Morgunblaðið - 03.08.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990
37
Siðgæði hefur hrakað
hjá okkar fámennu þjóð
Til Velvakanda.
Mörgum kemur úrskurður í
frægu Hafskipsmáli spánskt fyrir
sjónir, þegar vel er að gáð. Álitið
er að ákæruvaldið og sérstaklega
Sakadómur Reykjavíkur hafi sett
niður við afgreiðslu málsins. Ekki
þannig, að dómar hafí verið óþarf-
lega harðir, því svona mál geta
verið vandasöm og snúin, þar sem
takmarkað fjármálalegt siðgæði
er við lýði.
Manni blöskrar, hve siðgæði í
mannlegum samskiptum hefur
raunverulega hrakað hjá okkar
fámennu þjóð að undanfömu og
„eftir höfðinu dansa limirnir“.
Út af Hafskipsmáli verður til
11 þúsund blaðsíðna „rit“ um flók-
ið og margbrotið efni. Margir virð-
ast Tiafa gert sér mat úr þessu
máli, þótt moldviðrið í kring um
það hafi verið nóg fyrir.
En varla þarf hálærða lögfræð-
inga til að komast að raun um, að
í þessu riti um margskonar pretti,
falsaðar upplýsingar og allskonar
svindl af ýmsu tagi, geti Sakadóm-
ur Reykjavíkur svo til afmáð slíkt
athæfi með úrskurðinum: þú ert
stikkfrí og ftjáls, þótt þú hafir
svindlað svolítið.
Þá fara menn að hugsa: sá
sleppur best, sem svindlar mest.
Skyldi það annars vera siður hjá
opinberum stofnunum þegar upp
koma flókin eða erfið mál, að þeim
sé bara ýtt til hliðar, sett í rusla-
kistuna?
„Sjaldan er ein báran stök.“
S.E. Elíasson
Þesslr hringdu . . .
Gott framtak að hætta við
opnunargjald
Karl hringdi:
„Mér fínnst það gott framtak
hjá Stöð 2 að hætta við opnunar-
gjaldið sem stóð til að inn-
heimta, enda var það hálf fárán-
legt.“
Til skammar að gefa
innfluttum dýrumlifandi
kanínur og kjúklinga
Kona hringdi:
„Það gekk alveg fram af mér
þegar ég horfði á frétt í sjónvarp-
inu þess efnis að hingað til lands
væri búið að flytja dýr sem éta
ættu lifandi kanínur og kjúkl-
inga. Hvar stendur íslensk þjóð-
menning eiginlega? Það er verið
að kenna í barnaskólum að fara
ekki illa með dýrin og svo birtist
þetta. Fyrir stuttu var mikið
rætt um hross sem fengu illa
meðferð og á sama tíma og
menningarþjóðir reyna að koma
lagi á sín dýraverndunarlög horf-
um við á þetta í fréttunum. Mér
er spurn hvar stöndum við og
hvert erum við að fara? Þarf
ekki að taka þetta ærlega til
endurskoðunar? Mér fínnst það
öllum til skammar að láta sér
detta í hug að framkvæma
þetta.“
Vantar heimili
Níu mánaða gamlan hvítan
kött vantar heimili. Upplýsingar
í síma 72247.
Svart veski tapaðist
Þrettán ára drengur tapaði
svörtu leðurlyklaveski á leiðinni
frá bensínstöðinni í Stóragerði í
Hólmgarð. í veskinu voru þrír
lyklar, peningar og ein mynd.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 51437 eða 689488.
Jóga samræmist ekki
kristinni trú og konur í
heimilishjálp fá alltof lág laun
Kona í Reykjavík hringdi:
„Það er þrennt sem mig langar
til að minnast á. Ég vil þakka
fyrir þá tilraun sem gerð er til
að stöðva það að böm fari ein
síns liðs í útilegur. Nú er komið
aldurstakmark óg vonandi að því
verði framfylgt. Þá langar mig
til að vara fólk við jóga. Hug-
myndafræði jóga samræmist
ekki kristinni trú. Þar er trúað á
endurholdgun sem stríðir á móti
kristinni trú og ætti fólk að vara
sig á þessu, þetta er ekkert ann-
að en sefjun og kukl.
Þá er það þriðja atriðið sem
ég vil minnast á og það er í sam-
bandi við eldri húsmæður sem
vinna líknarstörf í þágu heimilis-
hjálpar og eru á alltof lágum
launum. Þessar konur vinna mik-
ið þrekvirki og það þarf að gera
vel við þær. Eg vil taka fram að
ég hef aldrei starfað í heimilis-
hjálp en svo virðist sem enginn
meti það sem þær gera nema
þeir sem fá þjónustu þeirra no-
tið. Þessar konur era alveg í sér-
flokki að mínu mati og eru ekki
metnar að verðleikum. Þær vinna
af mikilli samvisku og gefa
gömlu og einmana fólki mikið
af sér. Það er vanvirða við þær
að borga þeim svo lág laun sem
raun ber vitni.“
Merkja ólæsta dagskrá
Olgeir Andrésson hringdi:
„Mig langar til að kvarta yfir
því að í dagskrárkynningu Stöðv-
ar 2 er ekki gefið til kynna
hvaða þættir eru ólæstir. Ég veit
að það eru nokkrir þættir sem
eru ólæstir, væri ekki hægt að
setja einhverja merkingu til að
hægt væri að sjá hvaða þættir
það eru. Mér finnst það sjálfsögð
þjónustu að merkja dagskrárlið-
ina þannig.“
Tapaði seðlaveski
Seðlaveski tapaðist hjá Næ-
furási 10-14 föstiidaginn 27. júlí
um kl. 22.30. Í veskinu voru
ýmis verðmæti og skírteini.
