Morgunblaðið - 28.06.1990, Side 19

Morgunblaðið - 28.06.1990, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 1990 leiðinni, því að þeir kenna sig ýmist við fijálshyggju eða félagshyggju og sjá ekkert annað og veltur hvor hyggjan á hinni. En bót er oss heit- ið ef bilar ei dáð. Nú ætti HH að taka sig til, ganga í íslenzka stjórn- málaflokka einn af öðrum, og fá þá til að leggja sjálfa sig niður ein- um rónii. Það mundi taka hann rétta viku.1 Svo sjáum við hvað set- ur. Með þessu mundi margur vandi leysast. Frjálshyggja og félags- hyggja eiga ekkert erindi við Islend- inga lengur fremur en þversum og krussum. Hagfræðingar og aðrir háskólamenn hafa sýnt fram á það með glöggum rökum, ekki sízt hér í Morgunblaðinu, að sala veiðileyfa á fijálsum markaði sé eitt biýnasta hagsmunamál íslenzks atvinnulífs og þar með íslenzkrar alþýðu. Hvað skyldu félagshyggjudraugarnir og fijálshyggjudraugarnir í stjórn- málaflokkunum hafa um þetta að segja? Jú, félagshyggjudraugarnir segja að verzlun á fijálsum mark- aði sé ekkert nema fijálshyggja og komi ekki til nokkurra mála. Fijáls- hyggjudraugarnir segja að sameign þjóðarinnar á fiskimiðunum, sem er meginforsenda veiðileyfamark- aðar, sé römm félagshyggja, nánar tiltekið sameignarstefna, og þar með er til dæmis Matthías Johann- essen orðinn úthrópaður kommún- isti í sínu eigin blaði, að mér skilst, af því að hann er hallur undir há- skólastefnuna um veiðileyfi alveg eins og ég. Ég eftirlæt mínum elskulega vini Helga Hálfdanarsyni — eða sjálfum HH hver sem hann er — að finna út hvað er þversum og hvað er krussum í stjórn fiskveiða. Ég hef engan áhuga á því fremur en _ á fijálshyggju og félagshyggju. Ég pípi á það allt saman. Hins vegar þótti mér fróðlegt að sjá Björn Bjarnason hafa það eftir Gorbatsjov forseta í Morgunblaðinu 21sta júní að fijáls markaður sé ávöxtur sið- menningar en hvorki uppfinning kapítalista né mótsetning við kommúnismann. Það skyldi nú ekki vera eitthvað til í þessu hjá karli? Það sýnist mér í fljótu bragði geta verið. Þess vegna skora ég á HH að siðmennta þjóðina nú þegar með því að láta stjórnmálaflokkana leggja sig niður. SOPUR Handkeyrð sópvél „Hako Flipper" með tankfyriróhreinindi. Fimm sinnum fljótari en með strákústi. 15002sópgetay á klst. Hako ÍÍÍSTAl Nýbýlavegi 18, sími 91-641988 GARÐPLÖNTU- 20-50% afsláttur Nú gefst einstakt tækifæri til að gera góð kaup á trjáplöntum og sumarblómum. Allargarðplönturá 20-50% afslætti meðan birgðirendast. DÆMI UM VERÐ Stjúpur og öll minni sumarblóm. Petúníur...................... Gljávíðir í pottum............ Glansmispill í pottum......... Hansarósir.................... Fjölærar plöntur.............. Alaskavíðir................... Himalayaeinir................. Grænmetisplöntur.............. Aður kr. ...X-. $,-■ DSÉ!,-. 3X-. <&-■ Núkr. .39,- ,149,- .126,- .296,- .548,- .238,- ...72,- .768,- ...25,- ^SPRENGI - MARKAÐSTORGIÐ Meiriháttar markaður með allan fatnað - Laugavegi 25 Verðdæmi: Sportskór Krumpugallar frá kr. 2.000 Stuttbuxur Bolir 300 Jogginggallar .... .... frákr. 1.500 Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10 -14. Komið og lítið á eitt-hundrað-krónu markaðinn þar sem 100 kallinn er í fullu verðgildi. Sprengi-markaðstorgið Laugavegi 25 Sími 132 85.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.