Morgunblaðið - 26.05.1990, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAI 1990
Morgunblaðið/Einar Falur
Fyrsta skóflustungan að kapellu
Davíð Oddsson, borgarstjóri, tók sl. fimmtudag fyrstu
skóflustunguna að kapellu til minningar um séra Frið-
rik Friðriksson. Kapellan verður staðsett að Hlíða-
renda við Öskjuhlíð, þar sem íþróttafélagið Valur
hefur athafnasvæði sitt. Á myndinni eru taldir frá
vinstri Pétur Sveinbjamarson, formaður Vals, Davíð
Oddsson, Ólafur Skúlason, biskup, og Gylfi Þ. Gísla-
son, sem flutti erindi um séra Friðrik.
Ábendingar frá
LÖGREGLUNNI:
Bifhjólaslysum
fer Qölgandi
Biilijólaslysum hefur farið
Qölgandi undanfarin ár. Ástæð-
urnar kunna að vera margar.
Bifhjólum og ökumönnum hef-
ur fjölgað. Hlutfall stærri og
kraftmeiri hjóla hefur aukist
og hraðinn að sama skapi. Oku-
menn þessara stóru hjóla eru
oft óreyndir en þó jafnan tilbún-
ir að taka áhættu. Virðing ann-
arra ökumanna fyrir bifhjlum
hefúr ekki aukist nema síður
sé og gatna og vegakerfið er
tiltölulega óhagstætt akstri bif-
hjóla.
Árið 1986 slösuðust 10 öku-
menn bifþjóla í Reykjavík. Á
landinu öllu slösuðust þá 46
ökumenn bifhjóla og þrír létust.
Árið 1987 slösuðust 12 bif-
hjólamenn í umferðarslysum og
20 utan borgarinnar.
Árið 1988 Qölgaði slösuðum
verulega; þeir urðu 57 á
landinu öllu, þar af 24 í
Reykjavík.
Á síðasta ári urðu 19 biflyóla-
slys í Reykjavík og í þeim slö-
suðust 21. Heildartalan á
landinu varð þá 40 slasaðir og
tveir látnir.
Af þessum tölum má sjá að
að fúll ástæða er til að gefa
þessum þætti umferðarmálanna
sérstakan gaum. AðkaUandi er
að allir sem hlut eiga að máli
leggi sitt af mörkum til þess
að fækka megi slysunum veru-
lega.
Af lestri lögregluskýrslna um
bifhjólaslys í umdæmi
Reykjavíkur má sjá eftirfar-
andi: Ekkert biflýólaslys varð
í janúar, febrúar, mars, nóvem-
ber og desember. Skýringar
þess eru augljósar; lítið er þá
um biflijól á götunum. Flest
slysin urðu í ágúst, 7, og í júní,
6. í júlí urðu 2, eitt í apríl,
maí, september og október
Af skýrslunum sést að al-
gengast er að ekið sé í veg fyr-
ir ökumenn bifhjóla. Því er
nauðsynlegt að ökumenn bif-
hjóla séu ávaUt á varðbergi,
jafnvel þótt þeir eigi réttinn..
Þá er að sjá sem um fjórðungur
slysanna verði vegna umferðar-
lagabrots biflyólamannsins og
að um fjóröungur verði beinlín-
is vegna óaðgæslu bifhjóla-
manna.
Þegar horft er til bifhjóla-
slysa á landinu öllu árið 1989
kemur í Ijós að flest þeirra urðu
þegar ökumenn misstu vald á
hjólunum, eða 16 talsins, og
Qög^ur urðu þegar biflyólum var
ekið aftan á kyrrstæðar bifreið-
ir.
Það ætti að vera sameigin-
legt hagsmunamál alls biflijóla-
fólks, lögreglu og almennings
að fækka bifhjólaslysum eins
og nokkur kostur er. Til þess
þarf skilning, aðgæslu og gott
fordæmi. Eitt biflijólaslys er
einu of mikið.
Vogar:
Tveir fram-
boðslistar
Vogum.
TVEIR framboðslistar eru í kjöri
við hreppsnefndarkosningarnar í
Vatnsleysustrandarhreppi í dag,
H-Iisti óháðra og L-listi lýðræðis-
sinna.
Efstu menn á H-lista eru Jón
Gunnarsson framkvæmdastjóri, Jör-
undur Guðmundsson markaðsstjóri,
Þóra Bragadóttir húsmóðir, Stefán
Albertsson iðnfræðingur og Andrés
Guðmundsson skipstjóri.
Efstu menn L-lista eru Ómar Jóns-
son verkstjóri, Björn Eiríksson raf-
virki, Vilberg Jónsson húsasmíða-
meistari, Ragnar Karl Þorgrímsson
fiskverkandi og Hafsteinn Snæland
bifreiðastjóri.
Framboðslistarnir hafa opnað
kosningaskrifstofur, H-listi á Ægis-
götu 41 og L-listi í þjónustumiðstöð-
inni í Iðndal 2. Kjörfundur hefst kl.
10.00 og fer kosningin fram í Stóru-
Vogaskóla.
