Morgunblaðið - 26.05.1990, Page 34
$4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
Nýtt afl á Seltjarnarnesi gagnrýnir hreinsun strandlengjunnar:
Hollustuvemd ríkisins mjög
sátt við framkvæmdirnar
- segir Ólafiir Pétursson hjá Hollustuvernd
„VIÐ TELJUM að þessar framkvæmdir sem eru í gangi uppfylli fullkom-
lega það sem að er stefht með mengunarvarnareglugerð og höfum
gefið okkar álit á þessum framkvæmdum og erum mjög sáttir við
þær,“ sagði Ólafur Pétursson hjá Hollustuvernd ríkisins um útrás hol-
ræsa norðan við Seltjarnarnes. Sú útrás er hluti af heildarverkefni um
hreinsun strandlengjunnar í Reykjavík með þátttöku nágrannasveitarfé-
laga. í dreifibréfi frá framboði Nýs afls á Seltjarnarnesi, sem dreift var
í gær, er því haldið fram, að mikilli mengun sé með þessu veitt frá
70 þúsund manna byggð í sjóinn við strönd Seltirninga. Sigurður Skarp-
héðinsson aðstoðargatnamálastjóri í Reykjavík segir þennan málflutn-
ing vera staðleysu eina.
I dreifibréfi Nýs afls er gagnrýnt á þessum stað og gefið í skyn að
harðlega að holræsið sé leitt í sjóinn heilsufari Seltirninga sé með því
Morgunblaðið/Emilía
„fórnað fyrir skólpvanda Reyk-
víkinga.“ Þar segir einnig: „Við
þekkjum særokið á Seltjamarnesi -
Sjálfstæðismenn ætla að blanda af-
falli Stór-Reykjavíkursvæðisins sam-
an við það.“
Áætlað er að útrás holræsisins
fari þijá og hálfan kílómetra út frá
hreinsistöð við Eiðsgranda.
Ólafur Pétursson segir að ekki sé
endanlega ákveðið hve langt þurfi
að fara út með lögnina og að hægt
sé að halda áfram með hana iengra
ef í ljós kemur að þess þurfi. Hann
segir Hollustuvemd mjög sátta við
þá áætlun kem nú er unnið eftir. „Þá
er um að ræða að mengun fari ekki
yfir þau mengunarmörk sem í reglu-
gerðinni era og við trúum því að það
muni ekki gerast.
Það er auðvitað talsvert mikil
mengun beint yfir opi lagnarinnar,
en hún þynnist síðan út. Væntanlega
hafa menn áhyggjur af hver hún
verður þegar hún er komin upp að
landi, að hún geti orðið yfir einhveij-
um mörkum. Reynist þetta verða
þannig, þá verður bara að taka á
því og fara lengra út með lögnina,“
segir hann.
Ólafur segir að í mengunarvama-
reglugerð séu ákvæði um tvenns
konar svæði. Annars vegar svæði þar
Kort frá gatnamálastjóranum í Reykjavík yfir dreifingu gerlameng-
unar frá holræsum. Sigurður Skarphéðinsson segir þetta kort sýna
meiri mengun en verði að jafnaði við ströndina, þar sem það er
miðað við aðfallsstraum.
FRAMTÍÐARSÝN:
Reiknuð gerlamengun
við aðfallsstraum I logni
sem mældur gerlafjöldi í 100 millilítr-
um skuli vera minni en 1.000. Hins
vegar eru svæði, þar sem gerlar eigi
að vera færri en 100 í 100 millilítr-
um. Utan innstu svæðanna tveggja,
eins og þau era sýnd á kortinu, sé
því gerlafjöldinn undir þeim mörkum
sem sett era í mengunarvarnareglu-
gerð. Á svæðum sem mælast með
gerlamengun undir 100 gerlum í
millilítra megi stunda matvælaiðnað
og skipuleggja útivistarsvæði. „Það
eru allt að því sundstaðlar,“ segir
Ólafur, „þannig að þegar gerlafjöld-
inn er kominn undir tíu, þá er um-
hverfið orðið algjörlega Hreint."
Sigurður Skarphéðinsson segir
þessa gagnrýni vera algjöra stað-
leysu og miðaða við verstu hugsanleg
skilyrði. “Þama verður lögn sem
verður þrír og hálfur kílómetri á
lengd og við höfum fengið staðfest
hjá Hollustuvemd ríkisins að þetta
uppfylli þær kröfur sem nýsett meng-
unarvarnarreglugerð setur, en hún
er talin vera mjög ströng. Eg vil
flokka það undir móðursýki að láta
svona, égtel að þetta sé staðleysa."
