Morgunblaðið - 22.07.1990, Page 23
ATVINNU/RAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGL YSINGAR
Forstöðumaður
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Reykjanesi óskar eftir
að ráða til starfa forstöðumann að sambýli fatlaðra við
Hrauntungu í Kópavogi. Forstöðumaðurinn hefur umsjón
með faglegu starfi sambýlisisins, þ.e.a.s. þjálfun, meðferð
og umönnun ásamt leiðsögn og aðstoð við þá sem búa á
sambýlinu. Önnur verkefni eru m.a. foreldrasamstarf,
fjármálaumsýsla og starfsmannahald.
Verslunarstörf
Ýmsar verslanir á höfuðborgarsvæðinu óska eftir fólki
til starfa. Um er að ræða fólk til ýmissa starfa í matvöru-
mörkuðum, þar sem boðið upp á hlutastörf eða heils- og
hálfsdagsstörf. En einnig óskast afgreiðslumaður í bóka-
verslun. Er óskað eftir áhugasömum manni sem hefur
stúdentspróf eða háskólamenntun. Þá er óskað eftir
starfsmanni í skódeild Hagkaups.
Framkvtemdastj óri
Opnaður verður nýr skemmti- og veitingastaður í Kringl-
unni 4 í september nk. Staðurinn tekur 600 manns, þar
af allt að 200 matargesti. Leitað er að framkvæmda-
stjóra til að stjórna þessum rekstri. Tekið er fram að
viðkomandi þurfi að hafa reynslu/þekkingu á veitinga-
rekstri. Um er að ræða sjálfstætt og krefjandi starf, þar
sem laun eru samningsatriði.
Fjármálasijóri
Þekkt fyrirtæki f ferðamannaþjónustu óskar eftir að ráða
fjármálastjóra. Leitað er að viðskiptafræðingi, sem vinn-
ur sjálfstætt og skipulega og hefur starfsreynslu af fjár-
málasviði.
Söiumenn
Þeir sem hafa áhuga á sölustörfum ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi, því að margar auglýsingar um
sölumannsstörf eru í blaðinu í dag. Meðal annars er ósk-
að eftir sölumanni til starfa í veiðarfæradeild KÓS, sölu-
fulltrúa hjá þekktu inn- og útflutningsfyrirtæki, sölu-
manni hjá fyrirtæki sem flytur inn og seíur tæknivörur
ýmiss konar, en einnig óskast maður til starfa við sölu
4 t-fllVHhÖfíítðÍ W4 linfti l PWiftsypj pg Marel
eftir §fllRmnnf?i iil siapffi erlep4is.
Rækjukvóti
Óskað er eftir kaupum á rækjukvóta — tekið er fram
að skipti á bolfiskkvóta komi til greina. Símanúmer er
gefið upp, þar sem nánari upplýsingar fást.
Aðalfundur Búseta
Aðalfundur Búseta verður haldinn í Frostafold 18—20,
9. hæð, mánudaginn 23. júlí nk. og hefst hann kl. 20.30.
Tekið er fram að auk venjulegra aðalfundarstarfa verði
lagðar fram tillögur úm breytingar á samþykktum félags-
ins.
I
SMAAUGL YSINGAR
Ferðalög
Ferðist um ísland í sumarleyfinu í góðum félagsskap,
segir í auglýsingu frá Útivist, sem býður ásamt Ferðafé-
lagi íslands ferðir við allra hæfi. Um er að ræða dagsferð-
ir, lengri ferðir t.d. um hálendið, ásamt hjólréiðáferð'um.
Morgunblaðið/Þorkell
Frá undirritun samnings um starfsmenntunarlán fyrir nemendur Skrifstofu- og
ritaraskólans, f.v. Árni Sigfússon framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands og
Jafet Ólafsson útibússtjóri íslandsbanka.
Skrifstofii- og ritaraskólinn:
*
Islandsbanki veitir
starfsmenntunarlán
Allt að 170 þúsund króna lán, sem er afborg-
unarlaust fyrstu 9 mánuðina
ST J ÓRNUN ARFÉL AG íslands og íslands-
banki hafa gert með sér samning um sérstök
starfsmenntunarlán fyrir nemendur Skrif-
stofú- og ritaraskólans. Var samningurinn
undirritaður sl. fimmtudag. Lánstími skulda-
bréfsins er allt að 3 árum og er lánið afborg-
unarlaust fyrstu 9 mánuði eftir útgáfú skulda-
bréfsins. Er hér um merka nýjung að ræða,
þar sem tveir aðilar koma sér saman um slíkt
Ián, án afskipta ríkisvaldsins. Er þetta árang-
ur af tilraun, sem gerð var á síðastliðnum
vpífí MA Íslftitðsbítnkft ftg rftyn4i§t nlðH?-4að-
nn ny'flg[ jnkVfftð, þnnnig nð nkvpðið vnr nð
gangft tn Sftmningfl nm ftðstoð tii nlirn nom-
pnðn Sþrifetftfn- og ritnrnskóiftns:
NPntPílfÍHV Sþfjj'stpfH- flg Fit-
SPJLl PF í Pigfl
Stjórnunarféjags Islands, getfl
fengið lán alll að 170 þúsund krón-
um, eftir umfangi námsins og þera
lápin venjulega útlánsvexti banka,
en lánstíminn er allt að þremur
árum ejns og fyrr segjr. Náms-
mönnum er sjálfum gert að greiða
staðfestingargjald að skólanum,
en síðan lánar bankinn það sem
upp á vantar til greiðslu á. skóla-
gjöldunum. Sagði Jafet Ólafsson
útibússtjóri íslandsbanka að með
samningi þessum væri stigið mikil-
vægt skref í þá átt að bankastofn-
anir veiti einstaklingum sérstakan
stuðning vegna náms og endur-
menntunar, sem tengist atvinn-
ulífinu. Undir þetta tók Árni Sigf-
ússon framkvæmdastjóri Stjórn-
unarfélagsins og benti á, að hér
væri um athyglisverða nýjung að
ræða, þar sem tveir einkaaðilar
kæmu sér saman um lánsfyrir-
greiðslu menntunarmála án af-
skipta ríkisvaldsins. „Við erum
mjög ánægð með að bankastofnun
skuli taka vel í þá viðleitni að
styðja starfsmenntun, sem bein-
tengist atvinnulífinu á þennan
hátt,“ sagði hann.
