Morgunblaðið - 28.06.1990, Side 14

Morgunblaðið - 28.06.1990, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 Vatnaskógxir, sumar- paradís drengja eftir Kjartan Jónsson Drengurinn hallaði sér aftur á bak. Síðan var peningur settur á enni hans. Kalltrektinni hafði verið komið fyrir í buxnastrengnum. Hann hafði fengið fyrirmæli um, að sá sem væri fljótastur að láta peninginn fara ofan í trektina og niður í gegnum buxurnar, myndi bera sigur úr býtum. Eins og á miklu íþróttamóti fékk hann að æfa sig nokkrum sinnum. En nú var komið að alvörunni. Að hætti kappsfullra ungra drengja ætlaði keppandinn að sýna að hann væri enginn aukvisi og beið spenntur eftir merkinu um að peningurinn mætti taka flugið. Að hætti stjórn- enda á alvöru íþróttamóti var kepp- andanum gefinn góður tími til að einbeita sér að keppninni, sem framundan var. En ekki var allt sem sýnist. Á meðan drengurinn und- irbjó sig af mikilli alvöru undir átök- in, drógu lymskufullir foringjar (leiðbeinendur drengjanna) fram tvær eða þijár vatnskönnur. Er stjórnandinn gaf merki um að keppni væri hafin, voru þeir ekki seinir á sér að sturta köldu innihald- inu ofan í trektina við ómældan hlátur viðstaddra, sem aldrei ætlaði að linna. Angistarsvipur hins alvör- ugefna og hrekklausa keppanda magnaði hláturinn enn meir. Þetta er minning sem undirritað- ur á frá unglingsárum í Vatna- skógi. (Ef þessi leikur er stundaður enn er hann ekki hafður í flokkum yngri drengja!) Staðurinn heillaði frá fyrstu stund og ekki síður and- inn, sem þar ríkti, kærleikur og græskugaman. Margir, ungir og eldri, eiga hlýjar minningar frá þessum stað, sem hefur um langt árabil verið sælureitur drengja þessa lands. Þar hjálpar allt til, unaðsleg náttúra og hollt viðurværi til Jíkama og sálar, íþróttir, leikir í skóginum, róðrar og veiðiferðir á vatninu, leikir og spil inni, kvöld- vökur og lestur úr heilagri ritningu. Ég skrapp þangað í heimsókn Landsliðsmenn framtíðarinnar. fyrir skömmu og ók sem leið liggur upp hlykkjóttan afleggjarann frá Hvalfjarðarströnd fyrir ofan Saurbæ, þeim er Hallgrímur Pét- ursson bjó á, fæðingarstað Passíu- sálmanna. Hinum megin við hálsinn blasti Svínadalurinn við skógi vax- inn og breiður. Tignarleg Skarðs- heiðin í norðri með framsækinn Kambinn mynda vegg móti norðri og skilur dalinn frá Skorradal. Stórt vatnið og birkiskógurinn gera ’dalinn að unaðsreit. Sumarbúðir Nú, þegar allir skólar eru löngu búnir og börn eiga erfiðara með að fá vinnu en áður var, fjölgar sífellt tilboðum um alls konar námskeið, til að hafa ofan af fyrir þeim. Sum- arbúðir eru starfandi víðs vegar á landinu og bjóða upp á margt spennandi. KFIJM og K hafa mesta reynslu í slíku starfi. Félögin reka 5 sumarbúðir víðs végar um landið. Elstar eru búðirnar í Vatnaskógi, sem háfa verið starfræktar í rúm „Að venju verður hið svokallaða „Almenna mót“ haldið í Skóginum dagana 29. júní til 1. júlí nk. Það er öllum opið. Þar verða kristi- legar samkomur með miklum söng.