Morgunblaðið - 26.05.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
ÁLIT TALSMANNA MINNIHLUTAFLOKKANNA í REYKJAVIK
Morgunblaðið snéri sér í gær
til manna í efstu sætum á listum
minnihlutaflokkanna í Reykjavík
og innti þá álits á stöðunni á loka-
spretti kosningabaráttunnar:
Kjartan Jónsson
Grænu framboði:
Bjartsýn
á að koma
inn manni
KJARTAN
Jónsson efsti
maður á lista
Græns fram-
boðs í
Reykjavík, seg-
ir að lokaprett-
ur kosninga-
baráttunnar
fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar leggist
mjög vel í aðstandendur fram-
boðsins.
„Lengi framan af vissu fæstir
af því að við værum til, en nú
vita nær allir af okkur. Og við
höfum fengið mjög góðar undir-
tektir eftir framboðsþátt í Stöð 2
í vikunni, þar sem okkar maður
kom mjög vel fyrir. Við erum því
orðin mjög bjartsýn á að koma
að manni," sagði Kjartan.
Hann sagði þetta aðallega vera
málstað framboðsins að þakka en
einnig hefði það komist mjög
skýrt til skila að Grænt framboð
væri öðruvisi afl í pólitík en fólk
ætti að venjast.
Sigurjón Pétursson
Alþýðubandalagi;
Hætta á að
Guðrún nái
ekki kosningu
SIGURJÓN
Pétursson
borgarfulltrúi
og efsti maður
á lista Alþýðu-
bandalagsins í
Reykjavík, seg-
ir að Alþýðu-
bandalagið eigi
verulega undir
högg að sækja í borgarstjórnar-
kosningunum.
„Ég tel vera hættu á því að
Guðrún Ágústsdóttir nái ekki
kosningu í borgarstjórn. Við þurf-
um því á hveiju einasta atkvæði
að halda til að tryggja hennar
kjör. Ég tel að hún sé að keppa
við annars vegar krata og hins
vegar sjálfstæðismann," sagði
Sigutjón. Aðspurður sagðist hann
eiga við Bjama P. Magnússon
þegar hann talaði um krata.
Siguijón sagði að kosningabar-
áttan hefði farið allt of seint í
gang, og í raun ekki verið í gangi
nema rúma viku. „Það er of stutt-
ur tími fyrir okkur sem ráðum
ekki yfír öflugu málgagni. Það
hefði vantað viku í viðbót til að
rétta hlutinn enn betur, en ég tel
að við höfum unnið verulega á á
síðustu dögum,“ sagði Siguijón.
Þegar hann var spurður hvers
vegna hann teldi kosningabarátt-
una seina af stað, sagði hann að
þar réðu helst stóru fjölmiðlamir
og ef til vill Morgunblaðið og
Sjálfstæðisflokkurinn almestu.
Elín G. Ólafsdóttir
Kvennalista:
Finnum hlý-
hug í okkar
garð
„VIÐ finnum
hlýhug í okkar
garð þar sem
við komum og
síðustu daga
hef ég verið að
verða bjart-
sýnni á útkomu
okkar í kosn-
ingunum," seg-
ir Elín G. Ólafsdóttir, sem skip-
ar efsta sæti Kvennalistans i
Reykjavík.
„Framan af var kosningabar-
áttan frekar daufleg en nú síðustu
daga hefur aukið líf færst í hana,“
segir Elín. „Það er ljóst að sú
umræða, sem farið hefur fram í
fjölmiðlum að undanfömu hefur
aukið svolítið áhuga fólks,.en það
er áhyggjuefni, ef fólk sýnir ekki
áhuga á því að taka þátt í mótun
nánasta umhverfis síns. Á hitt ber
að líta, að fólk er kannski orðið
ofmettað af umfjöllun um stjóm-
mál í fjölmiðlum. Sjónvarpsút-
sendingar frá Alþingi hafa orðið
tíðari á undanfömum ámm og
sífellt er verið að taka viðtöl við
sömu mennina, oft án þess að
þeir hafi .nokkuð markvert til
málanna að leggja."
Elín bætir við, að það kunni
að þurfa að taka til athugunar,
hvort setja beri reglur um skoð-
anakannanir. „Skoðanakannanir
geta verið mjög skoðanamyndandi
og haft áhrif á fylgi bæði hinna
stærstu flokka og smæstu. Víða
erlendis er til dæmis bannað að
birta niðurstöður skoðanakann-
anna tveimur vikum fyrir kosn-
ingar.“
Elín segir að konur í Kvenna-
listanum hafi haft mjög gaman
af að vinna í þessari kosningabar-
áttu. „Við höfum fundið fyrir hlý-
hug frá fólki þar sem við komum
og að málflutningur okkar nýtur
stuðnings og það er auðvitað mjög
uppörvandi. Síðustu daga hef ég
orðið bjartsýnni á útkomu okkar
í kosningunum en tel að umræður
eins og hafa farið fram síðustu
daga hefðu þurft að standa leng-
ur. Við hefðum kannski þurft viku
í viðbót,“ segir Elín G. Ólafsdóttir.
