Morgunblaðið - 12.08.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.08.1990, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/IIMIMLEIMT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1990 Barinn í höfuð með brotínni flösku MAÐUR var barinn í höfuðið með brotinni flösku fyrir utan Hótel ísland laust eftir klukkan þrjú í fyrrinótt. Hann var fluttur til aðgerðar á slysadeild og þurfti að sauma um 40 spor í höfuð honum. * Arásarmaðurinn var handtek- inn og gisti fangageymslur lögreglu. Þá voru tveir menn fluttir á slysadeild eftir hörð átök í Hafnar- stræti um klukkan hálfsex í gær- morgun. Annar var skaddaður í andliti, hinn hafði hlotið högg á hnakka. Tveir menn sem veitt höfðu áverkana voru færðir í fangageymslur lögreglu. Lögreglan átti annríkt aðfara- nótt laugardagsins vegna ýmis konar ölvunaróláta. Þrír ökumenn voru grunaðir um ölvun við akst- ur. Það þykir lítið áðfaranótt laug- ardags en bendir til þess, að sögn lögregluvarðstjóra, að lögreglan hafi átt svo annríkt við að sinna útköllum að minni tími en ella hafi gefist til eftirlits með umferð- inni. íslenska óperan: Hafa fengið stuðning langt umfram flárlög - segir menntamálaráðherra „RÍKIÐ hefur á þessu ári veitt íslensku óperunni Qárstyrk langt umfram Qárlög, bara í júnímánuði síðastliðnum 3 milljónir króna. Framtíðarmál óperunnar eru og hafa verið í athugun en ég hef ekkert orðið var við þá óperumenn undanfarnar vikur fyrr en ég sá viðtal við Garðar Cortes í Morgunblaðinu í dag,“ sagði Svavar Gestsson menntamálaráðherra jþegar hann var í gær inntur eftir hvort ríkisvaldið hygðist veita Islensku óperunni aukinn Qárstyrk vegna rekstrarerfiðleika stofnunarinnar. Ráðherra sagði að engin stefna hefði verið mörkuð um til hvaða aðgerða yrði gripið. „Ég hef óskað eftir því að unnið verði að þessu af krafti,“ sagði ráðherrann. Hann sagði engin tímamörk hafa verið sett hvenær niðurstaða ætti að liggja fyrir. „En ég vil árétta það að á tímum þegar um ekki eru veittar neinar aukafjárveiting- ar hefur ríkið veitt óperunni óvenjumikinn stuðning, sennilega þann hæsta sem um er að ræða á þessu ári á vegum menntamála- ráðuneytisins til eins aðila,“ sagði ?áðherra. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Hildur Harðardóttir, Halldór Björnsson, Anna Sigríður Einarsdóttir, Hrafn Harðarson og Hulda Harðardóttir eru þar sem áður var moldar flag en er nú að gróa upp vegna ræktunarstarfs þeirra. Vogastapi: Gróðursett í moldarflög Vogum. ÁHUGAFÓLK um gróðurrækt hefur á síðastliðnum sex árum farið með tijáafklippur, torf sem kemur við kantskurð, blóm og annan gróður sem fjarlægður er úr görðum og gróðursett sunnan til á Grímshól á Vogastapa. Mikill árangur hefur orðið af gróðursetningunni. Tré eru farin að vaxa og blóm að blómstra þar sem áður voru moldarflög og rofabörð eru farin að gróa. Frumkvöðull að gróðursetn- ingu á þessum stað er Hildur Harðardóttir frá Keflavík. „Ég ákvað að slá til fyrir sex árum og prófa þetta. Éf árangurinn yrði 20% héldi ég áfram en raun- in varð sú að árangurinn varð 80-90%,“ sagði hún. Frá því að Hildur hófst handa fyrir sex árum hafa fleiri bæst í hópinn, alls 15 manns. Hildur sagði mikilvægt að engu sé hent og Hrafn Harðar- son sagði landið nógu stórt til að taka við öllu sem til félli við