Morgunblaðið - 26.05.1990, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
KÖRFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN
Grissom til Vals
Magnús Matthíasson með næsta vetur
David Grissom, Bandaríkjamað-
urinn sem lék með Reyni Sand-
gerði í úrvalsdeildinni síðasta vetur,
hefur gengið til liðs við Val. Hann
leikur með liðinu næsta vetur og
leysir af hólmi landa sinn, Chris
Behrends. Ekki hefur verið ákveðið
hver þjálfar liðið en Jón Steingríms-
sön, formaður körfuknattleiksdeild-
ar Vals, sagði að stefnt væri að því
að fá góðan þjálfara frá Austur-
Evrópu til að stjórna liðinu næsta
vetur.
Valsmenn náðu ekki í úrslita-
keppnina síðasta vetur og sagði Jón
að það hefðu verið nokkur von-
brigði. „Við ætlum að setja á fullan
kraft enda alls ekki sáttir við geng-
ið í vetur,“ sagði Jón.
Vaismenn hafa fengið annan
sterkan leikmann, Magnús Matt-
híasson, bróðir Matthiasar sem fyr-
ir er hjá Val. Magnús, sem er rúm-
ir tveir metrar á hæð, lék reyndar
tvo leiki með Val í vetur og stóð
sig mjög vel.
Grissom er þriðji útlendingurinn
sem verður áfram á íslandi. Patrick
Releford, sem lék með Njarðvík, fer
til Þórs og Sovétmaðurinn Anatólíj
Kovtoúm verður áfram með KR.
Olafurtil
UMFG?
ÆT
Olafur Gottskálksson, leikmað-
ur ÍBK í körfuknattleik og
markvörður KR í knattspyrnu, leik-
ur líklega með Grindavík í úrvals-
deildinni í körfuknattleik. „Ég veit
ekki hvort ég held áfram í körfunni
en ef ég geri það þá fer ég líklega
til Grindavíkur," sagði Ólafur.
„Ég er mikið að velta því fyrir mér
að einbeita mér að fótboltanum og
þrátt fyrir að körfuboltinn sé mjög
góð æfíng þá er alltaf hætta á
meiðslum,“ sagði Ólafur, en hann
missti af leikjum KR í Reykjavíkur-
mótinu eftir að hafa kviðslitnað í
körfubolta með ÍBK.
„Ég er spenntastur fyrir
Grindavík. Gunnar [Þorvarðarson]
er kominn þangað sem þjálfari og
líklegast að ég fari þangað, haldi
ég áfrarn," sagði Ólafur.
Arnór Guðjohnsen kemur heim í dag til að æfa með íslenska landslið-
inu fyrir leikinn gegn Albaníu á miðvikudag.
Tap hiá Teka
KRISTJÁN Arason var aðeins
skugginn af sjálfum sér þegar
T eka Santander tapaði með
tveggja marka mun, 24:22, fyrir
Drott f rá Svíþjóð í fyrri úrslita-
leik liðanna í Evrópukeppni bik-
arhafa.
Kristján náði sér ekki á strik í
leiknum. Hann lék í sókninni
fyrstu 15 mínúturnar, en aðeins í
vörninni eftir það. Greinilegt var
að meiðsli sem hann
á við að stríða í öxl
háðu honum mikið.
Drott byrjaði bet-
ur og komst í 8:4,
en Teka, með landsliðsmanninn
Javier Cabanas í fararbroddi, náði
að jafna 10:10 fyrir leikhlé. Teka
náði eins marks forystu 13:12 í
upphafi síðari hálfleiks, en eftir það
hafði Drott undirtökin og sigraði
24:22.
Mats Olsson, sænski landsliðs-
markvörðurinn í liði Teka, reyndist
Þorsteinn
Gunnarsson
skrifar
frá Sviþjóð
löndum sínum erfiður. Varði eins
og berserkur og var ásamt Cabanas
besti maður liðsins. „Ég sagði fyrir
leikinn að við hefðum efni á því að
tapa með tveggja marka mun og
það gekk eftir. Við erum með sterk-
an heimavöll, höfum aðeins tapað
einum leik á heimavelli í tvö ár,“
sagði Mats Olsson.
