Morgunblaðið - 28.06.1990, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JUNI 1990
Semjið upp á nýtt
UTI
MÁLNING
Grípandi
málning
á grípandi
verði
eftir Vilhjálm
Egilsson
Samningur ríkisins og BHMR er
þannig að aldrei verður hægt að
standa við hann. Þessi staðreynd
hefur ekki komið nægilega vel fram
í þeirri orrahríð sem nú stendur á
milli samningsaðilanna enda bera
þeir ábyrgð á samningnum hvor að
sínu leyti.
I samningnum er gert ráð fyrir
því að BHMR-félagar fái dijúgar
hækkanir umfram aðra á vinnu-
markaðnum næstu fjögur árin en
þó kveður samningurinn svo á að
„standa skuli að umræddum breyt-
ingum með þeim hætti að ekki valdi
röskun á hinu almenna launakerfi
í landinu". Þetta er að sjálfsögðu
hrein endaleysa og ríkið notar þetta
ákvæði til þess að ákveða að launa-
hækkanir til BHMR eigi ekki að
koma til framkvæmda nú. BHMR
segir svo ríkið rangtúlka samning-
inn en það er athyglisvert að BHMR
reynir aldrei að skýra hvað þessi
sérkennilegi fyrirvari um röskun á
hinu aímenna launakerfi þýði.
Hringavitleysa
í samningi ASÍ og VSÍ fr'a febrú-
ar sl. er tekið fram að forsenda
þess samnings sé „að launaþróun
annarra verði sú sama og gert er
ráð fyrir í sámningi þessum." For-
ysta ASÍ hefur ítrekað áréttað að
hækki aðrir hópar launafólks meira
en félagsmenn ASÍ muni samningar
teknir til endurskoðunar strax í
nóvember ,jafnvel þótt forsendum
febrúarsamninganna væru þar með
raskað" svo vitnað sé til svarbréfs
forseta ASÍ til BHMR í síðustu viku.
Hækki laun BHMR-félaga hinn
1. júlí mun ASÍ sækja tilsvarandi
hækkun og BSRB situr' varla hjá
heldur, ekki síst þar sem félags-
menn beggja heildarsamtaka opin-
berra starfsmanna vinna hlið við
hlið og vinna sömu störf í ýmsum
tilvikum. Dettur einhveijum í hug
að BSRB sitji hjá?
Kauphækkun umfram ASÍ/VSÍ-
samninginn í febrúar sem BSRB
og ríkið gerðu líka að sínum mun
að sjálfsögðu raska öllum forsend-
um þess samnings. Ef ekki gerðist
annað en það að laun hækkuðu 3%
umfram það sem gert var ráð fyrir
í febrúarsamningnum raskast
gengisforsendurnar og þar með
verðlagsforsendurnar. Verðbólgan
færi aftur á skrið með víxlhækkun-
um launa og verðlags og yrði líklega
um 15% í lok ársins. Meiri launa-
hækun til BHMR sem ASÍ og BSRB
fengju líka þýddi svo enn meiri
verðbólgu.
Það sem skiptir mestu máli í
þessu máli er að hækki laun hjá
ASÍ og BSRB í kjölfar hækkunar
BHMR hinn 1. júlí getur BHMR
gert tilkall til kauphækkana að
nýju til jafns við það sem gerst
hefur hjá ASÍ og BSRB. Samningur
ríkisins og BHMR gerir nefnilega
ráð fyrir því að BHMR fái til sín
allar launahækkanir sem verða á
aimennum vinnumarkaði auk hinn-
ar sérstöku launahækkunar hinn
1. júlí.
Afar ólíklegt er að ASÍ og BSRB
sitji hjá við þá launahækkun frekar
en þá fyrri. Þau samtök hljóta að
krefjast að nýju launahækkunar til
þess að jafna metin. BHMR getur
svo aftur krafist þeirrar launa-
hækkunar til sín og þannig koll af
kolli. Ef samkomulag væri gott
milli allra aðila um að láta endur-
skoðun samninga ganga fljótt fyrir
sig gætu hóparnir hækkað um
3%-9% annan hvorn mánuð. Verð-
bólgan færi umsvifalaust á ótrúlegt
skrið og öll launakerfi landsins
færu í rúst. Staðið væri við samn-
ingana um launahækkanir en kaup-
mátturinn og lífskjörin hryndu.
