Morgunblaðið - 22.07.1990, Side 8
8
Ý Fl A 4"1 er sunnudagur 22. júlí, 6. sd. eftir Trínitatis.
A UAuSkálholtshátíð. 203. dagurársins 1990. Árdegis-
flóð kl. 6.25 og síðdegisflóð kl. 18.45. Sólarupprás í Rvík
kl. 4.01 og sólarlag kl. 23.05. Sólin er í hádegisstað kl.
13.34 ogtunglið í suðri kl. 14.00. (Almanak Háskóla íslands.)
Þú horfír aðeins á með augunum, sér hversu óguðlegum
er endurgoldið. (Sálm. 91,8.)
HJÓNABAND. Fyrir nokkru voru gefin saman í hjóna-
band í Kópavogskirkju Kristín Baldursdóttir, Mánabraut 10,
Kópavogi, og Richard L. Elsliger, frá Toronto í Kanada. Þar
verður heimili þeirra fyrst um sinn: 100 Preston St. Tor-
onto, Ontario, Canada.
O p' ára afínæli. í dag, 22.
O 0 júlí, er 85 ára Harald-
ur Ó. Briem, Grettisgötu
53b, Rvík. Hann er fyrrum
starfsmaður Pósts og síma,
starfaði þar í um 30 ár. Hann
er frá Eyjum í Breiðdal og
ólst þar upp. Foreldrar hans
bjuggu þar um árabil. Kona
hans var Margrét Sigurðar-
dóttir frá Miklaholtshelli í
Hraungerðishreppi. Þau flutt-
ust til Rvík 1946 frá Eyrar-
bakka. Hún lést árið 1988.
Einkasonur þeirra, Valdimar,
er sálfræðingur og starfar við
háskólann í Lundi. í dag er
Haraldur staddur á Eskifirði,
í Bleiksárhlíð 59.
Q pf ára afmæli. Á morgun,
ÖO mánudag 23. júlí, er
85 ára Kári Tryggvason,
kennari og rithöfúndur,
Sunnuhlið i Kópavogi,
Kópavogsbraut la. Kona
hans er Margrét Björnsdóttir.
Er hún ættuð úr Vopnafirði.
Þau bjuggu um árabil í Víði-
keri í Bárðardal. Þar var hann
kennari. Eins var hann kenn-
ari er þau bjuggu í Hvera-
gerði. Eftir Kára liggur all-
margt ljóða- og barnabóka.
Þau hjón ætla að taka á móti
gestum í sal Sunnuhlíðar-
heimilisins eftir kl. 20.30 á
morgun, afmælisdaginn.
LÁRÉTT: — 1 spé, 5 koma
í veg fyrir, 8 kindurnar, 9
ljúka við, 11 hamingja, 14
ótta, 15 skrifað, 16 borðar
allt, 17 for, 19 skylda, 21
klína, 22 auðsær, 25 væn, 26
forfeður, 27 guðs.
LÓÐRÉTT: — 2 skaut, 3
hreinn, 4 ófúsa, 5 hreyfír, 6
ránfugl, 7 missir, 9 ærið, 10
trúarbrögð, 12 öðlast fródleik,
13 fjalls, 18 fugl, 20 tvíhljóði,
21 eldivið, 23 aðgæta, 24
skammstöfun.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 hlass, 5 kátar, 8 eldur, 9 kalli, 11 nagan,
14 tin, 15 úlfur, 16 urrar, 17 agg, 19 reif, 21 enda, 22
nátengd^ 25 ríg, 26 efa, 27 iði.
LÓÐRÉTT: — 2 lóa, 3 sel, 4 slitra, 5 kunnug, 6 ára, 7
aka, 9 klöðrar, 10 lyfting, 12 gerandi, 13 nartaði, 18 gref,
20 fa. 21 ég. 23 té. 24 Na.
MORGUNBLAÐIÐ PAGBQK ^y.NNjjDAGUR 22. JÚLÍ
Á björtum degi norður við Goðafoss.