Heimsmeistarinn Ola Lindgen í
heimaliðinu Drott reyndist Spán-
veijum erfiður í sínum síðasta heim-
aleik með Drott. Hann leikur næsta
vetur með Dutenhofen í Vestur-
Þýskalandi. Hann gerði 9 mörk.
„Við fórum illá að ráði okkar, misst-
um niður fjögurra marka forskot í
seinni hálfleik. Það verður því þung-
ur róður á útivelli, en við erum með
mjög leikreynt lið sem hefur alltaf
leikið mjög vel að heiman,“ sagði
Lindgren.
Mörk Drott: Lindgren 9, Magnus Andersson
7/3, Göran Bengtsson 5, Magnus Veberg 2
og Jörgen Abrahamsson 1.
Mörk Teka: Jose Villalda 7/2, Cabanas 6/1,
Rofes 3, Melo Munez 3, Julian Ruiz 2 og
Castro Echaburu 1.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
7TAllir klárir í slaginn"
- segir Eggert Magnússon, formaður KSÍ
ÍSLENDINGAR mæta Albaníu
ífyrsta leik sínum í undan-
keppni Evrópukeppninnará
Laugardalsvelli á miðvikudag.
Reiknað er með að allir sem
valdir voru í landsliðshópinn
fyrir helgi verði klárir í slag-
inn.
m
Islenska landsliðið mun koma
saman til æfinga í dag. „Það
eru allir klárir í slaginn," sagði
Sævar Jónsson (Val), Olafur Þorðarson
(Brann), Pétur Ormslev (Fram), Þorvald-
ur Örlygsson (Nott. Forest), Pétur Péturs-
son (KR), Guðmundur Torfason (St. Mirr-
en), Eyjólfur Sverrisson (Stuttgart) og
Arnór Guðjohnsen (Anderlecht).
Eggert Magnússon, formaður
KSI. En óvíst var talið að Gunnar
Gíslason og Sigurður Grétarsson
gætu leikið. „Gunnar er orðinn
góður af meiðslunum og það er
níutíu prósent öruggt að Sigurður
verði með,“ sagði formaðurinn.
Arnór Guðjohnsen kemur til
landsins í dag, en hann var í
vikufríi á Kýpur. Atli Eðvaldsson
er væntalegur heim á morgun og
Ólafur Þórðarson kemur á mánu-
dag þar sem hann á að leika með
Brann á sunnudag. Hinir „útlend-
ingarnir" í-hópnum eru þegar
komnir heima.
Landsliðið er annars skipað eft-
irtöldum leikmönnum:
Markverðir: Bjami Sigurðsson, Val og
Birkir Kristinsson, Fram.
Aðrir leikmenn: Atli Eðvaldsson
(Genglebirci), Guðni Bergsson (Totten-
ham), Gunnar Gíslason (Hacken), Kristján
Jónsson (Fram), Ormarr Örlygsson (KA),
HANDBOLTI / EVROPUKEPPNIN
ípfém
FOLK
■ EFTIR miklar deilur hefur ver-
ið ákveðið að keppni Banda-
ríkjanna og Evrópu um Ryder-
bikarinn í golfi 1993 fari fram á
Belfry-vellinum í Englandi. Til
stóð að leika á Club de Campo-
vellinum á Spáni en samtök evr-
ópskra atvinnukylfinga, PGA, töldu
hann ekki nógu stóran. Þó er talið
að næsta keppni í Evrópu, árið
1997 fara fram á vellinum. Næsta
keppni fer fram eftir tvö ár á
Kiawah Island-vellinum í Suður-
Karólínu í Bandaríkjunum.