garðvinnuna, svo engu þyrfti að kasta á glæ. EG Þriðja olíukreppan blasir víð: Þær fyrri ollu óðaverðbólgu og nær útrýmdu fýringunni NÚ GÆTI farið svo, að íslendingar og aðrar þjóðir neyðist til að riQa upp lærdóm frá áttunda áratugnum um það, hvernig hægt sé að spara olíu, eftir tiltölulega lágt olíuverð undanfarin misseri. Ástandið á olíumörkuðum eftir innrás Iraka í Kúvæt er óljóst, en þriðja olíukreppan síðan 1973 er ekki ólíkleg. Þegar fyrri olíukreppur gengu ylír, 1973 og 1979, urðu áhrifin hér á landi margvísleg, meðal annars var hægt að draga úr notkun olíu um miðjaii áttunda áratuginn, verðbólgan þaut upp og í kjöl- far síðari kreppunnar voru gerðar tilraunir til að beina olíuvið- skiptunum frá Sovétríkjunum. Tunnan af hráolíu kostaði 2,8 dollara á heimsmarkaði árið 1973. Þá skall á stríð milli ísraels og arabarikja um haustið. Meðal- verð næsta árs, 1974, varð 10 dollarar. Síðan lækkaði það og varð 8,9 dollarar 1978. Þá urðu enn miklir at- burðir í araba- heiminum, þar sem helstu olíulindir jarð- arinnar eru, bylting var • gerð i íran 1979 og olíuverðið fór upp í 20,6 dollara 1980 og hefur ekki síðan orðið hærra. Tölurnar eru á verðlagi ársins 1973, á verði hvers árs fór það hæst í 36 doll- ara 1980. íslendingar voru tiltölulega vel undir það búnir að bregðast við margföldun olíuverðs 1974, miðað við aðrar þjóðir, þegar til lengri tíma er litið, þar sem hækkunin gerði virkjun jarðhita til húsahit- unar skyndilega afar hagkvæma. Víða um land hafði hagkvæmni hitaveitu verið athuguð, en beðið með framkvæmdir þar sem olíu- kyndingin var ódýrari. Hækkun hvatti til hitaveituframkvæmda út um land og nágrannasveitarfé- lög Reykjavíkur sömdu við Hita- veitu Reykjavíkur um aðild og var hitaveita lögð i þau á skömmum tíma. í dag eru um 86% af öllu hús- næði í Iandinu hituð með jarð- varma, það hlutfall var um helmingur fyrir olíukreppuna 1973. Raf- magn hitar um 10% húsnæðis, þannig að olíufyringin vermir að- eins um 4% húsa í dag. Þessa þróun má kalla jákvæðar afleið- ingar olíukreppunnar, til þess að hita húsin á veitusvæði HR þyrfti 500 þúsund tonn af olíu á ári. Nú kostar veitan um tvo milljarða króna á ári, fyrir olíuna þyrfti að greiða 6-8 milljarða. En kreppan hafði einnig neikvæð áhrif. Verðbólga, sem mældist í eins stafs tölu 1971 þegar Viðreisnar- stjórnin fór frá, hafði aukist um- talsvert fyrstu tvö ár vinstri stjórnarinnar og við olíukreppuna margfaldaðist hún enn frekar og BAKSVIÐ eflir Þórhall Jósepsson olíunnar varð til áð rikisvaldið ' hefur (fkkí vériö' hamln síðári. nema ef vera skyldi í vor og sum- ar. Eldsneytiskostnaður farar- tækja hækkaði og kom ekki síst niður á útgerðinni. „Þetta var al- veg skelfilegt, olíuverðið þrefal- daðist," segir Kristján Ragnars- son, formaður LÍU. Útgerðar- menn, sem það gátu, brugðust við með því að skipta yfir í svartolíu, sem var og er ódýrari en gasolía. í kreppunni 1979 fóru menn að nota olíueyðslumæla og spöruðu olíu með því að keyra vélarnar ekki á fullum afköstum, en þrátt fyrir þetta hækkaði olíukostnað- urinn umtalsvert. Árið 1979 reyndu stjórnvöld að fínna leiðir til að bregðast við og minnka skaðann. Talsvert var í húfi og er enn. í fyrra var flutt til landsins olía fýrir um 6,9 millj- arða króna og hækki verð að jafn- aði um þriðjung, svo