Morgunblaðið - 26.05.1990, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
23
Ætlar ríkissljórnin að afgreiða
Herjólf á fölskum forsendum?
Hráskinnsleikur gagnvart Vestmanneyingum, sýndarmennska og silagangur
eftir Arna Johnsen
Það er grundvallarskilyrði þegar
tekin er ákvörðun um smíði far-
þegaskips'af stærðargráðu Heijólfs
að fyrir liggi tankprófanir með
líkani af skipinu þar sem unnt er
að meta sjóhæfni skipsins og hraða-
möguleika. Ríkisstjómin hefur látið
sig hafa eindæma sýndarmennsku
og sleifarlag í afgreiðslu og ákvörð-
un um byggingu nýs Heijólfs sem
á að þjóna þeim kröfum sem gerðar
eru í dag til slíkra skipa á jafn erf-
iðri siglingaleið og er milli lands
og Eyja. Fyrrverandi stjórn Heijólfs
og bæjarstjóm Vestmannaeyja voru
búin að samþykkja tankprófaða
teikningu 'sem var niðurstaða af
vinnu bæði sérfræðinga og leik-
manna miðað við þær forsendur
sem lagðar vom fram og auðvitað
verður að gefa forsendur fýrir smíði
farþegaskips sem á að duga á einni
erfiðustu farþegasjóleið í heimi í
15-20 ár. Engar breyttar forsendur
hafa verið lagðar fram, en samt
skipa ráðherrar ríkisstjómarinnar
nefnd á nefnd ofan til þess að þvæla
málið og draga það á langinn. í tvö
ár hafa teikningar að 79 metra
löngu skipi verið tilbúnar og verðtil-
boð, þannig að ef vel hefði verið
að verki staðið án pólitísks skolla-
leiks væri nýr Heijólfur í höfn um
þessar mundir. Samgönguráðherra
og fjármálaráðherra tóku hins veg-
ar þá geðþóttaákvörðun að þeir og
þeirra fyigilið í ríkisstjóminni hefði
meira vit á því eh Vestmanneyingar
sjálfir og fæmstu sérfræðingar,
hvemig nýr Heijólfur ætti að vera.
Það kemur svo sem ekki á óvart
úr þeim herbúðum þar sem menn
vita einir allt satt og rétt og skipt-
ir þá engu hvort rök liggja að baki.
Minna skip án nýrra forsendna
Nú er ríkisstjómin komin í tíma-
þröng í málinu vegna komandi
sveitarstjómakosninga og loforða
um að tilkynna eitthvað raunhæft
og af viti í málinu og hætta að tefja
framgang ákvörðunar Alþingis um
smíði nýs Heijólfs. Ráðherrar ríkis-
stjómarinnar gáfu út í vetur, sem
kunnugt er, þá dagskipan, að í
snatri skyldi gera nýja teikningu
af Heijólfi upp á 70,5 metra til
þess að hugsanlega yrði hægt að
smíða skipið á svo og svo löngum
tfma f Slippstöðinni á Akureyri.
Aðrar forsendur vora ekki fyrir
lengd skipsins, a.m.k. ekki þær
hvort skipið myndi duga til síns
vandasama hlutverks á Vestmanna-
eyjaleiðinni. Hvort að skip er ein-
hveijum metmm lengra eða styttra
í þessu tilviki er ekki höfuðatriðið,
heldur að það sé byggt miðað við
þær forsendur sem upp em gefnar,
hraða, öryggi, sjóhæfni og flutn-
ingsgetu. Þekkt danskt verkfræði-
fyrirtæki með mikla reynslu teikn-
aði 79 metra skipið, en Skipatækni
í Reykjavík hefur teiknað 70,5 m
skipið án þess þó að hafa nokkra
reynslu í teikningu og smíði far-
þegaskipa, nema Breiðafjarðarfetj-
unnar sem fór tugi prósenta fram
úr kostnaðaráætlun og hefur minni
ganghraða þegar til kemur en lofað
Árni Johnsen
var. Skipatækni hefur á að skipa
mjög góðu tækniliði, en reynsla
þeirra er á sviði annarra skipa en
farþegaskipa eins og gefur að skilja.
