Morgunblaðið - 28.06.1990, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDÁGUR 28. JÚNÍ 1990
TENNIS/WIMBLEDON
Sýnt beint frá
úrslitaleikjum
ÚRSLITALEIKIR í einliðaleik
karla og kvenna á Wimbledon
mótinu í tennis, sem nú er
nýhafið, verða sýndir beint í
ríkissjónvarpinu.
mr
Urslit í kvennaflokki verða
laugardaginn 7. júií og í
karlaflokki daginn eftir. Leikirnir
hefjast báðir kl. 13.00. Þess má
geta til gamans að þetta verður
ekki eina íþróttaefnið í sjónvarp-
inu þessa daga — á laugardegin-
um verður sýndur beint leikurinn
um þriðja sætið í HM í knatt-
spyrnu og sjálfur úrslitaleikurinn
á sunnudeginum.
„Við höfum verið að reyna að
fjölga beinum útsendingum, bæði
erlendis frá og héðan að heiman.
Þetta er í fyrsta skipti sem við
sýnum beint frá Witnbledon og
það markar ákveðna braut. Okkur
var gert gott tilboð, og segja má
að þessar útsendingar frá mótinu
séu mikiu ódýrari fyrir okkur en
að senda beint einn hálfleik frá
1. deildinni í knattspyrnu eða
hluta ftjálsíþróttamóts, svo dæmi
séu tekin," sagði lngólfur Hann-
esson, deildarstjóri íþróttadeildar
Sjónvarps, við Morgunblaðið.
HANDBOLTI
Leikið gegn Kuvait í kvöld
Alþjóðlega handknattleiksmótið í Hafnarfirði hefst í kvöld með leik
Islands og Kuvait kl. 18 í íþróttahúsinu í Kaplakrika. Danmörk og
Noregur taka einnig þátt í mótinu og mætast þjóðirnar kl. 20.30.
„Við verðum að fara varlega gegn Kuvait. Við þekkjum lítið til liðsins
en vitum að það getur komið á óvart. En við ætlum okkur sigur og ég
er bjartsýnn á að strákarnir standi sig,“ Þorbergur Aðalsteinsson, þjálf-
ari íslenska landsliðsins.
KNATTSPYRNA
Tommamótið hafið
Tommamót Týs, það sjöunda í röðinni, var sett í gærkvöldi. Skrúð-
ganga allra iiðanna, 24, var farin frá barnaskólanum og inn á Há-
steinsvöll þar sem mótið var sett. Sveinn Björnsson, forseti ÍSÍ, var heið-
ursgestur á opnuninni. Eftir að mótið hafði verið sett var sýnt listflug
og fallhlífarstökk. Einnig var dreift 2.000 karamellum úr
Frá Sigfúsi flugvél við mikinn fögnuð mótsgesta. Stjörnulið Omars
Gunnari Ragnarssonar var mætt til leiks að vanda, lék nú við morg-
Guðmundssyni un|iana úr sundlauginni í Eyjum og rúllaði þeim upp! I dag
1 yJum hefjast síðan leikir og verður leikið á fjórum grasvöllum,
samtals 64 leikir. Sömu lið og undanfarin ár eru mætt til leiks að því
undanskildu að Leiknismenn mæta ekki núna en í þeirra stað kemur Þór
frá Akureyri. Þátttakendur eru um 700.
IÞROTTAHATIÐ ISI
Opnunarathöfn á
Laugardalsvelli
Opnunarathöfn íþróltahátíðar ÍSÍ verd-
ur á aðalleikvanginum í Laugardal í
kvöld. Um 6.000 manns munu taka þátt í
athöfninni, en aðgangur er ókeypis. Dag-
skráin verður eftirfarandi:
Kl. 19:45
30 hestamenn koma inn á Laugardalsvöll
á fákum sínum og ríða tvo hringi í kringum
völlinn.
