Morgunblaðið - 26.05.1990, Side 64
Engum líkur
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Morgunblaðið/RAX
Góðviðri íHafharfírði
Börnin hafa óspart notað góða veðrið undan- I í gær í nýju sundlauginni í Hafnarfirði og
farna daga til útileikja. Pjölmörg börn voru | nutu langþráðrar sólar eftir langan vetur.
Tafir á leiguflug-
ferðum Flugleiða
vegna millilendinga
Farnir að kanna aðra möguleika,
segir forstjóri Samvinnuferða
TAFIR hafa orðið á leiguflugferðum Flugleiða fyrir íslensku ferðaskrif-
stofurnar að undanfdrnu, þar sem flugmenn hafa ítrekað tekið þá
ákvörðun að millilcnda á Bretlandseyjum á heimleið frá Spáni. „Þetta
'er auðvitað óþolandi fyrir farþega okkar og þýðir þriggja til fimm tíma
seinkun. Við erum þegar farnir að kanna hvaða aðra möguleika við
höfum með sólarlandaflug, þar sem þetta er alls ekki það sem við sömd-
um um við Flugleiðir," sagði Helgi Jóhannsson forstjóri Samvinnuferða-
/Landsýnar í samtali við Morgunblaðið í gær.
Helgi sagði að Samvinnuferð-
ir/Landsýn væru ekkert einsdæmi í
þessum efnum og sólarlandafarþegar
annarra ferðaskrifstofa hefðu orðið
fyrir samskonar óþægindum. „Þetta
er allt annað en við erum búnir að
semja um og selja. Við hljótum í
framhaldi þessa að óska eftir endur-
skoðun þessara leiguflugssamn-
inga,“ sagði Helgi og bætti við að
Arnarflug gæti nú annast sólar-
landaflug, án þess að svona truflanir
þyrftu að koma til.
Kristján Egilsson formaður FÍA
Grumir um
misnotkun
4 ára barns
MAÐUR á þrítugsaldri hefur ver-
ið úrskurðaður í gæsluvarðhald
fram á mánudag, grunaður um
kynferðislega misnotkun á 4 ára
dóttur sinni. Maðurinn hefur
neitað ásökununum.
Skipaður héraðsdómari í Skaga-
fjarðarsýslu kvað upp gæsluvarð-
haldsúrskurðinn síðastliðinn sunnu-
dag, en hinn grunaði býr í sýsl-
unni. Máiið kom til kasta lögregl-
unnar eftir að móðuramma telpunn-
ar fór með hana í læknisskoðun,
vegna kvartana barnsins.
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að það væri alrangt að flugmenn
væru með hægagang í starfi. „Það
háttar þannig til að reglur nánast
alls staðar í heiminum takmarka
flug. Fiug til sólarlanda falla utan
þeirra öryggismarka sem sett hafa
verið í flestum nágrannalöndum okk-
ar. Við getum einfaldlega ekki farið
eftir viðskiptahagsmunum Flugleiða
í þessum efnum, öryggið verður að
vera númer eitt,“ sagði Kristján.
í kjölfar samninga í fyrra, var
ákveðið að skipa nefnd beggja aðila
sem semdi nýjar flugvakta- og
hvíldartímareglur. í niðurstöðu
nefndarinnar tekið ákveðið mið af
þeim reglum sem í gildi eru hjá Luft-
hansa, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins. Kristján sagði að
sú viðmiðun gengi ekki upp, þar sem
ekkert nætui’flug væri hjá Luft-
hansa. Eðlilegra væri að miða við
öryggisreglur á Norðurlöndum, en
því hefðu Flugleiðir alfarið hafnað.
Björn Theódórsson framkvæmda-
stjóri hjá Flugleiðum sagði í samtali
við Morgunblaðið að samkvæmt gild-
andi reglum væri ekki hægt að fljúga
til sólarlanda og heim aftur án þess
að millilenda á heimleið, eða skipta
um áhöfn á Spáni. „Við höfðum hins
vegar vonast eftir því að ná öðru
vísi samningum við flugmenn, en það
hefur ekki gengið eftir," sagði Björn
og bætti við að Flugleiðir hefðu talið
að niðurstaða nefndarinnar sem
starfaði í fyrra, hefði gefið fyrirheit
um breytt fyrirkomulag.