Áshildur Jóns-
dóttir Flokki
mannsins:
Fólk er sam-
mála okkur
og vill breyt-
ingar
ÁSHILDUR
Jonsdóttir, sem
skipar efsta
sæti á fram-
boðslista
Flokks manns-
ins við borgar-
stjórriarkosn-
ingarnar segist
hafa fundið í
kosningabaráttunni að fólk sé
sammála málflutningi fram-
bjóðenda fiokksins og vilji
breytingar á stjórn borgarinn-
ar.
„í þessari kosningabaráttu höf-
um við farið víða og fengið góðar
undirtektir," segir Áshildur.
„Okkur hefur þótt þetta skemmti-
legt, enda finnum við að sjónar-
mið okkar eiga virkilega hljóm-
grunn hjá fólki. Á því hefur orðið
veruleg breyting frá því fyrir fjór-
um árum. Fólk er sammála mál-
flutningi okkar og vill breytingar,
en hins vegar er dapurlegt að
heyra hve margir eru vondaufír
um að hægt sé að koma þeim í
framkvæmd.“
Áshildur segir, að frambjóðend-
ur Flokks mannsins hafi farið á
vinnustaði og dreift bæklingum á
götum. „Við höfum verið þar sem
fólkið er, enda erum við sjálf okk-
ar miðill í þessari baráttu og fólk
hefur tekið okkur vel. Það er hins
vegar erfitt að segja til um úrslit
kosninganna. Fyrir um það bil
viku gáfu skoðanakannanir til
kynna að helmingur kjósenda
væri óákveðinn og það sýnir auð-
vitað óánægja með stjórn borgar-
innar. Ég er ekki trúuð á að meiri-
hluti sjálfstæðismanna falli, en
það skiptir miklu máli hveijir eiga
fulltrúa í borgarstjóm auk Sjálf-
stæðisflokksins og ég vona að við
verðum í þeim hópi,“ segir Áshild-
ur Jónsdóttir.
Sigrún Magnús-
dóttir Frámsókn-
arflokki:
Vona að mál-
flutningur
okkar skili
árangri
„ÉG geri mér
grein fyrir að
það er á brat-
tann að sækja
fyrir okkur en
vona að mál-
flutingur okkar
skili árangri,"
segir Sigrún
Magnúsdóttir,
sem skipar efsta sæti framboðs-
lista Framsóknarflokksins í
Reykjavík. Sigrún segist sjald-
an hafa fundið jafn góðan anda
í kosningabaráttu flokksins og
nú og auðvelt hafi verið að fá
fólk þar til starfa.
„Kosningabaráttan fór óvenju
seint af stað nú í vor. Ég hef
margoft áður tekið þátt í kosn-
ingabaráttu framsóknarmanna
hér í borginni og ég minnist þess
ekki að hún hafi áður hafist jafn
seint. I raun byijaði enginn flokk-
ur baráttu sína fyrr en þingi lauk
5. maí. Hins vegar hefur þessi
kosningabarátta verið mjög
skemmtileg að undanfömu. Hún
hefur sjaldan verið jafn lífleg hjá
okkur framsóknarmönnum og nú
og óvenju góður andi hefur verið
ríkjandi."
Sigrún segist bíða jafn spennt
eftir úrslitum kosninganna og
aðrir borgarbúar. Útkoma fram-
sóknarmanna í skoðanakönnun-
um hafi ekki verið í samræmi við
það sem hún hafi fundið í barát-
tunni. „Ég vona að málflutningur
okkar skili árangri, en geri mér
hins vegar grein fyrir því að það
er á brattann að sækja í þessum
kosningum," segir Sigrún Magn-
úsdóttir.
Kristín Á. Ólafs-
dóttir Nýjum vett-
vangi:
Höfiim
ástæðu til að
vera full
bjartsýni
„Ef marka
má þá strauma
og þær viðtök-
ur sem við höf-
um fundið fyrir
síðustu dagana
höfum við
ástæðu til að
vera full bjart-
sýni,“ _ sagði
Kristín Á. Olafsdóttir, sem er í
2. sæti á lista Nýs vettvangs
aðspurð um hvernig kosning-
arnar leggist í hana.
„Að vísu eigum við ekkert
tryggt bakland þar sem þetta er
ný hreyfing. Það er ekki hægt að
spá í hlutina út frá gengi í síðustu
kosningum, en undirtektirnar
gefa mér ástæðu til þess að
hlakka til að geta starfað með
Guðrúnu Jónsdóttur, arkitekt, í
borgarstjórn næstu fjögur árin og
ég ætla mér að leyfa mér að
gæla við að hrafninn okkar fljúgi
líka inn,“ sagði Kristín ennfremur.