Sigurður staðfestir að ekkert sé
því til fyrirstöðu að leggja lögnina
lengra út ef þörf krefji. Hins vegar
kveðst hann vera ákaflega vantrúað-
ur á að til slíks komi. Vel verður þó
fylgst með gerlafjölda þegar safn-
lögnin er komin í gagnið og við
brugðist í samræmi við niðurstöður
mælinganna. Sigurður segir að kort
það, sem er í dreifibréfinu, gefi ekki
rétta mynd af dreifmgu gerlameng-
unarinnar, þar sem það sé miðað við
verstu aðstæður, það er sterka norð-
anátt og aðfallsstraum.
Ferðavörur verða kynntar, sýndar og seldar í Ferðamarkaðnum í
Skeifúnni um helgina.
Ferðamarkaður
ópinn um helgina
STÓR ferðavörusýning verður haldin hjá Ferðamarkaðnum, Skeifunm
8c, helgina 26. og 27. maí. Um leið verður boðið til veislu, þar sem
grillað markaðslamb og RC-cola verða á boðstólum.
Til sýnis verður m.a. fullbúið glæsi-
legt sumarhús frá Þýskalandi, hjól-
hýsi, fortjöld, tjöld, viðlegubúnaður,
Paradiso-fellihýsin, sem eru uppsett
á aðeins hálfri mínútu og sérhönnuð
fyrir íslenskar aðstæður, garðhús-
gögn, gasvörar og fjölbreytt úrval af
vörum í sportið og ferðalagið.
Tekin era í umboðssölu fjórhjól,
tjaldvagnar, hjólhýsi, mótorhjól, kerr-
ur, bátar, snjósleðar og margt fleira.
Einnig er í boði ný þjónusta, að inn-
rétta ferðabíla.
(Fréttatilkynning)
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
25. maí.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meöal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 72,00 50,00 63,98 39,960 2.556.491
Þorskur (smár) 32,00 32,00 32,00 2,733 87.456
Ýsa 69,00 59,00 65,76 36,838 2.422.498
Karfi 30,00 20,00 28,30 11,345 321.090
Ufsi 26,00 15,00 23,66 4,177 98.842
Ufsi (smár) 15,00 15,00 15,00 0,293 4.395
Steinbítur 49,00 20,00 31,96 1,333 42.595
Langa -37,00 37,00 37,00 1,119 41.409
Lúða 285,00 105,00 207,46 • 0,331 68.668
Koli 25,00 13,00 13,62 1,691 23.031
Keila 8,00 8,00 8,00 0,115 920
Skata 5,00 5,00 5,00 0,026 130
Skötuselur 115,00 115,00 115,00 0,035 4.025
Blandað 46,00 46,00 46,00 0,010 460
Samtals 56,72 100,007 5.672.010
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 85,00 52,00 67,24 34,775 2.338.201
Þorskur (ósl.) 50,00 50,00 50,00 3,029 151.450
Ýsa 85,00 40,00 62,74 38,560 2.419.338
Karfi 38,00 20,00 31,98 18,003 575.738
Ufsi 30,00 30,00 30,00 6,327 189.819
Steinbítur 37,00 33,00 38,96 0,535 20.843
Langa 40,00 36,00 39,35 3,955 155.640
Lúða 210,00 120,00 158,63 1,172 185.910
Grálúða 56,00 55,00 55,66 18,437 1.026.135
Skarkoli 16(00 16,00 16,00 2,095 33.520
Keila 5,00 5,00 5,00 0,176 880
Rauðmagi 80,00 18,00 32,14 0,114 3.664
Skata 65,00 65,00 65,00 0,183 • 11.895
Skötuselur 300,00 300,00 300,00 0,280 84.000
Undirmál 30,00 22,00 26,86 3,339 89.680
Blandaö 15,00 15,00 15,00 0,041 615
Samtals 55,62 131,021 7.287.328
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 91,00 35,00 55,73 47,798 2.663.651
Ýsa 77,00 35,00 63,31 24,069 1.523*742
Karfi 33,00 17,00 23,84 0,234 5.578
Ufsi 29,00 10,00 28,54 1,841 52.535
Steinbítur 31,00 10,00 16,97 2,397 40.686
Langa 43,00 15,00 31,92 0,364 11.620
Lúða 245,00 205,00 236,21 0,091 21.495
Skarkoli 35,00 31,00 31,05 1,395 43.313
Keila 8,00 8,00 8,00 1,442 11.536
Undirmál 21,00 21,00 21,00 0,376 7.896
Blandað 5,00 5,00 5,00 0,251 1.255
Samtals 54,61 80,273 4.383.802
Morgunblaðið/PPJ
HL 1 l Éni
JSE| ’ i O V J *•*■■** ** r Z- 1 ■ 'M * 4 J TVmíí „KjÍij
Fjöldi manns skoðaði flugvélina í kvöldsólinni á Reykjavíkurflugvelli á fimmtudagskvöld.
