Morgunblaðið - 28.06.1990, Qupperneq 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
144. tbl. 78. árg. FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 _________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gjaldmiðilsbreyting- í Austur-Þýskalandi á sunnudag:
Eftiahagssamrunans beðið með
kvíðablandinni eftirvæntingu
Reuter
Austur-þýskir kaupmenn lialda að sér höndum þessa dagana og eru
tregir til að selja fyrir austur-þýsk mörk sem brátt missa gildi sitt.
Það var enda ekki uin auðugan garð að gresja í matvöruverslunum
í Austur-Berlín í gær.
Heimsmeistara-
keppnin:
Rafinagns-
leysi veld-
ur róstum
Kalkútta. Reuter.
TIL óeirða kom í Kalkútta á Ind-
landi í gær þegar mörg hundruð
manns réðust á og lúskruðu
starfsmönnuin rafmagnsveitna
ríkisins þar í borg. Það var raf-
magnsleysi, sem reiðinni olli, en
vegna þess féllu niður útsending-
ar frá heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu.
„Þessi stjórn hefur brugðist gjör-
samlega. Það er ekki nóg með, að
hún geti ekki haldið uppi lögum og
reglu eða séð fyrir nægu vatni,
heldur sviptir hún okkur líka heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu.
Hún á að segja af sér á'stundinni,“
sagði einn frammámanna stjórnar-
andstöðunnar í Vestur-Bengalríki.
Orkumálaráðherrann í Véstur-
Bengal segir, að rafmagnsleysið sé
heimsmeistarakeppninni og ráða-
mönnum í nágrannaríkinu Bihar að
kenna. „Þeir vöktu mig um miðja
nótt og báðu um fimm megawött
aukalega vegna keppninnar en
drógu síðan til sín 160 megawött
með þessum afleiðingum," sagði
orkuráðherrann.
Tékkóslóvakía:
Stjórnin sver
embættiseið
Prag. Reuter.
NÝ stjórn í Tékkóslóvakíu sór
embættiseið sinn í gær og eru
ráðherrarnir flestir úr röðum
Borgaravettvangs, sigurvegarans
í þingkosningunum.
Ráðherrarnir 16 eiga að koma á
fullu lýðræði í landinu á tveimur
árum og hafa Borgaravettvangur og
samstarfsflokkur hans, Almenningur
gegn ofbeldi, níu ráðherra én kristi-
legir demókratar einn. Sex voru áður
í kommúnistaflokknum, þar á meðal
forsaétisráðherrann, Marian Calfa.
Austur-Berlín. Reuter.
UM helgina verða efnahagskerfí
þýsku ríkjanna sameinuð og þá
munu austur-þýsku seðlarnir
með Karli Marx víkja fyrir
vestur-þýska markinu. Þúsundir
Austur-Þjóðverja stóðu í biðröð-
um fyrir utan bankastofhanir í
gær til að opna reikninga sem
eru skilyrði þess að hægt sé að
skipta austur-þýskuin mörkum í
vestur-þýsk. A sunnudag verður
einnig lagt niður allt eftirlit á
landamærum þýsku ríkjanna og
haft er eftir heimildum, að stjórn-
in í Bonn vilji Berlín sem höfuð-
borg að lokinni fullri sameiningu.
„Að undanskildum hinum efnis-
lega ávinningi þá er vestur-þýska
markið tákn frelsis og nýs upp-
hafs,“ sagði Theo Waigel, fjármála-
ráðherra Vestur-Þýskalands, en
eftirvæntingin í austri er kvíða
blandin. Kaupmáttur launanna mun
vissulega aukast en margir óttast,
að austur-þýsk fyrirtæki muni ekki
standast samkeppnina með tilheyr-
andi atvinnuleysi. Hafa stjórnvöld
í báðum þýsku ríkjunum reynt að
sefa þennan ótta og birtu í því skyni
stórar auglýsingar í dagblöðum í
gær þar sem kostum sameiningar-
innar var lýst.
Frestur Austur-Þjóðverja til að
sækja,, um að bankainnstæðum
þeirra verði breytt í vestur-þýsk
mörk rennur út á morgun, föstu-
dag. Fullorðnir mega skipta allt að
4.000 mörkum (140.000 ÍKR) á
genginu einn á .móti einum. ('/()-
Fyrir hvert barn má skipta 2.000
mörkum á sama gengi. Bankainn-
stæðum umfram þessar upphæðir
má skipta á genginu 'A eða 'A eft-
ir því hvenær sparnaðurinn yarð til.
Edúard Shevardnadze:
Oánægðir hershöfð-
ingjar gagnrýndir
Moskvu. Reuter.
Utanrfkisráðherra Sovétríkjanna, Edúard Shevardnadze, hef-
ur svarað óánægjurödduin ýmissa sovéskra hershöfðingja með
harkalegri gagnárás. Þeir liafa m.a. sagt að ítök Sovétmanna
í A-Evrópuríkjunum hafí verið gefin upp á bátinn mótspyrnu-
faust. Ráðherrann spyr í grein í flokksmálgagninu Prövdu á
þriðjudag: „Höfnm við virkilega ekkert lært? Munum við ekki
hvað gerðist í Afganistan, hvað gerðist 1956 og 1968?“
Með ártölunum vitnar Shev- gegn almennum hugmyndum um
ardnadze til innrása Rauða hers-
ins í Ungveijaland og Tékkósló-
vakíu sem gerðar voru til að kæfa
lýðræðis- og umbótatilraunir í
löndunum. Hann sagði að í reynd
væru gagnrýnendur að spyija
hvers vegna skriðdrekum hefði
ekki verið beitt að þessu sinni.
„Utanríkisstefnan getur ekki
byggst á því að varin séu brot
jafnræði, frelsi, vald fólksins, lýð-
ræði,“ segir í grein ráðherrans
sem talin er undanfari varnar-
ræðna ráðamanna á væntanlegu
flokksþingi sovéskra kommúnista
í næstu viku. „Égtel það siðferðis-
lega skyldu mína að biðja þjóðir
A-Evrópu afsökunar á móðgandi-
og óafsakanlegum ummælum
ýmissa landa minna.“