Kl. 19:50
KUBBUR
ER TAKMARKIÐ
PÚSLAÐU
HUGSAÐU
KUBBAÐU
ALVÖRU LEIKFANG
FYRIR ÞÁ SEM GETA HUGSAÐ
6 LITIR = 6 STYRKLEIKAR
3.500 böm á lcikskólaaldrí ganga inn á
völlinn og sleppir hvort barn blöðru þegar
hátíðin verður fonnlegn sett.
Kl. 20:00
Innganga fulllrúa séisambanda, Iþrótta-
bandalaga og héraðssambanda.
Kl. 20:25
Sveinn Björnsson, foraeli ÍSÍ, flyturávarp.
Kl. 20:35
Vigdís Finnbogadóltir, forseli íslands, setur
íþróttahátíð 1990. Að lokinni setningu verð-
ur þjóðsöngur íslands leikinn og fáni
íþróttahátíðar dreginn að húni.
Kl. 20:40
Leikskólabörn syngja og dansa.
Kl. 20:45
Hópatriði 1.000 knattspyrnu-oghandknatt-
leiksbarna með bolta.
Kl. 20:50
150 ungir kai’atemenn sýna hópatriði.
Kl. 20:55
Fimleikafólk sýnir hópatriði. Stsei’sta hóp-
fímleikaatriöi, sem sýnt hefur verið áíslandi.
Kl. 21:15
Opnunarhátíðinni lýkur með flugeldasýn-
ingu.
Knattspyrna
í 4. flokki kaila leika lið Norður- og
Vesturlands kl. 17 á Haukavelli og á sama
tima lið Suður- og Austurlands í 5. flokki
í Garðabai. Drengjalandsliðið mætir úivals-
liði á Laugardalsvelli kl. 17.30 og kl. 17.45
mætir Norðurland Vesturlandi í 5. flokki
karla í Garðabæ.
Handknattleikur
Alþjóðlegt mót i handknattleik hefst í
i[)róttahúsinu í Kaplakrika kl. 18 með leik
Islands og Kuvait. Noregur og Danmörk
mætast svo kl. 20.30.
Blak
Öldungamót BLÍ í karla- og kvennaflokki
hefst í íþróttahúsi Hagaskólans kl. 20.
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
ÚRSLIT
Valur-KR 2:1
Valsvöllur, Islandsmótið í knattspyrnu, 1.
deild — Hörpudeild — miðvikudaginn 27.
júní 1990.
Mörk Vals: Ingvar Guðmundsson (12. og
38.).
Mark KR: Pétur Pétursson (81.).
Gult spjald: Baldur Bragason, Val.
Dómari: Gylfi Orrason. Dæmdi vel.
Línuverðir: Eyjólfur Ólafsson og Gísli Jó-
hannson.
Ahorfendur: Um 850.
Lið Vals: Bjarni Sigurðsson, Þorgrímur
Þráinsson, Magni Blöndal Pétursson, Sævar
Jónsson, Einar Páll Tómasson (Arnatdur
Loftsson 63.), Þórður B. Bogason, Snævar
Hreinsson, Ingvar Guðmundsson, Bergþór
Magnússon (Amundi Sigmundsson 78.),
Baldur Bragason, Antony Karl Gregory.
Lið KR: Olafur Gottskálksson, Sigurður
Björgvinsson, Atli Eðvaldsson, Þormóður
Egilsson, Gunnar Skúlason, Rúnar Kristins-
son, Hilmar Björnsson, Þorsteinn Halldórs-
son (Sigurður Ómarsson 80.), Arnar Arnar-
son, Ragnar Margeirsson (Björn Rafnsson
36.), Pétur Pétursson.
ÍA-Þór 3:1
Akranesvöllur, Islandsmótið í knattspyrnu,
1. deild — Hörpudeild — miðvikudaginn 27.
júní 1990.
Mörk ÍA: Haraldur Ingólfsson (23.), Guð-
björn Tryggvason (33. vsp.), Bjarki Péturs-
son (53.)
Mörk Þórs: Bjarni Sveinbjörnsson (70.)