Gömul sprengjuflugvél skoðuð
Mannmargt var á Reykjavíkur-
flugvelli að kvöldi uppstigningar-
dags, en Ijöldi manna dreif að að
skoða gamia herflugvél frá dögum
síðari heimsstyrjaldarinnar sem
þá var nýlent. Vélin sem var á
leiðinni frá Bandaríkjunum til
Hollands kom hingað frá Narss-
arssuaq á Grænlandi eftir þriggja
GENGISSKRÁNING
Nr. 97 25. maí 1990 Kr. Kr. TolF
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi
Dollari 59.99000 59,90000 60,95000
Sterlp. . 101,56000 101,83100 99.40900
Kan. dollan 50,65700 50,79200 52,35600
Dönsk kr. 9,39910 9,42420 9,52720
Norsk kr. 9.28780 9.31260 9,32670
Sænsk kr. 9,86190 9,88820 9,98530
Fi. mark 15,25880 15,29950 15.32750
Fr. franki 10,62430 10,65260 10,79910
Belg. franki 1.73750 1.74210 1,75520
Sv. franki 42,21670 42,32930 41,76660
Holl. gyllini 31,78700 31,87180 32,22650
V-þ. mark 35,74340 35,83880 36,24740
ít. líra 0,04871 0,04884 0,04946
Austurr. sch. 5,08240 5,09590 5,15060
Port. escudo 0.40590 0,40700 0,40930
Sp. peseti 0,57340 0,57500 0,57370
Jap. yen 0,40078 0,40184 0,38285
írskt pund 95,90900 96,16500 97,16300
SDR (Sérst.) 79.24440 79.45570 79.33130
ECU, evr.m. 73,53270 73,72890 74,12430
Tollgengi fyrir maí er sölugengi 30. apríl. Sjálfvirkur
símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
og hálfs tíma flug en þar lenti
vélin til að taka eldsneyti vegna
mótvinds sem hún hreppti á flug-
leiðinni frá Gæsaflóa í Labrador í
Kanada til Reykjavíkur.
Flugvél þessi var gömul sprengju-
vél af gerðinni North American B-25
„Mitchell", smíðuð árið 1944 og
framleidd af sömu verksmiðjum og
framleiddu P-51 „Mustang" og T-6
„Harvard". Alls voru smíðaðar um
11.000 flugvélar af þessari gerð og
voru þær fyrst og fremst notaðar sem
léttsprengjuvélar, eða „light bomber"
á ensku. North American B-25 var
skírð „Mitchell" í höfuðið á hershöfð-
ingjanum Billy Mitchell en hann var
frumherji á sviði hernaðarflugs og
mjög umdeildur meðal samtíma-
manna sökum róttækra skoðana
sinna um notkun flugvéla á ófrið-
artímum. Flugvélar þessar voru not-
aðar á öllum vígstöðvum í síðari
heimsstyrjöldinni en eitthvert mesta
afrek þeirra í baráttu bandamanna
við óvinina unnu þær skömmu eftir
að Bandaríkin gerðust aðilar að hild-
arleiknum. Það var í apríl árið 1942
að sveit sextán Mitchell-véla undir
forystu Jimmy Doolittle hershöfð-
ingja hóf sig til flugs af flugvélamóð-
urskipinu „Hornet“ um 1.250 km
undan ströndum Japans og réðst á
skotmörk í Tókýó og nágrenni. Árás-
in olli ekki miklu tjóni á jörðu niðri
en hafði samt sem áður veraleg áhrif
á framgang mála. Hún varð til þess
að Japanir héldu eftir heima fyrir
fjölda orrastuflugvéla sem hefðu
annars verið sendar til annarra
vígstöðva og veiktu þeir þar með
hernaðarstyrk sinn á ýmsum her-
teknum svæðum. Árásin hafði einnig
veraleg áhrif heima fyrir í Banda-
ríkjunum, einmitt þegar verst gekk,
með því að sanna fyrir almenningi
að hægt væri að koma höggi á óvin-
irtn í austri.
Það er hópur Hollendinga sem
hefur keypt þessa gömlu sprengju-
flugvél og hyggst gera hana upp og
mála í litum samskonar vélar sem
þjónaði hollenskri flugsveit í konung-
lega breska flughemum á dögum
síðari heimsstyijaldar. Verður henni
flogið á flugsýningu í Hollandi og
víðar í Evrópu en gamlar flugvélar
sem þessar eru sívinsælar meðal
áhorfenda á flugsýningum víða um
lönd. Við brottförina frá Reykjavík
að morgni föstudagsins til nýrra
heimkynna vélarinnar í Eindhoven í
Hollandi renndu flugmennirnir vél-
inni lágt eftir flugbrautinni í kveðju-
skyni en fjöldi Reykvíkinga fylgdist
með flugtakinu.