Morgunblaðið - 26.05.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
31
Njósnir í NATO;
Reuter
Afríkudrottningin dregin í land
Báturinn sem Humphrey Bogard sigldi í myndinni „Afríkudrottning-
in“ er hér dreginn í land eftir að leki hafði komið að honum. Bátur-
inn var einn af 50 smábátum, sem sigldu um Ermarsund á fimmtudag
í tilefni þess að hálf öld var þá liðin frá því Bretum tókst að bjarga
meginhluta liðs síns í franska hafnarbænum Dunkirk undan tangar-
sókn Þjóðveija.
Verkföll í Póllandi:
Kommúnístar ábyrgir
fyrir ólgunni í landinu
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni
fréttaritara Morgunblaösins.
SENDIHERRA Lúxemborgar í
höfuðstöðvum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), Guy de
Muyser, hefúr neitað að hafa
afhent sovéskum ' embættis-
mönnum trúnaðarskjöl, e_n þær
sakir voru bornar á hann í
síðasta mánuði. Muyser segist
hafa látið Sovétmönnum í té
upplýsingar sem ætlaðar voru
til dreifingar á meðal almenn-
ings.
Muyser sagði af sér sem sendi-
herra Lúxemborgar hjá NATO
þegar öryggisþjónusta bandalags-
ins tók að rannsaka hugsanlegan
þátt hans í njósnum fyrir Sovétrík-
in. Muyer var um árabil sendiherra
í Moskvu. í yfirheyrslum á fundi
utanríkisnefndar þingsins í Lúx-
emborg neitaði hann að hafa farið
ferðir til Moskvu án þess að láta
vita af þeim í höfuðstöðvum NATO
í Brussel.
Muyser segist hafa farið til Sov-
étríkjanna, árið 1986, og þá hafi
hann verið til þess hvattur af Carr-
ington lávarði, þáverandi fram-
kvæmdastjóra NATO. Carrington
hafi haft mikinn hug á að fá frek-
ari upplýsingar um umbætur
Míkhaíls Gorbatsjovs á sovésku
þjóðfélagi. I þessari ferð segist
Muyser hafa búið í sendiráði Lúx-
emborgar í Moskvu og hann hafi
tilkynnt utanríkisráðherra Lúxem-
borgar um ferðina strax að henni
lokinni. Muyser viðurkennir að
hafa afhent Sovétmönnum gögn
sem varða NATO en segir að þau
hafi engan veginn verið trúnaðar-
mál, þetta hafi frekar verið upplýs-
ingar ætlaðar almenningi.
rétti tíminn til að reyna sig!
verkalýðsins í pólitískum tilgangi.
Hann sakaði Alfred Midowicz,
formann stærsta verkalýðsfélags
Póllands, OPZZ, sem á árum áður
laut stjórn kommúnista, um að vilja
með þessum hætti koma í veg fyr-
ir að umbótastefna samsteypu-
stjórnar Samstöðu skilaði árangri.
Walesa hefur frestað fyrirhugaðri
heimsókn sinni til Norðurlanda og
talsmaður ríkisstjórnarinnar sagði
hugsanlegt að hætt yrði við heim-
sókn Tadeusz Mazowiecki forsæt-
isráðherra til Frakklands sem hefj-
ast átti á mánudag.
Sendiherrann
neitar sakar-
giftunum
- segir Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu
Varsjá. Reuter.
VERKFALL járnbrautarstarfsmanna í Póllandi er farið að hafa
víðtæk áhrif í þjóðfélaginu eftir að hafa staðið í sex daga. í gær
lagðist kolaútflutningur að mestu af er verkfallsmenn lokuðu járn-
brautarleiðum til hafiiarborganna Gdynia og Gdansk. Lech Wa-
lesa, leiðtogi Samstöðu, sagði í gær að „borgarastríð" gæti brotist
út í landinu linnti verkföllunum ekki og lýsti yfir því að félagar í
kommúnistaflokknum gamla væru ábyrgir fyrir ólgunni í landinu.
Á fimmtudag runnu viðræður
stjómvalda og verkfallsmanna út
í sandinn vegna deilna um fundar-
Þetta eru fyrstu alvarlegu
vinnudeilumar í landinu síðan lýð-
ræðislega kjörin stjómvöld tóku
við í Póllandi fyrir níu mánuðum.
Verkfallsmenn krefjast 20% launa-
hækkana þannig að laun þeirra
verði tíu prósentum hærri en með-
alllaun sem nú em 932.000 zlotí
á mánuði (tæpar 6.000 ísl. kr.).
Þeir era ósáttir við efnahagsað-
gerðir Samstöðustjórnarinnar sem
leitt hafa til þess að verðlag hefur
hækkað gífurlega. Talsmaður
verkfallsmanna sagði að allt efna-
hagslíf landsins myndi stöðvast ef
stjórnvöld féllust ekki á viðræður
um kröfur þeirra. Á miðvikudag
sendi Walesa verkfallsmönnum
orðsendingu og sagði að kröfur
þeirra væru réttmætar en aðferð-
irnar rangar. í lýðræðisríkjum
væru verkföll neyðarúrræði og
samningar hefðu ekki verið reynd-
ir til þrautar.
staðinn. Walesa sagði síðan á fundi
með blaðamönnum í gær að fyrrum
félagar ' í kommúnistaflokknum
gamla væru að nýta sér bág kjör