Morgunblaðið/Einar Falur
FRÉTTIR/MANNAMÓT
Á MORGUN, 23. júlí, er
vígsludagur Landakots-
kirkju, Kristskirkju í
Reykjavík. Hún var vígð árið
1929. Homsteinn kirkjunnar,
sem allt fram til þess tíma
að Hallgrímskirkja var tekin
í notkun, var stærsta guðshús
á landinu. Teikningar að
Landakotskirkju gerði Guðjón
Samúelsson, húsameistari, en
um smíð hennar hafði yfirum-
sjón Jens Eyjólfsson, bygg-
ingameistari, sem átti heima
inni á Grettisgötu. Hornsteinn
kirkjunnar var lagður í apríl-
mánuði 1927. Það gerði Meul-
enberg, biskup kirkjunnar.
Hann var þýskur, en kom
hingað til lands á vegum kaþ-
ólskrar reglur sem hét Mont-
fort-reglan og starfaði í Dan-
mörku. Á næstunni er vænt-
anleg útgáfa Minningarrits
um Meulenberg biskup.
Kemur það út á vegum kaþ-
ólsku kirkjunnar.
NESKIRKJA. Nk. þriðju-
dagsmorgun er opið hús fyrir
mæður og börn þeirra kl.
10-12, mömmumorgunn.
FÉL. eldri borgara. í dag
er opið hús í Goðheimum við
Sigtún kl. 14. Fijáls spila-
mennska og tafl. Dansað
verður kl. 20. Næstkomandi
miðvikudag er fyrirhuguð
dagsferð til Akraness um
Hvalfjörð. Skráning og nánari
uppl. á skrifstofu félagsins. Á
fimmtudaginn kemur verður
til viðtals á skrifstofu félags-
ins Margrét Thoroddsen frá
Ríkistryggingunum.
LANDMÆLINGAR ís-
lands. Staða forstjóra stofn-
unarinnar auglýsir umhverf-
isráðuneytið lausa til umsókn-
ar í nýju Lögbirtingablaði.
Segir að skipað verði í hana
til 5 ára í senn. Umsóknar-
frestur er settur til 17. ágúst.
Skipað muni verða í stöðuna
frá og með 15. september.
AFLAGRANDI 40, Þjón-
ustumiðstöð aldraðra.
Mánudaginn verður opið hús
frá kl. 13-16.30. Frjáls spila-
mennska. Kaffíveitingar
verða og vinnustofan verður
opin vegna almennrar handa-
vinnu.
PRESTAKÖLL: Í nýjum
Lögbirtingi er tilk. frá biskupi
íslands þess efnis, að nú séu
laus til umsóknar fjögur
prestaköll á landinu. Um-
sóknarfrest um þau setur
biskup til 7. ágúst næstkom:
andi. Prestaköllin eru: í
ReYkj^avíkurprófastsdaemi
Bústaðaprestakall. í ísafjarð-
arprófastsdæmi Kirkjubóls-,
Holts- og Flateyjarsóknir. í
Húnavatnsprófastsdæmi
Skagastrandarprestakall. í
Barðastrandarprófastsdæmi
Tálknafjarðarprestakall
(Stóra-Laugardals-, Haga- og
Bijánslækjarsóknir).
VIÐEYJARFERÐ. í dag
verður farin gönguferð um
Viðey, austureyjuna, þar sem
byggðin var öll forðum. Lagt
verður af stað frá Viðeyjar-
stofu kl. 14.30. Bátsferðin út
í eyjuna er úr Sundahöfn kl.
14. Leiðsögumaður fer fyrir
göngunni.
VESTURGATA 7. Þjónustu-
miðstöð 67 ára og eldri.
Næstkomandi föstudag, 27.
þ.m., verður garðskemmtun
en garðurinn þar er nú í full-
um sumarskrúða. Garð-
skemmtunin hefst á því að
Guðrún Beinsteinsdóttir
leikur sumarlög á píanóið.
Síðan byijar hljómsveit og
leikur danslög en hugmyndin
er að dansað verði úti og inni.
í kaffitímanum verður heitt
súkkulaði með ijóma og með-
læti. Þá verður farið út í garð-
inn. Þar ætlar Guðrún að
stjórna almennum fjöldasöng
nærstaddra. Nokkrir nem-
endur danskennarans Sig-
valda ætla að sýna hvemig
dansa á lance.
FÉL. heyrnarlausra. Dregið
hefur verið í vorhappdrætti
félagsins, en dregið var um
19 vinninga og komu þeir á
þessi númer: 19951, 10456,
22988, 18162, 6109, 8752,
4718, 14735, 18364, 17925,
15853, 18880, 22347, 21671,
24515, 11969, 1426, 22898
og 1416. Vinninga má vitja
á skrifstofu Félags heyrnar-
lausra, Klapparstíg 28.