Hún sagði að það væri ljóst að
Nýr vettvangur væri helsti val-
kostur fólks við Sjálfstæðisflokk-
inn. „Ég held að það hafi sýnt sig
rækilega í skoðanakönnunum
undanfarið og maður hittir mjög
margt fólk sem er okkur sammála
um að það sé mjög mikil nauðsyn
að búa til sterkan valkost við
Sjálfstæðisflokkinn. Nýr vett-
vangur býður sig fram til að vera
sá valkostur," sagði Kristín.
Þegar þú kýst. . .
15 heilræði til ungra kjósenda
0 Þú mátt kjósa, ef þú ert 18 ára 26. maí 1990, á kjördag.
0 Þú kýst á þeim stað, sem þú áttir lögheimili 27. apríl 1990, en hafir þú flust innan
Reykjavíkur eða þíns sveitarfélags ertu skráðurþar sem þú áttir heima 1. desember 1989.
0 Þú kýst í skólanum í þínu hverfi.
0 Þú kýst í þeirri skólastofu, þar sem kjördeild þinnar götu er.
0 Þú segir fyrst heimilisfangþitt og síðan til nafns, þegarþú kemur inn í kjördeildina.
0 Þú færð kjörseðilinn afhentan af kjörstjórn.
0 Þú greiðir atkvæði þitt í kjörklefa í stofunni.
0 Þú setur x framan við hókstaf þess lista, sem þú ætla að styðja.
0 Þú mátt breyta röð frambjóðenda á þínum lista með því að setja tölustafina 1, 2,
3... fyrir framan nöfn þeirra.
0 Þú skalt ekki strika yfir nafn á einum lista og setja x á annan, með því ógildir þú
atkvæði þitt.
0 Þú brýtur seðil þinn einu sinni saman og setur hann í innsiglaðan kjörkassann.
0 Þú færð allar frekari upplýsingar hjá kosningaskrifstofum stjórnmálaflokkanna.
0 Þú skalt neyta atkvæðisréttar þíns, því þannig hefur þú áhrif á stjórn málefna byggð-
ar þinnar.
0 Þú skalt kjósa þann stjórnmálaflokk, sem tryggir örugga framtíð þína og þinna.
Guðrún Helgadóttir
styður Nýjan vettvang
GUÐRÚN Helgadóttir þingmaður Alþýðubandalagsins í Reykjavík
og forseti sameinaðs Alþingis lýsti því yfir í Þjóðviljanum á fimmtu-
dag að hún muni kjósa H-lista Nýs vettvangs en ekki G-lista Alþýðu-
bandalagsins í borgarstjórnarkosningunum í dag.
Guðrún Helgadóttir segir í Þjóð-
viljagreininni að hún hafi tekið
þessa ákvörðun að vandlega yfir-
lögðu ráði vegna þess að þeir félag-
ar hennar sem fylkja liði um Nýjan
vettvang standi sér mun nær í við-
horfum til nútímastjórnmála en
innsti kjarni Alþýðubandalagsins í
Reykjavík.
Guðrún segist hafa sannfærst
endanlega um ágæti þessarar
ákvörðunar eftir að hafa lesið grein
eftir Siguijón Pétursson borgarfull-
trúa Alþýðubandalagsins, þar sem
hann hafi grímulaust boðað klofn-
ing Alþýðubandalagsins sem stjóm-
málaafls; samstarf vinstriflokkanna
í Reykjavík kalli hann „óvinafagn-
að“ og formann Alþýðubandalags-
ins „íhaldsafl".
Guðrún segist ekki hafa í hyggju
að kljúfa Alþýðubandalagið heldur
vilji hún vinna með öllum sem vilja
breyta áherslum í meðferð fjármuna
Reykvíkinga. Og hún treysti félög-
um sínum á H-listanum betur til
þess en félögum sínum á G-listan-
um.
Siguijón Pétursson oddviti Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík sagði
við Morgunblaðsins sagði það
greinilegt að menn væru að gera
það upp við sig hvort þeir styddu
Alþýðubandalagið eða annan lista
sem væri bræðingur úr mörgum
flokkum. „í sjálfu sér er ekki annað
hægt en fagna því; þá veit maður
hvar maður héfur þá,“ sagði Sigur-
jón.
Þegar hann var spurður hvort
yfirlýsing Guðrúnar undirstrikaði
ekki klofning flokksins, sagði hann
að framtíðarsýn Guðrúnar væri
fylking með Alþýðuflokki og Borg-
araflokki. „Framtíðarsýn okkar
hinna er Alþýðubandlagið og þær
hugsjónír sem það hefur staðið fyr-
ir og stendur enn fyrir,“ sagði Sig-
uijón Pétursson.