Minni útgáfan af Hetjólfsteikning-
unni sem er gerð á ábyrgð núver-
andi ríkisstjómar hefur fengið
mikla gagnrýni hjá Siglingamála-
stofnun og m.a. hefur orðið að
fækka farþegaklefum í 14 tveggja
manna klefa vegna þess að stofnun-
in vill að björgunarbátarnir séu inni
í skipinu í þessari útgáfu. í stærra
skipinu er gert ráð fyrir 640 farþeg-
um mest og þar af 122 í klefum
og hvflum í almenningi, en í minna
skipinu er farið niður í 84 alls í
klefum og hvflum í almenningi auk
þess að lagður er af 50 manna sal-
ur, og aðstaða skipvetja þrengd
vemlega. Auk þess gengur þessi
teikning mjög á alla aðstöðu sem
miðar við að vel fari um farþegana
eins og liggur fyrir í 79 metra teikn-
ingunni. Tilboð í það skip liggja
fyrir og allt bendir til þess að tiltölu-
lega lítill kostnaðarmunur verði á
smíði samkvæmt þessum tveimur
teikningum, en á það er rétt að
benda að ef ráðherrar ríkisstjómar
Steingríms Hermannssonar til-
kynna að smíða eigi nýtt skip sam-
kvæmt minni- útgáfunni áður en
tankprófanir á fullteiknuðu skipi
liggja fyrir, er það slík sýndar-
mennska og dónaskapur við þá sem
eiga að nota skipið að engu tali
tekur. Þó svo að hrá kostnaðaráætl-
un á smíði minni útgáfunnar kunni
að liggja fyrir á næstu dögum er
gjörsamlega út í hött að taka
ákvörðun um smíði áður en niður-
staða tankprófana liggur fyrir. Ef
ráðherrar hætta hins vegar að
draga lappimar og tefja framgang
málsins og tilkynna að farið skuli
nú þegar í smíði nýs Heijólfs sam-
kvæmt samþykktri teikningu réttra
aðila, þá er það vel og lofsvert, en
allt annað er lítilsvirðing af verstu
gráðu við Vestmanneyinga og aðra
landsmenn sem eiga skilið gott far-
þega- og flutningaskip milli lands
og Eyja. Hvort skipið kostar 10%
meira eða minna á ekki að skipta
sköpum þegar tekið er tillit til hlut-
verks þess og þess að því er ætlað
að flytja um 1,5 til 2 milljónir far-
þega milli lands og Eyja á 15-20
ámm. Þá er það enn einn útúrsnún-
ingurinn hjá fjármálaráðherra að
varpa fram þeirri hugmynd að
smíðiskostnaður Heijólfs eigi að
greiðast af vegafé. Núverandi ríkis-
stjóm er búin að skerða vegafé um
fjórðung, eða einn milljarð og það
er sama upphseð og kostar að smíða
nýjan Heijólf, það er að segja al-
vömskip, sem er rúmgott, hrað-
skreytt og gott sjóskip með öryggi
í fyrirrúmi. Að ætla sér að egna
landsmenn gegn Vestmanneyingum
með því að skerða enn frekar fjár-
magn til brýnna vegaframkvæmda
um allt land er hlutskipti sem Vest-
manneyingar hafa engan áhuga á
að fá yfir sig.
Mikilvægt að velja
besta kostinn
Vonandi á nýsmíði Heijólfs ekki
eftir að tefjast mjög lengi enn vegna
ríkisstjómardellunnar en það er
gmndvallarkrafa Vestmanneyinga
að ákvarðanir sem kunna að verða
teknar byggist á rökum og reynslu
eðlilegra prófana á teikningum, en
ekki loftkastalahugmyndum um
hugsanlegan hraða, sjóhæfni og
öryggi, eða hvað væri það annað
en falskt kosningaloforð að segja
nú að það eigi að smíða skip sam-
kvæmt reddingateikningu ríkis-
stjómarinnar, einfaldlega vegna
þess að það tekur marga mánuði
að ganga úr skugga um hvort það
sé boðlegt. Úr því sem komið er
hljóta menn að bíða niðurstöðu
tankprófana samkvæmt teikningu
minna skipsins, en vinna við teikn-
inguna hefur kostað liðlega 10
millj. kr. eða eins og öll vinnan við
teikningu stærra skipsins. Þegar
tankprófanir liggja fyrir á báðum
skipunum og smíðaverð er tíma-
bært að taka ákvörðun ef menn á
annað borð telja að nýju teikning-
amar skili því sem til er ætlast.
Höfundur er hlaðamaður.
155 milljóna
króna kröfiir
í Sultu og efiia-
gerð bakara
UM 155 milljó'ba króna kröfum
hefur verið lýst í þrotabú Sultu-
og efiiagerðar bakara, sem tekin
var til gjaldþrotaskipta í janúar.
Veðkröfiir eru 117 milljónir
króna, þar af á Iðnlánasjóður um
75 miiyónir króna en aðrir helstu
veðkröfuhafar eru Iðnþróunar-
sjóður og Búnaðarbanki.
Almennar kröfur era um 37 millj-
ónir króna, þar af rúmar 13 milljón-
ir í erlendri mynt. Forgangaskröfur
em um 800 þúsund krónur en fyrir-
tækið átti engar launaskuldir
ógreiddar við gjaldþrotið.
Sultu- og efnagerð bakara var
samvinnufélag með takmarkaðri
ábyrgð, sem framleiddi sultur og
grauta, og átti fasteign á Lyng-
hálsi 7. Bmnabótamat fasteignar-
innar er tæpar 132 milljónir króna
en bókfært verð framleiðslutækja
og annars lausafjár var um 40 millj-
ónir króna. Að sögn Magnúsar H.
Magnússonar hdl., bústjóra þrota-
búsins, er talið að framkvæmdir við
hús fyrirtækisins ásamt breyttum
aðstæðum á markaði fyrir atvinnu-
húsnæði hafi ráðið mestu um að
fyrirtækið er nú gjaldþrota. Fast-
eignin er óseld en þreifingar era í
gangi.
8-10 stafsmenn fyrirtækisins
starfa enn að framleiðslunni, sem
leigð hafði verið fyrirtæki í eigu
fyrrum starfsmanns, fyrir gjald-
þrotaskiptin.
FRUMSYNING!
''MStiÍSM
■ ÚTVARPAÐ verður á stutt-
bylgju frá kl. 22.00 laugardaginn
26. maí til kl. 5.00 sunnudaginn
27. maí. Til Norðurlanda, Bretlands
og meginlands Evrópu á 3295 kHz,
11418 kHz, 13855 kHz og 15770
kHz. Til Bandaríkjanna og Kanada
á 13855 kHz og 17440 kHz.
■
Einar J. Skúlason hf.
frumsýnir „M“ línuna frá VICTOR,
tölvur framtíðarinnar,
laugardaginn 26. maí kl. 10-18.
Verið velkomin.
• VICTOR-..M" UNAN •
MEinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, simi 68-69-33 mut “fyL
• Tólvur framtíóarinnar «
ÍGNINASWfflM
j...