FRÆÐSLUSKRIFSTOFA
Reykjavikur. Fræðslustjóri
Reykjavíkurunrdæmis aug-
lýsir lausa stöðu forstöðu-
manns rekstrardeildar um-
dæmisins, í nýju Lögbirtinga-
blaði. Umsóknarfresturinn
rennur út í þessari viku, 27.,
en starfið verður laust 15.
ágúst nk.
PÓSTUR OG SÍMI. í Lög-
birtingi auglýsir samgöngu-
ráðuneytið lausa stöðu hjá
Pósti og síma í Reykjavík.
Er það staða útibússtjóra á
Póstsstofunni R-8 en hún er
í póst- og símastöðinni í Ár-
múla 25. Umsóknarfrestur er
settur til 27. þ.m.
FRÆÐSLUDEILD kirkj-
unnar. Biskup íslands, Ólafur
Skúlason, augl. í Lögbirtingi
stöðu fræðslufulltrúa með
búsetu á Norðurlandi. Hann
á að starfa við kirkjulega
fræðslu meðal ákveðinna
hópa, með námskeiðahaldi,
heimsóknum og gerð náms-
efnis. Háskólamenntun og
reynsla af kirkjulegu starfi
er tilskilin. Umsóknarfrestur
er til 7. ágúst.
BRÚÐUBÍLLINN verður á
morgun í Malarási kl. 10 og
í Stakkahlíð kl. 14.
Að undanfömu hefur
mátt lesa eftirfarandi í aug-
lýsingu í dagblöðunum: „Þú
getur stólað á sparisjóð-
ina.“ (Leturbr. hér). Þegar
ég var í skóla, var nemend-
um bent á, að so. að stóla
á e-ð væri dönskusletta og
með öllu óþörf í máli okkar.
Því var strikað yfir hana í
ritgerðum, og annað
íslenzkulegra orð sett í stað-
inn. Og þar er vissulega af
ýmsu að taka. Hér ætti
fremur að segja og rita að
treysta á e-ð eða reiða sig
á e-ð, sbr. lo. traustur og
áreiðanlegur. Ekki hef ég
oft séð menn nota so. að
stóla á prenti, en vissulega
er hún til í lítt vönduðu
mæltu máli og var nokkuð
algeng fyrr á árum og heyr-
SKIPIN_________________
RE YK JAVÍKURHÖFN:
í fyrradag kom Stapafell af
ströndinni og fór aftur sam-
dægurs í ferð. Þá fór Stuðla-
berg á ströndina. í gær kom
togarinn Engey inn af veið-
um til löndunar. í dag er tog-
arinn Ásgeir væntanlegur af
veiðum og Hvítanes er vænt-
anlegt af ströndinni. Þýska
eftirlitsskipið Fridtjof kom í
gær. Þá kom gasflutninga-
skipið Anne Lise Kosan.
ist vissulega enn í talmáli.
Hins vegar er þarflaust fyr-
ir virðulegar stofnanir að
ýta undir notkun hennar,
enda held ég, að sparisjóð-
irnir nái ekki síður athygli
manna með orðalagi eins
og þessu: Þú getur reitt þig
á sparisjóðina eða þú getur
treyst sparisjóðunum. Ég
vænti þess að menn fínni
hér nokkurn mun á, og þá
fremur til. bóta en hitt. I
OH eru vissulega allmörg
dæmi um so. að stóla á e-ð
og hið elzta um 200 ára
gamalt. Jafnvel eru dæmi
um að stóla upp á e-ð. Þrátt
fyrir það rekur engin nauð-
ur til að halda lífi í henni,
þegar rammíslenzk orð eru
í boði.
- JAJ
Þetta er hádegisverðarborð í sumarbúðunum í Ölveri
undir Haftiarfalli. Verið er að láta pylsur á diska telpn-
anna. Eftirvæntingin leynir sér ekki. Enn eru pylsur
meðal þess vinsælasta hjá krökkum á þessum aldri.
Samkeppnin við pizzur, hamborgara og hvað það nú
allt heitir er þó orðin mikil og vaxandi.
ORÐABÓKIN
Þarf að stóla
ú eitthvað?