Davíð Oddsson borgarstjóri:
Einstæð móðir geti valið að
vera hiá börnunum sínum
Morgunblaðið/Einar Falur.
Kosið í gærkvöldi.
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri sagði í sjónvarpsumræðum í gær-
kvöldi, að kostnaður við stefhumarkandi ákvörðun sjálfstæðis-
manna um greiðslur til foreldra sem kysu að hafa börn sín heima
í stað þess að setja þau á dagvistarstofhanir, færi eftir því, hve
skrefið væri stigið hratt. Nefiidi hann sem dæmi að það kostaði
borgina og einstæða móður tæplega 800 þúsund krónur á ári að
vista í heildagsvistun tvö börn hjá borginni. Spurði borgarstjóri,
hvort ekki kynni að vera betra að þessi einstæða móðir fengi
þessar 800 þúsund krónur sjálf til ráðstöfunar og tæki þá ákvörð-
un um það sjálf hvort hún notaði peningana til að greiða fyrir
Jlagvistun eða yrði heima. Taldi borgarstjóri að þarna kæmu
skattaleg atriði einnig til athugunar og einnig að taka barnabæt-
ur, sem nú er skipt niður á sextán ár, og setja þær niður á við-
kvæmasta aldur barna.
í umræðunum um dagvistar-
málin sagði Ólína Þorvarðardóttir,
Nýjum vettvangi, að spyija ætti
fólk, hvort það vildi sleppa leik-
fckólarými fyrir 5.000 krónur á
mánuði, sem væri hin raunveru-
lega fjárhæð sjálfstæðismanna.
Elín Ólafsdóttir, Kvennalistanum,
sagðist efast um að tillögur borg-
arstjóra væru raunverulegur kost-
ur en hún væri hlynnt því að for-
eldrar gætu verið sem lengst með
ungum börnum sínum. Sigrún
Magnúsdóttir, Framsóknarflokki,
minnti á tillögu sem hún hafði flutt
í borgarstjórn um sjóð til styrktar
foreldrum sem vildu vera heima
hjá börnum sínum. Siguijón Pét-
ursson, Alþýðubandalagi, taldi
börn hafa rétt til þess að komast
á leikskóla. Áshildur Jónsdóttir,
Flokki mannsins, fagnaði hug-
mynd sjálfstæðismanna, hún hefði
sjálf hreyft svipuðu fyrir síðustu
kosningar. Kjartan Jónsson,
Grænu framboði, sagði að dagvist-
armál ættu að vera í höndum
hverfisstjórna með fijálsar hend-
ur.
Auk dagvistarmála ræddu
frambjóðendurnir undir stjórn
fréttamannanna Gunnars E. Kvar-
ans og Jóhanns Haukssonar um
miðbæ Reykjavíkur, og sagði
borgarstjóri í þeim umræðum, að
það myndi kosta um 300 milljónir
króna að leggja nýjan flugvöll sem
dygði fyrir umsvif einkaflug-
manna. Deilt var um hve fram-
kvæmdafé borgarinnar á ári væri
mikið. Taldi Siguijón Pétursson
að það væri rúmlega þrír milljarð-
ar en Ólína Þorvarðardóttir að
fjárhæðin næmi fimm milljörðum.
Davíð Oddsson sagði að tala Ólínu
væri fjarri lagi. Hann sagði þann
galla á tillögum vinstri manna um
auknar framkvæmdir borgarinnar
að þær myndu tvöfalda starfs-
mannafjölda borgarinnar og setja
haha á hausinn. Þá var einnig
rætt sérstaklega um umhverfismál
og urðun sorps.
Sjá einnig ummæli frambjóð-
enda á bls. 26.
Kosning utan
kjörfiindar:
Meiri þátttaka
nú en 1986
Kosningaþátttaka utan
kjörfundar í Reykjavík var
heldur meiri nú en fyrir
siðustu sveitarstjórnarkosn-
ingar.
Ekki fengust nákvæmar tölur
um kjörsókn \ gærkvöldi, en
starfsmenn borgarfógeta-
embættisins í Reykjavík, á kjör-
stað í Ármúlaskóla, töldu að um
fimm þúsund manns hefðu kosið
utan kjörfundar. Fyrir síðustu
kosningar kusu 4.560 manns
utan kjörfundar í Reykjavík.