Samningurinn alis-
herjar afleikur
Gagnkvæmar viðmiðanir af
þessu tagi ganga einfaldlega ekki
upp og því er einfaldlega ekki hægt
að standa við samning BHMR og
ríkisins.
Af hveiju var þá verið að semja
með þessum hætti? Datt samnings-
aðilum e.t.v. í hug að aðrir hópar
launþega myndu fallast á umfram-
hækkanir til BHMR án þess að
gera tilkall til hins sama? Ef þetta
hefur verið meiningin og á daginn
kemur að aðrir hópar sætta sig
ekki við umframhækkanir til
BHMR þá hefur ríkisstjómin rétt
fyrir sér I deilunni við BHMR. Ef
samningsaðilar hafa haft eitthvað
annað í huga með fyrirvaranum um
röskun á launakerfum þá væri fróð-
legt að fá það upplýst og eins þá
líka hvað þessi fyrirvari þýði?
Samkvæmt samningi sínum á
BHMR að fá allar þær hækkanir
sem verða á almennum vinnumark-
aði næstu fjögur árin auk hinna
sérstöku umframhækkana. Því
virðist svo sem að BHMR hafi ætl-
að að fara í frí og láta ASÍ og
BSRB semja fyrir sig á þessum tíma
meðan umframhækkanir hlæðust
sjálfkrafa upp. Reyndar er mikill
kjaradómssvipur á samnings-
Vilhjálmur Egilsson ,
„Heiðarlegast væri af
báðum samningsaðilum
að viðurkenna að samn-
ingur þeirra hafi verið
mistök o g hreinlega
nema hann úr gildi og
gera alveg nýjan samn-
ing. Ef það gengur ekki
upp er næst besti kost-
urinn að samningurinn
verði afiiuminn með
lagasetningu og þá
verði sest að samninga-
borði á nýjan Ieik.“
ákvæðum um úrskurð um hækkan-
ir þar sem oddamaður er fenginn
til að skera úr deilumálum og for-
sendur um viðmiðanir og almenna
launaþróun svipaðar og í gamla
kjaradómskerfínu að öðru leyti en
því að umframhækkanirnar eiga að
vera nokkuð tryggar.
BHMR fór í sex vikna (launað)
verkfall til þess að ná þessum samn-
ingi. Samningsaðilarnir hafa verið
orðnir svo lúnir eftir þrefið að samn-
ingurinn sem slíkur sé einn allsheij-
afleikur.
Heiðarlegast að semja aftur
Efnislega hefur ríkisstjómin rétt
fyrir sér. Umframhækkanir til
BHMR geta ekki gengið upp vegna
þess að aðrir hópar vilja og eiga
rétt á sömu hækkunum sem þýðir
að enginn hækkar í raun þegar upp
er staðið.
Ríkisstjórnin hefur hins vegar
haldið afspyrnu illa á málinu. Yfir-
lýsingar um frestun umframhækk-
ana og að hún ætli sér að standa
við samninginn einhvern tíma
seinna eru ótrúverðugar vegna þess
að það er ekki hægt að standa við
samninginn. Síðan hefur ríkis-
stjórnin tæplega umboð til þess að
lofa miklu um eitt eða annað eftir
apríl á næsta ári þegar kjörtímabili
hennar lýkur.
Þess vegna hefur ríkisstjórnin
fengið mun fleiri á móti sér í þessu
máli en þyrfti að vera einmitt með
því að gefa falsvonir um að hægt
sé að standa við samninginn.
BHMR er ekki saklaust heldur.
BHMR hefur aldrei svarað því hvort
það telur geta gengið upp að fá
hækkanir umfram ASÍ og BSRB
næstu fjögur árin. í raun er ótrú-
legt að forráðamenn BHMR hafi
skrifað undir samninginn í góðri trú
um að við hann yrði staðið. Ef for-
ráðamenn BHMR hafa verið svo
barnalegir er það hrein móðgun við
háskólamenntun þeirra.
