Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JUNI 1990
37
Ingibjörg Sigfús-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 17. mars 1952
Dáin 10. júní 1990
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál)
Með fáeinum orðum viljum við
minnast Ingibjargar Sigfúsdóttur
skólasystur okkar sem útskrifaðist
með okkur þann 29. maí 1990. Það
var mikið áfall að frétta að nú hef-
ur verið höggvið skarð í þennan hóp.
Ingibjörg var sterkur persónu-
leiki, hreinskiptin og ákveðin og
kom ævinlega til dyranna eins og
hún var klædd. Ingibjörg var ætíð
létt og hress í tímum og komm oft
af stað umræðum um námsefnið.
Hún var áhugasöm um námið og
stundaði það af miklum dugnaði,
þrátt fyrir að hún þyrfti einnig að
sinna heimilinu og atvinnu sinni.
Kirkjuhátíð á
Ospakseyri
ÞESS verður minnst við hátíðar-
messu á Ospakseyri í Bitru sunnu-
daginn 1. júlí að liðin eru 50 ár
frá vígslu kirkjuhússins þar.
Gamla kirkjan, sem var timburhús
frá 1877, var tekin ofan vorið 1940
og steinsteypt kirkjuhús reist á
sama grunni.
Yfirsmiður var Gísli Gíslason bóndi
í Gröf í Bitru. Herra Sigurgeir Sig-
urðsson biskup vígði kirkjuna og
þjónuðu við athöfnina nokkrir
prestar auk hans og sóknarprestsins,
séra Jóns Brandssonar prófasts í
Kollaljarðamesi.
Árið 1951, er séra Jón lét af störf-
um fyrir aldurs sakir, 75 ára, varð
Ospakseyrarkirkjan annexía frá
Prestsbakka í Hrútafirði sem verið
hafði fyrir 1885. Sóknarmörkin eru
hin sömu og sveitarinnar síðan
Broddaneshreppi var skipt í Fells-
og Óspakseyrarhrepp 1886.
Við guðsþjónustuna á sunnudag
predikar biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, en séra Kristján Björnsson
í Breiðabólsstaðarkalli og séra Bald-
ur Sigurðsson á Hólmavík þjóna fyr-
ir altari ásamt fyrrverandi og núver-
andi sóknarprestum kirkjunnar, séra
Yngva Þ. Árnasyni og séra Ágústi
Sigurðssyni. Guðrún Kristjánsdóttir
organisti stýrir söng kirkjukórsins,
sem syngur m.a. hátíðarsöngva séra
Bjarna Þorsteinssonar.
Legsteinar
Framleiðum allar
stærðir og gerðir
af legsteinum.
Veitum fúslega
upplýsingar og
ráðgjöf um gerð
og val legsteina.
Ífi S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
■ SKEMMUVEGI48. SIMt 76677
Fróöleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Var það okkur sem yngri erum
mikil hvatning í okkar námi. Ingi-
björg lauk námi sínu nú um árarnót-
in en svo mikill var námsáhugi
hennar að þrátt fyrir að hafa lokið
tilskildum áföngum til stúdents-
prófs þá tók hún einn áfanga um
skógrækt á vorönn.
Þegar komið var að því að fagna
námslokum og „dimmitera" saman,
tók hún þátt í því að lífi og sál og
opnaði heimili sitt fyrir okkur öllum.
Mikil gleði ríkti þennan dag og
kynnin urðu öðrijvísi en á venjuleg-
um kennsludögum þegar setið var
yfir skólabókunum.
utskriftardagurinn var stór dag-
ur, fyrir okkur öll. Langþráðum
áfanga var náð, stúdentsprófið í
höfn.
Stutt er á milli gleði og sorgar
og skyndilega er komið að því að
kveðja einn úr hópnum. Ingibjörg'
hefur verið kölluð burt af þessari
jarðvist til að gegna öðru hlutverki.
Ég veit þú heim ert horfin nú
og hafin þrautir yfir,
svo mæt og góð, svo tiygg og trú,
svo tállaus, falslaus reyndist þú,
ég veit þú látin lifiri .
(S. Sigurðsson)
Við þökkum Ingibjörgu sam-
fylgdina og biðjum góðan Guð að
styrkja alla fjölskyldu hennar í þess-
ari miklu sorg.
Samstúdentar
t
Fósturmóðir, tengdamóðir, systir og amma okkar,
ANNA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR
frá Flatey á Breiðafirði,
sem andaðist 21. júní, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 30. júní kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á á St. Fransiskusar-
sjúkrahúsið í Stykkishólmi eða aðrar líknarstofnanir.
Sætaferð verður frá BSÍ sama dag kl. 9.00.
Ólöf Hannesdóttir,
Þórhallur Sigjónsson, v
Katrin Guðgeirsdóttir,
Sæmundur Björnsson,
systur og barnabörn.
Þakka auðsýnda samúð við andlát konu minnar,
RAGNHILDAR S. GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Kaldrananesi.
Einar Sverrisson og börn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGUNNAR P. JÓHANNSSON
frá Finnsstöðum í Eiðaþinghá.
Hallbjörn Jóhannsson,
Anna Kristín Jóhannsdóttir,
Sigurveig Jóhannsdóttir,
Guðrún Jóhannsdóttir,
Jóhann Jóhannsson,
Friðjón Jóhannsson,
Asdís Jónsdóttir,
Ástvaldur Kristófersson,
Óli Jóhannsson,
Guðný Kristjánsdóttir, *
Sigríður Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þú tjaldar ekki til einnar nætur
í tjaldi frá
Skátabúðinni
Skátabúðin býður ótrúlegt
úrval af íslenskum og erlend-
um tjöldum. Allt frá eins
manns göngutjöldum til stórra
fjölskyldutjalda. Sérþekking
okkar í sölu og meðferð á
tjöldum sem og öðrum úti-
verubúnaði er þín trygging.
Við hjá Skátabúðinni viljum
geta sagt að „þú tjaldir ekki
til einnar nætur" í tjaldi frá
okkur.
-3MMR fRAMÚR
SNORRABRAUT 60 SÍM112045
4":