örþrifaráða til að drepa
málinu á dreif. En hann hittir sjálfan
sig fyrir.
Með lögum nr. 8/1986 um sveitar-
stjómarmál er sveitarstjómum heim-
ilað að stofna til hverrar þeirrar
nefndar eða ráðs um einstök sveitar-
stjórnarmál sem þær sjálfar kjósa.
Stofnun og starfsemi skólamálaráðs
Reykjavíkur er því ekki háð sam-
Ragnar Júlíusson
„ Auðvitað veit ráð-
herrann upp á sig
skömmina varðandi
skerðing-u viðmiðunar-
stundaskrárinnar og
grípur því til örþrifa-
ráða til að drepa málinu
á dreif. En hann hittir
sjálfan sig fyrir.“
þykki Svavars Gestssonar — og að
halda því fram að skólamálaráð hafí
enga lagalega stöðu er undarleg
lagaskýring. En vitanlega vill Svavar
og skoðunarbræður hans og systur
ekki una því að sveitarfélögin hafí
nokkurt sjálfstjórnarvald heldur skal
málum þeirra miðstýrt af ríkisvald-
inu, eins og berlega kemur fram í
fmmvarpi til nýrra grunnskólalaga.
Það er skoðun mín að sveitarstjórn-
imar eigi að hafa heimild til þess
að skipta sveitarfélögunum upp í
skólahverfi kjósi þau það — en það
á ekki að skylda þær til þess með
lagaboði eins og menntamálaráð-
herra vill. Það voru einmitt slíkar
miðstýringar- og forræðistilhneig-
ingar sem ég var að gagnrýna í grein
minni þótt ráðherra láti sér sæma
að snúa út úr því á sinn sérkennilega
hátt.
Þá nefnir ráðherra hið svonefnda
Ölduselsskólamál og er þá fyrst kom-
inn út á verulega hálan is. Öldu-
selsskólamálið er nefnilega dæmigert
fyrir þær forræðishugmyndir sem
' hrjá Svavar Gestsson. I því máli var
ráðherravaldi beitt gegn vilja meiri-
hluta sveitarstjórnar sem sýnir svo
ekki verður um villst að gagnrýni
mín á meintar miðstýringar- og for-
ræðistilhneigingar ráðherrans á við
full rök að styðjast.
Ráðherrann spyr í grein sinni hver
sé stefna mín í skólamálum. Eg hélt
nú sannast sagna að hann þyrfti
ekki að spyija að því. Ég fylgi Sjálf-
stæðisflokknum að málum og skóla-
málastefna þess flokks er skýr. Hún
grundvallast á raunverulegum vald-
dreifíngarhugmyndum og er því and-
stæða þess miðstýringarvalds sem
ráherrann er fulltrúi fyrir, þess mið-
stýringarvalds sem Reykvíkingar
munu hafna í borgarstjórnarkosning-
unum í dag.
Höfundur er formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkur og
skipar 21. sæti & D-iista
Sjálfstæðisflokks við
borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík.
Ragnar Júlíusson óskaði birtingar
á meðfylgjandi grein til þess að koma
á framfæri athugasemdum við grein
eftir Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, sem birtist hér í blaðinu
sl. miðvikudag.
Þar sem þetta tölublað Morgun-
blaðsins kemur út á kjördag veitti
hann samþykki sitt til þess, að
menntamálaráðherra kæmi að svari
í sama blaði. Biitist það svar hér
einnig.
Ritstj.
Skólastjóri á hálum ís
eftir Svavar Gestsson
Skelfing er að vita til þess að
formaður fræðsluráðs í einu
fræðsluumdæmi landsins og þvi
fjölmennasta skuli ekki hafa neina
skólastefnu aðra en þá sem flokkur-
inn hefur. Svona hugmýndafræði
var lögð niður erlendis fyrir löngu.
Hann telur að Ölduselsskólamálið
sé slæmt mál til vitnis um vinnu-
brögð undirritaðs. Þá voru foreldrar
og íbúar hverfís og starfsmenn
skólans látnir ráða úrslitum. Það
er hættulegt að mati Ragnars. Það
er ekki að undra þegar menn hafa
meirihlutafrekjuna að grundvallar-
hugmyndafræði. Ég er hins vegar
þeirrar skoðunar að það hafí verið
rétt þegar ég setti Reyni Daníel
fyrir ári og skipaði hann svo fyrir
nokkrum dögum sem skólastjóra
Ölduselsskóla.
Hins vegar skil ég reiði Ragnars
Júlíussonar og sárindi. Hann hefur
reynt allt hvað hann getur til þess
að rægja menntamálaráðuneytið í
minni tíð. Það verður stöðugt erfið-
ara eftir því sem stefna okkar um
eflingu grunnskólans er fram-
kvæmd markvissari skrefum; nú
síðast með því að lengja skóladag
yngstu barnanna strax í haust.
Höfiindurer
menntamálaráðherra.
Svavar Gestsson
ÞÚ KEMST
miim á
H
HEKLAHF
Laugavegi 170 -174 Simi 695500