Morgunblaðið - 03.08.1990, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990
11
eftirArnþór
Ingólfsson
Frídag verslunarmanna árið
1990 ber upp á 6. ágúst. Verslunar-
mannahelgin er sú helgi ársins sem
telja verður að sé einhver mesta
umferðarhelgi um allt land. Það
hlýtur að vera hveijum manni ljóst
að þegar svo margir nota vegakerfi
landsins á sama tíma þá er það
lífsspursmál í þess orðs fyllstu
merkingu, að þama náist sú sam-
vinna, það samspil á milli allra, að
ekki verði vandræði eða óhöpp af.
Ég fæ með engu móti skilið að
það þurfi að vera einhverskonar
lögmál, að svo og svo mörg umferð-
aróhöpp eða slys verði um verslun-
armannahelgar, jafnvel þótt um-
ferðin sé gífurlega mikil. Það á að
vera hveijum sæmilega vitibornum
manni ljóst að í mikilli umferð þarf
að sýna sérstaka varkárni og að-
gæslu. Það verður að gera, og eru
gerðar, þær kröfur til allra öku-
manna, að þeir hafi til að bera þá
dómgreind að treysta megi því, að
þeir stofni ekki samborgurum
sínum í hættu með gáleysislegri og
ábyrgðarlausri hegðan.
Lögreglan í Reykjavík, og efa-
laust lögreglulið hvar sem er á
landinu, mun um þessa verslunar-
mannahelgi auka eftirlit með um-
■ SKÁ TASAMBAND Reykjn-
víkur og Bandalag íslenskra
skáta í samvinnu við Iþrótta- og
tómstundaráð gengst fyrir ferða-
lögum unglinga á aldrinum 13-17
ára í ágústmánuði. Fyrsta ferðin
er Reykjanesferð. Gengið verður
frá Kleifarvatni, yfir Sveifluháls,
Trölladyngju og Keili. Gist er við
Arnarvatn, en daginn eftir gengið
niður á Vigdísarvelli, þaðan í
Krísuvík og endað í Hverahlíð.
Önnur ferðin er um Hengilssvæðið.
Gengið verður frá neyðarskýlinu á
Hellisheiði að Skarðsmýrarfjalli.
Gist verður í skátaskálum. Gengið
frá Skarðsmýraríjalli um Frem-
stadal og Klettatjarnir niður á
Úlfljótsvatn. Þriðja ferðin er um
Hvalfjörð og Þingvelli. Gengið
frá Botni í Hvalfirði til Þingvalla
um Leggjarbijót. Gist í tjöldum á
leiðinni. Á námskeiðum fýrir ferð-
irnar verða kennd grunnatriði í
ferðamennsku. Upplýsingar eru
veittar hjá Bandalagi skáta.
|{
JAPAN
VIDEOTÖKUVÉLAR
3 LXJX
ÞRÁÐLAUS
FJARSTÝRING
3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM
GEFUR ÞÉR MÖGULEIKA Á AÐ AFSPILA BEINT
VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT, MEÐ ALLRA BESTU
MYNDGÆÐUM. — 3 LUX ÞÝÐA ALLRA BESTU
LJÓSNÆMNI A MYNDBANDSVÉLUM A MARK-
AÐNUM ( DAG. Þ\Ð ER EKKl BARA NÓG AÐ
TALA UM UNSUOPSTÆRÐ, HELDUR VERÐUR
UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. —
MACRO UNSA 8xZOOM - SJÁLFVIRKUR
FOCUS — MYNDLEITUN í BÁÐAR ÁTTIR —
SJÁLFVIRK UÓSSTÝRING — VINDHUÓÐNEMI
— FADER — RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKI/MILLI-
STYKKI o.n. - VEGUR AÐEINS 1.1 KG.
SUMARTILBOÐ, KR. 79.844,- stgr.
Rétt verð, KR. 99.950,- stgr.