- EG
Leiðrétting
í greininni „Ríkið siglir hraðbyri
fram úr sveitarfélögunum í skatt-
heimtunni," sem birtist hér í blaðinu
á fimmtudag, átti meðfylgjandi
mynd að birtast, en vegna mistaka
birtist röng mynd, þar sem súluritið
sýndi sama halla ríkissjóðs árið
1989 og varð árið 1988. Þetta leið-
réttist hér með, um leið og beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
Halli ríkissjóös skv. greiösluyfirliti. Milljónir kr. á verölagi hvers árs.
* skv. þegar framkomnum fjáraukalögum.
35<r
Sigurjón Á. Ólafsson, þjónustustjóri afhendir Ingvari Asmundssyni
skólameistara vél og gírkassa úr Volvo 440 og tölvustýrða sjálfskipt-
ingu úr Daihatsu Applause. Aðrir á myndinni eru talið frá vinstri:
Ingibergur Elíasson, deildarstjóri bifvélavirkjadeildar, Guðmundur
Guðlaugsson, yfirkennari og Pétur Jóhannesson, forstöðumaður vara-
hlutadeildar.
■ BRIMBORG hf. hefur gefið
Iðnskólanum í Reykjavík eftirfar-
andi kennslutæki til kennslu í bif-
vélavirkjun. B-18 vél og gírkassa í
Volvo 440 og tölvustýrða sjálf-
skiptingu í Daihatsu Applause.
Þetta er búnaður í nýjustu bifreiðir
af þessum tegundum og er hann
tæknilega mjög fullkominn. „Með
þessu stuðlar Brimborg að því að
búnaður skólans og kennslan séu í
takt við tímann. Skólinn er mjög
þakklátur Brimborg hf. fyrir þessa
veglegu gjöf sem sýnir enn einu
sinni skilning atvinnufyrirtækja á
hlutverki skólans og nauðsyn þess
að hann sé 'avallt búinn bestu tækj-
um“, segir í frétt frá Iðnskólanum.
■ CHARLES E. Cobb, Jr.. sendi-
herra Bandaríkjanna á Islandi
hefur afhent til _ stuðnings skóg-
ræktarátakinu á íslandi, landbún-
aðarráðuneytinu ávísun að upp-
hæð kr. 100 þúsund. Til viðbótar
við þátttöku sendiráðs Banda-
ríkjanna í þessum stuðningi er-
lendra stjómarerindreka, hefur
Cobb, sendiherra, styrkt átakið per-
sónulega með gjöf að sviðaðri upp- í ,
hæð. Starfsmenn bandaríska sendi-
ráðsins hafa í mörg ár gróðursett
furutré og lúpínufræ í skika í Heið-
mörk.
Morgunblaðið/Einar Falur lngólfsson
■ FANTASÍA frumsýnir gam-
anleikinn ímyndunarveikina eftir
Moliére í leikstjórn Kára Halldórs
mánudaginn 28. maf nk. í Leikhúsi
frú Emilíu, Skeifunni 3c. Búninga-
hönnun og saumur var í höndum
nema í fatahönnun í Iðnskólanum
og hárkollugerð í höndum nema í
fjöltæknideild Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands. ímyndunarveikin
er þriðja verkefni Fantasíu en áður
hefur hún sýnt frumsamin verk sín
„Ég býð þér von“ og „Vagnadans"
sem farið verður með til Svíþjóðar
í boði norrænnar leiklistarhátíðar
sem haldin verður í Vesterás í júní
nk.
■ RARIK-kórinn heldur tón-
leika í Breiðlioltskirkju í Mjódd
sunnudaginn 27. maí kl. 20.30.
Kórinn syngur í Grieg-höllinni í
Bergen í um 1.100 manna veislu á
vegum norska rafveitusambandsins
þann 11. júní nk. Þá mun kórinn
einnig syngja fyrir starfsmenn raf-
veitunnar í Osló, „Oslo Lysverker‘C
og starfsmenn sambands orkufram-
leiðenda í Noregi „Samkjöringen“.
Kórinn hefur komið fram í ríkisút-
varpinu og sjónvarpi, farið tvisvar
í söngför til Skotlands, auk þess
að taka þátt í innlendum kóramót-
um. Árið 1988 tók kórinn þátt í
fjölmennu kóramóti í Óðinsvéum í
Danmörku og söng þar m.a. við
opnun mótsins og einnig í ráðhúsi
borgarinnar. Stjómandi kórsins er
Violeta Smid og undirleikari er
Pavel Smid. Allir eru velkomnir á
tónleikana meðan húsrúm leyfir.
4L
■ SÝNINGIN „Norrænn heim-
ilisiðnaður" var opnuð í Þjóðminja-
safninu á uppstigningardag. Sýn-
ingin er farandsýning, sem fyrst
var sýnd í Svíþjóð 1989 í tengslum
við þing Norrænu heimilisiðnaðafé-
laganna í Sunne í Vármland. Mun-
imir á sýningunni eru verðlauna-
gripir, en aðildarfélögin stóðu fyrir
samkeppni í sínu heimalandi um
gerð handunninna muna undir yfir-
skriftinni „Vi slöjdar i Norden“.
Sýningin verður opin á opnunartíma
Þjóðminjasafnsins og eru allir vel-
komnir.