dæmi sé tek- ið, kostar það þjóðarbúið rúmlega tvo milljarða króna. Þá var komið á fót ólíukaupanefnd sem skyldi meðal annars kanna hagkvæmari olíukaup. Hún kannaði marga möguleika, eins og að kaupa olíu frá Nígeríu og láta vinna hana í Portúgal, greiða hvorum tveggju fyrir með fiski. Þetta reyndist óhagkvæmt. Þá hófst mikil gagn- rýni á viðskiptin við Sovétríkin, en olíukaup af þeim eru bundin milliríkjasamningum um gagn- kvæm viðskipti. Ákveðið var að semja um olíukaup í Bretlandi á föstu verði, en Sovétviðskiptin voru bundin við Rotterdamverð, og var samið um kaup á sex olíu- foririúm. Þéir reyndúsf dýrari en Rússaolían á Rotterdamverðinu og varð ekki af frekari kaupum. Talsmenn Sovétviðskiptanna sögðu þá að þessir samningar við Bretana sýndu að Rússaolían væri hagkvæmari kostur, en tals- menn þess að kaupa olíu af öðrum þjóðum töldu íslensku samninga- mennina ekki hafa leitast við að ná hágkvæmustu samningum við Breta, því væri samanburðurinn óraunhæfur. Nú blasir þriðja olíukreppan við og ýtir undir umræður, sem hafa um skeið staðið um olíúviðskiptin. „Það þarf alltaf eitthvað til, að menn vilji endurmeta stöðu sem er búin að vera eins í fjörutíu ár. Ég tel að við hljótum _að endur- skoða þetta mál núna. Ég hef trú á því að sambönd olíufélaganna við vestræn olíufélög byggist á það góðum grunni að við getum það,“ segir Kristján Ragnarsson. „Aðalatriðið finnst mér að við eig- um að hafa frjálst verð á olíu, láta það byggjast upp á sam- keppni og láta hvern og einn bera ábyrgð á því sem hann gerir í þessu sem öðru.“ Og um Sovétvið- skiptin segir Kristján: „Við eigum að selja þeim síld vegna þess að þeir vilji kaupa síld, en ekki vegna þess að við kaupum af þeim olíu. Ég held að þeir geti selt sína olíu hvar sem er og hvenær sem er, og viðskiptin með síldina byggist á því að þeir vilji kaupa hana og menn þurfi ekki að vera að binda þetta.“ Umhverfísvernd: Stuttmynd um gróður- eyðingu og landgræðslu UPPTÖKUR á fimmtán mínútna langri stuttmynd um gróðureyð- ingu og landgræðslu heíjast um helgina. Námsgagnastofnun stendur að gerð myndarinnar en hún er hluti af samstarfs- verkefni tíu þjóða sem eiga að- ild að alþjóðlegum samtökum á sviði menntamála. Myndin er ætluð sem kennsluefni fyrir 9-14 ára grunnskólanemendur. Að sögn Karls Jeppesen hjá Námsgagnastofnun er myndin hluti af myndaflokki sem tíu þjóðir í International Council for Educat- ional Media-samtökunum (ICEM) hafa gert samning um að framleiða sem kennsluefni fyrir grunnskóla- nemendur. Hver þjóð gerir eina mynd um efni sem efst er á baugi í því landi en myndunum verður síðan dreift til þeirra þjóða sem þátt taka í samstarfinu. Yfirstjórn myndaflokksins er í Kanada. Iðunn Steinsdóttir hefur, í sam- vinnu við Valdimar Leifsson, samið handrit að íslensku myndinni sem Ú'allar um gróðureyðingu og land- græðslu. í myndinni leikur hópur íslenskra barna en einnig koma nokkrir fullorðnir við sögu. Mynd- bær sér um tæknilega hlið verks- ins. Stefnt er að því að frumsýna myndina áx norrænni umhverfis- verndarráðstefnu sem haldin verð- ur hér á landi næsta vor en reikn- að er með að allur myndaflokkur- inn verði tilbúinn til sýningar á fundLICEM .að ári. Flok|qirinn pri viðamesta verkefni samtakanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.