Flestir nemendur fara í eins árs
nám, en ef menn hafa ákveðið
skólanám að baki geta þeir farið
inn á annað ár, sem er sérhæfð-
ara, og er það ár viðurkennt af
Lánasjóði íslenskra námsmanna.
PviTft Pf liins ypgar ekkl talið
fdlit ndm og pr því pfei lónshmft
hjd WN- „ímð sem gfpinit þpttn
ián M flðrnm pp að vjð gefpm
fólki kflst á að greiða þyflrki af-
hflfgfmir nó ypsti þangnð tii þnð
tipfnr iflkið náminn, að minnstn
kosti fyrri hlntanum," sagði dafpt-
Skólinn starfræktur víða
á landinu
Skrifstofu- og ritaraskólinn hef-
ur verið starfræktur í 16 ár og
segir Árni að mikil aðsókn hafi
verið að skólanum að undanförnu.
120 nemendur voru við nám í
Reykjavík á síðastliðnum vetri, en
einnig hefur skólinn verið starf-
ræktur á Suðurnesjum, Selfossi
og Vestmannaeyjum. „Fleiri staðir
munu væntanlega bætast í hópinn
fyrir haustið. Um er að ræða sam-
hæft námsefni, þannig að nemandi
getur treyst á að fá sömu gæða-
menntun hvar sem hann stundar
námið. Þetta er kostur við að
byggja upp skóla af þessu tagi
sem getur síðan fært sig á milli
staða eða boðið þjónustu víðar,
Auk þess sem jákvætt er að nera
endur geti stundað nám í sinni
heimabyggð," sagði Ámi,- * -
Borgarnes:
Helmingi
fleiri konur
en karlar
fengu atvinnu-
leysisbætur
NÆRRI helmingi fleiri konur en
karlar í Verkalýðsfélagi Borgar-
ness fengu atvinnuleysisbætur í
fyrra. Bætur námu ríflega 12,4
milljónum og runnu til 89 einstakl-
inga. Þetta kom fram í skýrslu
stjórnar á aðalfundi Verkalýðsfé-
lagsins sem haldinn var fyrir
skömmu. Formaður féagsins er
Jón Agnar Eggertsson.
*
Iskýrslunni er fjallað um fjölbreytt
starf félagsins á síðasta ári; útg-
áfu héraðsfréttablaðsins BorgfiríP
ings, margskonar fræðslufundi og
vígslu nýs húsnæðis.
I fréttatilkynningu segir að haldið
hafi verið námskeið fyrir trúnaðar-
menn á vinnustöðum, 25 konur hafi
sótt litgreiningarnámskeið og 45
manns mætt á skrautskriftarnám-
skeiðum. Ekkert námskeið sem fé-
lagið hafi staðið að hafi vakið eins
mikið umtal og athygli og kynfræðsl-
unámskeið sem Jóna Ingibjörg Jóns-
dóttir kynfræðingur leiðbeindi á í
ársbyrjun. Þá segir að efnt hafi ver-
ið til tveggja fræðslufunda um
krabbamein í samvinnu við Krabba-
meinsfélög Borgarfjarðar og íslands.
Alls hafi mætt 140 manns á þessa
fundi.
PatreksQörður:
Mikil vinna en
vantar meiri fisk
PaircksQörður
ÁTVINNúASTÁNB A PitlrpHsr
firði pr ágíPK Hm þps»r nmndir,
pn Þp vnnfyr mpiri fislt: Ádnlá-
sfcpðfin pr ph nfl smmrri þábrr
hftfii phhi rflið mikið vpgnn g<pfe-
ipysi§:
Elnnig vnnfyr stflðnglpilm í hrn-
efnisöflunina vegna þess að eng-
inn togari er hérna. Ekki hefur borið
á atvinnuleysi hjá skólakrökknm og
eru þau annað hvort í fiskvinnslu eða
í vinnu hjá bænum.
— Jónas
1,4% hækkun
launavísitölu
HAGSTOFAN hefur reiknað
launavísitölu fyrir júlímánuð
1990, miðað við meðallaun í júní.
Er vísitalan 116,6 stig eða 1,4%
hærri en í fyrra mánuði.
Samsvarandi launavísitala, sem
gildir við útreikning greiðslu-
marks fasteignaveðlána, tekiír
sömu hækkun og er því 2.552 stig
f ágúst 1990.