Heiðarlegast væri af báðum
samningsaðilum að viðurkenna að
samningur þeirra hafi verið mistök
og hreinlega nema hann úr gildi
og gera alveg nýjan samning. Ef
það gengur ekki upp er næst besti
kosturinn að samningurinn verði
afnuminn með lagasetningu og þá
verði sest að samningaborði á nýjan
leik.
Höfundur er framkvæmdustjóri
Verzlunarráðs íslands.
Framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins:
Undirbúningur kosn
inga hefiist strax
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins telur undir þá skoð-
un, að mögulegt sé að flýta lands-
fundi flokksins og halda hann i
janúar 1991. Svavar Gestsson
menntamálaráðherra segir að
framkvæmdastjórnin hafí tekið
undir það einum rómi, að ástæða
sé að hafa áhyggjur af flokknum
og stöðu hans um þessar mundir.
Síðumúia 15, sími 84533
Á fundi framkvæmdastjórnarinn-
ar síðastliðinn mánudag var sam-
þykkt ályktun, með öllum greiddum
atkvæðum gegn einu, þar sem talin
er brýn nauðsyn á að undirbúningur
næstu alþingiskosninga verði haf-
inn sem fyrst og að því unnið að
full eining verði um framboð og
stefnuskrá Alþýðubandalagsins í
komandi kosningum. í þessu skyni
verði undirbúningur næstu kosn-
inga til umræðu í öllum stofnunum
flokksins, þar á meðal kjördæmis-
ráðum og flokksfélögum, næstu tvo
mánuði.
Þá samþykkti stjómin að boða
til annars miðstjórnarfundar í
ágústlok eða byijun september, þar
■ YFJRLITSSÝNING á
íslenskri höggmyndalist til ársins
1950 stendur yfir á Kjarvalsstöð-
um í öllu húsinu helgina 30. júní
til 1. júií. Á sýningunni eru verk
eftir Einar Jónsson, Ásmund
Sveinsson, Sigurjón Ólafsson,
Gunnfríði Jónsdóttur, Guðmund
frá Miðdal, _ Ríkharð Jónsson,
Magnús Á. Árnason, Nínu Sæ-
mundsson og Martein Guðmunds-
son. Sýningin er framlag Kjarvals-
staða til Listahátíðar í Reykjavík
1990. Kjarvalsstaðir eru opnir
sem tekin verði afstaða til þess
hvort endanlegar ákvarðanir um
kosningaundirbúning verði teknar
á sérstakri ráðstefnu miðstjórnar
eða landsfundi í janúar 1991. Að
öllu jöfnu á landsfundur flokksins
að vera haustið 1991.
Svavar Gestsson menntamála-
ráðherra sagði við Morgunblaðið,
að það væri skoðun framkvæmda-
stjómarinnar að allar stofnanir
flokksins þurfi að ræða um þann
vanda sem Alþýðubandalagið stæði
frammi fyrir eftir aðdraganda og
niðurstöðu sveitarstjórnakosning-
anna í vor.
Svavar sagði að framkvæmda-
stjórnin tæki einnig undir það sjón-
armið sem fram hefði komið frá
mörgum félögum, meðan annars
Alþýðubandalaginu f Reykjavík, að
landsfundur í janúar hljóti að vera
á dagskrá sem hugsaniegt úrræði
til að taka á vandamálum flokks-
ins. „Það er auðvitað mjög mikil-
vægt að framkvæmdastjórnin skuli
komast að þessari niðurstöðu á
þessu stigi málsins," sagði Svavar.
Hann sagði aðspurður að ef
landsfundinum yrði flýtt, yrði þar
tekin fyrir stefna flokksin, kosn-
ingastefnuskrá og að sjálfsögðu
forysta flokksins og lög hans. Svav-
ar sagði að þessi mál yrðu rædd
rætyi^ega á miðstjprnarfundi flokks-