Gult spjald: Nói Björnsson og Árni Þór
Árnason, Þór.
Rautt spjald: Ekki gefið.
Dómari: Ólafur Lárusson og átti slakan
dag.
Línuverðir: Ólafur Hákonarson og Einar
Guðmundsson.
Áhorfendur: Um 650.
Lið ÍA: Gísli Sigurðsson, Jóhannes Guð-
laugsson, Heimir Guðmundsson, Alexander
Högnason, Sigurður B. Jónsson, Brandur
Siguijónsson, Karl Þórðarson, Sigursteinn
Gíslason, Bjarki Pétursson, Guðbjörn
Tryggvason, Haraldur Ingólfsson (Arnar
Gunnlaugsson 74.)
Lið Þórs: Friðrik Friðriksson, Lárus Orri
Sigurðsson (Sævar Árnason 81.), Siguróli
Kristjánsson, Nói Björnsson, Luka Kostic,
Þorsteinn Jónsson, Sigurður I.árusson, Árni
Þór Árnason, Bjarni Sveinbjörnsson, Ólafur
Þorbergsson (Júlíus Tryggvason 64.), Hlyn-
ur Birgisson.
KA-ÍBV 1:1
Akureyrarvöllur, íslandsmótið í knatt-
spyrnu, 1. deild — Hörpudeild — miðviku-
daginn 27. júní 1990.
Mark KA: Ormarr Örlygsson (78. vsp.)
Mark ÍBV: Ingi Sigurðsson (75.)
Gult spjald: Ormarr Örlygsson, KA. Andrej
Jerina og Tómas Ingi Tómasson, ÍBV.
Rautt spjald: Ekki gefið.
Áhorfendur: 600 greiddu aðgang.
Dómari: Ólafur Sveinsson.
Línuverðir: Egill Már Markússon og Svan-
laugur Þorsteinsson.
Lið KA: Haukur Bragason, Steingrímur
Birgisson, Halldór Halldórsson, Gauti Lax-
dal, Bjarni Jónsson, Heimir Guðjónsson,
Ormarr Örlygsson, Jón Grétar Jónsson,
Hafsteinn Jakobsson, Kjailan Einarsson,
Þórður Guðjónsson.
Lið ÍBV: Adolf Óskarsson, Friðrik Sæ-
björnsson, Heimir Hallgrímsson, Elías Frið-
riksson, Jón Bragi Árnason, Bergur Ágústs-
son, Andrej Jerina, Ingi Sigurðsson, Hlynur
Stefánsson, Tómas Ingi Tómasson, Sigurlás
Þorleifsson.
FH-Fram 2:1
Kaplakrikavöllur, Islandsmótið í knatt-
spyrnu, 1. deild — Hörpudeild — miðviku-
daginn 27. júní 1990.
Mörk FH: Hörður Magnússon (38. mín.)
og Pálmi Jónsson (85. nún.)
Mark Fram: Pélur Arnþórsson (15. mín.)
Gult spjald: Ólafur Kristjánsson og Guð-
mundur Valur Sigurðsson, FH. Kristján
Jónsson, Frain.
Áhorfendur: 531
Dómari: Gísli Guðmundsson.
Límiverðir: Guðmundur Haraldsson og
Björn Gunnarsson.
Lið FH: Halldór Halldórsson, Birgir Skúla-
son, Andri Maiteinsson, Guðmundur Hilm-
areson, Björn Jónsson, Ólafur Kristjánsson,
Kristján Gíslason, (Magnús Pálsson vm. á
67. mín.), Þórhallur Víkingsson, Hörður
Magnússon, Pálmi Jónsson, Guðmundur
Valur Sigurðsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þorsteinn
Þoi’steinsson, Kristján Jónsson, Jón Sveins-
son, Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson,
Kristinn R. Jónsson, Pétur Arnþórsson,
Anton B. Markússon, (Baldur Bjarnason
vin. á 55. mín.), Ríkharður Daðason, (Jón
Erling Ragnarsson vm. á 67. mín.), Guð-
mundur Steinsson.