Fundarlaunum er heitið.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 52403.
Köttur í óskilum
Fressköttur, gulur með hvíta
bringu, er í óskilum í Víðigrund.
Eigandi getur hringt í síma
42599.
Kettlingur týndur
Kettlingur tapaðist frá
Hamrahlíð 1, jarðhæð, sl. laugar-
dag. Ef einhver hefur fundið
hann þá vinsamlegast hafíð sam-
band í síma 19827.
Kettlingar
Gráa kettlinga vantar gott
heimili. Upplýsingar í síma
50150.
REYKVIKINGAR!
Ásgeir Hannes Eiriksson,
þingmaður Borgaraflokksins og
fulltrúi Reykvíkinga í fjárveitinga-
nefnd Alþingis, verður á Kaffi-
Hress í Austurstræti í dag, föstu-
daginn 3. ágúst, kl. 12.00-14.00
Komið og spjallið við þingmann
Reykvíkinga.
fomhjólp
Dagskré Samhjélpar um
verslunarmannahelgina fyrir þé,
sem ekki komast í ferðalag:
Laugardagur 4. ágúst: Opið hús í Þríbúðum kl. 14-17.
Lítið inn og rabbið um lífið og tilveruna. Heitt kaffi á
könnunni. Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Kl.
15.30 tökum við lagið saman og syngjum kóra. Takið
með ykkur gesti. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Sunnudagur 5. ágúst: Samhjálparsamkoma í Þríbúðum
kl. 16.00. Fjölbreytt dagskrá með miklum söng. Vitnis-
burðir Samhjálparvina. Barnagæsla. Ræðumaður verð-
ur Óli Ágústsson.
Allir velkomnir í Þríbúðir, Félagsmiðstöð Samhjálpar,
Hverfisgötu 42 um helgina.
Samhjátp.
Sfón“"
SPENNANDI FERÐIR
í ágústmánuði gangast Skátasamband Reykjavíkur og
Bandalag íslenskra skáta í samvinnu við íþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkur fyrir ferðalögum unglinga á
aldrinum 13 til 17 ára.
Eftirtaldar ferðir verða í boði:
1. Reykjanesferð
Gengið frá Kleifarvatni, yfir Sveifluháls, Trölladyngju og
Keili. Gist við Arnarvatn en daginn eftir gengið niður á
Vigdísarvelli, þaðan í Krísuvík og endað í Hverahlíð.
Leiðsögn: Félagar úr Hjálparsveit skáta í Njarðvík.
Tími: Ferð A: 10. til 12. ágúst.
Ferð B: 17. til 19. ágúst.
2. Hengilssvæðið
Gengið frá neyðarskýlinu á Hellisheiði að Skarðsmýrar-
fjalli. Gist í skátaskálum. Gengið frá Skarðsmýrarfjali
um Fremstadal og Kattartjarnir niður á Úlfljótsvatn.
Leiðsögn: Páll Sigurðsson.
Tími: Ferð A: 17. til 19. ágúst.
Ferð B: 24. til 26. ágúst.
3. Hvalfjörður - Þingvellir
Gengið frá Botni í Hvalfirði til Þingvalla um Leggjar-
brjót. Gist í tjöldum á leiðinni.
Tími: 24. til 26. ágúst.
Fyrir hvert námskeið verður haldið undirbúningskvöld
fyrir þátttakendur. Þau verða á miðvikudegi fyrir ferð.
Þar verða kennd grunnatriði í ferðamennsku.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 91-15483 og
91-23190.
BÍLAGALLERÍ
Opið virka daga frá kl. 9-18.
Laugardaga frá kl. 10-16.
Nissan Sunny SLX 4md, '87.
Rauður, S glra, vökvastýri.
Ek. 46.000 km. G6Ö k]ör.
Verö 720.000.
Lada Sport ’90. Hvitur, S gira,
léttstýri, útv/segulfo. Ek.
5.000 km. BHI sem nýr.
Verö 710.000, sklptl mögul.
Dodge Aries LE '87. Dökk-
brúnn, sjálfsk., vðkvasL,
útv/segulb. Ek. 31.000 km.
Vel meö farinn btll.
Verð 720.000.
Mazda 323 ’82, 1,3. Liðs-
grænn, 4 glra, útv., '91 skoð-
un. Ek. 72.000 km.
Verð 230.000.
Volvo 480 ES. Svartur, 5 gira,
vökvastýri, útv/segulb.,
rafdr. rúður, ðlfelgur, ieður-
ssatl. Ek. 21.000 km. Bill sem
nýr. Verð 1.280.000.
Dalhatsu Cuore '90. Hvitur, 6
gíra. Ek. 1.000 km.
Verð 565.000.
Volvo 440 GLT ’89. Silfurgrár,
5 gíra, vökvast., útv/segulb.,
ABS-bremsur, álfelgur ofl. Ek.
17.000 km. Verð 1.260.000.
Toyota Tercel 4wd '84. Sllfur-
grár, 5 gíra, útv/segulb., sðl-
lúga. Ek. 80.000 km. Val m.
fartnn blll. Verð 470.000.
Ford Fiesta '85. Rauður, 4
glra, útv/segulb. Ek. 82.000
km. Verð 290.000.
Fjöldi annarra notaðra úrvals
bila á staðnum og á skrá.
Brimborg hf,
Faxafeni 8, s. (91) 685870.