“ 60 ár. Tugir þúsunda drengja hafa dvalið þar um lengri eða skemmri tíma. Forstöðumaðurinn, Karl Jónas Gíslason, tók á móti mér, er ég renndi í hlaðið og leiddi mig um staðinn. Hvarvetna var líf, enda fer töluvert fyrir 90 tápmiklum drengj- um. Úti á íþróttavelli var knatt- spyrnumótið í algleymingi. „Við skulum allir leggjast í vörn, því annars töpum við,“ gall í einum stráknum. „Við verðum að beijast eins og við getum til að vinna bikar- inn,“ sagði annar. Þaðyar svo sann- arlega hart barist. Á meðan ég staldraði við og horfði á landsliðs- menn framtíðarinnar takast á, var öðru liðinu dæmd vítaspyrna. En þá varð einum leikmanninum það á að blóta og vítaspyrnan var dæmd af. Þess í stað var dæmd auka- spyrna á viðkomandi fyrir blót og vörn snúið í sókn. Það gengur stundum illa að gæta tungunnar fyrstu dagana í flokknum og varast þessa sérreglu knattspyrnunnar í Vatnaskógi. En það hefur gagnast mörgum vel að nota „korktappi“ í staðinn fyrir bannorðin. Það hefur löngum verið erfitt að hafa ofan af fyrir stórum hópi drengja í erfiðri veðráttu. Það var því mikill áfangi, þegar íþróttahús reis af grunni fyrir nokkrum árum. Þar stunduðu drengirnir nú körfu- bolta og handbolta í glæsilegum húsakynnum. Uppi á lofti spiluðu aðrir borðtennis og snóker. Það var mikið líf í bátaskýlinu. Þar voru drengir að smíða stóran flugdreka með hjálp eins foringj- ans. Áhuginn leyndi sér ekki og verkinu miðaði vel áfram. í ijörunni fyrir neðan skýlið var mikið um að vera í kringum bátana, sem voru ýmist að koma eða fara. Þar voru tveir indíánabátar og á öðnim báti voru drengir að leggja upp í veiði- ferð. Að sögn Skógarmanna var veiðin góð í vatninu, þótt aflinn væri yfirleitt undirmálsfiskur. Foringjar í setustofunni inn af eldhúsinu í matskálanum voru sam- mála um að gott væri að starfa í Vatnaskógi, enda hefði starfið mik- inn og góðan tilgang drengjum til heilla. Þeir töldu það hollt fyrir drengi að komast úr þéttbýlinu og dvelja úti í náttúrunni við holla iðju og hvíla sig á videói og sjónvarps- glápi um tíma. Mikilvægast væri þó að geta sáð hinu góða sæði, orði heilagrar ritningar, í hjörtu drengjanna. Foringjarnir, sem flest- ir eru menntaskólanemendui', sögðu að þeir sem störfuðu sem foringjar, gerðu það fleiri sumur, enda hlytu þeir mikla þjálfun og lærdóm í þessu starfi. Áður en fyrsti flokkur- inn kemur þurfa þeir að fara á námskeið, sem haldið var fyrir þá af KFUM. Vinnuflokkar Rétt eftir kvöldmatinn renndi hópur gamalla Skógarmanna í hlað- ið með formanninn, Ársæl Aðal- bergsson, í broddi fylkingar. Þeir sögðust vera komnir í vinnuflokk. Er ég spurði Ársæl, hver væri að- alástæðan fyrir því, hve vel hefði gengið að reka sumarstarfið í Vatn- askógi, taldi hann hana ekki síst vera fólgna í góðum og trúföstum hópi manna, sem ávallt væru boðn- ir og búnir að leggja starfinu þar lið. Öll viðhaldsvinna og mestur hluti vinnu við framkvæmdir 'á staðnum væri unnin í sjálfboða- vinnu. Af þeim sökum væru dvalar- gjöld ekki hærri en þau er'u. „Þó hefðum við viljað geta haft þau enn lægri, svo að peningar þyrftu ekki að hindra neinn í að senda drengina sína þangað, en þá þyrftu að konia til framlög úr opinberum sjóðum. Væri ekki úr vegi að styrkja starf Skógarmanna og annarra sumar- búða KFUM & K eins og annað æskulýðs- og íþróttastarf," sagði Ársæll. Það var auðheyrt að mikill hugur er í Skógarmönnum að bæta að- stöðuna sífellt betur. Seinni hluta sumars heíjast mjög miklar og fjár- SERLA Soft, hvítur. 4 eða 8 rúllur í pakka. SERLA Soft, gulur, bleikur og hvítur. 2 rúllur í pakka. SERLA Toilet, gulur. 6 eða 12 rúllur í pakka. 100% endurunninn pappír-SERLA Nature Friendly, náttúruhvítur. 9 rúllur í pakka. AAeisaSerla handfang ■ Ss ÍÍKÍA' , » ... mruHE FRtPtíóiy § handfang imi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.