Adolf Óskarsson, ÍBV. Halldór Halldórsson,
FII. Ingvar Guðmundsson og Antony Karl
Gregory, Val.
Ingi Sigurðsson, ÍBV. Bjarni Jónsson og
Ormarr Örlygsson, KA. Björn Jónsson, Ól-
afur Kristjánsson og Hörður Magnússon,
FH. Viðar Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson,
Pétur Arnþórsson og Pétur Ormslev, Fram.
Einar Páll Tómasson og Þorgrimur Þráins-
son, Val. Hilmar Björnsson og Sigurður
Björgvinsson, KR.
Morgunblaðiö/KGA
Guðmundur Steinsson var þrívegis nálægt því að skora gegn FH í gær-
kvöldi en tókst ekki. Hér er hann í baráttu við Birgi Skúlason í Kaplakrikanum.
.^ggw-
Sigur á ell-
eftu stundu
Halldór Halldórsson bjargaði FH með
góðri markvörslu
„ÉG er mjög hress með þennan sigur. Það var reglulega kærkom-
ið og nauðsynlegt fyrir okkur að vinna í kvöld. Ef við hefðum
tapað þá blasti fallbaráttan við. Við gerum okkur nú grein fyrir
því að við vinnum ekki nema með mikilli baráttu og hún var til
staðar íkvöld," sagði Halldór Halldórsson markvörður FH, sem
átti stórleik og kom í veg fyrir að Framarar færu með sigur af
hólmi.
Það var Pétur Arnþórsson sem
skoraði fyrsta mark leiksins.
Hann tók boltan viðstöðulaust á
lofti og sendi hann með laglegu
skoti í bláhornið hjá
Skúli Unnar Halldóri markverði.
Sveinsson Fram til þessa hafði
FH sótt mun meira
skrifar
en ekki skapað sér
færi.
Hörður Magnússon jafnaði metin
á 38. mínútu. Varnarmaður ætlaði
að gefa knöttinn á Birki markvörð
en var allt of lengi að því. Hörður
komst framhjá honum, náði knett-
inum og átti ekki í vandræðum með
að skora.
Framarar hófu síðari hálfleik af
miklum krafti. Á fyrstu mínútunum
áttu þeir sex góð marktækifæri en
inn vildi boltinn ekki. Ríkharður
Daðason skaut naumlega framhjá
og Guðmundur Steinsson skapaði
sér þrívegis góð marktækifæri en
boltinn smaug alltaf rétt framhjá.
Pétur Ormslev skaut yfir í sannköll-
uðu dauðafæri og skömmu síðar
varði Halldór meistaralega skot frá
Guðmundi Steinssyni.
Framarar virtust hafa leikinn í
hendi sér en Hafnfirðingar voru á
öðru máli. Hörður gaf fallega send-
ingu inn fyrir vörn Fram. Pálmi
Jónsson náði knettinum og skoraði
af öryggi. Frömurum tókst ekki að
jafna, þrátt fyrir að þeir hafi reynt
ákaft, enda aðeins fimm mínútur
eftir.
Framarar léku ágætlega í síðari
hálfleik en tókst ekki að koma
knettinum framhjá Halldóri. FH-
ingar voru sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik en í þeim síðari vörðust
þeir vel þungum sóknum Fram. Þá
skutust þeir einu sinni í sóknina og
það var nægilegt til að skora.
Halldór markvörður var besti
maður vallarins. Hann bjargaði
nokkrum sinnum meistaralega og
var öruggur í úthlaupum. Björn
Jónsson lék vel í vörninni og þeir
Ólafur Kristjánsson og Hörður
Magnússon áttu góðan dag.
Hjá Fram var Viðar Þorkelsson
sterkur í vörninni. Kristinn R. Jóns-
son og Pétur Arnþórsson börðust
vel á miðjunni og Pétur Ormslev
var drjúgur.