■ ÞAÐ þótti tíðindum sæta að
enginn, af þeim 58.000 áhorfendum
sem fylgdust með úrslitaleik Evr-
ópukeppni meistaraliða, var hand-
tekinn fyrir eða eftir leikinft. Viður-
eign AC Mílanó frá ítaliu' og
Benfica frá Portúgal fór fram í
Vínarborg og þótti löggæsla, jafnt
sem framkoma áhorfenda, til fyrir-
myndar og lofa góðu fyrir heims-
meistarakeppnina sem hefst eftir
tvær vikur.
■ DRAGOSLAV Sekularac,
þjálfari júgóslavneska knattspyrnu-
liðsins Rauðu Stjörnunnar, segist
ætla að hætta þjálfun liðsins. Hann
var nýlega dæmdur í sjö leikja bann
í Evrópukeppninni í knattspyrnu og
segist ekki sjá tilgang í að halda
áfram með liðið geti hann ekki
stjórnað því frá varamannabekkn-
um.
■ WALTER Meeuws, fyrrum
þjálfari belgíska landsliðsins í
knattspyrnu, hefur tekið við þjálfun
1. deildarliðsins St. Truiden.
■ STEFAN Schwarz, landsliðs-
maður Svía sem leikur með Malmö
FF, leikur með portúgalska liðinu
Benfica næsta keppnistímabil.
Kaupverðið er talið nema um 80
milljónum íslenskra króna.
Schwarz, sem er aðeins 21 árs,
mun því leika með löndum sínum,
Mats Magnusson og Jonas Thern.
Þjálfari Benfica er einnig Svíi,
Sven-Göran Eirkisson. Schwarz
leikur í stöðu vinstri bakvarðar og
er í 22ja manna HM-hópi Svía á
Ítalíu.
■ MATTHEW Le Tissier, sem
leikmenn ensku 1. deildarinnar
kusu efnilegasta leikmann deildar-
innar í vetur, hefur gert nýjan
þriggja ára samning við Southamp-
ton og þar með kveðið niður þær
sögur um að hann sé á leið til er-
lends félags.
íþróttir
helgarinnar
Knattspyrna
Laugardagur
3. deild:
Nesk. Þróttur-BÍ.................kl. 14.00
Kópav. ÍK-Völsungur..............kl. 14.00
Akureyri TBA - Einherji...kl. 14.00
4. deild:
Valh. Grótta - Reynir.........kl. 14.00
Njarv. UMFN - Snæfell.....kl. 14.00
Gervig. TBR-Ægir................kl. 14.00
Keflav. Hafnir - Víkingur Ól. ...kl. 14.00
Leiknisv. Leiknir - Hverag.kl. 14.00
Kópav. HK - Skallagrímur...kl. 17.00
Laugal. UMSE-b - Austri R.kl. 14.00
Hrísey Narfí-Magni..............kl. 14.00
Krossm. HSÞ-b - SM..............kl. 14.00
Staðarb. KSH - Neisti............kl. 14.00
Fáskrúðsv. Leiknir- Austri E. .kl. 14.00
Frjálsíþróttir
Meistaramót Islands í fijálsíþrótt-
um, fyrri hluti, fer fram á Varmár-
velli i Mosfellsbæ um helgina. Keppni
hefst kl. 14.00 báða dagana. Keppt
verður f tugþraut, sjöþraut, 4 X 800
m boðhlaupi karla, 3 X 800 m boð-
hlaupi kvenna, 5.000 m hlaupi kvenna
og 10.000 m hlaupi karla.
Landsbankahlaupið fer fram í dag.
Halaupið er fyrir krakka 10 til 13 ára
og er hlaupið frá nær öllum stöðum
þar sem bankinn hefur útibú og hefst
kl. 11.00.
Golf
Dunlop-mótið í golfi fer fram á
Hólmsvelli f Leiru í dag og á morgun.
Þetta er annað stigamót sumarsins.
A morgun, sunnudag, verður fyrsta
opna golfmótið í Grafarholti, Lac-
oste-mótið, sem er 18 holu höggleikur
með forgjöf.