QB Afborgunarskilmálar (g)
VÖNDUÐ VERSLUN
HUÓMCO,
„í mikilli umferð þarf
að sýna sérstaka var-
kárni og aðgæslu.“
ferð eins og kostur er til að reyna
að halda málum í því horfi sem
reiknað er með.
Öflug löggæsla er nauðsynleg,
um það eru allir sammála, ekki síst
á sviði umferðarmála. Æskilegasta
staðan í þessum málum er þó sú,
að ekki þurfi að koma til aðgerða
lögreglu en þar kemur að borgaran-
um. Þar kemur að samvinnunni,
umgengnisháttum hvers og eins,
kurteisi og tillitssemi og ekki síst
sjálfsgagnrýni. Ef þessir þættir í
fari manna eru fyrir hendi, þá þarf
raunar ekki að örvænta um fram-
gang mála. Þetta er e.t.v. of mikil
óskhyggja og ekki raunhæft að
bera hana fram, þó held ég að þrátt
fyrir allt, þá sé þetta ekki einungis
óskhyggja, sem betur fer.
Eins og áður sagði mun lögreglan
í Reykjavík auka umferðareftirlit
eftir mætti og nota til þess bifreið-
ir og bifhjól á þeim umferðaræðum
sem mest mæðir á. Undanfarin ár
hefur lögreglan einnig notið góðrar
samvinnu við Landhelgisgæsluna
vegna notkunar þyrlu við umferðar-
eftirlit, bæði í byggð og utan. Þetta
eftirlit hefur gefið mjög góða raun
og standa vonir til að þessi háttur
verði hafður á nú í ár sem undanfar-
in ár.
Að endingu vil ég leyfa mér að
skora á alla vegfarendur, hvar sem
þeir verða, á hverskonar farartæki
sem þeir eru, unga sem aldna, að
hafa það efst í huga að valda ekki
sjálfum sér eða öðrum tjóni eða
sársauka. Þetta er í sjálfu sér ekki
háleitt takmark, þetta er sjálfsagð-
ur hlutur, hveijum og einum nauð-
synlegur.
Ég óska öllum vegfarendum
góðrar ferðar, ánægjulegrar dvalar
á áningarstöðum og góðrar heim-
komu.
Höfundur er
aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Arnþór Ingólfsson
LAU6ARDAGSRISAR0KK
Vegna gífurlegrar eftirspurnar eftir midum á risarokkið í Reiðhöllinni
föstudaginn 7. september hefur verið bætt við öðrum hljómleikum kvöldið eftir.
CöhiTesNAlse
Föstudaginn 7. september ogLAUGARDAGiNN 8. SEPTEMBER
MIÐAVERÐ kr. 3500,-
Forsala aðgöngumida
Reykjavík: Skífan, Kringlunni og Laugavegi 33; Hljóðfærahús Reykjavíkur, Laugavegi 96; Steinar, Austurstræti, Álfabakka 14,
Glæsibæ, Laugavegi 24, Rauðarárstíg 16 og Eiðistorgi; Myndbandaleigur Steina; Plötubúðin Laugavegi 20. Hafnarfförðun Steinar,
Strandgötu 37. Akranes: Bókaskemman. Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga. ísafjörðun Hljómborg. Sauöárkrókur: Kaupfólag Skag-
firðinga. Akureyri: KEA. Neskaupstaður: Tónspil. Höfn: KASK. Vestmannaeyjar: Adam og Eva. Selfoss: Ösp. Keflavík: Hljómval.
Einnig er hægt að panta aðgöngumiða í síma 91 - 667556. Þeirsem hringdu í síðustu viku og hafa enn ekki fengið
sendan gíróseðil eru beðnir að hafa samband strax. Töfin stafar af of miklu álagi á símsvara.
Munið: Fiugleiðir veita 35% afslátt af verði flugferða gegn framvísun aðgöngumiða að risarokktónieikunum.
Beint þotuflug til Akureyrar nóttina eftir risarokkið
Valdið ekkí tjóni eða sársauka